Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
B 19
Innsæi Magnús og
Jóhann eru eft-
irsóttir i röddun hjá
ýmsum tóniistar-
mönnum og hafa
haft mikið fyrir
stafni í haust. Hér
sjást þeir hita upp
fyrir Rafn Jónsson í
Borgarleikhúsinu.
LÍFSMYNDIR
MAGNÚSAR OG JÓHANIMS
FÁIR lagasmiðir og flytjendur stóðu þeim Magnúsi Þór Sigmundssyni
og Jóhanni Helgasyni á sporði á árum áður, er þeir félagar sendu frá
sér plötur og komu fram undir nafninu Magnús og Jóhann. Uppúr því
samstarfi slitnaði síðar þar til fyrir nokkru að þeir drógu fram gítar-
ana og tóku upp þráðinn þar sem frá var horfið.
Fyrir stuttu kom út platan Lífs-
myndir Magnúsar og Jóhanns,
sem á eru lög eftir þá félaga í flutn-
ingi þeirra sjálfra og ýmissa söngv-
ara, aukinheldur sem Friðrik Karls-
son leiðir leikna útgáfu af Evróvisi-
onlaginu Karen.
Magnús segir þá félaga hafa haf-
ist handa við að taka upp Lífsmynd-
irnar stuttu eftir að þeir tóku fram
gítarana og fóru að syngja saman á
ný fyrir tveimur árum. Af ýmsum
orsökum náðu þeir ekki að ljúka við
hana, og í millitíðinni tóku þeir upp
afmælisplötu, sem kom út á síðasta
ári.
Söngvarar á Lífsmyndum eru fjöl-
margir og Magnús segir það ráðast
af því að mörg laganna séu þannig
að þau kalli á vissar raddir. „Til
dæmis er eitt af mínum lögum á plöt-
unni, lag sem ég fékk Pálma Gunn-
arsson til að syngja, og sem stein-
liggur með hans lit í röddinni. Þetta
er eins og með hljóðfæri, sumar línur
liggja til að mynda betur með léttan
tón, en aðrar liátt uppi. Pálmi er eins
og gott selló og þegar ég prófaði að
syngja þetta lag sjálfur fannst mér
eitthvað vanta.“
Magnús vill ekki gera mikið úr
harki þeirra félaga síðan jieir hófu
að syngja saman aftur. „I raun og
veru höfum við aldrei verið neitt sér-
staklega virkir. Þetta er meira hug-
lægt starf; það er einhver skynjun á
milli okkar sem er alltaf vakandi og
við höfum til dæmis aldrei þurft að
æfa mikið, það er frekar að við miss-
um þetta innsæi sem við höfum hver
á annan ef við liggjum of mikið yfír
hlutunum."
Magnús og Jóhann komu saman
fram á útgáfutónleikum Rabba í
Borgarleikhúsinu 24. nóvember sl.,
en Magnús segir ekki hlaupið að því
fyrir þá að halda fullskipaða útgáfu-
tónleika. „Það eru svo margir söngv-
arar á plötunni að það er meira en
að segja það að ná þeim öllum sam-
an fyrir tónleika. Menn eru allir á
fullu hver í sínu lagi.“
Yfirlýsing Hljómsveitin Rask.
Rask á kreik
ÞEGAR Sigríður Guðnadóttir söng lagið Freedom inn á topplista í
sumar, lýsti hún þeirri ætlun sinni að stofna eigin sveit sem ætti að
leika rokk og ról. Sú sveit er komin á koppinn, heitir Rask og á sitt
fyrsta lag á safnplötunni Heyrðu 2, sem kom út fyrir skemmstu.
Meðreiðarsveinar Sigríðar eru
ekki af verri endanum, en
Rask er samstarfsverkefni hennar
og Bergþórs Morthens, sem á að
baki langan feril í rokkinu; allt frá
dögum Egósins sáluga í GCD síð-
asta sumars. Aðrir í sveitinni eru
Bergsteinn Vilbergsson trommu-
leikari, Björn Sigurðsson bassa-
leikari og Pétur Guðmundsson org-
elleikari. Eins og sjá má eru í sveit-
inni blanda af óreyndum og reynd-
um tónlistarmönnum. Hljómsveitin
er svo nýmótuð að hún hefur varla
leikið opinberlega, en fyrstu
tvennu tónleikarnir voru síðastlið-
inn fimmtudag og föstudag. Þau
Sigríður og Bergþór segjast líka
enn vera að slípa sveitina saman
og þau hafi í raun farið af stað í
spilirí til að fullmóta það sem þau
vilja gera. „Við erum að æfa upp
prógramm af frumsaminni tónlist,“
segir Bergþór, „en þangað til byrj-
um við á að leika lög eftir aðra,
til að halda okkur við efnið.“ „Það
er svo erfitt að vera alltaf að hanga
inni í skúr,“ segir Sigríður. „Það
er ágætt að byija að spila þó það
sé ekki allt okkar eigin efni.“
„Þetta er allt rokk og ról,“ segir
Bergþór til nánari skýringar og
Sigríður bætir við: „Á okkar vísu.“
Eins og áður segir á Rask lag
á Heyrðu 2, sem þau Sigríður og
Bergþór segja að sé blanda af
gömlum hugmyndum og nýjum,
en lagið varð til áður en sveitin
var fullskipuð. Það verður á tón-
leikadagskránni, með fleiri lögum
eftir því sem þau taka á sig sterk-
ari mynd, en samt segja þau að
það sé ekki beint dæmigert fyrir
sveitina, í það minnsta ekki eins
og það hljómar á plötunni, en þó
yfirlýsing um það hvert sveitin
stefni.
„Vonandi verður þetta hrárra
hjá okkur,“ segir Bergþór, og Sig-
ríður bætir við, „það verður allt
miklu betra þegar við erum búin
að kynnast betur í hljómsveitinni
og finnum okkar eigin stíl.“
Hér syngja flestir af okkar efnilegustu
söngvurum á íslandi lög gömlu góSu
„hippa og blómaáranna" í frábærum
útsetningum Jóns Olafssonar (Nýdönsk)
Auk tveggja nýrra laga (áður óútkomin)
eftir Rúnar Gunnarsson
S • K •! *F *A * N