Morgunblaðið - 22.09.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 1993
OLYMPIULEIKARNIR ARIÐ
KNATTSPYRNA
Athugasemd
Andri Marteinsson, leikmaður
FH, hafði samband við blaðið
og vildi koma eftirfarandi á fram-
færi:
„í umsögn frá leik KR og FH, sem
fram fór s.l. sunnudag, er haft eftir
Rúnari Kristinssyni, fyrirliða KR,
að ég hafi gert eitthvað á hans hlut,
sem varð til þess að hann sparkaði
í mig og sló í andlitið á mér. Þarna
er ekki farið rétt með staðreyndir,
því ég braut ekki af mér og í sann-
leika sagt komu viðbrögð fyrirliðans
eftir leik mér á óvart — ég hefði
frekar átt von á að hann kæmi til
mín og bæðist afsökunar."
Peking líldega
fyrír valinu
Niðurstaðan tilkynnt á morgun í Mónakó
PEKING virðist vera líklegust
þeirra fimm borga sem sækj-
ast eftir því að halda Ólympíu-
leikana árið 2000. Fram-
kvæmdastjórn Aljóðaólympiu-
nefndarinnar (IOC) fundar
þessa dagana í Monte Karló
og á morgun verður Ijóst hvar
leikarnir verða haldnir eftir sjö
ár.
Borgimar sem sækjast eftir leik-
unum eru Peking, Sidney,
Manchester, Berlin og Istanbul og
síðustu tölur herma að líkleg röð
á atkvæðaseðlum flestra nefndar-
manna IOC verði sú sama og hér
er talið upp. Sidney var lengi vel
talin líklegust og í skýrslum nefnd-
armanna í sumar sagði að aðstaðan
þar væri eins góð og hún gæti
orðið, og mun betri en IOC færi
fram á. Astralir segja líka að Sidn-
ey sé val íþróttamannanna, en það
er víst alls ekki það sama og val
nefndarmanna IOC. En á morgun
klukkan 18.20 að íslenskum tíma
rennur stund sannleikans upp, en
þá tilkynnir Juan Antonio Samar-
anch, forseti Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar, hvar leikarnir árið
2000 verða haldnir.
Pólitísk andstaða við Peking
Mikil pólitísk andstaða er við
að leikarnir verði haldnir í Peking
því í Kína eru mannréttindi fótum
troðin og telja menn því óþarft að
verðlauna Kínveija með því að láta
þá fá Ólympíuleikana. Forsvars-
menn IOC hafa haldið því fram
að þeir séu óháðir stjórnmálum og
stjórnmálamönnum og telja sumir
að nefndarmenn IOC muni kjósa
Peking til að sýna svart á hvítu
að nefndin sé ekki háð stjórnmál-
um. Önnur ástæða sem talin er
vega þungt er að Kínveijar stóðu
sig vel á síðustu leikum og með
því að halda leikana í Peking árið
2000 sé IOC að sýna Kínveijum
að þeir standi að baki íþróttaupp-
byggingunni hjá þeim.
Enn önnur ástæða, sem reyndar
er ekki mikið fjallað um, en talin
er skipta mjög miklu máli í vali
IOC er að í Kína er svo til óplæg-
úr markaður fýrir risafyrirtæki
sem styðja við bakið á IOC og
Ólympíuleikunum. Hafa menn í því
sambandi nefnt Coca Cola, Visa
og fleiri stór fyrirtæki. Samkvæmt
skýrslu nefndar IOC um aðstæður
þá ætti Sidney að verða fyrir val-
inu, ef hagsmunir íþróttamann-
anna eru settir á oddinn, því að-
stæður í Ástralíu eru mjög góðar.
89 greiða atkvæði
Nefndarmenn eru 91 en aðeins
89 greiða atkvæði. Ivan Slavkov,
forseti Ólympíunefndar Búlgaríu,
kemst ekki til Monte Karló þar sem
hann er í farbanni í heimalandi
sínu vegna gruns um að hafa mis-
notað almannafé, en hann er
tengdasonur Todor Zhivkov fyrr-
um leiðtoga búlgarska kommún-
istaflokksins. Samaranch greiðir
ekki heldur atkvæði.
Atkvæðagreiðslan fer þannig
fram að fyrst eru greidd atkvæði
um borgirnar fimm og ef engin
borg fær hreinan meirihluta, 45
atkvæði eða fleiri, greiða menn
aftur atkvæði og nú um þær fjórar
borgir sem flest atkvæði hlutu í
fýrstu umferð. Sú borg sem fæst
atkvæði fær fellur sem sagt út og
þannig er haldið áfram þar til ein-
hver borg fær hreinan meirihluta
atkvæða. Menn telja nokkuð víst
að Peking sé þegar búin að tryggja
sér 35 atkvæði og vanti því aðeins
tíu atkvæði til að fá leikana. Mjög
sjaldgæft er að aðeins þurfi að
greiða einu sinni atkvæði en svo
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Selfyssingar — 3. deildar meistarar
LIÐ Selfyssinga hafði nokkra yfirburði í 3. deildinni í knattspyrnu, sem lauk nýlega. Liðið hlaut 42 stig úr 18 leikjum, en HK varð í öðru sæti með 34 og flyst
einnig upp í 2. deild. Selfyssingar eru á myndinni. Aftari röð frá vinstri: Auðunn Hermannsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar, Sævar Sverrisson, Hrafnkell
Björnsson, Stefán Hólmgeirsson, Ingólfur Jónsson, Jón Einarsson, Þór Sigmundsson, Grétar Þórsson, Anton Hartmannsson, Sigurður Fannar, Gísli Björns-
son, Elvar Gunnarsson, liðsstjóri, fyrir framan hann Einar Ottó Antonsson (Hartmannssonar), Magnús Sveinsson, Einar Jónsson, sonur hans Elías fyrir fram-
an, Magni Blöndal Pétursson, þjálfari og leikmaður. Fremri röð frá vinstri: Ólafur Björnsson, formaður knattspyrnudeildar, Hjalti Þorvarðarson, Kjartan
Bjömsson, stjórnarmaður, Valgeir Reynisson, Gunnar Garðarsson, Sveinn Jónsson, fyrirliði, Guðjón Siguijónsson, Gylfi Siguijónsson, Guðjón Þorvarðarson
og Halldór Hlöðversson.
