Morgunblaðið - 12.12.1993, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MENNINGARSTRAUMAR SUNNUDAGUR 12. DESEMBER 1993
B 21
Framandleg
Yrja.
Morgunbláðið/Þorkell
Sérstök Yrja
MEÐAL hljómsveita sem vakið hafa athygli undanfarið er Yija, sem
stúlkurnar Margrét Sigurðardóttir og Kristbjörg Karín Sólmunds-
dóttir leiða. Yija hefur náð að móta sérstakan stíl, nokkuð sem
margar sveitir ná aldrei, og fyrsta Iag sveitarinnar á disk, Valkyija,
á Heyrðu 2, gefur til kynna að Yija eigi mikla framtíð.
Yija rekur ættir til þess að þær
Margrét og Kristbjörg voru
Ljósmynd/Björg Sveinsdóttir
Sölukippur Björk á Wembley-tón-
leikunum.
Björk á
siglingu
BJÖRK Guðmundsdóttir ferðast
nú um heiminn í tónleikaferð til
að fylgja eftir plötu sinni Debut.
Hún er nú í Evrópuhluta ferðar
sinnar, en platan hefur selst
einna best í Evrópu, til að mynda
i rúmum 200.000 eintökum í
Bretlandi, og selst þar enn, nú
endurútgefin með aukalagi.
Fyrir nokkru kom út í Bretlandi
lagið Play Dead, sem Björk
hljóðritaði með D. Arnold og náði
nokkurri hylli ytra. í kjölfar þess
ákvað útgáfa Debut í Bretlandi að
gefa plötuna aftur út og bæta á
hana Play Dead til að auka enn söl-
una. Nýútkomin smáskífa, Big Time
Sensuality, hefur einnig ýtt undir
sölu á plötunni ytra, og fór lagið
sjálft í sautjánda sæti vinsældalist-
ans breska, sem hleypti breiðskíf-
unni upp um 30 sæti. Þessu til við-
bótar koma svo fréttir af því að
ekkert verður af tónleikum Bjarkar
hér á landi að sinni, í það minnsta
ekki fyrir áramót.
fengnar til að semja árhátíðaHag
MR. Þegar því var lokið vantaði þær
hljóðfæraleikara og réðu í spiliríið
liðsmenn Not Correct, Stefán Örn
og Andrés Þór Gunnlaugssyni, Ingi-
mund Óskarsson og Eystein Ey-
steinsson.
Margrét segir að hljómsveitin
hafi verið vel undirbúin undir út-
gáfu, þó ekki sé hún gömul, enda
hafi stefnan frá upphafi verið að
semja eigin tónlist og gefa út. „Við
eigum nóg af lögum á einn disk
nú þegar og erum enn að semja.
Við semjum reyndar ekki mjög
hratt, sem þýðir vonandi það að
lögin verði betri fyrir vikið.“
Tónlist Yiju er nokkuð á skjön
við það sem helst er á seyði í íslensk-
um tónlistarheimi, en Margrét segir
það alls ekki meðvitað, „við einsetj-
um okkur bara að spila það sem
okkur finnst fallegt og við reynum
að láta tónlistina fara eftir okkar
eigin smekk, sem ég held að sé of
sjaldgæft í dag. Það er kannski það
sem mönnum finnst framandlegt."
■/ ÚTGÁFUFLÓÐINU ber eðli-
lega mest á plötum stórfyrirtækj-
anna og þekktari poppara sem gefa
út sjálfír sumir hveijir. Það kemur
þó meira út og oft merkilegra og
nægir þar að nefna þá ágætu sveit
Texas Jesú. Sú hefur vakið mikla
athygli fyrir frumleika og kímni á
tónleikum sínum sem hafa verið
færri en aðdáendur kysu helst. Það
er því mörgum gleðifregn að Texas
Jesú er búin að hljóðrita 10 laga
snældu sem gefin verður út í næstu
viku. Til að kynna útgáfuna heldur
sveitin útgáfutónleika í Bóhem á
Vitastíg á fimmtudag. Hljómsveitin
Pulsan hitar upp, en einnig má
búast við ónefndum gesti. Band-
mynd sveitarinnar verður frumsýnd
á staðnum og einnig verður til sölu
téð spóla. Herlegheitin hefjast kl.
21.30.
Bandmyndarrokk
SÚ FRÆGA mynd Rokk í
Reykjavík hefur verið á margra
vörum í sumar, enda var plata
með tónlist úr myndinni end-
urútgefin á geisladisk og mynd-
in endursýnd í bíói. Rokk I
Reykjavík kemur á myndbanda-
leigur á mánudag.
Rokk í Reykjavík er merkileg
heimild um rokkbyltingu fyr-
ir tíu árum, sem íslenskt tónlistar-
líf býr enn að. Meðal þeirra sem
fram koma í myndinni, sem gefin
verður út á myndbandi á mánu-
dag, eru Bubbi Morthens með
Egóinu, Sykurmolarnir flestir í
sveitunum Purrki pillnikk, Tappa
tíkarrassi og Þey, Þursarnir, Von-
brigði, Grýlurnar, Fræbbblarnir og
Vonbrigði.
Friðrik Þór Friðriksson gerði
myndina með aðstoð grúa manna,
sem vonlegt er, þar kannski
fremstan meðal jafningja Ara
Kristinsson kvikmyndatökumann,
en myndin var kvikmynduð vetur-
inn 1981 til 1982.
GEISLAPLATA (EÐA KASSETTA) OG MYNDSKREYTT TEXTABÓK
Á þessari vönduðu barnaplötu eru gömlu góðu íslensku barnaþulurnar
fluttar ó ógleymanlegan hótt af þekktum íslenskum söngvurum og leikurum.
I bókinni eru skemmtilegar teikningar sem margar er hægt að lita.
Margrét Ornólfsdóttir „Sykurmoli" tók saman, stjórnaði og myndskreytti bók.
Verð aðeins kr: 1.999,-
S-K-l-F-A-N
PÖNTUNARSIMI: 991880
KRINGLUNNI SIMI: 600930 - STORVERSLUN LAUGAVEGI26 SIMI: 600926 - UUGAVEGI96 SIMI: 600934 - EIÐISTORGI SÍMI: 612160
SKÍFAN/BOGART