Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 22

Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 22
AKUREYRI Fj áröflunarátak SÁÁ að hefjast um helgina NORÐURLANDSDEILD Samtaka áhugamanna um áfengis- og vímu- efnavandann er (SÁÁ) í þann mund að hefja árlegt átak til fjáröflun- ar. Blaði deildarinnar verður dreift í öll hús á Eyjafjarðarsvæðinu og þá hefst sala happdrættismiða um helgina. Norðurlandsdeildin stofnaði í árs- byijun 1989 þjónustustöð á Akureyri fyrir áfengissjúkiinga og aðstand- endur þeirra og hefur hún frá upp- hafi verið rekin af sjálfsaflafé og með styrkjum frá Akureyrarbæ og ríkinu. Frá síðustu áramótum hefur þjónusta verið á ábyrgð heildarsam- taka SÁÁ faglega, en nú í ár er þjón- ustan umfangsmeiri en nokkru sinni fyrr. Áfangaheimilið Fjólan var stofnað í júlí 1991, en það er búsetuúrræði fyrir áfengis- og vímuefnaneytendur sem endurtekið hafa þurft að leggj- ast inn á stofnun til meðferðar. í húsinu geta búið allt að 11 manns, en eitt og hálft ár leið áður en full nýting fékkst á húsinu. Þá myndað- ist rekstrarhalli sem enn hefur ekki unnist upp að fullu. (Úr fréttatilkynningu.) Virðisauka- skatti á flugfar- gjöld mótmælt BÆJARRÁÐ mótmælti harðlega á fundi sínum í gær fyrirhugaðri álagningu virðisaukaskatts á far- gjöld flugfélaga innanlands. „Þessi álagning eykur enn á að- stöðumun landsmanna og stóreykur útgjöld þeirra sem þurfa að sækja þjónustu tii höfuðborgarsvæðisins. Þá er einnig hætta á að kostnaðar- aukning af þessu tagi dragi úr ferða- lögum Islendinga innanlands og geti þannig haft alvarleg áhrif á upp- byggingu ferðaþjónustu," segir í ályktun bæjarráðs. Togari tíl Raufarhafnar ^ Raufarböfn. ÚTGERÐARFÉLAGIÐ Jökull hf. á Raufarhöfn sem á skuttogarann Rauðanúp ÞH-160, sem smíðaður var í Japan 1973, hefur fest kaup á rækjutogara frá Noregi. Hann er keyptur af Christianbank og Kredit- kasse og heitir Arctic Sea, en kemur til með að hljóta nafnið Jökull JH-166. Skipið er 51,70 metrar að lengd, 12,80 metra breitt, 5,20 metrar að dýpt og 3001 rúmmetrar. I skipinu eru 3060 hestafla aðalvél Wertsila Vasa, einnig eru tvær ljósavéiar 800 kW og 300 kW. Skipið er sérstaklega styrkt fyrir siglingu í ís, togvindur eru 29 tonna. Skipið er búið rækjuvinnslu og er frystigeta 40 til 50 tonn á sólar- hring. Áhöfn getur verið allt að 27 menn. Hásetar eru í tveggja manna klefum. Skipið er búið helstu sigl- inga- og fískleitartækjum, en þar þarf nokkurrar endumýjunar við. Arctic Sea hefur að undanfömu stundað veiðar við Nýfundnaland á Flæmska hattinum. Á fjölmennum hluthafafundi í Jökli hf. fékk stjóm félagsins heim- ild til hlutafjáraukningar og hefur sveitarstjóm Raufarhafnarhrepps þegar samþykkt að auka hlutafé hreppsins um allt að kr. 15 milljónir, en Raufarhafnarhreppur er stærsti hluthafínn í Jökli hf. Ef allt gengur að óskum, er skipið væntanlegt til Raufarhafnar um miðjan desember. - Helgi Troðfullt hús þegar Krístján Jóhannsson árítaði plötu sína Fagnaðarfundir íviurguiiuiauiu/ivuiicii t'ui KMSTJAN heilsaði félögum sínum Ingva Rafni Jóhannssyni og eiginkonu hans Sólveigu Jónsdótt- ur með virktum, en Ingvi Rafn er einn af máttarstólpum Karlakórs Akureyrar-Geysis. Um 500 plötur seldar á um tveimur tímiun MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993 75 ára fullveldis minnst NEMAR í Menntaskólanum á Akureyn minntust 75 ára afmælis fullveldis íslands á svokall- aðri 1. des. hátíð sem haldin var í íþróttahöllinni á Akureyri í fyrrakvöld, en þessi hátíð er jafnframt árshátíð skólafélagsins. Allt að 800 manns sóttu hátíðina, nemendur og kennar- ar skólans og höfðu nemarnir lagt metnað sinn í að skreyta höllina í samræmi við tilefnið. Verðandi stúdentar mættu eins og reyndar kennarar og aðrir gestir í sínu fínasta pússi, Morgunblaðið/Runar Þór stúlkumar { peysufötum og piltamir í kjólfötum. Formaður skólafélagsins og skólameistari, Tryggvi Gíslason fluttu ræður þar sem fullveldisins var minnst og þá voru að venju flutt minni karla og kvenna. Þá hafði leikfélag skólans æft upp dagskrá sem sýnd var og nokkr- ir nemanna sáu um að leika tónlist á meðan snædd var þríréttuð máltíð, en það vom nem- amir sjálfir sem sáu um þjónustuna og höfðu í því skyni æft sig af kostgæfni síðustu daga. KRISTJÁN Jóhannsson tenórsöngvari áritaði um 500 eintök af geislaplötu sinni „Af lífi og sál“ í Bókvali síðdegis i gær. Verslunin var troðfull út úr dyrum á meðan Kristján sat við áritunina og fjöldi pantana barst frá fólki um land allt. Það var þröng á þingi í Bókvali aftra sér að standa í langri biðröð síðdegis í gær þegar Kristján Jó- hannsson tenór áritaði nýju geisla- plötuna sína í versluninni og mikið um hlýjar kveðjur, en fjölmargir vinir hans og ættingjar notuðu tækifærið og köstuðu á hann kveðju er hann heimsótti sinn gamla heimabæ, Akureyri. Fólk lét ekki til að fá áritun Kristjáns á geisla- plötu hans „Af lífí og sál“ sem ný- lega kom út. Vinsæll jólapakki Platan verður eflaust vinsæl jóla- gjöf því fjölmargir báðu söngvarann að skrifa kveðju til pabba og mömmu, Stínu frænku eða Gumma bróður á kápuna og tók hann öllum beiðnum þar um ljúfmannlega og virtist þekkja að minnsta kosti ann- an hvem mann. „Það var alveg stappað hér inni í versluninni og síminn þagnaði ekki,“ sagði Jón Ellert Lárusson, eigandi verslunarinnar. Allar plöt- umar kláruðust og vora fleiri pant- aðar úr Reykjavík í skyndi og kom ný sending með flugi í gærkvöld. Nýi tog’arinn NÝ innfluttur rækjutogari til Raufarhafnar, Jökull ÞH-166.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.