Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ MENIMINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993
B 23
IBIO
'inu sinni var Frönsk
■*—* kvikmyndavika í
Reykjavík eitthvað sem
festist í sýningarvélinni og
slitnaði. Nú er öldin önn-
ur. Undanfama viku hefur
Franska sendiráðið, All-
ianee Francaise og Há-
skólabíó boðið uppá
smekklegt franskt jóla-
hlaðborð með nýjustu
myndum kvikmyndaþjóð-
arinnar stóru.
Þess var gætt að þær
væru frá þessu og síðasta
ári og byðu uppá þver-
skurð af því sem franskir
kvikmyndagerðarmenn
fást við í dag. Þama var
spennumynd, gaman-
mynd, ástarsaga frá París
eftir Eric Rohmer, þjóðfé-
lagsádeila og litskrúðug
samfélagslýsing eftir
Bertrand Blier. Flestar
myndirnar sýndu og sönn-
uðu að Frakkar eru sér-
staklega líflegir og
skemmtilegir kvikmynda-
gerðarmenn. Hátíðin
bætti upp það sem vantaði
á síðustu Kvikmyndahátíð
Listahátíðar, nefnilega
franskar myndir.
Grátleikur
Williams
Yinsæl-
asta
myndin vest-
ur í Banda-
ríkjunum
þessa dagana
er „Mrs. Do-
ubtfire" þar
sem Robin
Williams
leikur kerl-
ingu með
hárið í hnút,
breiðan barm
og í háhæluð-
um skóm.
Williams hef-
ur bmgðið
sér í hin ólík-
legustu gervi
en líklega tekur ekkert þessu
fram. Hann leikur óánægðan
mann sem er nýskilinn en
smeygir sér aftur inn í fjöl-
skylduna sína sem eldri
vinnukona á heimilinu.
Leikstjóri er Chris Col-
umbus sem vann í handritinu
á meðan hann leikstýrði Al-
einum heima 2. Með önnur
hlutverk fara Sally Field,
Pierce Brosnan og Harvey
Ólíkur sjálfum sér; Williams leikur frú
Doubtfire.
Fierstein en myndin er byggð
á samnefndri sögu Anne
Fine.
Engin upptaka er eins með
Williams, hann treystir mikið
á spuna, og sagði mótleikari
hans, Brosnan, að stundum
hafí hann verið að leika í
mynd fyrir alla fjölskylduna
og stundum mynd sem væri
bönnuð börnum. Úr því hefur
Columbus þurft að velja.
Um áramótin; Stallone og Wesley Snipes í „Demolition Man
35.000 hafa séð Flóttamanninn
Alls höfðu um 35.000
manns séð spennu-
myndina Flóttamanninn með
Harrison Ford eftir síðustu
helgi í Sambíóunum.
Þá höfðu um 8.000 manns
séð gamanmyndina Dave,
4.000 Hókus pókus, 14.000
spennumyndina Rísandi sól,
6.000 Fantinn og 17.000
ævisögulegu myndina um
Tínu Turner.
Eins og kunnugt er verða
Aladdín (talsett), Addams-
fjölskyldan 2 (einnig í Há-
skólabíói), Skyttumar þijár
KVIKMYNDIR
Hverjar erujólamyndimar vestra?
Kábojar og
indjánar
JÓLAVERTÍÐIN í Bandarikjunum hefst innan
skamms þegar frumsýndur verður fjöldinn allur
af bíómyndum sem flokkast undir jólamyndir vestra
og við fáum hingað til lands á fyrstu mánuðum
næsta árs. Þar kennir margra grasa og eflaust eiga
einhveijar myndimar eftir að koma við sögu Ósk-
arsverðlaunanna í mars því siðustu forvöð em að
fmmsýna myndir í keppnina í desember.
