Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
21
Friðarsamningar í
Bosníu á næsta leiti?
Múslimar segjast fá aðgang að sjó en endurheimta ekki landsvæði
Zagreb, Sarajevo, Moskvu. Reuter.
FRIÐARSAMNINGAR í Bosníu hafa aldrei verið jafn nærri og nú,
að sögn Thorvalds Stoltenbergs, sáttasemjara Sameihuðu þjóðanna, í
gær. Samningaviðræður múslima, Króata og Serba fóru fram á bresku
herskipi á Adríahafi á mánudag. Haft var eftir Bosníumönnum að
meðal annars hefði verið samið um aðgang þeirra að sjó, sem hefur
verið ein aðalkrafa múslima. Alý'a Izetbegovic, forseti Bosniu, lýsti
því hins vegar yfir í gær að hann gæti ekki mælt með að samningur-
inn yrði samþykktur, þar sem enn hefði ekki verið samið um endur-
heimtingu Iandsvæða múslima.
Stoltenberg sagði í gær að andinn góða von um að styijöldinni, sem
í viðræðum aðilanna þriggja gæfi staðið hefur í 17 mánuði, væri að
ljúka. Izetbegovic ætlar að bera
samninginn undir þing Bosníu á
mánudag.
Momir Bulatovic, forseti Svart-
fjallalands, sem tók þátt í friðarum-
ræðunum, sagði í gær að múslimar
væru ekki reiðubúnir að samþykkja
skilmálana en raunhæft væri að
áætla að þeir gerðu það innan
tveggja vikna. Serbar og Króatar
höfðu enn ekki tjáð sig um samn-
ingaviðræðurnar.
Shas-flokkurinn hótar að segja sig úr sljórn
Ríkissljórn Rab-
ins stendur tæpt
Arababandalagið segir samningana
við fyrsta skrefið í átt til friðar
Jerúsalem, Kaíró, Baghdad. Reuter.
HARÐAR deilur voru á ísraelska þinginu í gær um friðarsamning
ísraela og Frelsissamtaka Palestínu, PLO, er Yitzhak Rabin, forsæt-
isráðherra, óskaði staðfesingar þingsins á samningnum og stefnu
sinnar í friðarumleitunum. Krafðist Benjamin Netanyahu, formaður
Likud-flokksins, þess að boðað yrði til kosninga. Þingmeirihluti
sljórnar Rabins stendur tæpt eftir að samstarfsflokkur hans, Shas,
hótaði að segja sig úr stjórninni ef samningurinn yrði ekki borinn
undir þjóðaratkvæði innan hálfs árs.
Málamiðlun um GATT
í EB til að friða Frakka
Bretar hótuðu að „lama“ EB beittu Frakkar neitunarvaldi
Brussel, París, London. Reuter, The Daily Telegraph.
MÁLAMIÐLUN hefur tekist innan Evrópubandalagsins um afstöðuna
til landbúnaðarkafla GATT-viðræðnanna og segjast Frakkar, sem allt
hefur strandað á, hafa fengið sínu framgengt. Samkomulagið er þó
heldur óljóst orðað og virðist aðallega felast í því, að Sir Leon Britt-
an, sem fer með landbúnaðarmál í framkvæmdasljórn EB, verði send-
ur til óljósra viðræðna við Bandaríkjamenn um landbúnaðarmálin,
Blair House-samkomulagið svokallaða. Á fundi utanríkis-, landbúnað-
ar- og viðskiptaráðherra EB í Brussel í gær hótuðu Bretar að Iama
bandalagið og sniðganga Brussel létu Frakkar verða af því að beita
neitunarvaldi gegn GATT-samningunum.
í málamiðluninni er hvatt til
áframhaldandi viðræðna við Banda-
ríkjamenn og áhersla er lögð á nauð-
syn þess, að EB-ríkin haldi stöðu
sinni sem matvælaútflytjandi. Ekki
er samt lagt til, að Blair House-sam-
komlagið við Bandaríkjamenn verði
stokkað upp og. fögnuðu því margir,
til dæmis Gúnter Rexrodt, efnahags-
málaráðherra Þýskalands. Willy Cla-
es, utanríkisráðherra Belgíu, sagði
líka, að mikilvægt væri, að ríki, sem
hefðu haldið að sér höndum vegna
ágreiningsins í EB, yrðu nú að leggja
spilin á borðið svo unnt væri að ljúka
við GATT-samningana.
