Morgunblaðið - 29.04.1994, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. APRÍL 1994
21
Gjaldeyrir
Mikill munur á kaup- og
sölugengi íslensku
krónunnar íDanmörku
Það borgar sig ekki að skipta íslenskum peningum erlendis
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
ISLENDINGAR, sem eiga leið til Danmerkur og hafa hugsað sér
að taka með sér einhverja íslenska peninga og skipta þar, líkt og
Danir geta til dæmis gert þegar þeir fara til íslands, gera af-
spyrnu slæm kaup á þann hátt. Meðan að sölugengi seðla var í
vikunni 10,24 danskar krónur fyrir hundrað krónur íslenskar, þá
fengust aðeins 7,74 fyrir hverjar hundrað íslenskar krónur. Þessi
mismunur er miklu meiri en tíðkast í gjaldeyrisviðskiptum. Bank-
arnir bera við vaxtatapi, vegna þess hve lítið sé verslað í íslensk-
um krónum. Viðskiptavinum er ráðlagt að taka með sér danskar
krónur til íslands og skipta þeim þar eftir þörfum, en taka enga
íslenska peninga með sér aftur. Þeim, sem þurfa að yfirfæra pen-
inga, er ráðlagt að gera það með millifærslum í bönkum, því þá
gildir annað sölugengi.
Þegar hringt var í Den Danske
Bank fengust þær upplýsingar að
kaupgengi íslenskra seðla værj
10,24 en sölugengi væri 7,74. í
erlendu deild bankans var sagt að
vissulega væri þetta mikill munur,
Efnahagsmál
en ástæðan væri sú að það væri
svo lítið verslað með íslenskan
gjaldeyri. Veltan í íslenskum seðl-
um væri mjög lítil, sem lægju þá
vaxtalausir í skúffum bankans, því
ekki borgaði sig að senda pening-
ana fram og aftur. Starfsmaður
bankans sagði að viðskiptavirium
væri ráðlagt að versla við ísland
með ávísum eða beinum yfirfærsl-
um, því þar væri sölugengið 9,45
og kaupgengið 9,05.
í Unibank er gengið það sama
og í Den Danske Bank. í erlendu
deildinni þar færði starfsmaðurinn
sömu rök og starfsbróðir hans í
Den Danske Bank, en bætti auk
þess við að þessi mismunur væri
einnig vegna þess hve íslenska,
krónan væri óstöðugur gjaldmiðill.
Þegar honum var bent á að ís-
lenska krónan hefði verið með
föstu gengi undanfarin mörg ár,
sagði hann að röksemdin um litla
veltu ætti þá betur við.
Sem liður í samkeppni milli
bankanna er þeim bannað að hafa
samráð sín á milli um gengið, svo
það vekur athygli að báðir bank-
amir skuli gefa upp sama gengi.
Skýringin á því er að bönkunum
er að vísu bannað að hafa samráð
um gengið, en þeim er ekki bannað
að taka mið af verði hvers annars,
rétt eins og kaupmenn gera.
Hjá Fjármálaráðinu, sem er
sameiginleg eftirlitsstofnun bank-
anna, fengust þær upplýsingar að
engar reglur giltu um hvað mikið
mætti kosta að versla með gjald-
eyri. Bankarnar taka mið af gengi
danska Seðlabankans, en þeim er
sjálfum heimilt að verðleggja
gjaldeyrinn. Hins vegar er bönk-
unum skylt að auglýsa rækilega
hvert verð þeirra sé, svo viðskipta-
vinirnir geti gert sér grein fyrir
verði og borið saman verðið hjá
bönkunum. Starfsmaður Fjár-
málaráðsins tók undir að gengis-
munur íslensku krónunnar væri
hár, en hann væri ekki óeðlilegur,
miðað við að hér væri um sjald-
verslaðan gjaldeyri að ræða.
Þrátt fyrir stöðugt gengi ís-
lensku krónunnar þá vantar enn
mikið á að hún sé gjaldgeng á
erlendum gjaldeyrismörkuðum.
