Morgunblaðið - 29.04.1994, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
Biðstaða meðan beðið er niðurstaðna rannsókna frá Danmörku
Líðan hestanna svipuð
VEIRUSJÚKDÓMUR í öndunarfærum 15 hesta í hesthúsi á Fákssvæði
virðist ekki hafa breiðst út eftir því sem Ólafur Valsson dýralæknir
segir. Hann sagði að ástæða hefði þótt til að kanna heilbrigði hesta í
næsta húsi en ekki hefði fengist staðfest að sjúkdómurinn næði til
þeirra. Erling Sigurðsson, tamningamaður og gæslumaður sýktu hest-
anna, segir að líðan þeirra sé svipuð.
að hósta aftur og nú þurrari hósta
en áður,“ sagði Erling þar sem hann
„Ég er helst óhress yfir því að
hesturinn sem veiktist fyrst er farinn
Breytingar á fréttastofu Stöðvar 2
Hallur Hallsson seg-
ir starfi sínu lausu
var staddur í hesthúsinu. Hann sagði
að verið væri að taka sýni úr slími
uppúr fímm hestum og þegar hefðu
verið tekin ný blóðsýni úr öllum hest-
unum. Yrðu þau væntanlega send til
Danmerkur eins og þau sýni sem
tekin hefðu verið og borin saman við
þau, en búist er við niðurstöðu úr
fyrri sýnatökunni um helgina. Farið
verður með innvortis myndavél ofan
í barka hestanna í morgun.
HALLUR Hallsson fréttamaður
Stöðvar 2 hefur sagt starfi sínu
lausu frá og með 1. maí með venju-
legum uppsagnarfresti.
Hallur sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gærkvöldi að hann hefði ver-
ið 8 ár í fréttamennsku hjá sjón-
varpi, fyrst hjá RUV og síðustu 5
árin hjá Stöð 2. „Það er best að
hætta leik þá hæst hann stendur,
sagði Hallur. „Þetta hafa verið átta
góð ár í fremstu víglínu og nú fínnst
mér kominn tími til að skipta um
gír,“ sagði Hallur.
Hallur sagði að brottför sín frá
Stöð 2 væri gerð í mikilli vinsemd.
Hann myndi vinna sinn uppsagnar-
frest á stöðinni og síðan myndi hann
skoða sín mál í haust.
Aðrar sýkingar fyrirbyggðar
Ólafur sagði að lítið væri hægt
að gera meðan beðið væri eftir sýn-
unum frá Danmörku og staðfesti að
líðan hestanna væri svipuð og áður
að því frátöldu að hósti væri almennt
eitthvað minni en á mánudaginn. „En
svona er gangur veirusjúkdóma. Þeir
taka vissan tíma og við reynum að
fyrirbyggja að einhverjar aðrar sýk-
ingar komi ofan í,“ sagði hann. Ólaf-
ur sagði aðspurður að ekkert virtist
vera athugavert við fóður hestanna.
Ekki hefur fundist einangrað hús
til að hýsa sýktu hestana og sömu
reglur gilda um umgengni á Fáks-
svæðinu og áður.
VEÐUR
/ DAG kl 12.00
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt é vedurspá kl. 16.15 í gœr)
VEÐURHORFUR í DAG, 29. APRIL
YFIRLIT: Milli íslands og Grænlands er 1.016 mb hæð sem þokast austur. Um
500km suður af landinu er 993 mb kyrrstæð lægð sem grynnist.
SPÁ: Fremur hæg breytileg átt og léttskýjað víöast hvar. Hiti verður á bilinu 3-7 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg breytileg átt og víðast bjartviðri. Hiti á bilinu 2
til9 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Fremur hægt suðlæg átt. Dálftil rignin-
geða súld með köflum um sunnanvert landið er þurrt að mestu noröanlands. fllýn-
andi veður.
•D
Heiðskírt
/ / /
r f
f / /
Rigning
Léttskýjað
*
Hálfskýjað Skýjað
* /
* f
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V 'v' V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjðður er 2 vindstig.4
10° Hitastig
Súld
V
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM:
(Kl. 17.30 ígær)
Greiöfært er yfirleitt á öllum aðal þjóðvegum á landinu, en hálkublettir eru víða,
einkum á Norður- og Norðausturlandi.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og i grænnil-
ínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hitl veöur
Akureyri 0 úrkomaígrennd
Reykjavlk 3 heiðskírt
Bergen vantar
Helainki 13 skýjaö
Kaupmannahöfn 15 þokumóða
Narssaresuaq 3 alskýjað
Nuuk 0 snjók.ás.klst.
Óaló 10 þokumóða
Stokkhóimur 16 skýjað
Þórshöfn 9 skýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 16 skýjað
Barcelona 22 léttskýjað
Berlín 19 skýjað
Chicago 3 alskýjað
Feneyjar 22 heiðskírt
Frankfurt 19 skýjað
Glasgow 13 rigningogsúld
Hamborg 16 þokumóða
London 17 skýjað
Los Angeles 10 léttskýjað
Lúxemborg 16 skýjað
Madríd 24 léttskýjað heiðskírt
Malaga 21
Mallorca 25 léttskýjað
Montreal 0 léttskýjað
NewYork 14 skýjað
Orlando 21 lénskýjað
París 21 skýjað
Madelra 21 léttakýjað
Röm 24 skýjað
Vín 21 léttskýjað
Washington 20 alskýjað
Winnipeg -=-7 hálfskýjað
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
NORSKI togarinn Kerak kom til Þórshafnar í gær og landaði
90 tonnum af ísfiski.