Pelikanaskjalið; Washington og Roberts í
spennumyndinni eftir sögu Johns Grishams.
nyju
Eftir Amold
Indríðoson
Þrjár jólamyndanna
munu sennilega eiga
í_ hörðustu keppninni um
Óskarsútnefningar. Steven
Spielberg, sem át upp
wmmmmmmmmmm miðasöl-
urnar um
allan
heim og
ekki síst
hér á ís-
landi með
risaeðl-
unum sl.
sumar,
frumsýnir mynd á allt öðr-
um nótum, svart/hvítt
drama um þýskan iðjuhöld,
Oskar Schindler, sem
bjargaði hundruðum gyð-
inga frá útrýmingu í seinni
heimsstyijöldinni. Liam
Neeson fer með titilhlut-
verkið í „Schindier’s List“,
sem hlýtur að vera lokatil-
raun Spielbergs til að vera
tekinn í hóp alvarlegri
kvikmyndaleikstjóra. Oli-
ver Stone sendir frá sér
„Heaven and Earth“, loka-
myndina í trílógíu sinni um
Víetnamárin en í þetta sinn
er stríðið séð með augum
innfæddra, víetnamskrar
konu sem flýr land og tek-
ur að búa í Bandaríkjunum
en snýr svo aftur eftir
stríðið. Tommy Lee Jones
fer með aðalkarlhlutverkið
og var kominn tími til að
hann endurheimti þá stöðu.
Enginn hefur gert betri
spennumynd í seinni tíð en
Jonathan Demme leikstjóri
Lectersmaníunnar Lömbin
þagna. Alnæmi er næst á
dagskrá og því gerir hann
skil í Fíladelllu, mynd um
ungan lögfræðing, leikinn
af Tom Hanks, sem rekinn
er úr starfi af því hann er
sýktur af HlV-veirunni, og
ræður sér lögfræðing,
Denzel Washington, til að
leita réttar síns. Þetta er
fyrsta stórmyndin um sjúk-
dóminn alræmda og það
er einkar spennandi að vita
hvað Demme gerir úr því.
Síðan eru það kábojar
og indjánar. Vestrar eiga
nokkru fylgi að fagna aftur
og „Tompstone“ á að vera
einn söðulbakaður. Kurt
Russell, Val Kilmer og
Charlton Heston gamli
koma saman við O.K. rétt-
ina undir leikstjórn George
Cosmatos og láta byssurn-
ar tala. Walter Hill sendir
frá sér indjánamyndina
„Geronimo“ með Jason
Patric, Robert Duvall og
Gene Hackman ásamt Wes
Studi úr Síðasta Móhíkan-
anum, sem leikur indján-
Indjáiiar; úr „Geronimo“ eftír Walter Hill.
ann Geronimo er barðist
við bleiknefja á níunda ára-
tug síðustu aldar. Bullu-
kollurinn John Milius á í
handritinu og Hill hefur
verið á niðurleið undanfar-
ið en það er aldrei að vita.
Þeir sem sækjast eftir
spennu hópast á Pelikana-
skjalið eða „The Pelican
Brief“ sem Alan J. Pacula
gerir eftir spennusögu
Johns Grishams. Julia Ro-
berts hittir óvart naglann
á höfuðið í ráðgátu um
morð á hæstaréttadómur-
um í Washington og tekur
til fótanna ásamt Denzel
Washington og Sam Shep-
ard. Bókin, sem kemur út
á íslensku, er góð en það
var Firmað líka og sjáðu
bara hvemig fór.
Aðrar jólamyndir vestra
eru framhaldsmyndir,
Sharon Stone - myndin
„Intersection“ með Ric-
hard Gere (hún leikur eig-
inkonuna, ekki viðhaldið)
.„What’s Eating Gilbert
Grápe“, sem sænski leik-
stjórinn Lasse Hallström
gerir og teiknimynd um
Leðurblökumanninn.
Fleslar eru þessar jóla-
myndir í eðli sínu um
káboja og indjána, svona
eins og lunginn af banda-
rísku bíómyndunum yfir-
leitt.
og „Another Stakeout" jóla-
myndir Sambíóanna. Um
áramótin verður nýja Syl-
vester Stallone - myndin
„Demolition Man“ frumsýnd
og uppúr miðjum janúar
verður „Perfect World“ með
Kevin Costner og Clint
Eastwood frumsýnd. Einnig
koma myndirnar „Cool
Runnings" með John Candy
og „Undercover Blues" með
Kathleen Turner. Um mán-
aðarmótin janúar febrúar
frumsýna Sambíóin gaman-
myndina „Mrs. Doubtfire"
með Robin Williams.
