Morgunblaðið - 22.09.1993, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
Stórlúða kom á færi við Bolungarvík
Náðist ekki innbyrð-
is þó aðstoð bærist
Bolungarvík.
GUÐMUNDUR Halldórsson á Tóta, þriggja tonna plastbáti frá Bol-
ungarvík fékk væna lúðu á handfæri um þijár mílur út af Horni
nú fyrir stuttu. Lúðan mældist 2,40 metrar að lengd, ekki er vitað
um nákvæma vikt en ætla má að ferlíkið gæti vegið 150 til 200 kg.
Guðmundur sagði að hann hefði
strax áttað sig á því að hann hefði
sett í lúðu en brá nokkuð er ferlík-
ið kom upp á yfirborðið og blasti
við, en Guðmundur er ýmsu vanur,
sjómaður af lífi og sál.
Guðmundur kvaðst strax hafa
sett fast og kallaði síðan í Birgi
Hermannsson á Hermóði frá Ögur-
vík. Birgir sem er frægt heljar-
menni og mikill af burðum kom
þegar til aðstoðar og glímdu þeir
við það nokkra stund að innbyrða
skepnuna, en ekki gekk.
Var þá gert að lúðunni við borð-
stokkinn og hún síðan kyrfilega
tjóðruð við bátinn þar sem hún
hékk það sem eftir var degi, meðan
Guðmundur hélt áfram veiðum, en
um kvöldið var siglt inn á Homvík
þar sem vélbáturinn Byr frá Bol-
ungarvík var fyrir og var lúðan
tekin um borð í hann.
Seldist á 57 þúsund krónur
Byr, sem er 10 lestir að stærð,
er búinn vökvaspili en það gaf sig
f átökunum við lúðuna og var hún
á endanum dregin inn fyrir borð-
stokkinn af fjórum vöskum sjó-
mönnum. Byr sigldi síðan í land
með sprökuna en Guðmundur hélt
áfram veiðum og kom ekki í land
fyrr en sólarhring á eftir lúðunni.
Lúðuflykkið seldist á 57 þúsund
krónur og hefur þetta verið mikill
happadráttur hjá Guðmundi.
Gunnar.
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
2,4 metra stórlúða
SKIPVERJAR á Byr hífa á land
lúðuna vænu sem Guðmundur
Halldórsson á Tóta frá Bolung-
arvík fékk á handfæri um þrjár
milur út af Homi.
VEÐUR
VEÐURHORFUR IDAG, 22. SEPTEMBER
YFIRLIT; Milli Islands og Noregs er 1000 mb lægð sem þokast norðaust-
ur en yfir Austur-Graenlandi er 1022 mb hæð. Skammt suðaustur af
Hvarfi er vaxandi lægð sem hreyfist norðaustur.'( nótt verður fremur kalt
í veðri en ámorgun hlýnar, fyrst suðvestanlands.
SPÁ: Suðaustan hvassviðri og rigning vestast á landinu, en annars mun
hægari suðlæg átt og þurrt. Óveðrið færist síðan austur yfir landið.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG: Fremur hæg suðlæg átt og súld eða rigning
víða um land. Hiti 6-12 stig.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Suðvestanátt, sums staðar strekkingsvindur.
Líklega bjart veður á Norðaustur- og Austurlandi en skúrir í öðrum lands-
hlutum. Heldur kólnandi.
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og skúrir víöa um land.
Hiti 3-8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 18.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 890600.
•D
▼
Heiðskírt
/ / /
/ /
/ / /
Rigning
á
Léttskýjað
* / *
* /
/ * /
Slydda
D
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
á
Skýjað
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
Súld
Þoka
V
stig-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 f gær)
Þjóðvegir iandsins eru flestir í góðu ásigkomuiagi og greiðfærir. Víða
er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að haga akstri sam-
kvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færirfjallabílum, Gæsavatnale-
ið fær til austur frá Sprengisandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavlk
hití veður
7 alskýjað
11 léttskýjað
Bergen 12 rigning
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn 14 skýjað
Narssarssuaq 10 rigning
Nuuk 6 rigning
Osló 8 rígning
Stokkhólmur vantar
Þórshöfn 10 rigning
Algarve 26 hálfskýjað
Amsterdam 18 skýjað
Barcelona 24 hálfskýjað
Berlín 22 skýjað
Chicago 15 þokumóða
Feneyjar 23 þokumóða
Frankfurt 23 ekúrásið.kle.
