Morgunblaðið - 09.02.1994, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 09.02.1994, Qupperneq 44
MORGVNBLADIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKIIREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 Afltþitt undir einu þaki sióváSpalmennar MIÐVIKUDAGUR 9. FEBRÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Sex ára Ávöxt- "unarmál fyrir dóm RIKISSAKSOKNARI . hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn fyrrum aðal- eigendum Ávöxtunar hf. og fyrrum framkvæmdastjóra Kjötmiðstöðvarinnar og eru þeim gefin að sök fjársvik með söluskatt og lífeyrisiðgjöld sem Kjötmiðstöðin hafi innheimt en ekki komið til skila. Um er að »ræða fjárhæðir upp á fimmta tug milljóna. Tæp 6 ár eru liðin síðan hin meintu brot voru fram- in og áður hefur verið höfðað mál gegn mönnunum fyrir aðrar sakir sem tengdust gjaldþroti Ávöxtunar og tengslum þess fyrirtækis við Kjötmiðstöðina. Ástæða þess að málið sem nú er komið til dómsmeðferðar varð viðskila við Ávöxtunarmálið sjálft er, samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins, sú að að iöggiltur end- urskoðandi sem rannsóknarlög- regla fékk til að vinna við rann- sóknina skilaði ekki skýrslu um niðurstöður sínar. Málið hafði samkvæmt heimild- um Morgunblaðsins legið lengi óhreyft þegar annar Ávöxtunar- manna sótti á síðasta ári um reynslulausn á eftirstöðvum fang- elsisdóms þess sem hann hlaut í Ávöxtunarmálinu en meðferð þeirrar umsóknar varð til þess að ýta við málinu og hefur síðan leitt til útgáfu ákærunnar sem þingfest var í Héraðsdómi í gær. Sakborningur mótmælir Við þingfestingu málsins neitaði ^ einn sakborninganna þriggja að tilnefna sér vetjanda og mótmælti meðferð málsins sem sakborning- arnir höfðu vonast til, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, að yrði látið niður falia vegna þess dráttar sem orðið hafði á af- greiðslu þess og viðskilnaðar þess frá öðrum þáttum Ávöxtunarmáls- ins. Morgunblaðið/Júlíus Utaf eftir árekstur OKUMAÐUR fólksbíls hlaut fótbrot auk annarra meiðsla þegar hann ók bíl sínum í veg fyrir rútu á gatnamótum Reykjanesbrautar og Víf- ilsstaðavegar á sjöunda tímanúm í gærkvöldi. Rútan var á leið norður Reykjanesbraut og reyndi ökumaður hennar að komast hjá árekstrin- um, sem var mjög harður, með því að sveigja út í vegarkantinn. Við það missti hann vald á rútunni sem hafnaði í djúpum skafli utan brautarinnar. Ökumaðurinn var einn í rútunni. Að sögn lögreglunnar í Hafnarfirði tók um 2'h klukkustund að losa um rútuna í skaflinum áður en hægt var að draga hana upp á Reykjanesbrautina á ný. Morgunblaðið/Ingvar íslensk stjórnvöld styðja yfirvofandi hernaðaríhlutun NATO í Bosníu Þingmenn í fjórum flokk- um meðmæltir loftárásum ÞINGMENN í fjórum flokkum, Sjálfstæðisflokki, Alþýðuflokki, Framsóknarflokki og Alþýðu- bandaiagi, lýstu því yfir á Alþingi í gær að þeir væru meðmæltir loftárásum herafla Atlantshafs- bandalagsins (NATO) á umsát- ursiið Serba við Sarajevo, Þing- menn Kvennalista voru andvígir loftárásum. í utandagskrár- Ágreiningur er meðal Akurnesinga og Borg- nesinga um Hitaveituna ÁGREININGUR er meðal eigenda Hitaveitu Akraness og Borgar- fjarðar um lausn á fjárhagsvanda fyrirtækisins. Akurnesingar eru samþykkir sameiningu orkufyrirtækja héraðsins í Orkubú Borgarfjarðar en Borgnesingar vilja selja Rafmagnsveitum ríkis- ins Rafveitu Borgarness og leggja andvirðið inn í Hitaveituna til að greiða skuldir og vilja að aðrir