Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
43
URSLIT
Handknattleikur
1. deild kvenna
Stjarnan - Ármann............21:18
Mörk Stjömunnar: Ragnheiður Stefensen
7, Guðný Gunnsteinsdóttir 4, Una Steins-
dóttir 3, Margrét Vilhjálmsdóttir 3, Drífa
Gunnarsdóttir 2, Herdís Sigurbergsdóttir 2.
Mörk Ármanns: Vesna Tomajek 11, Asta
Stefánsdóttir 2, Svanhildur Þorgilsdóttir 2,
María Ingimundardóttir 1, íris Ingvarsdótt-
ir 1, Elísabet Albertsdóttir 1.
BStjarnan harði 13:12 yfír í leikhléi en
sigur þeirra var aldrei í hættu þó munurinn
væri ekki mikill. Markverðir liðanna vörðu
vel, Nína varði til dæmis 19 skot í marki
Stjörnunar en markverðir Ármanns vörðu
meðal annars þijú vítaköst Stjörnustúlkna.
Körfuknattleikur
Reykjavíkurmótið
Meistaraflokkur karla:
KR - Valur...................84:94
Mirko Nikolic gerði 35 stig fyrir KR og
David Grissom 20. Franc Booker gerði 38
stig fyrir Val og Bergur Emilsson 16.
Meistaraflokkur kvenna:
ÍS-KR........................33:73
KR - Valur...................75:40
Knattspyrna
England
Deildarbikarkeppnin
fyrri leikir í 2. umferð:
Barnet- QPR...................1:2
Bamsley - Peterborough........1:1
Birmingham - Aston Villa......0:1
Blackburn - Boumemouth........1:0
Blackpool - Sheffield Wed.....3:0
Bolton - Sheff. Wed...........1:1
C. Palace - Charlton............3:1
Grimsby - Hartlepool............3:0
Huddersfield - Arsenal..........0:5
Ipswich - Cambridge.............2:1
Lincoln - Everton...............3:4
Middlesborough - Brighton.......5:0
Rockdale - Leicester............1:4
Rotherham - Portsmouth..........0:0
Sunderland - Leeds..............2:1
Swansea - Oldham................2:1
Tranmere - Oxford...............5:1
Watford - Millwall..............0:0
Wrexham - Nott. For.................3:3
íkvöld
Handknattleikur
1. deild karla:
Kaplakriki: FH - Selfoss 20
1. deild kvenna:
Austurb.: KR-FH 18.30
Austurb.: Fram- ÍBV.... 20
Seltj.nes: Grótta - Valur 20
Víkin: Víkingur - Fylkir. 20
HANDKNATTLEIKUR / ISLANDSMOTIÐ
Gunnar, Jason og Páll
verða með Aftureldingu
Jason Ólafsson
Gunnar Andrésson
Páll Þórólfsson
Nánast frágengið
með Valdimar og Jón
Valsmennimir Valdimar Gríms-
son og Jón Kristjánsson fóru
norður til Akureyrar í gær til við-
ræðna við forráðamenn KA um
væntanleg félagaskipti úr V al í KA.
Mikið var fundað og málin rædd
fram og aftur en þegar blaðið fór
í prentun í gærkvöldi fúnduðu menn
enn og vildu sem minnst segja um
framgang mála.
Seint í gærkvöldi sagði Þorvaldur
Þorvaldsson, varaformaður hand-
knattleiksdeildar KA, að segja
mætti að allt væri frágengið við
þá Jón og Valdimar, aðeins ætti
eftir að skrifa undir. Einn hængur
var þó á því þeir félagar vildu ræða
einhver mál við Valsmenn áður en
endanlega yrði gengið frá öllum
hnútum. Sagði Þorvaldur að það
yrði trúlega gengið frá málunum
árdegis í dag.