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 22 skýjað
London 18 skúrásið.kls.
LosAngeles 18 alskýjað
Lúxemborg 19 skýjað
Madrid 22 skýjað
Malaga 23 léttskýjað
Mallorca 28 hálfskýjað
Montreal 7 skýjað
NewYork 12 rigning
Orfando 24 léttskýjað
París 20 skýjað
Madeira 23 skýjað
Róm 29 léttskýjað
Vín 21 léttskýjað
Washington 17 alskýjað
Winnipeg 8 skýjað
/ f
/ /
/ /
/ /
/ /
/ /
f /
/ / / /
íDAG kl. 12.00
Heimitd: Veöurstofa ístands
(Byggt á veðurspó kl 16.15 f gær)
Stefna Hagkaups í skinkumáli birt 1 dag
Farið framá 1,5
millj. kr. í bætur
STEFNA forráðamanna Hagkaups á hendur stjórnvöldum vegna
viðbragða við innflutningi fyrirtækisins á danskri skinku og
hamborgarhryggjum verður birt í dag. Farið er fram á um eina
og hálfa milljón króna í skaðabætur. Samkvæmt heimUdum
Morgunblaðsins verður farið fram á flýtimeðferð í málinu og
gæti niðurstaða þess því orðið ljós fyrir jól.
„Um er að ræða skaðabótakröfu
á hendur ríkissjóði fyrir það tjón
sem Hagkaup hefur orðið fyrir af
þessum sökum. Af þeirri kröfu leið-
ir þá að það kemur niðurstaða um
það hvort aðgerðir ríkisvaldsins
hafi verið óheimilar eða ekki,“ sagði
Óskar Magnússon, lögmaður Hag-
kaups, um efni stefnunnar.
Gefíð fremur en eyðilagt
Umrætt kjöt er enn í tolli en síð-
asti söludagur skinkunnar var á
mánudag. Frestur til að selja ham-
borgarhryggina rennur hins vegar
ekki út fyrr en 2. október.
Óskar sagði að meðal þeirra hug-
mynda sem komið hefðu þótt til
greina frekar en að yfirvöld eyði-
legðu kjötið væri að gefa það bág-
stöddum. „Ég tala nú ekki um ef
það væri hægt að taka þessa ham-
borgarhryggi og frysta þá til jól-
anna og dreifa þeim þá. Þá verður
kjötið ennþá herramannsmatur,"
sagði Óskar m.a. en ekki hefur
formlega verið farið fram á að þessi
leið verði farin.
Samtök um vestræna samvinnu
Helmut Schmidt
heldur fyrirlestur
DR. HELMUT Schmidt, fyrrum kanslari Vestur-Þýskalands, flytur
laugardaginn 25. september nk. erindi á hádegisverðarfundi Sam-
taka um vestræna samvinnu (SVS), Varðbergs og Germaníu í Súlna-
sal Hótels Sögu.
í fréttatilkynningu segir: „Það
er vægast sagt mikill fengur fyrir
félögin að fá dr. Helmut Schmidt í
heimsókn til íslands, til þess að
flytja erindi um efnahags- og
stjórnmálaástand Evrópu. Hann er
í hópi fremstu sérfræðinga á þessu
sviði og mjög eftirsóttur fyrirlesari
um allan heim.
Dr. Schmidt hefur um langt ára-
bil verið einn af leiðandi stjórnmála-
mönnum Vesturlanda og ötull tals-
maður öryggis, frelsis og lýðræðis
í stjómmálum. Óhætt er að full-
yrða, að dr. Schmidt er einn af ris-
unum í þýskri pólitík eftirstríðs-
áranna. Meðan hann var kanslari
kom hann m.a. í opinbera heimsókn
til íslands, sem enn er í minnum
höfð.