Það er hægt að stefna að traustu
efnahagslífí, en smæðina er erfitt
að yfírvinna á þessum vettvangi.
Víetnamar stefna
að einka væðingu
Iðnaðarframleiðslan ört vaxandi
Hanoi. Reuter.
VÍETNAMAR segja að þróunin
í efnahagsmálum þeirra sé já-
kvæð og stöðug og benda á að
iðnframleiðsla, útflutningur,
innfiutningur og smásöluverzl-
un hafi aukizt.
Að sögn Le Xuan Trinh ráð-
herra var iðnframleiðsla á fyrsta
ársfjórðungi þessa árs 11,4% meiri
en á sama tíma 1993. Útflutning-
ur jókst um 18% og innflutningur
um 20,6% þannig að viðskiptahalli
eykst. Til þess að markaðsvæða
efnahaginn hefur innflutningur
verið aukinn í því skyni að treysta
hrynjandi stoðir efnahagslífsins.
Að sögn Tranhs er meðal ann-
ars reynt að auka eflingu undir-
byggingu efnahagslífsins með
vegaframkvæmdum fyrir fé frá
Alþjóðabankanum og Þróunar-
banka Asíu. Aukin áherzla verður
lögð á einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja og endurskipulagningu rík-
isverksmiðja og er það liður í und-
irbúningi að því að hefja starf-
rækslu kauphallar, ef til vill á
næsta ári.
Útflutningur á gúmmí jókst um
12% og á kaffi um 30% á fyrsta
ársfjórðungi miðað við sama tíma
í fyrra. Smásöluverzlun hefur auk-
izt um 19% á sama tíma „og það
bendir til aukins kaupmáttar,“ að
sögn Tranhs á blaðamannafundi.
Verðlag er stöðugra eftir hækk-
un nýárshátíðardagana í febrúar.
Verðbólga í fyrra var 5,2% og 5,1%
á fyrsta ársfjórðungi þessa árs.
Spáð er 8-9% verðbólgu á árs-
grundvelli.
AUGLYSING
UM INNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ*) Á KR. 10.000,00
1983- 2.fl. 1984- 3.fl. 01.05.94-01.11.94 12.05.94-12.11.94 kr. 62.552,20 kr. 74.127,40
*) Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbætur.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs fer fram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt
frammi nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, apríl 1994.
SEÐLAB ANKIÍSLANDS
SEÐLAR — Þeir sem
skipta íslenskum krónum fyr-
Húsbréf
*
Avöxtunar-
krafannið-
urfyrir 5%
í gærdag
ÁVÖXTUNARKRAFA hús-
bréfa lækkaði um 0,02 pró-
sentustig í gær í 4,98% á Verð-
bréfaþingi íslands og fór í
fyrsta skipti í sögunni niður
fyrir 5%.
Ávöxtunarkrafan hefur jafnt og
þétt farið lækkandi á undanföm-
um dögum frá því um miðjan
mánuðinn. Ávöxtunarkrafan um
ir danskar í Danmörku ríða
ekki feitum hesti frá þeim
viðskiptum.
miðjan mánuðinn var 5,20% á
húsbréfum, en ávöxtunarkrafa
spariskírteina hefur einnig farið
jafnt og þétt lækkandi.
AÐALFUNDUR
ÞRÓUNARFÉLAGS REYKJAVÍKUR
verður haldinn að Hótel Borg
föstudaginn 29. apríl kl. 16:00.
Dagskrá samkvæmt samþykktum félagsins.
Ræða:
Árni Sigfússon, borgarstjóri.
Miðborgin - viðhorf:
Ingibjörg R. Guðlaugsdóttir, deildarstjóri
Borgarskipulagi Reykjavíkur.
Stjórn Þróunarfélags Reykjavíkur
Aðalfundur 1994
Aðalfundur Granda hf. verður haldinn föstudaginn 29.apríl 1994 í matsal fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 17:00
DAGSKRÁ
O
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr.
samþykkta félagsins
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarbréfa
3. Tillaga um útgáfu nýrra hluta
4. Önnur mál, löglega upp borin
GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK