Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 13

Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 B 13 er bara með fé núna, 50 fjár sem eru út og suður enn þá. Féð mitt er með því vænsta sem til er, en sjaldgæft er þó að ærnar mínar verði tvílembdar,“ segir Þórður. En hvernig skyldi honum ganga að halda utan um búrekstur þótt ekki sé hann stór? Stóra vandamálið... „Ég hef fengið hjálp. Sonarsonur minn, Arnþór Oskarsson hefur komið þegar hann á frí og hjálpað mér við heyskapinn. Einnig Már Ingvarsson, sem hefur verið hjá mér hálft sumarfríið. Már vann á bílaverkstæði í 30 til 40 ár en var svo sagt upp síðasta sumar. Nú fær þessi vinur minn ekki vinnu, enda er mikið atvinnuleysi. Það er einmitt stóra vandamálið sem stríðir gegn okkar þjóðfélagi í dag.“ En sérð þú ekki glætu fram undan? „Ja, það eru engar starfs- greinar sem bjarga neinu og ekki er von á góðu þegar engir almenni- legir stjórnmálamenn eru til stað- ar. Landbúnaðurinn er að smá- hverfa, fiskurinn er að hverfa úr sjónum. Hvar á maður svo sem að sjá glætu?“ En þú hefur það bara býsna gott hérna í Haga? „Já og ég kvarta ekki,“ segir Þórður og bend- ir á að hann hafi öll helstu nútíma- þægindi eins og rafmagn, síma, heitt og kalt vatn og fleira. En sjónvarp? Þórður hristir hausinn og fussar og sveiar. „Sjónvarp vil ég ekki sjá, aftur á móti hlusta ég mikið á útvarp og svo les ég mikið.“ En hvað hefur þú á móti sjónvarpi Þórður? „Ég skal segja þér það. Árið 1966 var komið sjón- varp víða á sveitabæi. Ég vissi til þess að á bæ einum hér í sveit bjuggu hjón xneð 6 ára dreng. Þetta var kúa- og fjárbú og eitt sinn snemma að vetri var bóndi ekki heima og kona hans þurfti því að fara út til gegninga. Eitthvað dvaldist henni við það og var kom- ið kvöld er hún gekk aftur til húss. Þegar hún kom í húsið bjóst hún við því að barnið kæmi hlaupandi í fangið á sér, en það var eitthvað annað. Hún fann barnið í stofunni og þar var það að glápa á sjónvarp- ið. Það mætti móður sinni stóreygt og hún spurði hvort það væri gam- an að horfa á sjónvarpið. Já, sagði drengurinn, en það er ekki búið að drepa nema ijóra! Hvað ætli sé búið að drepa margar milljónir í dag? Nei, það er ekki af því að ég er gamaldags að ég kæri mig ekki um sjónvarp, en því fylgir jafn mikil bölvun og blessun. Ég for- dæmi það ekki alveg, en það fór strax í taugarnar á mér og er ekki farið úr þeim enn!“ En þú hlustar á útvarpið, hvernig líst þér á heimsmálin? „Ja, ég er nú búinn að fá alveg nóg af stríðsfréttum, en það er gott til þess að vita að íslendingar ætla að miskuna sig yfir nokkra sjúklinga sem misstu fætur í stríð- inu i Bosníu. íslendingar eru með allra bestu hugmyndasmiðum í heiminum. Annars er nú ekki allt gott sem í útvarpinu er, íþróttimar eru til dæmis alveg hreint ótrúleg- ar. Ég hef persónulega ekkert á móti íþróttum. Þær era góðar fyrir líkamann í hófi. En að hlusta á íþróttaþuli öskrandi í tækin á kapp- leikjum er ekki normalt. Nú á tím- um atvinnu- og peningaleysis. Já, ég hef fengið orð á mig að segja meiningu mína við Pétur og Pál,“ segir Þórður glottandi. Og það er óborganlegt glott. Lífsreynsla og hundar... Samtalið hefur færst fram í for- stofuna. Þar er ögn bjartara heldur en í svefnherberginu og það gefst tækifæri til að virða Þórð betur fyrir sér. Hægra augað er fjarri góðu