Hótanir Breta
Frönsku stjórninni, sem liggur
undir miklum þrýstingi frá bændum,
er augljóslega umhugað um að finna
einhveija leið út úr kiípunni og fagn-
ar málamiðlunarsamkomuiaginu á
Brússel-fundinum sem miklum sigri.
í yfirlýsingu Edouards Balladurs
forsætisráðherra var Belgíumönnum
og Þjóðveijum sérstaklega þakkað
gott samstarf í þessu máli en ekki
minnst á Breta. Það kemur heldur
ekki á óvart því að Douglas Hurd,
utanríkisráðherra Bretlands, hótaði
á mánudag að fara að dæmi Charles
de Gaulle 1965 og „lama“ EB létu
Frakkar verða af því að beita neitun-
arvaldi gegn GATT-samningunum.
Átti hann þá við, að Bretar tækju
ekki þátt í EB-starfinu en án þátt-
töku þeirra er ekki hægt að taka
neinar mikilvægar ákvarðanir.
Sir Leon Brittan lagði á það
áherslu í gær, að hann færi til Was-
hington með óbundnar hendur og
tilgangur fararinnar væri ekki sá
að bijóta upp Blair House-samkomu-
lagið. Franskir bændur fögnuðu í
gær samkomulaginu en kváðust
samt tortryggnir á framhaldið.
Sögðust þeir treysta lítt Sir Leon til
að reka erindi franskra bænda í
Washington.
Gangi Shas-flokkurinn úr ríkis-
stjórninni, en hann hefur sex þing-
menn, hefur stjórnin 61 atkvæði á
móti 59 í þinginu og þarf því að
leita stuðnings tveggja flokka
araba. Þeir hafa aldrei átt sæti í
ríkisstjórn ísraels. Búist er við að
atkvæði verði greidd í þinginu í
kvöld en þangað til má hver og einn
hinna 120 þingfulltrúa stíga í
pontu.
Arabaríkin 21, að írak frátöldu,
lýstu því yfir á mánudag að friðar-
samningur ísraela og Frelsissam-
taka Palestínumanna (PLO), væri
fyrsta skrefið í átt til friðar í Mið-
Austurlöndum. Sögðu þau nauðsyn-
legt að samningnum yrði fylgt eftir
með skjótum árangri í viðræðum
ísraela við. Sýrlendinga, Líbani og
Jórdani, tryggja þyrfti að ísraelar
drægju herlið sitt frá Gólanhæðum
og hernumdu landi í Líbanon og
Jórdaníu.
PLO-maður myrtur á Gaza
Háttsettur PLO-maður, Mo-
hammed Hashem Abu Shaadan, var
í gær myrtur á Gaza er hann lenti
í deilum við menn sem mótmæltu
samningnum við ísraela.
Hafez ai-Assad, forseti Sýrlands,
sagði í samtali við egypska dagblað-
ið al-Akhbar um helgina, að einung-
is ísrael hagnaðist á friðarsamn-
ingnum við PLO. Sagðist forsetinn
hvorki myndu vera með eða á móti
samningnum.
í gær vísaði dagblaðið Al-Baath,
málgagn Baath-flokksins í Sýr-
landi, á bug yfirlýsingum Rabins
þess efnis að Sýrlendingar stæðu
ekki heilshugar að friðarsamning-
um. Sögðu Sýrlendingar að „duldar
og ljósar hótanir" Israela hefðu
komist á nýtt stig.
Mikil vaxtalækkun japanska seðlabankans kom flestum á óvart
Stefnt gegn efnahagssamdrætti
Tókýó. Reuter.
MIKIL vaxtalækkun japanska seðlabankans í gær kom flestum á
óvart en þá lækkaði hann sína mikilvægustu vexti um 0,75 prósentu-
stig. Eru þeir nú 1,75% og hafa aldrei verið lægri. Vonast er til,
að lækkunin komi í veg fyrir frekari samdrátt í japönsku efnahagslífi.
