Morgunblaðið - 02.12.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FTMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1993
35
Morgunblaðið/Vilmundur Hansen
Dagsferð í Þórðarhelli
Trékyllisvík.
FERÐIR í Þórðarhelji eru að verða fastur liður í skólastarfínu í Finnbogastaðaskóla. Þórðarhellir er í Reykjanes-
hyrnu í landi Litlu-Ávíkur í Trékyllisvík. Að þessu sinni var Pálína Jenný Þórólfsdóttir á Finnbogastöðum leið-
sögumaður.
Þingmaimi og bankaráðsfor-
manni stefnt fyrir meiðyrði
SVERRIR Örn Siguijónsson framkvæmdastjóri íslensk-rússneska
verslunarfélagsins, hefur stefnt Guðna Ágústssyni alþingismanni og
formanni bankaráðs Búnaðarbankans fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur,
og krefst þess að ummæli sem Guðni lét falla í fréttum Bylgjunnar
og Stöðvar 2 þann 20. maí síðastliðinn verði dæmd dauð og ómerk,
þingmaðurinn dæmdur til tveggja ára fangelsisvistar — þyngstu
refsingar sem lög leyfa fyrir meiðyrði — og til að greiða Sverri 250
þúsund króna miskabætur og 100 þúsund krónur til að kosta birt-
ingu á dómsorði í fjölmiðlum.
SKEMMTANIR
Ummælin féllu vegna samskipta
íslensk-rússnesku verslunarskrif-
stofunnar, IRBA, við Búnaðar-
bakna íslands vegna fyrirhugaðra
viðskipta við fyrrum lýðveldi Sovét-
ríkjanna. Þau viðskipti voru til
umfjöllunar í Morgunblaðinu í vor
og síðar í öðrum fjölmiðlum eftir að
í ljós kom að í bréfaskrifum á veg-
um bankans vegna samskipta við
fyrirtækið voru hergögn nefnd sem
hugsanleg verslunarvara. Ummæli
þau sem stefnt er vegna lét Guðni
Ágústsson falla þegar til hans var
leitað með spurningar um tengsl
bankans við þau viðskipti.
Meðal þeirra ummæla sem kraf-
ist er ómerkingar á eru þau orð að
Sverrir Örn sé sjálfur vopnasalinn
í málinu; vel kunni að vera að Sverr-
ir hafi leitt starfsmann Búnaðar-
bankans í gildru með viðskiptunum
og um sé að ræða fjárkúgun þar
sem Sverrir Örn ætli sér margar
milljónir fyrir þessi viðskipti á hend-
ur bankanum.
I stefnu Ásgeirs Björnssonar
hdl, fyrir hönd Sverris Arnar Sigur-
jónssonar, segir að fyrirtæki Sverr-
is hafi átt mikil samskipti við Bún-
aðarbankann á síðasta ári vegna
fyrirhugaðra viðskipta við fyrrum
lýðveldi Sovétríkjanna. Ekkert haft
orðið úr viðskiptunum og telji Sverr-
ir að um megi kenna starfsaðferð-
um og viðskiptaháttum þess manns
í bankanum sem um mál þessi sá.
Vegna þessa hafi Sverrir skrifað
bankaeftirliti Seðlabanka og óskað
álits þess á starfasaðferðum bank-
ans og í svari sínu segir bankaeftir-
litið að bankinn hafi með starfsem-
inni farið úr fyrir starfsheimildir
sínar samkvæmt lögum. Fyrirtækið
hafi krafist bóta úr hendi Búnaðar-
bankans en þar verður um sérstakt
bótamál að ræða, að því er lögmað-
ur Sverris Arnar sagði við Morgun-
blaðið í gær.
I rökstuðningi í stefnunni vegna
kröfugerðar um bætur og refsingu
vegna ætlaðra refsiverðra aðdrótt-
ana í garð Sverris Arnar um að
hann hafí leitt starfsmann bankans
í gildru, stundað fjárkúganir eða
vopnasölu segir m.a. að við ákvörð-
un refsingar beri að taka tillit til
mismunandi aðstöðu Guðna og
Sverris Arnar þar sem sá fyrr
nefndi hafi sett ummæli sín fram
með áberandi hætti í útbreiddum
fjölmiðlum og þannig að sérstak-
lega meiðandi hafi verið. Guðni
hafi haft vitneskju eða hafi átt að
hafa vitneskju um að ummæli hans
voru röng og fólu í sér alvarlega
aðdróttun.
Málið hefur verið þingfest í Hér-
aðsdomi Reykjavíkur og þar var
lögmanni Guðna veittur frestur til
að afla gagna og leggja fram grein-
argerð.
Ummæli í hita leiksins
Guðni Ágústsson sagði vegna
málsins i samtali við Morgunblaðið
að málið sé höfðað út af ákveðnum
ummælum sem hann hafi látið falla
í hita leiksins. „Ég vil taka fram
að þau voru ekki sögð út í loftið
eða af illgirni, heldur vegna at-
burðarásar og kröfugerðar af hálfu
Sverris Arnar og IRBA hf. sem ég
hef skrifleg frá lögmanni þeirra.