Þar sem fundurinn dróst svo á
langinn í gærkvöldi ákváðu þeir
Valdimar og Jón að gista nyrðra
en búist var við að forráðamenn
KA færu með þeim til Reykjavíkur
í dag til viðræðna við forráðamenn
Vals.
Meisturum Vals spað sign
Keppni í 1. deild karla í hand-
knattleik hefst í kvöld með
leik FH og Selfoss í Kaplakrika,
en fyrstu umferð lýkur á morgun
með fimm leikjum. Þá mætast
KR og Víkingur I Austurbergi,
Stjaman og Haukar í Garðabæ,
KA og ÍBV í KA-húsinu, Valur
og ÍR í Valsheimilinu og UMFA
og Þór Akureyri í Mosfellsbæ.
Samkvæmt sþá þjálfara og fyr-
irliða félaganna veija Valsmenn
deildarmeistaratitilinn, Stjaman
verður í öðra sæti, síðan Selfoss,
Haukar, FH, KA, ÍR, UMFA, Vík-
ingur, ÍBV, KR og Þór.
Tekin var saman spá þjálfar-
anna annars vegar og fyrirliðanna
hins vegar og þá kemur í ljós að
þeir eru sammála um fímm fyrstu
sætin og þijú neðstu sætin en
vígsla aðeins hinum fjórum.
Keppni í fyrstu deild kvenna
hófst s.l. sunnudag, en samsvar-
andi spá gerir ráð fyrir að Víking-
ur verði í fyrsta sæti. þá Stjam-
an, Valur, Grótta, IBV, Fram,
Ármann, KR, FH, Pfylkir og Hauk-
ar. Þjálfarar og fyririiðar era ekki
eins sammála og hjá köriunum
því nú eru menn aðeins sammála
um tvö efstu sætin.
I DAG er gert ráð fyrir að geng-
ið verði frá félagaskiptum
Gunnars Andréssonar, Jasonar
Ólafssonar og Páls Þórólfsson-
ar úr Fram í Aftureldingu að
sögn Jóhanns Guðjónssonar,
formanns handknattleiksdeild-
ar UMFA, og Guðmundar B.
Ólafssonar, formanns hand-
knattleiksdeildar Fram.
Eins og áður hefur verið greint
frá skiptu þremmenningarnir í
Aftureldingu fyrr í sumar, en Fram
samþykkti ekki félagaskipti Gunnars
og Jasonar, þar sem þeir voru samn-
ingsbundnir, og félagaskiptanefnd
HSÍ, sem úrskurðaði að Afturelding
yrði að greiða 580.000 krónur til
að Páll fengi leikheimild, komst að
sömu niðurstöðu fyrir mánuði. For-
svarsmenn félaganna hafa síðan
reynt að komast að samkomuiagi
og sögðu formennirnir i gærkvöldi
að málið væri nánast frágengið. Vilji
beggja væri að ljúka því í dag, en
aðeins ætti eftir að ganga frá nokkr-
um smáatriðum.
Jóhann sagði að ekki væri ágrein-
ingur um verð fyrir leikmennina og
stefnt væri að því að allir færu sátt-
ir frá borði. Guðmundur sagði að
aldrei hefði staðið á Frömurum að
semja um málið.
Afturelding á fyrsta leik í deild-
inni annað kvöld, en þá tekur liðið
á móti Þór frá Akureyri og ef fer
sem horfir verða fyrrnefndir þre-
menningar löglegir með nýliðunum,
Nokkur mál ófrágengin
Þó nokkuð hefur verið um félaga-
skipti eftir að síðasta leiktíð lauk,
en samkvæmt upplýsingum frá
skrifstofu HSÍ hefur ekki verið
gengið frá nokkrum þeirra vegna
þess að uppáskriftir frá fyrra félagi
vantar. Þar á meðal eru skipti Sig-
mars Þrastar Óskarssonar, lands-
liðsmarkvarðar, úr ÍBV í KA og
Alexanders Revines, markvarðar, úr
Víkingi í KR.