Lækkunin var meiri en búist
hafði verið við en hún þrýstir mjög
á, að ríkisstjómin grípi til nauðsyn-
legra ráðstafana í íjármálum ríkis-
ins og dragi úr afar hagstæðum
viðskipta- og greiðslujöfnuði við
útlönd. Verða þau mál aðalumræðu-
efnið á fundi þeirra Morihiros Hos-,
okawa, forsætisráðherra Japans, og
Bills Clintons, forseta Bandaríkj-
anna, í New York síðar í mánuðin-
um.
Efnahagssérfræðingar segja, að
ástæðuna fyrir því hve vaxtalækk-
unin var mikil megi rekja til vís-
bendinga um, að japanskt efna-
hagslíf glími ekki aðeins við stöðn-
un, heldur beinan samdrátt. Tölur
frá öðrum ársfjórðungi benda til,
að þá hafi þjóðarframleiðsla í Japan
minnkað um 2% miðað við heilt ár.
Talið er, að vaxtalækkunin muni
auka eftirspurn á fasteignamarkaði
og halda aftur af gengishækkun
jensins en atvinnurekendur leggja
mikla áherslu á, að boðaðar tekju-
skattslækkanir komi strax til fram-
kvæmda.
t i i . Reuter
I herkvi
EDÚARD Shevardnadze, leiðtogi Georgíu, ræðir við særðan sljórnar-
hermann í Sukhumi í fyrradag. Abkhazar hafa umkringt Sukhumi
og gera harða hríð að borginni með stórskotaliði sínu en She-
vardnadze hyggst ekki yfirgefa hana.
Rússar innlimuðu héraðið 1864 og
voru um sama leyti að ijúka við að
leggja Georgíu undir sig, Abkhazia
var um hríð sjálfstjórnarhérað í Sov-
étríkjunum eftir byltingu bolsévikka
1917 en gert að sjálfstæðu iýðveldi
innan Georgíu 1931. Jósef Stalín,
sem sjálfur var Georgíumaður að
uppruna, lét fjölda Georgíumanna
setjast að í Abkhazíu.
Héraðið er hálent, hæstu tindarnir
eru um 4.000 metrar, láglendissvæð-
in við Svartahaf eru mjó en þar voru
einhveijar vinsælustu baðstrendur
Sovétríkjanna, margir af æðstu
flokksbroddum kommúnista áttu þar
sumarhús. Abkhazia er afar fijósöm,
úrkoma mikil og meðalhiti í janúar
er yfir frostmarki. Þar er ræktað
tóbak, te og sítrusávextir auk ýmiss
annars jarðargróðurs. Verðmætir
skógar eru þar einnig og allmiklar
kolanámur. Vatnsorka er geysimikil
og er stórt raforkuver í grennd við
Sukhumi.
Lítt tryggir þegnar
Sjálfstæðisbarátta Abkhaza hófst
á ný 1989, þá kom til átaka milli
Georgíumanna og Abkhaza í Suk-
humi og 14 manns féllu. Abkhazar
hafa lengi litið á Rússa sem vernd-
ara sinn gagnvart Georgíumönnum.
Er Gorbatsjov Sovétforseti lét fara
fram þjóðaratkvæðagreiðslu 1991
þar sem sovétmenn voru spurðir
hvort þeir vildu að Sovétríkin yrðu
áfram ein heild ákváðu stjórnvöld í
Tbilisi að hundsa kosningarnar. Á
hinn bóginn ákváðu Suður-Ossetar
og Abkhazar að taka þátt í kjörinu.
Nær allir íbúar Abkhazíu sem ekki
voru af georgískum stofni, þ.e. rúm-
lega helmingur íbúa héraðsins,
studdu Sovétríkin og sama varð uppi
á teningnum í Suður-Ossetíu.
Úrval
af haust
vorum
GARDEUR: DIVINA:
Dömubuxur Samstæðufatnaður
Pils Pils
Stakir jakkar Blússur
Bermudas Buxnapils Toppar
Samstæðufatnaður EmDee: Blússur
GEISSLER: Dragtir Peysur
Stakir jakkar KUNERT:
Ulpur Hágæðasokkabuxur
Kápur í úrvali, þykkan þunnar; margar gerðir
Opið daglega frá kl. 9-18,
laugardaga frá kl. 10-14.
Öduntu
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjarnarnesi.