Morgunblaðið - 05.12.1993, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
B 17
Rabb um rann-
sóknir og
kvennafræði
GUÐBJÖRG Linda Rafnsdóttir
félagsfræðingur segir frá rann-
sókn sinni á verkakvennafélög-
um á íslandi þriðjudaginn 7. des-
ember í boði Rannsóknastofu í
kvennafræðum við Háskóla ís-
lands.
Guðbjörg Linda er með BA-próf
í félagsfræði frá Háskóla íslands
og MA-próf frá Lundarháskóla í
Svíþjóð. Hún vinnur nú að doktors-
ritgerð um íslensk verkakvennafé-
lög. Rabbið verður í stofu 311 í
Árnagarði kl. 12-13.
■ Trúartónleikar (gospel) verða
í Grindavíkurkirkju annan sunnu-
dag í aðventu, 5 desember, kl.
20.30. Flytjendur á tónleikunum
eru þekktir söngvarar og hljómlist-
armenn, s.s. Ruth Reginalds, Jam-
es Olsen, Ingveldur Ólafsdóttir,
gospelkór og Hljómsveit Magnús-
ar Kjartanssonar. Einnig munu
kórar kirkjunnar taka þátt í tónleik-
unum. Flutt verða m.a. lög nýút-
komin á hljómdiski í útsetningu
Magnúsar Kjartanssonar. Má þar
nefna lög eins og í bljúgri bæn,
Operator, Lean on me, Amazing
Grace, Swing low, sweet chariot
og Oh Lord what a morning ásamt
mörgum öðrum. Öll lögin eru flutt
á íslensku. Aðgangseyrir er 900 kr.
fyrir 12 ára og eldri.
■ JÓLAKVÖLD Vísnavina verð-
ur mánudagskvöldið 6. desember
kl. 20.30 í Leikhúskjallaranum en
þar voru Vísnakvöldin haldin um
árabil við mjög góðar undirtektir.
Á þessu Vísnakvöldi munu koma
fram Haraldur Reynisson trúbad-
or, en hann hefur nýverið gefið út
sína fyrstu skífu, Hreiðar Gíslason
vísnasöngvari, MK-kvartettinn, en
þau eru að koma saman aftur eftir
langt hlé, og Anna S. Björnsdóttir
ljóðskáld les úr verkum sínum. Þá
mun Eldbandið, sem skipað er
nokkrum eldhressum slökkviliðs-
mönnum, halda uppi jólastemmn-
ingu.
■ TAFLFÉLAGIÐ Hellir heldur
mánaðamót í Menningarmiðstöð-
imii Gerðubergi mánudaginn 6.
desember kl. 20. Þátttökugjöld eru
300 kr. fyrir félagsmenn en 400
kr. fyrir aðra og munu 60% þátt-
tökugjalda renna til sigurvegarans.
Tefldar eru 10 mínútna skákir, 7
umferðir Monrad. Mótið er opið öll-
um.
■ HITT HÚSIÐ verður opið til
próflestrar 1.-14. desember virka
daga frá kl. 10-22, laugardaga og
sunnudaga frá kl. 12-18. Kaffiter-
ían er opin og selt er súpa og brauð
á vægu verði og einnig kaffi, te og
kakó.
ISUZU TR00PER DIESEL
TURB0 INTERC00LER
ARGERÐ ’94
Verð kr. 3.430.000.- stgr. á götuna
Bílheimar er friösamt fyrirtæki, en með þessum bíl og veröi sláum viö alla út!
Helsti búnaður:
Vél 3,1Lturbo intercooler,
125 hestöfl, 7 manna bíll,
rafdrifnar rúður, samlæsing,
75% diskalæsing í afturdrifi,
sjálfvirkar framdrifslokur,
hágæða innrétting
með"captain"
framstólum, fjölstillanlegt
bílstjórasæti, rafstillanlegir
útispeglar, hiti í útispeglum ofl.!
Aukahlutir á mynd: álfelgur, kastarar
og stærri dekk.
JÓM
TííiVflíí (Jjíl)
Sréttirkr. 830,-« 9 réttir kr. 1.090,-* réttir kr. 1.390,-
UIUGIMG110 - flMI 626210
BACKMAN