Pekingbúar vongóðir
STÚDENTAR í Peking tóku forskot á fagnaðarlætin í gær en íbúar þar í borg eru mjög vongóðir um að halda
Ólympíuleikana árið 2000.
toémR
FOLK
■ GEIR Sveinsson gerði fjögur
mörk fyrir Avidesa er liðið tapaði
fyrir Pontivedra, 22:21, á útivell
í fyrstu umferð spænska handbolt-
ans um helgina. Júlíus Jónasson,
félagi Geirs hjá Avidesa, komst
hinsvegar ekki á blað yfir marka-
skorara í leiknum.
■ BOGDAN Wenta, pólski
landsliðsmaðurinn sem leikið hefur
með Bidasoa á Spáni undanfarin
ár, er nú kominn í herbúðir Barcel-
ona.
■ MIKE Stulce, fyrrum ólympíu-
meistari í kúluvarpi frá Bandaríkj-
unum, sem vann bronsverðlaun á
HM í Stuttgart í sumar, hefur ver-
ið dæmdur í ævilangt keppnisbann
fyrir að falla öðru sinni á lyfja-
prófi. Hann hefur því verið sviptur
bronsverðlaununum.
■ KEVIN Keegan, fram-
kvæmdastjóri Newcastle, snaraði
peningabuddunni á borðið í gær og
keypti markvörðinn Mike Hooper
á 500 þús. pund. Hooper, sem er
29 ára, hefur aðeins leikið 50 leiki
með Liverpool síðan hann gekk til
liðs við félagið 1985.
■ LÍKURNAR á að Bernhard
Langer leiki með Evrópuúrvalinu
gegn því bandaríska í Ryder-
keppninni jukust verulega í gær
en þá lék hann æfingahring með
liðinu og stóð sig mjög vel. Hann
fann ekkert til í hálsinum og telur
líklegt að hann verði með.
■ LÍKLEGA verður Jose Maria
Olazabal frá Spáni einnig með, en
hann var í vafa áður en hann lék
æfingahringinn í gær. '
gæti farið á morgun að Peking fái
45 atkvæði í fyrstu umferð.
Sú nýbreyttni verður nú höfð
við atkvæðagreiðsluna að nefndar-
menn fá ekki að vita á milli um-
ferða hversu mörg atkvæði hver
borg hefur fengið, aðeins hvaða
borg hefur dottið út. Þessi aðferð
er höfð til að koma í veg fyrir að
nefndarmenn greiði það sem kalla
má „samúðaratkvæði“ eins og
gerst hefur í fyrri kosningum.
Árið 1991 hittist nefndin í Birm-
ingham til að kjósa um hvar vetra-
rólympíuleikarnir skyldu haldnir
árið 1998. Salt Lake City var
nærri dottin út í fyrstu umferð
kosninganna og munaði aðeins
einu atkvæði. Ástæðan var að
margir nefndarmanna kusu Jaea á
Spáni og Aosta á Italíu þar sem
enginn bjóst við að þessir staðir
fengju Ieikana og menn vildu koma
í veg fyrir niðurlægjandi úrslit.
Með þessu nýja formi á að koma
í veg fyrir að menn greiði atkvæði
í fyrstu umferð á annan hátt en
þeir í raun og veru ætla sér.
Gríðarleg öryggisgæsla
Lögreglan í Mónakó hefur haft
í nógu að snúast undanfarna
daga, eða á meðan Alþjóðaólymp-
íunefndin hefur fundað í Monte
Karló. Talsvert hefur verið um
mótmæli við hótelið þar sem
nefndarmenn funda, bæði hafa
brottfluttir Tíbetbúar mótmælt
því að Peking fái að halda leik-
ana árið 2000 og Þjóðveijar sem
eru á móti því að Berlín fái leik-
ana hafa látið ófriðlega.
Lögreglan í Mónakó var þó við
öllu búin því hún hafði fengið
aðstoð frá frönsku lögrelgunni
auk þess sem hún hefur fengið
17 hunda til liðs við sig. Lögregl-
an hefur 810 lögrelguþjóna á
vakt til að vera við öllu búnir ef
til alvarlegra mótmæla kemur.
Úr frönsku óeyrðalögrelgunni
koma 360 lögrelgumenn og 450
heimamenn eru einnig á vakt,
þar af eru aðeins 260 í lögrelgu-
búningum. Þyrlur fljúga stöðugt
yfir ströndinni og átján lögrelgu-
þjónar á mótórhjólum eru til taks
nærri hóteli nefndarmanna.
Ástæða þessarar miklu örygg-
isgæslu er að Þjóveijar sem eru
á móti því að Berlin bjóðist til
að halda leikana hafa staðið fyrir
blóðugum mótmælum í Þýska-
landi og hótað því að endurtaka
leikinn í Monte Karló áður en
niðurstaða nefndarinnar verður
tilkynnt. Lögreglan hefur einnig
haft náið samstarf við starfsfé-
laga sína í Þýskalandi.