Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 32

Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993 fólk f fréttum Skrapatungurétt MÖNNUM taldist til að ekki færri en 1.200 hross væru í réttinni á sunnudag. GÖNGUR Eins og í Dal hestanna r | ''veir síðustu dagar hafa verið JL hreint út sagt frábærir en skemmtilegast af öllu var að ríða á íslenskum hesti fram Laxárdal- inn í gær. Veðrið var yndislegt og dalurinn einstaklega fallegur og ósnortinn. Mér leið eins og ég væri komin inn í skáldsöguna Dal hestanna og fyrr en varði myndu landnemarnir koma á móti okk- ur,“ sagði Kathy Merryman frá Santa Cruz í Kaliforníu eftir að hún hafði tekið þátt í göngum og réttum í Skrapatungu með bænd- um í Austur-Húnavatnssýslu um síðustu helgi. Bændumir hafa í samvinnu við Ferðamálafélag Austur-Húna- vatnssýslu tekið sig saman um að gefa almenningi kost á taka þátt í göngum á Laxárdal og rétt- arstörfum í Skrapatungurétt, um 12 km frá Biönduósi, þijú undan- farin haust. Reynslan g.f þessari nýbreytni í ferðaþjónustu hefur verið einkar góð og óhætt er að segja þeir 20 ferðamenn, innlend- ir jafnt sem erlendir, sem tóku tilboði bændanna um síðustu helgi, hafi ekki orðið fyrir von- brigðum og spillti þá ekki einstök veðurblíða bæði á laugardag og sunnudag. Kathy var ein þeirra sem tók þátt í göngunum. „Ég hafði ætlað að skipuleggja alla íslandsferðina heima en af því að mér gekk illa að afla upplýsinga um landið hætti ég við og spurðist einfald- lega fyrir um það hjá BSÍ hvað ég gæti gert þessar tvær vikur sem væri dæmigert íslenskt. Kon- an sem ég talaði við var mjög almennileg og skipulagði alla ferðina fyrir mig. Meðal þess var ferðin hingað en ég gisti hjá ís- lenskri bændafjölskyldu á Geita- skarði í Langadal. Hún tók mjög vel á móti mér og þegar ég fór í göngumar voru allir mjög hjálp- legir við að kenna mér á hest- inn,“ segir Kathy. Rólegt fólk Hún lætur mjög vel af íslend- ingum. „Fólk er kannski ekki sér- lega opið til að byija með en um leið og þú kynnist því er það mjög elskulegt og rólegt, eins og hest- amir. I Ameríku eru þeir miklu styggari. Mér fannst líka alveg frábært hvernig bændurnir vom tilbúnir til að lána ókunnugum hestana sína. Þeir virtust ekki hafa neinar áhyggjur af því að þeir myndu hugsa ver um þá en þeir sjálfir. Svo finnst mér líka gaman að sjá, hérna í réttinni, hvemig. allir hjálpast að við að koma hrossunum í réttan dilk. Mennimir em svo rólegir og sam- hentir,“ sagði Kathy. Kathy, sem hafði ekki farið í göngur eða réttir áður, hefur orð á því að íslenskir bændur hafí gott úthald. „Þeir lögðu af stað í göngur eldsnemma í gærmorgun og voru á hestbaki í allan gær- dag. í gærkvöldi dönsuðu þeir svo fram til kl. 3 og voru komnir aft- ur í réttina fyrir hádegi í dag. Þetta er alveg ótrúlegt," segir hún og minnist sposk á að sumir þeirra hafi jafnvel fengið sér eitthvað í staupinu líka. Hún vill þó ekki meina að það þýði að þeir drekki meira en landar hennar. „Ég held einfaldlega að fólk fari ekki eins leynt með áfengisneyslu sína hér og heima,“ segir Kathy, staðráðin í að koma aftur til íslands og vera þá mun lengur, kannski 2-3 mán- uði. Texti: Anna G. Ólafsdóttir. Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir Með Trölla KATHY og Trölla frá Síðu samdi vel. Áfram veginn VIÐ Kirkjuskarð á Laxárdal bættist nokkur fjöldi reiðmanna við hóp gangnamanna sem fyrir var og er talið að áttatíu og þrír hafi fylgt hrossahópnum þaðan og í réttina. vildir þú vera án þess: ISLEN5KSR BÆNDUR SÉRPANTANIR jíltlíl11 0 , Mg*- IIaÍÁa* Borgartúni 29 sími 620640 Þú svalar lestrarþörf dagsins ‘ stóum Moggans! y

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.