Morgunblaðið - 09.02.1994, Page 10

Morgunblaðið - 09.02.1994, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 Tákn og litir Skreytiriss Myndlist____________ Bragi Ásgeirsson Hið fjarræna „exotíska" virð- ist áleitið myndmál í verkum sumra íslenskra myndlistar- manna um þessar mundir ekki síður en naumhyggjan, og í raun má segja að hið árþúsunda gamla táknmál Austurlanda sé naumhyggja í sjálfu sér. Inga Rós Loftsdóttir, sem fram til 13. febrúar sýnir í Stöðlakoti að Bókhlöðustíg 6, er bersýnilega gagntekin af austurlenski’i list og myndtákn- um. Og það er ekki einungis hið sýnilega sem tekur hug hennar heldur einnig hugmyndafræðin, og til marks um það fylgir ein- blöðungur sýningu hennar sem þjónar í senn sem sýningarskrá nafnlausra mynda sem hugleið- ing um list, listtjáningu og lista- menn. „Nokkur orð um list og tilgang hennar". Eitt er það þó sem Inga Rós hefur rekið sig á, sem er viðtek- in „dýrkun ljótleikans nú á tím- um, og að góðleikinn og fegurð- in teljast til veruleikaflótta og veikleika“. Hún mælir hér heilt, en þessar eigindir eru víða til þótt minna beri á þeim vegna þess að þær þykja ekki viðlíka spennandi, sem er svo aftur mötun niðursuðuiðnaðarins og fjölmiðla á röngum gildum. Einnig má segja, að hið afbrigði- lega og list svonefnds utan- garðsfólks hafi verið lyft á stall á kostnað agaðrar og hnitmiðaðrar listsköpunnar. Fegurðin í sjálfu sér er þó vissulega ekki síður spennandi, og hún er allt um kring og jafn- vel í hlutum sem fólki er kennt að séu ljótir, eða sem því yfir- sést vegna vanabundins og staðlaðs hugsunarháttar. Það sem ber að forðast, er að staðla hlutina, sem missa þá ljóma sinn og hætta um leið að vera ævintýri, og það er sýnu verst þegar farið er að staðla iistir og gera þær að alþjóðlegri fræðigrein. Það er nú það sem brautryðjendunum gekk síst til með dirfsku sinni og áræði. Inga Rós segir ennfremur „að hún hafi nýlega heyit þá athuga- semd, að listamenn yrðu að bera ábyrgð, og yrðu þes vegna að segja með orðum hvað þeir væru að fara“. Þetta má skilja á ýmsa vegu, en einnig misskilja, því að hér getur verið átt við svo margt. í kjarna sínum ber hver mynd- listarmaður að sjálfsögðu ábyrgð á athöfnum sínum í list- inni, en hins vegar lætur hann oftar myndmálið tala fyrir sig, frekar en að meginveigurinn sé að útskýra það í orðum, og fyrir suma er slíkt ógjörningur. Margt í hugmyndafræðilegri list bygg- ist hins vegar á heimspeki og rökræðu, og þá list er erfitt að nálgast án þess að hún sé skil- greind að einhveiju leyti. Engin orð þarf til að lýsa myndum Edvards Munchs eða Matisse, sem hafa svo sterka útgeislan og skírskotun til sjónarinnar og tilfinninganna. En hins vegar stendur skoðand- inn á gati yfir mörgu í nútíma- list, í og með vegna þess að sama formið getur túlkað mis- munandi, jafnvel gjörólík viðhorf og heimspeki gerendanna, og á þetta rekur margur sig illilega hvað varðar hugmyndafræðilega list síðustu áratuga. Inga Rós er samkvæm sér í myndverkum sínum, þar sem hún leggur aðaláhersluna á formræn tákn óg einfaida lit- ræna tjáningu. En þeir sem sækja áhrif í austurlensk tákn verða að gera sér ljóst, að á bak Inga Rós Loftsdóttir við táknin er dijúgur skammtur af heimspeki. Ekki síður en að baki myndverka miðalda og end- urreisnartímabilsins eru ýmsar vísanir til goðsagna og trúar- legrar táknhyggju tímanna. Formin í myndum listakon- unnar hafa í sér fagurfræðilega skírskotun, sem að sjálfsögðu er fullgild ekki síður en hug- myndafræðileg skírskotun. En annað mál er að enn skortir á hnitmiðað form og litakennd, sem má vera eðlilegt því að hér er verið að glíma við einhveija erfiðustu þraut myndlistarinnar. Táknin í sumum myndanna liggja dálítið utan hans, eru ekki nægilega jarðtengd að segja má. Að mínu mati tekst Ingu Rós einna best upp