Morgunblaðið - 09.02.1994, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994
21
Reuter
Grunsamlegur dauðdagi
LÖGREGLUMENN standa vörð um hús Stephens Milligans, þing-
manns breska Ihaldsflokksins, sem fannst látinn i húsinu á mánu-
dag. Milligan var með plastpoka bundinn um hálsinn og aðeins í
nælonsokkum með sokkaböndum.
Milligan var líklega
kyrktur eða kæfður
Lundúnum. Reuter.
BRESKA lögreglan hefur staðfest að Stephen Milligan, þingmaður
Ihaldsflokksins, hafi fundist látinn á heimili sínu á mánudag, klædd-
ur engu öðru en nælonsokkum og með sokkabönd. Grunur leikur á
að þingmaðurinn hafi verið kyrktur eða kæfður.
Breskir fjölmiðlar segja að
Milligan hafi verið keflaður, með
plastpoka yfir höfðinu og með band
um hálsinn. Milligan var 45 ára
að aldri og ókvæntur og fjölmiðlar
gáfu til kynna að hann hefði verið
samkynhneigður. Lögreglan sagði
að fyrsta líkskoðun hefði ekki leitt
í ljós hver dánarorsökin væri en
líkið yrði rannsakað frekar, Fregn-
ir hermdu sár hefði verið á hálsi
þingmannsins.
Þingmaður á uppleið
Dauðsfallið er enn eitt áfallið
fyrir John Major forsætisráðherra
og kemur á versta tíma fyrir stjórn-
ina, sem er að reyna að rétta úr
kútnum eftir hvert hneykslismálið
á fætur öðru í kjölfar þess að hún
tók að leggja höfuðáherslu á aftur-
hvarf til hefðbundinna fjölskyldu-
gilda.
Milligan var talinn einn af efni-
legustu nýiiðum íhaldsmanna á
þinginu eftir kosningarnar 1992.
Hann var gerður að aðstoðarmanni
Jonathans Aitkens aðstoðarvarnar-
málaráðherra, en litið er á slíkar
stöður sem stökkpall í stjórnina.
„Hann var án nokkurs vafa rísandi
stjarna," sagði Aitken um Milligan.
Vangaveltur voru um að málið
kynni a<f líkjast frægu hneykslis-
máli frá sjöunda áratugnum, þegar
John Profumo, þáverandi varnar-
málaráðherra, neyddist til að segja
af sér eftir að hafa reynt að leyna
sambandi sínu við vændiskonu sem
var einnig í tygjum við varnarmála-
fulltrúa í sovéska sendiráðinu. Ait-
ken lagði hins vegar áherslu á að
dauði Milligans tengdist á engan
hátt öryggismálum. „Það er enginn
öryggisþáttur í þessum harmleik
Stephens Milligans,“ sagði hann.
„Hann hafði ekki aðgang að
trúnaðarskjölum, sá engar leynileg-
ar skýrslur.“
............—-
Svíþjóð
Wachtme-
ister hættir
IAN Wachtmeister, formaður
sænska stjórnmálaflokksins
Nýtt lýðræði, ætlar að láta af
embætti á næsta flokksþingi,
sem haldið verður í apríl. Wach-
tmeister skýrði frá þessu í við-
tali við sænska sjónvarpið um
helgina og sagði ákvörðun sína
vera endanlega.
Þessi yfirlýsing Wachtmeisters
kom öllum mjög á óvart, þar á
meðal Bert Karlsson, næstráðanda
hans í flokknum. Síðastliðið haust
gaf Wachtmeister í skyn að hann
gæti vel hugsað sér að halda
stjórnmálaafskiptum áfram en nú
sagði hann að of erfitt væri orðið
að skilja á milli vina og óvina inn-
an flokksins. „Maður veit ekki
lengur hveija maður hefur bak við
sig,“ sagði Wachtmeister.
Flokkurinn bauð í fyrsta skipti
fram í síðustu þingkosningum og
fékk nokkra þingmenn kjörna.
Engiii staðfest dæmi um svikna
varahluti í vélum Flugleiða
„ÞESS eru engin staðfest dæmi að við höfum orðið fyrir barðinu á
svona svikum,“ sagði Einar Sigurðsson blaðafulltrúi Fiugleiða er hann
var spurður hvort reynt hefði verið að selja fyrirtækinu svikna flug-
vélavarahluti. f frétt í blaðinu sl. laugardag var skýrt frá umfangsmik-
ílli starfsemi af þvi tagi en
hluta.
