Morgunblaðið - 22.09.1993, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
9
25% afsláttur
afbaöinnréttingum til mánaöamóta
Mávainnréttingar,
Kænuvogi 42, sími 688727.
Sérsmfðum eldhús-, bað- og fataskápa.
Opið til kl. 21.00 í kvöld.
Láttu
sparnabinn
gerast
sjálfkrafa
Mörgum finnst fátt jafn auðvelt eins
og aö eyöa meö greiðslukorti.
En að sama skapi er jafn auðvelt að
spara með greiðslukorti.
Þú gerist áskrifandi að spariskírteinum
ríkissjóðs og greiðir áskriftina
mánaðarlega með greiðslukortinu þínu.
Þannig verður sparnaðurinn sjálfvirkari
og þú hættir fljótlega að taka eftir því
að þú leggur fyrir í hverjum mánuði -
þar til þú færð yfirlit yfir sparnaðinn!
Áskrift með greiðslukorti er því ljós
punktur í mánaðarlegum
útgjöldum þínum.
Hringdu í síma 91-626040
(grænt númer 996699) og pantaðu
áskrift að spariskírteinum.
Það þarf aðeins eitt símtal til
að byrja að spara.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040
Arstapið einn
milljarður
króna
SÍS og kaupfélögin
Árið 1990 var rekstri Sambands íslenzkra samvinnufélag (SÍS)
skipt milli sex hlutafélaga og Sambandið sjálft varð eignarhalds-
félag. Tveimur og hálfu árið seinna eru tvö þessara hlutafélaga,
Mikligarður og Islenzkur skinnaiðnaður, gjaldþrota. Um þetta
efni sem og fækkun kaupfélaga er fjallað í vikuritinu Vísbend-
ingu (36. tbl. 1993).
í grein í Vísbendingu
segir:
„Samvinnuhreyfingin
hefur átt mjög erfitt upp-
dráttar undanfarin ár.
Sambandið hefur tapað
um milljarði á ári að jafn-
aði á þessum árum. Arið
1990 var rekstri Sam-
bandsins skipt milli sex
hlutafélaga og Samband-
ið sjálft varð eignarhalds-
félag. Aðeins tveimur og
hálfu ári seinna eru tvö
af hlutafélögunum, Mikli-
garður og íslenzkur
skinnaiðnaður, orðin
gialdþrota, eiginfé Jötuns
var neikvætt i árslok
1992, mikið tap varð á
rekstri Samskipa og Goði
hefur orðið fyrir rekstr-
aráföllum ...
Verzlun er stærsta
greinin í rekstri kaupfé-
laganna með 46% af veltu.
Víða er kaupfélagsverzl-
unin aðalbúðin á sínu
svæði, jafnvel eina búðin.
Heildarvelta í verzlun
kaupfélaganna minnkaði
úr 16,2 milfjörðum í 15,5
milljarða króna á árin
1992. Brúttóhagnaður
minnkaði úr 17,1% i
16,1% og launakostnaður
jókst úr 8,7% í 9%. Starfs-
mönnum fækkaði um
tæplega 4% og voru í árs-
lok 991. Af þessum tölum
má ráða að afkoma verzl-
unar hafi versnað á árinu
1992 frá fyrra ári. AUs
ráku kaupfélögin 136
verzlanir í árslok 1992 og
hafði þeim fækkað um
sex á árinu ...
Um 30% af veltu kaup-
félaga er sala landbúnað-
arafurða. Rekstur slátur-
húsa hefur almennt ekki
gengið vel og er það sam-
dóma álit að sláturhús séu
allt of mörg. Þau eru nú
29 en þeim mætti fækka
um hehning eða meira til
þess að rekstur þeirra
yrði arðbær ...
Rekstur mjólkursam-
laga gengur mjög mis-
jíifnlega. Rekstraraf-
koma sumra þeirra ágæt,
t.d. KEA og Kaupfélags
Borgfirðinga, en önnur
eru rekin með tapi ...“
Hver verður
framtíð sam-
vinnurekstrar?
„Á örfáum árum hefur
samvinnurekstur hér á
landi minnkað stórlega.