í olíumálverkun- um nr. 1 og 5, vegna þess að táknin ná að samlagast bak- grunninum. Á efri hæðinni eru svo fimm myndir gei’ðar með kínversku bleki á vatnslitapappír og þær búa yfir vissum ljóðrænum yndisþokka, einkum nr. 6 og 7. Það er ekki oft sem okkur list- rýnum gefst tækifæri til að fjalla um sýningar á teikningum eða „rissum“, sem er kannski réttari skilgreining. Þægiiegast er þó að nota báðar skilgreiningarnar eftir því hvað viðkomandi finnst henta hveiju sinni. Svo virðist bersýnilega sem margur myndiistarmaðurinn liggi á slíkum grunnatriðum myndlist- arinnar eins og um æfingar sé að ræða, en ekki fullgilda list. En það er auðvitað mikill misskilningur eins og sagan segir okkur og gætir furðu að enn skuli vera til fólk er álítur rissið einhvers konar vinnukonu málaralistarinnar. Auðvitað er rissið mikilvægur þáttur í undirbúningi myndverka hvers konar, en þeir eru ófáir sem hafa lagt áherslu á teikninguna sem slíka og á stundum eru undir- búningsriss mun ferskari og sann- verðugri myndlist en hin endan- legu verk. Það hefur ekki farið mikið fyrir Krístínu Arngrímsdóttur á mynd- listarvettvangi og hún hefur ein- ungis haldið tvær litlar sýningar áður ásamt því að hafa tekið þátt í jafn mörgum samsýningum. Yfirbragð sýningar hennar í listhúsinu Úmbru er líka hófs'emin sjálf og myndrissin sem hún sýnir þar eru öll af sams konar toga. Engin ærsl né skelegg átök við miðilinn heldur er það öllu frekar skreytikenndur yndisþokki sem streymir frá veggjunum. Þó að myndirnar séu af nöktum konum liggur við að maður gleymi því að hafa nakið hold í næsta sjón- máli því svo lausar eru þær við ástþrungnar ögranir. Það er líka vísast ekki tilgang- urinn við gerð þeirra að kalla slík- ar kenndir fram, heldur að miðla ljóðrænum streng um lífið og til- veruna og það tekst Kristínu ein- mitt í sínum bestu teikningum. Allar teikningarnar eru unnar með pensli, tússi og vatnslitum og hluti hvers vei'ks er gerður úr lituðum pappír þar sem hlutvaktar Kristín Arngrímsdóttir. formanir og myndir eru klipptar út með skærum. Líti maður á hveija mynd sem heild, þ.e. línuriss, myndbyggingu. hrynjandi og blæbrigðaríkdóm, staðnæmdist ég oftast við mynd- ina „Kona, fimm brauð og tveii' fiskar“ (3) og þarnæst myndirnar „Kona og himinn“ (4), „Kona, tré og epli“ (9) og „Kona“ (10). Fyrst- nefnda myndin er einföld og snjöU í útfærslu og í hinum kemst sam- felld línan einna best til skila. Meinbugurinn á sumum teikning- unum er að línan er slitin án þess að það auki á hrifmátt heildarinn- ar og virkar fremur sem það hafi einfaldlega ekki verið nóg blek í penslinum er línan var dregin. Slík vinnubrögð eru í ætt við kalligrafíuna austurlenzku og það listfag útheimtir gífurlega þjálfun af iðkendum sínum — þjálfun, samfara hugarflugi og dirfsku. Kristín Arngrímsdóttir á enn langt í land til að ná úrskerandi árangri, en bestu verkin gefa viss fyrirheit. Nýjar bækur ■ Út er komin bókin Hjálparorð fangans - Orð til íhugunar og bænir. Höfundur bókarinnar er fangaprestur þjóðkirkjunnar, sr. Hreinn S. Hákonarson. Þetta er fyrsta bók sinnar tegundar, sem gefin er sérstaklega út handa föngum. Henni er ætlað að leiða fangann á erfið- um stundum í lífi hans, styrkja trúarlíf hans, efla sjálfstraust og siðferðis- kennd. Bókin geymir fjöl- margar íhugan- ir, sem byggðar eru á ritningarstöðum úr Gamla- og Nýja testamentinu. Þá er að finna í henni útskýringar við Fað- ir vorið, signingu; kvöld- og morg- unbænir ásamt bænum til styrk- ingar auk annars efnis. Bókin er gefin út á kostnað Kristnisjóðs í nafni Skálholtsút- gáfunnar, útgáfufélags Þjóð- kirkjunnar og er 127 bls. Grá- skinna sá um umbrot og prent- un. Bókinni verður dreift endurgjaldslaust til fanga. Sr. Hreinn S. Hákonarson. DAGBOK FÉLAG eldri borgara í Reykja- vík og nágrenni: Leikritið Margt býr í þokunni sýnt í Risinu kl. 16 í dag og laugardag. Kl. 20.30 sunnudag. Lögfræðingur félagsins er til viðtals 10. og 17. febrúar. Panta þarf tíma í síma 28812. HAFNARGÖNGUHÓPURINN fer í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20 frá Hafnarhúsinu út í Örfirisey og Vesturgötuná til baka. Allir velkomnir. KIRKJUSTARF ______________ ÁSKIRKJA: Samverustund fyrir foreldra ungra barna ! dag kl. 10-12. 