í febrúar koma myndirnar
Hús andanna eftir Bille Aug-
ust og nýjasta Oliver Stone
- myndin, „Heaven and
Earth“.
Vondar myndir; Depp og
Landau í myndinni „Ed
Wood“ eftir Burton.
Versti
leikstjóri
allra tíma
Tökur eru hafnar í Holly-
wood á ævisögulegri
mynd Tim Burtons (Batman)
um þann sem löngum hefur
verið nefndur versti leikstjóri
allra tíma, Ed Wood, en titil-
inn hlaut hann fyrir. myndir
eins og „Glen or Glenda" og
„Plan 9 From Outer Space“.
Wood var svo gagntekinn
af kvikmyndagerðinni að það
þýddi ekkert að segja honum
hversu slæmar myndir hann
gerði, hann aðeins efldist við
hverja raun. Mynd Burtons,
er heitir einfaldlega Ed
Wood, fjallar að mestu um
samband Woods, sem var
klæðskiptingur, og hryllings-
myndaleikarans Bela Lugosi,
sem var eiturlyfjasjúklingur
og drykkjumaður, en Martin
Landau leikur hann í mynd-
inni, sem er svart/hvít. „Það
er ekki hægt að ímynda sér
Lugosi í lit,“ segir Martin.
Johnny Depp leikur Wood,
Sarah Jessica Parker leikur
fullkomlega hæfileikalausa
leikkonu og Patricia Arqu-
ette leikur eiginkonu Woods.
Samband leikstjórans og
hryllingsmyndaleikarans,
sem er þungamiðja myndar-
innar, minnir á það samband
sem myndaðist á milli Burt-
ons sjálfs og hryllingsmynda-
leikarans sem hann dáði alla
tíð, Vincent Pryce, en þeir
voru mjög nánir vinir þegar
leikarinn lést.
■Hreyfimyndafélagið
á eftir að sýna tvær
myndir fyrir áramótin
áður en nýtt starfsár
hefst. Þær eru „A Long
Day Closes“ eftir Ter-
ence Davis („Distant
Voices, Still Lives“) og
„Belle du jour“ eftir
meistara Bunuel.
MSíðasta hasarmynda-
hetjan Arnold Schwarz-
enegger hefur skráð sig
í nýja bíómynd. Hún heit-
ir „True Lies“ eða Sann-
ar lygar og eru mótleikar-
ar hans Jamie Lee Curt-
is, Tom Arnold maður
Roseanne, Bill Paxton
og breski leikarinn Art
Malik. Leikstjóri er Ja-
mes Cameron en hann
er einnig framleiðandi og
skrifar handritið. Síðast
þegar Cameron og
Schwarzenegger unnu
saman varð til tæk-
niundrið Tortímandinn
2.
MEkki vill hinn harð-
hausinn, Sly Stallone,
vera neinn eftirbátur
Arnolds og er með nýja
hasarmynd í undirbún-
ingi. Hún heitir Sérfræð-
ingurinn eða „The Spec-
ialist" en mótleikarar
hans eru Sharon Stone
og James Woods. Leik-
stjóri er Luis Llosa,
„frægur" fyrir kalkúna-
myndirnar „Crime
Zone“ og „Hour of the
Assassin", og handrit.ið
gerir Alexandra Seros,
en konur fást sárasjaldan
við hasarmyndagerð
vestra.
■ Talandi um Stone.
Hryllingsmyndasmiður-
inn Sam Raimi hefur
fengið hana til að leika í
nýjustu mynd sinni sem
heitir „The Quick and
the Dead“.
MNýjasta mynd Robin
Williams, „Mrs. Doubtf-
ire“ tók inn 28 milljónir
dollara um þakkagjörðar-
helgina í Bandaríkjunum.
Addamsfjölskyldan 2
hefur tekið inn 30 millj-
ónir eftir tvær helgar,
Fullkomin veröld Ke
vins Costners og Clint
Eastwoods tók inn 11
milljónir téða helgi,
Skytturnar 3 eru komn-
ar í 33 milljónir eftir þrjár
helgar og „Carlito’s
Way“ með A1 Pacino er
komin í 25 milljónir.