Hins vegar er ljóst að töluverðar
breytingar verða á liðunum. Þar má
nefna að Valsmenn hafa misst Geir
Sveinsson og Jakob Sigurðsson, en
fengið Finn Jóhannsson aftur frá.
Þór og Eyþór Guðjónsson frá HK,
Alexei Trúfan skipti úr FH í Aftur-
eldingu, Konráð Olavson fór úr
Haukum í Stjörnuna og Sigurpáll
Á. Aðalsteinsson úr Þór í Selfoss.
KNATTSPYRNA
< Þrírfrá
* KRíbann
^%rír KR-ingar verða í banni í
síðustu umferð 1. deildar karla
í knattspyrnu samkvæmt úrskurði
aganefndar KSÍ í gær. Tómas Ingi
Tómasson, Rúnar Kristinsson og
Einar Þór Daníelsson leika ekki
með Vesturbæjarliðinu gegn Fram
á Iaugardag og reyndar verður Ein-
ar Þór einnig í banni í fyrsta leik
á næstu leiktíð, þar sem hann hefur
fengið átta áminningar á tímabil-
inu.
Sigurður Ingason, ÍBV, fékk eins
leiks bann og leikur því ekki með
| gegn Fylki, sem verður án Gunnars
Þ. Péturssonar af sömu ástæðu, og
Sigurður Jónsson, ÍA, er komin með
4 sex áminningar og missir af leikn-
3 um gegn Val.
Átta leikmenn í 2. deild voru
A úrskurðaðir í eins leiks bann og
™ fimm í 2. flokki, en einn piltur fékk
tveggja leikja bann og annar
þriggja leikja bann vegna brottvís-
unar. Allir þessir leikmenn taka út
_j bannið á næsta ári.
GUÐNI Bergsson til vinstri og Paul Gascoigne voru samheijar hjá Totten-
ham, en eru báðir farnir frá félaginu.
Guðni hættur
hjá Tottenham
GUÐNI Begsson, fyrirliði ís-
lenska landsliðsins í knatt-
spyrnu, kvaddi Tottenham í
gær og hélt skömmu síðar
heim á leið, en hann var vænt-
anlegurtil landsins um mið-
nættið. Meiðsl í baki komu í
veg fyrir nýjan samning við
Spurs eins og til stóð að gera
og er endurhæfing næst á dag-
skrá hjá varnarmanninum.
Samningur Guðna við Totten-
ham var úti fyrr í sumar og
þar sem hann var ekki inní mynd-
inni hjá Terry Venables, þáverandi
stjóra félagsins, ákvað hann að
koma aftur heim og leika með
Val. Þá urðu breytingar hjá Spurs
og Ardiles tók við stjórninni, en
hann vildi hafa Guðna áfram og
gerði ráð fyrir honum í framtíðará-
ætlun sinni varðandi liðið. Guðni
fór því aftur út, en hefur lítið sem
ekkert getað æft eða leikið vegna
bakmeiðslanna. Hann sagði að
Ardiles hefði kallað sig á sinn fund,
sagst vilja halda sér, en litist ekki
á framhaldið vegna meiðslanna,
þvi óvíst væri hvort og hvenær
hann yrði aftur góður. Guðni hafði
einnig eftir Ardiles að hann væri
ánægður með vörn Spurs eins og
hún hefði leikið að undanförnu og
því væri best að slíta samstarfinu.
Guðni, sem hefur verið hjá Tott-
enham síðan í árslok 1988, sagði
að Ardiles hefði að vissu leyti kom-
ið sér á óvart, en við þessu væri
ekkert að gera og aðalatriðið væri
að komast í góða sjúkrameðferð
og ná fullum bata. Því væri ekkert
hægt að segja að svo stöddu um
framhaldið á vellinum, en ljóst
væri að ef hann spilaði með liði á
Islandi yrði það með Val.