Samvinnubankinn hefur
sameinast Landsbanka
íslands og Samvinnu-
tryggingar eiga nú hluta
í Vátryggingafélagi ís-
lands. Af öðrum fyrir-
tækjum samvinnumanna
má nefna að Oíufélagið
hf. er ny'ög sterkt þótt
það hafi í fyrra greitt út
30% eiginfjár vegna
skuldaskila Sambandsins
við Landsbankann. Sam-
bandið, sem var stærsta
fyrirtæki landsins, verður
ekki samnefnari fyrir
kaupféiögin í framtíðinni.
Vinnumálasambandið er
samtök samvinnufélaga,
en það sér um kjarasamn-
inga fyrir hönd sam-
vinnufyrirtækja og ann-
ast ýmsa ráðgjafarstarf-
semi fyrir þau. Flestir
samvinnustarfsmenn
greiða einnig iðgjöld til
Samvinnulífeyrissjóðsins.
Líklegt er að þessir tveir
aðilar verði í framtíðinni
eins konar sameiningar-
tákn samvinnumjinna ...
Breytingar á búsetu í
landinu og bættar sam-
göngur breyta rekstrar-
skilyrðum kaupfélag-
anna. Búháttabreytingar
og aukinn innflutningur á
landbúnaðarvörum munu
á komandi árum hafa
mikil áhrif. Þótt ekki ári
sérlega vel í sjávarútvegi
eins og er, þá virðist þar
liggja helzta von um efl-
ingu samvinnufyrirtækja.
Arðsemi hefur ekki nægt
til þess að halda í við
raunvaxtastig. Þetta kall-
ar á uppstokkun í rekstri.
Sum kaupfélög munu
hætta og aðrir taka við.
Hluti af rekstrinum er
n\jög óhagkvæmur. Lík-
legt er að sameina þurfi
kaupfélög, leggja niður
deildir og selja fasteignir.
Mörg kaupfélög munu í
framtíðinni verða líkari
hlutafélögum en sam-
vinnufyrirtækjum. Merk-
um kafla í atvinnusögu
landsins lauk þegar Sam-
bandið hætti eiginlegum
rekstri. Kaupfélögin
munu mörg lifa Sam-
bandið um langa hríð.
Sum þeirra gætu eflst og
þau munu setja sitt mark
á byggðina utan höfuð-
borgarsvæðisins en sam-
vinnurekstur verður ekki
lengur í öndvegi islenzks
atvinnulífs.“
ORYGGI
7,8% RAUNÁVÖXTUN
VEXTIR GREIDDIR ÚT
Sjóðsbréf 2 eru góður kostur fyrir þá
sem vilja fá reglulegar tekjur af sparifé
sínu, þ\'í að vextir umfram verðbólgu
eru greiddir út fjórum sinnum á ári.
Sjóðurinn ber góða og stöðuga ávöxtun
og hann er auk þess mjög öruggur.
Hann hentar því vel þeim sem vilja
ávaxta sparifé með lítilli áhættu.
Sjóðurinn er mjög sveigjanlegur því
hægt er að innleysa bréftn hvenær sem
er án innlausnargjalds. Upphafsgjald við
kaup í sjóðinn er nú 1%. Lágmarkskaup
í sjóðinn eru 500 þúsund krónur.
Sjóðurinn hentar best til ávöxtunar
sparifjár í eitt ár eða lengur.
Ráðgjafar VIB veita frekari
upplýsingar um Sjóðsbréf 2 og einnig er
liægt að fá sendar upplýsingar í pósti.
Verið velkomin í VÍB!
*Raunávöxtun á ángnimivelli síðustu 12 mánudi.
I síma 91 - 681530 er hagl að fá uppl\singar um Sjóðsbréf 2.
SJOÐSBREF2
’.'J" - ' V
Já takk, ég vitfá seiidar upplýsingar itm Sjódsbréf 2.
Nafn: _______________________
Heimili:
Póstfang:
Sími:______________________|
VfB i
VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. I
----- Armúla 13a, 155 Reykjavík. -1