Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 30

Morgunblaðið - 05.12.1993, Síða 30
30 B MORGUNBLAÐIÐ SAMSAFNIÐ SUNNUDAGUR 5. DESEMBER 1993 i DRAUMALAND BERGÞÓRS JÚLÍUSSONAR ER... ÚR MYNDASAFNINU ÓLAFURK. MAGNÚSSON ÞÝSKU ÞORPIN ÞÓTT Bergþóri Júlíussyni matreiðslumanni þyki gaman að koma til landa við Miðjarð- arhafið gæti hann ekki hugsað sér að búa þar, því honum finnst maturinn þar ekki nógu góður. Hins vegar er annað land sem stenst fyllilega kröf- ur hans bæði hvað mat og umhverfi snertir og það er Þýskaland. Mig hefur alltaf langað til að kynnast Þýskalandi betur,“ segir Bergþór. „Ég hef komið þangað einu sinni og dvaldi þá stutt við, en nógu lengi til að sjá kjötborðin í verslunum þeirra og borða yndislega góðan mat. Ég gæti vel hugsað mér að búa þar og þegar ég gæli við þá drauma sé ég alltaf fyrir mér lítið þorp með trjám og læk sem renn- ur eftir því endilöngu. Húsin eru gömul og göturnar hellulagðar. Á horninu er slátrarinn, bakarinn í húsinu gegnt mér og á baklóðinni er svo kaffibrennslan. Einnig gæti ég vel hugsað mér að búa í þýskri sveit og rækta grænmeti og jarðarber því mér finnst landið fyrir utan borgimar, þar sem skógar og fjöll skiptast á, mjög fallegt. Þýskan er skemmtilegt og hljómmikið tungumál, en ég get nú ekki sagt að ég sé neitt sérlega hrifinn af Þjóðveijum. Ég hef reyndar ekki kynnst þeim nógu vel. En ég dáist að dugnaði þeirra, og sérstaklega er ég hrifinn af þýska húshaldinu! Þetta er mikil viðskiptaþjóð, en ef til vill snýst nú lífið einum of mikið um peninga hjá þeim. Átak þeirra í umhverfismálum finnst mér hins vegar virðingarvert." Innan við tólf mílurgómum við þá Hinn 1. september 1958 gerðist sá sögulegi atburður að ís- ler.dingar færðu út fiskveiðilögsögu sína í 12 mílur og voru þar með komnir í „þorskastríð" við „breska ljónið“. Bret- ar sendu herskip á vett- vang gegn íslensku varðskipunum og vakti hetjuleg barátta íslensku varðskipsmannanna at- hygli víða um héim. Ei- ríkur Kristófersson skip- herra varð þjóðsagna- persóna og ýmsir atburðir frá þess- um tíma, sem og frá öðrum „þorskastríðum" hafa fengið á sig goðsagnakenndan blæ og um þetta hafa verið ort ljóð og sungnir dæg- urlagaslagarar. Á öðrum degi út- færslunnar í 12 mílur gerðust þau tíðindi að varðskipið Þór tók breska togarann Northern Foam að veiðum fimm mílum innan við landhelgislín- una út af Norðfjarðarflóa og setti sjö menn um borð í togarann. Enn- fremur setti varðbáturinn María Júlía tvo menn af sinni skipshöfn um borð í skipið. Skyndilega kom breska herskipið Eastbourne út úr þokunni og setti sjóliða um borð í togarann. Islensku varðskipsmenn- irnir voru síðan fluttir um borð í herskipið og dvöldu þar í nokkra daga uns þeim var sleppt aft- ur. Átburður þessi vakti mikla athygli og þótti ekki styrkja málstað Breta í þessari deilu. Skömmu áður hafði sjó- maður á breska togaran- um „Stoke City“ fengið taugaáfall á Vestfjarðamiðum og eftir talsvert hik sigldi togarinn með hann til hafnar á Patreksfirði og vakti koma hans þangað mikla undrun í Ijósi þess ástands sem ríkti á miðunum. Þegar manninum hafði verið komið undir læknishendur sigldi togarinn aftur út úr höfninni og síðar um kvöldið slóst hann í hóp bresku landhelgisbrjótanna sem voru á veiðum út af Vestfjörðum í skjóli freigátunnar Russel. ÉG HEITI NÓTT THORBERG BERGSDÓTTIR NÓTT Thorberg Bergsdóttir er sú eina í íslensku þjóð- skránni sem ber nafnið Nótt. Eins og nafnið gefur til kynna vísar það til næturinnar og er þannig bein mótsvörun við karlmannsnafnið