gamni. Hann missti það í slysi árið 1960. Samt var hann til skamms tíma duglegur að lesa. Nú truflar sviminn, en það stendur til bóta segir Þórður. Hann hefur sagt okkur frá því að tvisvar hafi hann næstum dáið af slysförum, annars veerar í eldsvoða, hins veg- ar hafi brotnað undan honum ís á Skorradalsvatni. í bæði skiptin hefði verið rökréttara að hann hefði látið lífið, en kraftaverk hafi bjargað sér. Að öðru leyti vill hann ekkert tjá sig um málið. Skiptir um umræðuefni er blaðamenn reyna að fiska hann. Og þegar gestir og heimamaður standa að lokum úti á hlaði í suð- vestan hryssingi, átta gestir sig loksins á því að enginn er hundur- inn. Þórður er auðvitað spurður hvað valdi. Svarið er ömurlegra en hægt er að ímynda sér. Þórður segir að tvo síðustu hunda sína hafi menn á nærliggjandi bæjum drepið fyrir sér. Þeir hafi verið á einhverju flakki eins og sveita- hunda er siður. En vissu mennirn- ir ekki að þú ættir þessa hunda? „Jú, þeir vissu það vel,“ svarar Þórður og bætir svo við, „ætli ég verði ekki að gefast upp á því að hafa hund.“ En er ekki erfitt að vera með hundlausan fjárbúskap? „Jú, en hvað á ég að gera?“ Vetur framundan Sumarið er liðið. Haustið í algleym- ingi er við heimsóttum Þórð í Haga. Skógurinn í Skorradal skartar ótrúlegu litrófi og fjallalækir flýta sér meira en í sumar eftir haust- rigningamar. Þrír himbrimar, par með vaxinn unga, góla úti á vatni milli þess að þeir kafa og veiða. Þórður verður fjarrænn, rétt eins og hann sé búinn að kveðja okkur og við séum farnir. Hvemig leggst veturinn í hann? „Ég veit það ekki, síðasti vetur var erfiður. Það gerði tíðin. Sunnanáttin var svo rík með rigningu og blota og snjókomu á víxl. Það gerði aldrei norðan. Féð hjá mér var í húsi alveg fram und- ir sumarmál. Það er sú lengsta Hagi í Skorradal. innistaða sem ég hef lent í í 71 ár, frá októberlok og fram undir sumarmál." En þú ætlar ekki að bregða búi? „Nei, ekki á meðan ég er uppi- standandi og get hugsað um mig sjálfur. Hér er mitt heimili. Ég get hvergi annars staðar verið. ja ....yflr lækinn Ódýrari á íslandi í nýlegri verðkönnun sem gerð var í Englandi, Danmörku og Hollandi kom í ljós að vandaði vinsæli Melka herrafatnaðurinn er í öllum tilfellum ódýrari í verslunum hérlendis. Quality Men's Wrar ÚrMorgunblaðinu23.nóv. '93 Sumar Melkavörur eru ódýrari hérlendis Sænski MELKA-herrafatnaður hefur verið á markaði hér í ald- arfjórðung og í verðkönnun sem Magnús Erlendsson, umboðs- maður Melka lét gera nýlega á sams konar vörum þess hér, í Kaupmannahöfn, Amsterdam og London kom í Ijós að verð var í öllum tilfellum lægst hér. í Dar.mörku var verð athugað í Magasin de Nord. Úlpa af tegund 220 kostaði 1.299 DKR eða 13.670 þar. Hjá Hagkaup í Kringl- unni kostar sama úípa 11.895 kr. og munar 1.775 kr. Melka-peysa, tegund 600, kostaði í Selfridges við Oxfordstræti í London 59,95 pund eða 6.365 kr. Sama peysa kostar hér 5.400 kr. Melka-skyrt- ur kostuðu að jafnaðarverði 109,40 gyllini í Byerkorf í Amster- dam eða 4.100 kr. Hér er jafnaðar- verð á MELKA-skyrtum 3.800 kr. Ástæðan mun vera að merkja- vara erlendis er oft og einatt með mun hærri álagningu en hér og gilti það um fleiri merki en Melka. íflestum bestu herrafatadeildum landsins. —þegar verð oggœði sameinast

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.