Norskur togari land-
ar ísfíski á Þórshöfn
Þórshöfn.
NORSKI togarinn Kerak landaði í gær 90 tonnum af ísfiski
hér á Þórshöfn. Hraðfrystistöð Þórshafnar kaupir helming
aflans en fiskvinnslufyrirtækin á Raufarhöfn og Vopnafirði
skipta með sér hinum hlutanum og var fiskinum ekið þangað.
Að sögn Gunnlaugs Karls, yf-
irverkstjóra hjá Hraðfrystistöð-
inni, verður trúlega áframhald á
þessum viðskiptum við norska
útgerðarfyrirtækið sem er eig-
andi togarans en fyrirtækið gerir
út nokkra togara og fiskvinnslu-
fyrirtæki í Noregi. Togarinn var
þrjá daga á veiðum og tók sigl-
ingin til íslands tvo og hálfan
sólarhring. Aflinn var veiddur í
norskri landhelgi og segir Gunn-
laugur hann vera gott hráefni.
Uppistaða aflans eF ufsi en um
25 tonn af öðrum tegundum og
er fiskurinn flokkaður og ísaður
í kassa.
Verðið sem greitt var fyrir
aflann er sambærilegt við fisk-
verð á íslandi.
Skólafólk leysir vandann
Næg vinna er í Hraðfrystistöð-
inni og unnið er þessa dagana
frá kl. 7 á morgnana til kl. 18
og einnig á laugardögum. Að
sögn Gunnlaugs vantar starfs-
fólk í snyrtingu en sá vandi leys-
ist þegar skólafólk kemur inn til
starfa innan skamms.
Afli heimabáta hefur verið rýr
undanfarið en er að glæðast
núna og var allgott fiskirí í gær.
- L.S.
„Þetta er flokkur ungs fólks, ein-
staklinga og anarkista. Við viljum
minna á unga fólkið í borginni og
mál sem það varðar sérstaklega, s.s.
atvinnuleysi, menningu og listir,"
sagði Gottskálk. Hann sagði að hug-
myndin að framboðinu hefði kviknað
meðal nokkurra nemenda í Mennta-
skólanum í Hamrahlíð, en á fram-
boðslistanum sé ungt fólk sem komi
víðar að. Margir af aðstandendum
listans voru meðal þeirra ungmenna
úr MH, sem sóttu um stöðu seðla-
bankastjóra á dögunum.
I
I
>
Nýtt framboð til borgarsfíórnar Reykjavíkur
Ungt fólk býður
fram U-listann
ALLAR líkur eru á að hópur ungs fólks í Reykjavík bjóði fram í borg-
arstjórakosningunum í vor. Gottskálk Dagur Sigurðarson, talsmaður
hópsins, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að verið sé að ganga
frá framboðslistanum. Búið sé að safna tilskildum fjölda meðmælenda
og sagðist hann gera ráð fyrir að framboðsgögnum verði skilað inn
til kjörstjórnar í dag eða á morgun.
Gottskálk sagði að aðstandendur
framboðsins kæmu til með að óska
eftir að fá að kalla listann U-iist-
ann, flokk unga fólksins.
í fyrsta sæti framboðslistans
verður Bjarni Þór Sigurbjörnsson, í
öðru Kári Sturluson, í þriðja Val-
gerður R. Vaigarðsdóttir, í fjórða
Asgeir Friðriksson, í fimmta sæti
Hlín Snorradóttir og í sjötta sæti
verður Agnar Jón Egilsson. Borgar-
stjóraefni flokksins verður Kári
Sturluson.
Spurt og svarað
um borgarmálefni
í TILEFNI borgarstjórnarkosninga, sem fram fara í lok maí-
mánaðar, mun Morgunblaðið gefa lesendum sínum kost á að
beina fyrirspurnum til borgarstjórans í Reykjavík, Árna Sigfús-
sonar, um hvaðeina í málefnum borgarinnar, sem þeir hafa
áhuga á að spyrjast fyrir um. Hefur borgarstjóri fyrir sitt
leyti samþykkt, að svara þessum fyrirspurnum.
Lesendur Morgunblaðsins
geta hringt í síma 691100 á
milli kl. 11 og 12 árdegis frá
mánudegi til föstudags og lagt
spurningar fyrir borgarstjóra,
sem blaðið kemur á framfæri.við
hann og verða svörin birt nokkr-
um dögum síðar. Einnig má
senda spurningar í bréfi til Morg-
unblaðsins. Nauðsynlegt er að
nafn og heimilisfang fyrirspyij-
amja, komi fram.
I
I
i
I
i
I
I
I
I
I
I
I
I
1