Dagur. I Ála flekks sögu er að finna nafnið Nótt. Nótt Thorberg kann ekki aðra skýringu á nafngiftinni en þá að foreldrar hennar hafi verið að leita að frumlegu nafni. Ein- hver áhöld voru um hvort stúlkan fengi að heita Nótt, enda enginn borið nafnið svo lengi sem elstu menn mundu. „Þetta fór víst fyrir biskupinn og hann þekkti nafnið úr Sögunum og veitti samþykki sitt,“ segir Nótt. Nótt var á fyrsta aldursári þeg- ar hún flutti til Svíþjóðar og bjó þar og í Noregi til 11 ára aldurs. I þessum löndum var þetta bara útlenskt, merkingarlaust nafn, og því aldrei um að ræða stríðni af hálfu leik- eða skólafélaga. Eftir að Nótt fluttist heim fékk hún oft furðuleg viðbrögð þegar hún kynnti sig. „Sumir bara flissa og snúa út úr. Aðrir eru með aulahú- mor og segja: Ekki koma núna, ég er ekki búinn bursta tennurn- ar, og annað álíka gáfulegt." Hún verður helst fyrir óþægindum ef hún framselur ávísun eða skrifar nafnið sitt á opinber plögg. „Þá er oft spurt um skilríki og hefur jafnvel verið kannað hvort þau væru fölsuð.“ Einu sinni hittist svo skemmti- lega á að einn bekkjarbróðirinn hét Dagur. „Það var endalaust Morgunblaðið/ Nótt Thorberg Bergsdóttir gert grin að okkur Nótt og Degi. Svo hefur fólk stungið upp á því að ég fengi mér mann sem héti Frosti, þá gæti dóttir okkar heitið Frostnótt eftir foreldrunum!" ÞANNIG... ERU SKYLDUR GESTA GAGNVARTHÚSRÁÐENDUM SÍNUM Hverfið inn í herbergi yðarviðog við... ÞAÐ ER ekki síður örðugt að vera hinn fullkomni gestur eða hinn fullkomni húsráðandi og gestgjafi. Við steypum okkur aftur ofan í kver Eufemíu frá Arnarvöllum, dóttur Ballestrems greifa, kver sem hún tók saman um mannasiði og kom út í ís- lenskri þýðingu árið 1920. Þetta kver höfum við gluggað í af og til í seinni tíð. Það er klassískt. Við byijum á nokkrum augljós- um punktum: — Gestir hlýði skilyrðislaust hússiðum og venjum, komi jafnan stundvíslega til matar, raski aldrei ró heimilisins eftir háttatíma né glepji morgunsvefn manna. — Heimtið ekki að húsráð- endur hangi yfir yður daglangt, hverfið við og við inn í herbergi yðar, eða út, svo þeir fái svigrúm til að gegna nauðsynlegum störfum og reynið að hjálpa yður sjálfir eft- ir mætti, því að ekki eru alls staðar þjónar á hveijum fíngri. Á eftir þessum molum koma nokkrar starfsreglur gesta. Við stöðvum næst við hjá þessari: — Séu venjur og siðir húsráðenda yður á móti skapi, eða skoðanir þeirra um heimilisþægindi, klæðaburð, stjórnmál, trúbrögð o.fl., forðist þá umræður um þau efni, því að þær eru vanalega gagnslausar og valda oft missætti, og verið, sem gestir, jafnþægilegir, eðlilegir og vingjarn- legir, sem þér eruð heima fyrir. Á eftir þessum minnispunktum gestsins kemur síðan örlítil hug- vekja til gestgjafa: — Snuðrið ekki í herbergjum gesta, þegar þeir eru úti og svo skulu gestir láta í friði allar eigur húsráðenda. Menn varist einnig að lesa úr penna þess sem skrifar. Sé gestur eða húsráðandi söngvinn, gjaldi hann varhuga við að gera svo mikið að list sinni, að öðrum verði hún hvimleið, og sama er að segja um upplestur kvæða eða annars skáldskapar. Sé beðið um slíkt i alvöru, má gera úrlausn, en best, að hún sé sem styst, því að annars getur skemmtunin orðið að leiðindum. Varist þó að láta ganga lengi á eftir yður. Verið kátir og ófyrtnir. Tiltektarsemi er örðugur eiginleiki við að búa. Og loks þessi litla ádrepa til gest- gjafans: — Gestir mega ekki verða þess varir að þeir valdi sérstökum kostnaðarerfiðleikum eða óþægind- um. H

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.