Morgunblaðið - 22.09.1993, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
1S
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Fullkomin aðstaða
BIFREIÐAEFTIRLITSMAÐUR
að störfum í nýju stöðinni, en
aðstaða við skoðun er ákaflega
fullkomin og allt gengur hratt
fyrir sig.
Ný bifreiða-
skoðunarstöð
í Njarðvík
Njarðvík.
BIFREIÐASKOÐUN íslands hef-
ur opnað nýja og fullkomna skoð-
unarstöð við Njarðarbraut í Njarð-
vík. Bifreiðaskoðun var áður til
húsa við Iðavelli í Keflavík en
hefur nú flutt alla starfsemi til
Njarðvíkur. Nýja stöðin í Njarðvík
er ætluð fyrir Suðumesjasvæðið
og er hún sú áttunda í röðinni sem
Bifreiðaskoðun Islands hefur
byggt að sögn Sverris Sverrisson-
ar rekstrarsljóra.
Forstöðumaður Bifreiðaskoðunnar
í Njarðvík er Guðmundur Helgi Guð-
jónsson og sagði hann að um 10.000
bílar yrðu skoðaðir þar á ári, þar af
væru um 7.000 aðalskoðanir, tæp-
lega 2.000 endurskoðanir og síðan
um 700 nýskráningar sem væri mesti
fjöldi á landinu að Reykjavík undan-
tekinni. Bifreiðaskoðun í Njarðvík er
búin fullkomnum tækjakosti, stöðin,
sem er sérhönnuð sem slík, er um
250 fermetrar og kostaði um 45
milljónir. Þar starfa nú 5 manns þar
af 3 skoðunarmenn. -BB
Samband ungra sjálfstæðismanna
Fundur um störf
SUS og framkvæmd
stefnumála á þingi
Yfirskrift fundarins er „Hvað varð um
hugmyndir ungra sjálfstæðismanna“
SAMBAND ungra sjálfstæðismanna heldur í kvöld fund um
störf og stefnu SUS og framkvæmd stefnumála þess á Al-
þingi undir yfirskriftinni „Hvað varð um hugsjónir ungra
sjálfstæðismanna?" Fundurinn, sem er öllum opinn, verður
haldinn í Kornhlöðunni og hefst klukkan 18.
Jón Kristinn
Snæhólm
Ari Edwald
Egilsson
Einar Kr.
Guðfinnsson
Framsögu á fundinum hafa þeir
Ari Edwald, aðstoðarmaður dóms-
málaráðherra, Jón Kristinn Snæ-
hólm sagnfræðingur og alþingis-
mennirnir Vilhjálmur Egilsson og
Einar Kr. Guðfinnsson.
í fréttatilkynningu frá SUS seg-
ir m.a.: „Undanfarin ár hafa nokkr-
ir fyrrverandi forystumenn ungra
sjálfstæðismanna setið á Alþingi
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Margir
vilja hins vegar meina að um leið
og þeir náðu kjöri á Alþingi hafi
þeir gleymt hugsjónunum, sem þeir
börðust áður svo hatrammlega fyr-
ir. Sú gagnrýni sem ungu mennim-
ir héldu uppi á eldri forystumenn
flokksins á sínum tíma hitti þá
Guðlaugur Þór
Þórðarson
sjálfa fyrir er
þeir komast til
valda. Er þetta
raunin? Hafa
þessir menn
villst af leið?
Hvers vegna er
báknið ekki farið
burt? Hví eru
hagsmunir kjör-
dæmanna settir
ofar heildar-
hagsmunum
þjóðarinnar?"
Fundarstjóri á fundinum verður
Guðlaugur Þór Þórðarson, formað-
ur SUS.
Ný bók uni mannfræði,
túlkun og þýðingar
NÝLEGA kom út bókin Bey-
ond Boundaries: Understand-
ing, Translation and Ant-
hropological Discourse hjá
Berg Publishers í Oxford á
Englandi. Ritstjóri bókarinnar
er Gísli Pálsson prófessor í
mannfræði við félagsvísinda-
deild Háskóla Islands. '
Mannfræðingar hafa löngum
litið á sig sem „þýðendur“, hlut-
verk þeirra sé fyrst og fremst fólg-
ið í að brúa bilið á milli ólíkra
menningarheima og gera fólki
skiljanleg þau samfélög sem við
fyrstu kynni reynast „framandleg"
á einhvern hátt. Mannfræðingar
hafa hins vegar í vaxandi mæli
sett spurningannerki við slíkar
hugmyndir. Ástæðurnar eru
margþættar, m.a. sú fræðilega
endurskoðun sem í vaxandi mæli
hefur sett mark sitt á flest vestræn
fræði og stundum er kennd við
„póstmódernisma“ og þær djúp-
stæðu breytingar á mannlegu
samfélagi sem átt hafa sér stað á
undanförnum árum og áratugum,
ekki síst á sviði fjölmiðiunar og
alþjóðasamskipta. Endalok kalda
stríðsins og upplausn þjóðríkisins
hafa vafalaust einnig haft sitt að
segja. í bókinni Beyond Boundari-
es er spurt hvaða áhrif slíkar
fræðilegar, menningarlegar og
pólitískar hræringar hafi á mann-
fræðilega orðræðu.
