Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 13

Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 13 Enn ein hremm- ing Miðbæjarins eftirJón Aðalstein Jónsson Ótrúlega lítil umræða hefur átt sér stað af hálfu almennings í sam- bandi við væntanlegt dómhús Hæstaréttar íslands, sem rísa á á horni Lindargötu og Ingólfsstrætis, bak við hið fallega og stílhreina Safnahús. Tvær greinar hafa þó komið fyrir augu mín og eins viðtal við Guðrúnu Jónsdóttur arkitekt, sem sæti á í skipulagsnefnd borgar- innar. Þau, sem hér hafa komið fram, hafa að vonum bent á, hvílíkt slys hér er enn í uppsiglingu í skipu- lagi Miðbæjarins í augum þeirra, sem hafa þau vel opin. Raunar erum við borgarbúar þegar orðnir ýmsu vanir í þessum efnum, svo að marg- ir eru hættir að kippa sér upp við þá stílbrjóta í byggingarmálum Reykjavíkur og staðsetningu ýmissa stórhýsa, enda raunin sú að ráðamenn hlusta tæplega á þá, sem malda í móinn, hvað þá að fara eftir ábendingum þeirra. Allir muna eftir þeim umræðum og mótmælum, sem fram komu um staðarval Seðlabankahússins og Ráðhússins. Þar varð engu tauti komið við ráðamenn, og raunar espuðust þeir í þijózku sinni, í hvert sinn sem rætt var um staðarvalið og mótmæli höfð í frammi. Nú held ég allir geti séð með eigin augum, hversu vel — eða hitt þótt heldur — þessi hús sóma sér í þeim gamla og virðulega Miðbæ. En enn á að bæta gráu ofan á svart. Fyrir hverjar kosningar er talað um „háttvirta kjósendur" og um leið talað ijálglega um lýðræði og lýðræðisást. Þetta eru fögur orð. Víst megum við, almennir borgar- ar, segja hug okkar og deila á for- ystumenn okkar og gerðir þeirra, þegar við teljum ástæðu til, án þess að eiga á hættu að verða fyrir mikl- um óþægindum eða hnepptir í fjötra. Það ber að sjálfsögðu að lofa. Hitt virðist hins vegar rík regla, þegar kosningar eru gengnar um garð, að daufheyrast við ábending- um eða mótmælum almennings, þegar honum finnst skammsýni eða ráðleysi kjörinna fulltrúa sinna keyra um þverbak. Sjálfur þekki ég af nokkurri reynslu við skipu- lagsyfirvöld borgarinnar, að þau álíta auðsæilega oft þarflaust að koma fram með aðfinnslur og ábendingar, jafnvel þótt verið sé að benda á frávik frá samþykktu skipulagi. En snúum okkur að Hvað er Indriða á höndum? eftirHeimi Steinsson Ekki veit ég, hvað Indriða G. Þorsteinssyni gengur til að slást upp á mig í blaðagrein, - alsaklausan mann af nokkurri ótukt í garð þessa upplitaða ritsnillings. Ég hef ætíð litið Indriða fremur hýru auga sem skáld og jafnvel allt að því geðsleg- an þjóðrembing, - þó lítið eitt skop- legan jafnan. Bevísanlega hef ég aldrei hallað orði á Indriða, enda ekki lagt það í vana minn að abb- ast upp á förunauta mína að ósekju. Auk alls annars er ég hræddur við afburðamenn eins og Indriða, - og dytti víst seint í hug að senda hon- um hnútu að tilefnislausu. En í dag - fimmtudaginn 16. september - er ég vanda vafinn og hef kallað yfir mig þykkju þjóð- mærings án þess að vita, hvað hon- um er á höndum. „Utvarpsstjóri missteig sig í embætti," segir Indriði G. Þor- steinsson í föðurlegum umvöndun- artóni, en skellir síðan á skeið og bætir við:.og hlýddi kvartskjóð- um, sem óttuðust að loðmullunni sem einkennir Ríkisútvarpið - báð- ar stofnanir - yrði svipt af þeim eins og sæng.