Þeir ætluðu að ná sér í skaðabætur
og fyrirgreiðslu upp á nokkra tugi
milljóna sem Búnaðarbanki Íslands
átti að greiða til að losna við dóm-
stóla og fjölmiðla. Við því var ekki
orðið. Svo er það dómstólanna að
skera úr og ég kvíði þejrri niður-
stöðu ekki,“ sagði Guðni Ágústsson,
alþingismaður og formaður banka-
ráðs Búnaðarbanka íslands.
UCAFÉ AU LAIT, Hafnarstræti 11.
í kvöld, fimmtudag, heldur hljóm-
sveitin Skárra en ekkert tónleika.
Hljómsveitin spilar suöur-evrópska
tónlist. Café au lait býður upp á bjór
og jólaglögg með afslætti.
ULIPSTICK LOVER leikur óraf-
magnað á Pizza 67, Tryggvagötu,
föstudagskvöld. Sveitin er með lag
á safnplötunni Ýkt stöff frá Spori
sem nýverið kom út.
UHRESSA HÚSFLUGAN er heitið
á nýrri hljómsveit og verða fyrstu
tónleikar hennar í kvöld, fimmtudag,
á veitingastaðnum Tveimur vinum.
Hljómleikamir hefjast kl. 23. í til-
kynningu frá hljómsveitinni segir að
dagskráin miði við hugljúf og gríp-
andi lög sem hjálpi fólki aö ylja sér
undir kaffinu þegar inn er komið.
Einnig segir að textar úr smiðju
manna á borð við Tom Waits og
blús í anda gömlu blökkumannatón-
listarinnar séu á dagskrá.
UDANSBARINN Föstudags- og
laugardagskvöld leikur Hljómsveit
Rúnars Þórs. Á laugardagskvöldinu
um kl. 23 sýnir Baldur Brjánsson,
töfrabrögð.
UK.K.-BAND leikur á veitingastaðn-
um Firðinum, Hafnarfirði laugar-
dagskvöld. Þar ætlar K.K.-band að
kynna nýju plötuna Hotel Föroyar.
UHEIÐIN HÁTÍÐ verður haldin á
Veitingahúsinu 22 v/Laugaveg í
kvöld á vegum tímaritsins Níu næt-
ur. Tímaritið, er fjallar um heiðinn
sið, hefur fengið til liðs við sig lista-
menn úr ýmsum áttum. Þeir eru
hljómsveitin Reptilicus er leikur fyrir
dansi, Hilmar Örn Hilmarsson er
flytur eigin tónlist og Þorri og Jó-
hann vélhöfuð er leiða saman seið-
andi Ijóðaflutning og fornan trumbu-
slátt. Einnig kemurfram trúbadorinn
G.G. Gunn. Á dagskrá verður einnig
nýstárleg uppákoma, lesnir verða
upp tilviljunarkenndir útdrættir úr
blaðinu Níu nætur með viðeigandi
myndasýningu. Hátíðin hefst kl. 22
og er 500 kr. aðgangseyrir.
UGAUKUR Á STÖNG ( kvöld,
fimmtudag, leikur hljómsveitin Al-
veg svartir. Föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur svo hljómsveitin
Friðrik XII.
UVITINN SANDGERÐI heldur
Kántrýveislu um helgina og sér E.T.
bandið um að halda kántrýsveiflunni
gangandi föstudags- og laugardags-
kvöld.
UPIZZA 67, Hafnarfirði Hljómsveit-
in Reggae on lce leikur föstudags-
og laugardagskvöld á Pizza 67,
Hafnarfirði.
UBLÁEYGT SAKLEYSI leikur á
Blúsbarnum um helgina, föstudags-
og laugardagskvöld. Hljómsveitin
leikur blús og rokk og ætla fjórmenn-
ingarnir sem skipa Sakleysið að
setja tónlist sína á geislaplötu í ná-
inni framtíð.
UPLÁHNETAN leikur fyrir Sunn-
lendinga og nábúa þeirra á laugar-
dagskvöldið 4. desember í veitinga-
húsinu Inghóli, Selfossi. Hljóm-
sveitina skipa þeir Stefán Hilmars-
son, Ingólfur Sv. Guðjónsson, Frið-
rik Sturluson, Ingólfur Sigurður
Sigurðsson og Sigurður Gröndal.
"'viá-í'J ^
^r<í ii. . !
á,M — i itijj.
i* (»14 é\ f j- U-f$
-Á é <3-4)' 'f k I&h, 4
: li-S’.ÍJll .
FRÆÐSLUFUNDUR FYRIR KÍNVERJA UM ÍSLENSKT ÞJÓÐFÉLAG
verður haldinn að Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, Reykjavík laugardaginn 4. desember n.k. kl. 14.00
Dagskrá: Að vera útlendingur í nýju landi, Hope Knútsson
Dvalar- og atvinnuleyfi, Jóhann Jóhannsson
Hvað brennur á nýbúum? Spumingar og svör
Á síðari fundi verður rætl um lög og rétt, félagslega þjónustu og menntun, heilbrigðisþjónustu og fleira. Sá fundur
verður ákveðinn í samráði við þátttakendur.
Ragnar Baldursson þýðir íslenskan og enskan texta á kínversku fyrir fundarfólk.
Vinsamlegast skráið ykkur í síma 91-626722 fyrir kl. 17 á föstudag. Athugið að aðgangur er ókeypis.
+
■ Rauði kross íslands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722