í bókinni eru tíu greinar: Gísli
Pálsson rekur í inngangi breyting-
ar á hugmyndum mannfræðinga
um hvað það er að iðka mann-
fræði, Ulf Hannerz fjallar um flæði
fólks, hluta og hugmynda í heims-
þorpi nútímans, Sholomo Deshen
rekur deilur harðlínumanna og
friðarsinna í ísrael, Halldór Stef-
ánsson fjallar um „þýðingu“ ís-
lenskra fornsagna á myndmál jap-
anskra teiknimyndasagna, Levon
Abrahamian gerir grein fyrir
reynslu sinni af pólitísku umróti í
Armeníu samfara upplausn sov-
éska ríkisins, Gísli Pálsson fjaliar
um ólíkar hugmyndir um fram-
leiðslu og fiskveiðar með áherslu
á íslensk viðhorf, Birgitta Edelman
fjallar um nám og hæfileika í hópi
járnbrautarstarfsmanna í Stokk-
hólmi, Dan Sperber ber saman
ólíkar hugmyndir um mannfræði-
lega túlkun og skýringu, Unni
Wikan fjallar um takmörk tungu-
málsins í samskiptum fólks og
mannfræðirannsóknum, og Tim
Ingolf fjallar um sögu þýðingar-
vandans og hlutverk þýðandans í
samfelldum heimi án menningar-
legra landamæra.
Bókin fæst í Bóksölu stúdenta.
(Fréttatilkynning)
Morgunblaðið/Silli
Húsið sem konurnar hafa komið sér upp skammt frá Goðafossi.
Handverkskonur inilli heiða
Húsavík.
„HANDVERKSKONUR milli
heiða“ kallar sig félagsskapur
kvenna úr Ljósavatns-, Háls- og
Bárðardalshreppum, sem rekið
hafa í sumar svokallaðan Goða-
foss-markað í húsi, sem þær hafa
komið sér upp skammt frá Skjálf-
andafljótsbrúnni við Goðafoss.
Konurnar framleiða markaðsvör-
urnar mest á heimilum sínum yfir
veturinn en koma þó saman stöku
UNWERSITY
HOSPITALITY MAN AGEMENT
Gætir þú hugsað þér að stunda háskólanám
á einum sólríkasta stað á jörðinni,
Fort Lauderdale, Flórída?
NOVA University, hospitality management
býður upp á nám á eftirfarandi brautum:
Hotel/cruise management.
Food industry management.
Travel industry management.
★ Menntun og starfsreynsla metin.
★ NOVA University er lánshæfur skóli skv. reglum LÍN.
★ Tækifæri til atvinnu í Bandaríkjunum á meðan, og að
loknu námi.
Fulltrúi skólans veitir upplýsingar og ráðgjöfá íslensku,
fimmtudaginn 23. september,
á Hótel Loftleiðum, kl. 20.00.
Nova University is accredtied by the Commission on College of the Southern
Association of Colleges and Schools to award bachelor's, master's,
educational specialist, and doctoral degrees. Nova University admits students
of any race, color, sex, age, religion or creed, or national, or ethnic origin.
NOVA University's Center for Hospitality Management,
3301 College Avenue, Fort Lauderdale, Florida 33314, USA
Tel: 901-305-476-1961.
Fax: 901-305-476-1959.
sinnum til vinnu, skrafs og ráða-
gerða. Þær leggja áherslu á að
vinna úr íslensku hráefni, svo sem
ull, leðri og birki, og er framleiðslan
mjög fjölbreytt og vel unnin.
Þær segja að salan í sumar hafi
gengið vel og þær hafi skapað sér
nokkra vinnu með þessu, þótt tíma-
kaupið sé ekkí alltaf hátt.
Fréttaritari.
■
Grovbr0ds I
blanding 1
i-komsbr&d med kefir
lkg
TILSÆT KUN VAND OG GÆR
Ab*>
RÚG- 0G KORNBRAUÐSBLANDA
Þú bokar hollt og gróft brauð jyrir heimilið
Nú er ttekifierið til að reyna sig við brauðbakstur.
íAMO rúg- ogkombrauðsblöndunni er sérlega vönduð
samsetning ofþeim hróefnum sem þarfitil að baka
gimileg og holl brauð. Framkvtemdin er einfióld,
allt frá því aðþutfia aðeins að bteta vatni oggeri
saman við innihaldpakkanna.
Sm - spennandi möguleiki i matargerð!