“ Þungt er undir að búa vígfimi ofurmennisins. Gjafír eru yður gefnar. Kvartskjóður skuluð þér heita — og „loðmulluher". Sitja skuluð þér uppi með kauðlega palla- dóma Indriða G. Þorsteinssonar, hvað sem líður málefnum og við- horfí alls þorra manna. Indriði er vísast búinn að gleyma því, að þegar útvarpsstjóri „mis- steig“ sig í vetur guldu 63 af hveij- um 100 íslendingum „misstiginu" jákvæði sitt. Og þegar „misstigið“ var „leiðrétt" með brauki og bramli, voru 83 af hveijum 100 íslending- um andvígir „leiðréttingunni". Þetta lætur Indriði G. Þorsteins- son sér að sjálfsögðu í léttu rúmi liggja. Hálfu ári eftir atburðina hrifsar hann upp málið í framhjá- hlaupi og lætur eins og enginn hafi tjáð sig um það, en honum einum væntanlegu dómhúsi. Ég hygg að allir geti tekið undir þau orð Magnúsar Thoroddsens hæstaréttarlögmanns, þegar hann talar um, að varla hafí verið hægt að velja dómhúsinu lakari stað i Reykjavík. Bendir hann á, að lóðin sé allt of lítil og .svo sé þegar of byggt á þessu svæði. Hið þriðja er þó alvarlegast, að dómhúsið mun skyggja svo á hið fallega Safnahús, að það nýtur sín engan veginn eft- ir það. Það er líka rétt hjá Magn- úsi, að dómhús Hæstaréttar íslands á að vera fögur bygging og á stað, þar sem hún nyti sín úr öllum átt- um. Þess vegna ætti að velja húsinu stað, þar sem fátt skyggði á það. Ég fæ ekki heldur séð, að dómhús þurfí endilega að vera í Miðbænum. Sama hefði auðvitað einnig getað gilt um Seðlabankahúsið, sem er búið að eyðileggja hið fallega út- sýni, sem var af Arnarhóli í átt til Engeyjar, Kjalarness og Esjunnar. Og nú á að þrengja bæði að Amar- hóli að austanverðu og eyðileggja með öllu bakhlið Safnahússins. Skipuleggjendur borgarinnar virð- ast ekki hafa áttað sig á því, að gatnakerfí borgarinnar er orðið svo gott í flestum greinum, að fjarlægð- ir skipta nær engu máli. Menn kom- ast auðveldlega milli hverfa og oft- ast án mikilla tafa. Þess vegna rek- ur ekki nauður til að hrúga öllum opinberum byggingum á þegar of hlaðinn Miðbæ Reykjavíkur. Halldór Þorsteinsson bókavörður segir réttilega í grein í Mbl. 10. þ.m., að væntanlegt dómhús sé „í óþolandi nálægð við Safnahúsið" og það sé beinlínis stílbrot og smekkleysa að hola því niður á þennan þrönga reit. Þá minnist hann einmitt á annað, sem töluvert var rætt á sínum tíma, en það var sú smekkleysa, að þröngva Þjóð- leikhúsinu niður austan við Safna- húsið. Þá voru það valdamikil yfír- völd, sem eins og nú skeyta hvorki um skömm né heiður, og taka ekk- ert tillit til skynsamlegra ábendinga almennings. Og nú er þetta væntan- Jón Aðalsteinn Jónsson „Ég hygg að allir geti tekið undir þau orð Magnúsar Thoroddsens hæstaréttarlögmanns, þegar hann talar um, að varla hafi verið hægt að velja dómhúsinu lak- ari stað í Reykjavík." lega stílbrot sýnu verst og með því verið, eins og Halldór segir, að „farga bersvæðinu, sem Safnahús- inu er þó algjör nauðsyn eða for- senda til þess, að það megi njóta sín til fulls í allri sinni dýrð og reisn“. Ég á eins og allir þeir, sem ég hef heyrt tala um þessa ákvörð- un skipulagsyfirvalda, engin orð yfir þeirri skammsýni, sem ræður hér ríkjum. Þá er það rétt, sem Halldór segir, að hlutur arkitekta er lítt til sóma í þessum efnum. Þeir sýna einnig liðnum starfsbróð- ur og verki hans mikla lítilsvirðingu með því að mótmæla ekki þessu staðarvali. Auðvitað er það rétt, að þeir hefðu væntanlega getað komið í veg fyrir þetta slys með því að hundsa með