„Þetta er þekkt vandamál í flug-
rekstri og flugfélög reyna af bestu
getu að varast það. Okkar leið til
að varast hættuna er að kaupa sem
mest af varahlutum beint af fram-
leiðendum flugvélanna, Boeing og
Fokker, og framleiðendum hreyfla.
hafa venð rakin til svikinna vara-
Aðra varahluti höfum við keypt af
varahlutasölum sem við höfum versl-
að við í áratugi. Þetta teljum við að
sé tryggasta leiðin til að komast hjá
svikum," sagði Einar Sigurðsson.
Einar sagði að allir varahlutir sem
Flugleiðir keyptu væru skoðaðir sér-
staklega svo og vottorð sem þeim
fylgdu er þeir kæmu til landsins.
„Flugfélög hafa með sér gríðar-
lega mikla samvinnu í tæknimálum
enda hagsmunir augljósir á því sviði.
Komi upp bilun í þotu einhvers flug-
félags vita öll félög með samskonar
þotur strax af henni gegnum upplýs-
ingakerfi flugfélaganna. Þetta sam-
starf stuðlar að því að draga úr
hættu á óhöppum af völdum bil-
ana,“ sagði Einar að lokum.
Flat Uno Arctlc
—fyrir norðlœgar slóðir
Bestu bílakaupin!
Uno Arctic býðst nú á miklu lægra verði en
sambærilegir bílar frá V-Evrópu og Asíulöndum.
Verð frá kr.
748.000
á götuna - ryðvarinn og skráður.
UNO 45 3D
Það borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla. Við tökum gamla
bílinn upp í og lánum allt að 75% kaupverðs til 36 mánaða.
Komið og reynsluakið
Handhafar bifreiðastyrks Tryggingastofnunar ríkisins!
Við sjáum um pappírsvinnuna
fyrir ykkur og gerum úthlutunina
að peningum STRAX.
ÍTALSKIR BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620
NÝUA BÍL.AHÖLL.IN FUNAHÖFÐA 1 S:672277
Ford Econoline 250 Club Wagon árg. ’91,
brúnn/gylltur, diesel, 12 manna, ek. 36 þ.
km. Verð kr. 2.550.000,-, skipti á fólksbíl
eða jeppa.
Dodge Ram 250 Cummings diesel Pick
Up 4 WD árg. ’89, ek. 128 þ. km., blár,
Dana 60 F/H, Dana 70 A/H SSK. Verð kr.
1.590.000,- stgr., ath. skipti.
MMC Pajero Superwagon árg. ’90, silf-
ur/blásans, topplúga, ek. 69 þ. km. Verð
kr. 2.100.000,-, skipti-skuldabróf.
MMC Lancer GLXi árg. '93, ek. 22 þ. km.,
SSK, hvítur. Verð kr. 1.350.000,- stgr., ath.
skipti.
VW Vento GL 2,0 árg. ’93, ek. 12 þ. km.,
5 g., fjólublár, álfelgur, sóll., central., rafm.
í öllu, plusssæti. Verð kr. 1.650.000,- stgr.,
ath. skipti. ___________
Toyota Corolla 1300 XL árg. '90, rauður,
sjálfsk., vökvastýri, ek. 25 þ. km. Verð kr.
770.000,-.
Toyota Landcruiser VX árg. ’91, SSK, hvít- Nissan Sunny SLX 4WD Wagon árg. '90,
ur, ek. 68 þ. km., álflegur, 33“ dekk, sól- ek. 37 þ. km., 5 g., grár. Verð kr. 870.000,-
lúga. Verð kr. 3.690.000 stgr., ath. skipti. stgr. Bein sala.
'91, gænsans, ameriku-
týpa, sjálfsk., sóllúga, ek. 45 þ. km.
Verð kr. 2.550.000. - Skipti skuldabréf.
buzuki vitara JLXi arg. '92, rauður, álfelg-
ur, 30“ dekk, ek. 13 þ. km.
Verð kr. 1.680.000,-, skitpi.
k
VANTARALLAR GERÐIR BÍLA Á STAÐINN