10-12 ára starf í safnaðar- heimili í dag kl. 17. DÓMKIRKJAN: Hádegisbænir kl. 12.10. Orgelleikur frá kl. 12. Létt- ur hádegisverður ,á kirkjulofti á eftir. Opið hús í safnaðarheimili í dag kl. 13.30-16.30. HALLGRÍMSKIRKJA: Opið hús fyrir foreldra ungra barna á morg- un, fimmtudag, kl. lþ-12. HÁTEIGSKIRKJA: Kvöld- og fyr- irbænir í dag kl. 18. LANGHOLTSKIRKJA. Aftan- söngur kl. 18. NESKIRKJA: Bænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. SELTJARNARNESKIRKJA: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altar- isganga, fyrirbænir. Léttur hádeg- isverður í safnaðarheimili. ÁRBÆJARKIRKJA: Mömmu- morgunn í fyrramálið kl. 10-12. Opið hús fyrir eldri borgara í dag kl. 13.30. Fyrirbænaguðsþjónusta í dag kl. 16. Starf 10-12 ára (TTT) í dag kl. 17. BREIÐHOLTSKIRKJA: Kyrrðar- stund kl. 12 áhádegi. Tónlist, altar- isganga, fyrirbænir. Léttur máls- verður í safnaðarheimili eftir stundina. Unglingastarf (Ten- Sing) í kvöld kl. 20. FELLA- og Hólakirkja: Helgi- stund í Gerðubergi kl. 10.30. Um- sjón sr. Hreinn Hjartarson. HJALLAKIRKJA: Starf fyrir 10-12 ára börn TTT í dag kl. KÁRSNESSÓKN. Mömmumorg- unn í dag kl. 9.30-12 í safnaðar- heimilinu. Starf fyrir 10-12 ára í dag kl. 17.15-19. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Kyrrðarstund kl. 12 á hádegi og léttur hádegisverður í safnaðarat- hvarfinu, Suðurgötu 11, að stund- inni lokinni. SKIPIN___________________ REYKJAVÍKURHÖFN: í fyrradag kom á vegum Granda Guðmundur Kristinn, Ottó M. Þorláksson kom og landaði og einnig landaði Wilhelm Egevik rækju. Brúarfoss og Stapafell komu í fyrradag og Bjarni Sæ- mundsson fór í leiðangur. Rúss- neski togarinn Ostropol fór og einnig leiguskipið Mette Clipper. Helgafell kom að utan. Í gær kom Snorri Sturluson af veiðum og Múlafoss kom af strönd. Geysir og Vísir komu og löndúðu. Búist var við að Múlafoss og Reykja- foss færu í gær. HAFNARFJARÐARHÖFN: Búist var við að rússneski togarinn Captein Rogósin færi í gær. 17-19. Önnur ljóðabók Krist- jáns J. Gunnarssonar ÚT ER komin bókin Gráglettnar —-- stundir, önnur ljóðabók Kristjáns ayg\-.. J. Gunnarssonar. Hin fyrri, Leir- karlsvísur, kom út 1989. Einnig hefur birst eftir Kristján skáld- sagan Refska 1986. I kynningu útgefanda segir: „Höfundur yrkir bæði hefðbundin ljóð og órímuð, en velur mörgum þeirra sveigjanlegt form. Beitir- hann þá rími og ljóðstöfum í þágu hrynjandinnar og reynir þannig at- hyglisverðar nýjungar. Hann er sér- stætt og hugkvæmt .skáld og í kvæðunum felst bæði glettni og alvara.“ Kvæðin í Gráglettnum stundum skiptast í Ijóra flokka. Útgefandi er Skákprent. Bók- in er 153 bls. unnin í Skákprenti og bundin inn hjá Flatey. Kristján J. Gunnarsson Sýning á verkum eftir Jón Engilberts NORRÆNA húsið ráðgerir að halda sýningu á verkum Jóns Engilberts í sýningarsölum Norræna hússins 4. júní til 3. júlí 1994 í tengslum við Listahátíð í Reykjavík. Af því tilefni óskar Norræna húsið eftir að komast í samband við eigendur verka eftir Jón Engil- berts, sem væru fúsir til að lána verk á sýninguna. Leitað er að myndum sem eru í einkaeign og hafa ekki komið oft fyrir almenn- ingssjónir. Óskað er upplýsinga um olíumálverk, grafíkverk og vatnslitamyndir. Vinsamlegast hafið samband við Norræna húsið, Ingibjörgu Björnsdóttur, í síma 17030 milli kl. 10-16 alla virka-daga.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.