Dr. Schmidt er fæddur í Ham-
borg árið 1918. í seinni heimsstyij-
öldinni, þegar hann var enn í skóla,
var hann kallaður í opinberan
vinnuflokk stjómvalda og síðar
fluttur yfir í herinn. Hann sat sem
stríðsfangi í fangabúðum Breta frá
apríl til ágúst 1945. í stríðslok hóf
hann hagfræðinám við háskólann í
Hamborg og gekk í flokk jafnaðar-
manna (SPD) árið 1946.
Á ámnum 1949 til 1953 var
hann yfirmaður efnahagsmála í
borgarstjórn Hamborgar. Að þeim
tíma loknum tók hann sæti á þingi
(Bundestag) fram til 1961 og aftur
1965-67. Dr. Schmidt sat í aðal-
stjórn SPD 1958-83 og var þing-
flokksformaður 1967-69. Árin
1968-84 var hann varaformaður
SPD.
Dr. Schmidt varð fýrst ráðherra
varnarmála 1969 og gegndi því
fram til 1972. Þá varð hann efna-
hags- og fjármálaráðherra, en lét
af því starfi 1974, er hann varð
kanslari V-Þýskalands.
Dr. Schmidt lét af kanslaraemb-
ætti 1982. Ári síðar tók hann við
starfi útgefanda hins virta viku-
blaðs Die Zeit í Hamborg. Gegnir
hann því starfi enn, auk þess sem
hann ferðast mikið um heiminn
vegna fyrirlestra-
halds. Hann hefur
gefið út fjölda
bóka, oft samhliða
á þýsku og ensku,
en meðal þeirra
eru: Verteidigung
oder Vergelt-
ung/Defence or
Retaliation (1962)
Strategie des Ge-
leichgewichts/The Balance of Pow-
er (1971) og Eine Strategie fúr den
Westen/A Grand Straegy for the
West (1985).
Dr. Helmut Schmidt hefur hlotn-
ast fjöldi viðurkenninga fyrir störf
sín og er heiðursdoktor við marga
frægustu háskóla Vesturlanda. Eig-
inkona hans er Hannelore Glaser.
Þau giftust árið 1942 og eiga eina
dóttur.
Fundurinn er opinn félagsmönn-
um SVS, Varðbergs og Germaníu
og öllum þeim er áhuga hafa á
þróun efnahags- og stjómmála í
Evrópu. Salurinn verður opnaður
kl. 12.00 og aðgangseyrir með há-
degisverði er krónur 2.000. Náms-
menn greiða kr. 1.100 gegn fram-
vísun skólaskírteinis.
----♦ ♦ ♦----
Vitorðs-
maður í
varðhald
29 ára gamall maður hefur verið
úrskurðaður í gæsluvarðhald í 7
daga að kröfu fíkniefnalögreglu.
Maðurinn er sambýlismaður 35
ára konu sem var handtekin á Kefla-
víkurflugvelli á sunnudag með 2 kg.
af hassi límd við líkama sinn.
Bæði hafa játað að eiga aðild að
málinu. Samkvæmt upplýsingum
flkniefnalögreglu ber fólkið að það
hafi sjálft átt fíkniefnin.
Helmut Schmidt
Kjarvalssýning- - leiðrétting
Leið mistök urðu við birtingu
fréttar um opnun Kjarvalssýningar
í París í blaðinu sl. föstudag. Þar
var talið upp fólk, sem ekki var
viðstatt opnun sýningarinnar, held-
ur átti þátt í undirbúningi hennar.
Viðstödd opnunina voru Sveinn
Bjömsson frá sendiráði íslands í
París, fulltrúi ríkisins, og þau Hulda
Valtysdóttir formaður menningar-
málanefndar Reykjavíkur og Gunn-
ar Kvaran forstöðumaður Lista-
safns Reykjavíkur, sem vora full-
trúar Reykjavíkurborgar. Morgun-
blaðið biðst velvirðingar á þessum
mistökum.