eignaraðilar geri slíkt hið sama. Hitaveita Akraness og Borgar- tilbúnir til að selja Rafveitu Akra- Ijarðar skuldar 2,2 milljarða króna og er með eitt hæsta orku- verð í landinu. Aðilar málsins eru sammála um nauðsyn þess að minnka skuldirnar og lækka orku- verðið. Borgnesingar telja að sín leið skili mestum árangri, eða lækkun orkuverðs strax um 30%. Akurnesingar eru hins vegar ekki ness, ekki síst vegna þess lága raforkuverðs sem hún útvegar. Telja þeir að sameining orkufyrir- tækja héraðsins sé hagkvæm til frambúðar og geti skilað 10% orkuverðslækkun. Lánin gjaldfalla Lán sem sveitarfélögin hafa tekið við frá Hitaveitunni í nafni Undirbúningsfélags að Orkubúi Borgarfjarðar falla í gjalddaga í næsta mánuði. Talið er að hækka þurfi orkuverðið um allt að 10% ef þau lenda á Hitaveitunni aftur. Ríkið er hins vegar ekki tilbúið til að aðstoða við skuldbreytingu fyrr en heimamenn hafa náð sam- komulagi um lausn á fjárhags- vanda fyrirtækisins. Fyrsti fundur bæjarstjórans í Borgarnesi með stjórnendum RARIK um sölu á Rafveitu Borgarness er í dag. Sjá bls 14: „Stofnað Orkubú umræðu um ástandið í Bosniu sagði Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra að íslensk stjórnvöld myndu standa að baki þeim aðgerðum sem ákveðnar verða innan Atlantshafsbanda- iagsins gegn Serbum í Bosniu. Björn Bjarnason formaður utan- ríkismálanefndar Alþingis sagði að nefndin hefði í sumar komist að þeirri niðurstöðu að Islending- ar ættu að standa að niðurstöðu á vettvangi Atlantshafsbanda- lagsins um aðgerðir gegn Serb- um, enda væru hernaðaraðgerðir í nafni bandalagsins háðar sam- þykki Sameinuðu þjóðanna. Kristín Ástgeirsdóttir þingmaður Kvennalista hóf utandagskrárum- ræðuna á Alþingi í gær og spurði utanríkisráðherra hver væri afstaða ríkisstjórnarinnar til þess ef Atlants- hafsbandalagið ákvæði að hefja loftárásir á búðir Serba í Bosníu að ósk Sameinuðu þjóðanna til að binda enda á umsátrið um Sarajevo. Sagð- ist hún óttast að ef gripið yrði til hernaðaríhlutunar af hálfu SÞ myndi það skapa fleiri vandamál en leyst yrðu. Ýmsir þingmenn fylgjandi vopnaðri íhlutun Ýmsir þingmenn bæði stjórnar og stjórnarandstöðu lýstu yfir stuðningi við afstöðu ríkisstjórnarinnar að standa að aðgerðum innan Atlants- háfsbandalaghsins ög SÞ. Páll Pét- ursson og Ólafur Þ, Þórðarson þing- menn Framsóknarflokks sögðu báðir að vopnuð íhlutun virtist vera eina lausnin til að stöðva stríðið og því styddu þeir afstöðu ríkisstjórnarinn- ar, og Ólafur Ragnar Grímsson for- maður Alþýðubandalagsins sagði að yrði það niðurstaðan að rétt væri að grípa til loftárása væri einsýnt að íslensk stjórnvöld styddu þá ákvörð- un. Þá sagði Geir H. Haarde þing- maður Sjálfstæðisflokksins að það hlyti að vera rétt stefna að íslending- ar stæðu að baki þeim ákvörðunum sem nú stæði til að taka á vettvangi Atlantshafsbandalagsins og Evrópu- sambandsins, og það væri barnalegt óraunsæi að láta sér detta í hug að hægt væri að koma á friðsamlegu samkomulagi deiluaðila um að af- vopnast. Sjá miðopnu: „íslensk stjórn- völd . . .“ Gluggagæg- ir í Fossvogi LÖGREGLAN gerði leit að há- vöxnum dökkklæddum manni sem sást vera að gægjast á glugga neðst í Fossvoginum í gærkvöldi. Að sögn lögreglunnar sást til mannsins á gægjum á tveimur stöð- um í Fossvoginum. Allir tiltækir lög- reglubílar voru þegar sendir á stað- inn, en um miðnætti hafði leitin eng- an árangur borið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.