öllu þá samkeppni, sem fram fór um dómhúsið. Þá er hlutur borgaryfírvalda lítt til sóma. Samþykkt mun hafa ver- ið, að vesturgafl dómhússins yrði í sömu línu og vesturgafl Safnahúss- ins. Er þá ljóst, að einhver hefur séð, að þannig lokaðist húsið ekki alveg af frá norðvesturhorninu. En svo mun hafa „gleymzt“ að geta þessarar samþykktar, þegar útboð- ið kom fram. Og hvað gerist? Verð- launateikningin nær alveg að Ing- ólfsstræti og þrengir þá auðvitað enn frekar að Safnahúsinu. Og þetta er látið óátalið þrátt fyrir fyrri samþykkt um styttra hús. Þá segir svo í Mbl. 29. ágúst sl., þar sem gerð er grein fyrir verðlaunateikn- ingunni: „Nýbygging Hæstaréttar er breiðust og hæst í vesturenda við Ingólfsstræti, svo hlutföll gafl- veggjar nái jafnvægi við Arnarhvál og Safnahúsið." Ég skil þetta nú ekki almennilega, enda ekki arki- tekt. Hins vegar fæ ég ekki betur séð, en þetta eyðileggi með öllu sýn til norðvesturhliðar Safnahússins. Þá er og ljóst, að arkitektar þeir, sem verðlaunin hlutu, voru meira að hugsa um Arnarhvál en Safna- húsið, þegar gengið var frá vestur- hluta dómhússins. Þar segir sem sé: „Vesturgafli Hæstaréttar er snúið um 2 gráður í austur og norð- vesturhornið dregið í boga svo inn- gangur í Arnarhvál sjáist vítt að.“ Ljóst' er, að þeir meta meira inn- ganginn í Arnarhvál en hina gömlú og stílhreinu byggingu, sem reist var af miklum stórhug í stjórnartíð Hannesar Hafsteins, hins fyrsta ráðherra íslands. Ég er sannfærður um, að þeir, sem lifa i lok næstu aldar eða á 22. öld, eiga eftir að hneykslast yfir þeirri skammrýni, sem ráðið hefur ríkjum í staðarvali þeirra stór- hýsa, sem hér hefur verið minnzt á. En þá verða þeir ráðamenn eins og við hinir, sem engu megum ráða nema í kringum kosningar, gengnir fyrir ætternisstapa og löngu komn- ir úr kallfæri. Ég held þeim sé það líka fyrir beztu. Höfundur er fyrrvcrandi orðabókarsijóri. i 12, sími 44433. Heimir Steinsson „Indriði er vísast búinn að gleyma því, að þegar útvarpssljóri „mis- steig“ sig í vetur guldu 63 af hverjum 100 ís- lendingum „misstiginu“ jákvæði sitt. Og þegar „misstigið“ var „leið- rétt“ með brauki og bramli, voru 83 af hverjum 100 íslending- um andvígir „leiðrétt- ingunni“.“ sé falið að kveða upp sannan dóm og úrskurð. Að sinni læt ég nægja að kvitta stuttlega í þessum rituðum línum fyrir orðsendingu Indriða. En fróð- legt verður að sjá, hvort hann í framhaldinu býður mér á raunveru- legan pataldur út af efni, sem ég vissulega hef ekki að honum rétt. Höfundur er útvarpssijóri. OPINBER REKSTUR Breyta hverju og hvers vegna? Opinn fundur á Hótel Borg, í kvöld kl. 20.30 Opinber rekstur - æskilegt umfang, markmið og skipulag er i brennidepli í þeirri þjóðfélagsumræðu endurmats og uppstokkunar sem nú á sér stað víða um heim, á islandi sem annars staðar. Á tímum samdráttar og atvinnuleysis er brýnna en ella að skiptast á skoðunum um hlutverk hins opinbera. Frummælendur: Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSf: Opinber þjónusta - opinber rekstur. Guðrún Alda Harðardóttir, formaður Fóstrufélags fslands: Markmið með opin- berum rekstri. Friðrik Sophusson, fjármálaráðherra: Þróun og skipulag opinbers rekstrar. Umræður og fyrirspurnir. BSRB Sjðfn Ingólfsdóttir, varaformaður BSRB, formaður St.Rv.: Sjónarmið þeirra sem þjónustuna veita.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.