Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 4
4 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ísland varði Norðurlandatitilinn í brids
Morgunblaðið/Golli
Norðurlandameistarar
NÝKRÝNDIR Norðurlandameistarar í brids. Frá vinstri eru
Karl Sigurhjartarson, Sævar Þorbjörnsson, Jón Baldursson,
Jakob Kristinsson og Matthías Þorvaldsson.
Meiriháttar
gott og öruggt
ÍSLAND varði Norðurlandatitil-
inn í brids á Norðurlandamótinu
í Vasa í Finnlandi sem lauk í
gærkvöldi. íslenska liðið hafði
nánast tryggt sér sigurinn fyrir
síðasta leik mótsins.
„Þetta var meiriháttar gott og
öruggt," sagði Karl Sigurhjartar-
son fyrirliði íslenska liðsins, en
liðið skipuðu auk hans Jón Bald-
ursson, Sævar Þorbjömsson, Jak-
ob Kristinsson og Matthías Þor-
valdsson. íslenska liðið vann níu
af tíu leikjum og tapaði aðeins
fyrir Noregi með minnsta mun í
síðustu umferðinni þegar titillinn
var í höfn.
Karl Sigurhjartarson sagði að
þessi árangur undirstrikaði það
sem oft sé haldið fram, að íslensk
landslið væru nú í efsta styrkleika-
flokki Evrópuþjóða. Hins vegar
væri aldrei hægt að lofa sigri á
Evrópumótum eða heimsmeistara-
mótum því það væri stundum til-
viljunum háð hver af þessum
sterku þjóðum næði að sigra.
Styrkleikamerki
ísland hefur ekki enn náð að
vinna Evrópumót. Slíkt mót verð-
ur haldið á næsta ári og góður
árangur þar gefur rétt til keppni
á heimsmeistaramóti. Helgi Jó-
hannsson forseti Bridgesambands
íslands sagði að Norðurlandatit-
illinn nú væri fyrsti áfanginn í
tveggja ára áætlun um að ná
toppárangri á Evrópumóti. Og
það væri styrkleikamerki að
landsliðsfyrirliðinn hefði haft efni
á að spara fimm fyrrverandi
heimsmeistara að þessu sinni en
þeir eru í landsliðshópnum sem
valinn var í vetur til tveggja ára.
„Við erum að komast á beinu
brautina aftur,“ sagði Helgi.
ísland vann Svía, 18-12, í næst
síðasta leiknum í gær en síðasti
leikurinn fór 14-16 fyrir Noreg.
ísland endaði með 186,5 stig,
Noregur fékk 167 stig, Svíþjóð
162.5 stig, Danmörk og Finnland
146 og Færeyjar 80 stig. Þetta
er í fyrsta skipti í 12 ár sem þjóð
nær að veija Norðurlandatitil í
brids. ísland hefur nú unnið Norð-
urlandamótið í opnum flokki þrí-
vegis, 1988, 1992 og 1994 en
mótið er haldið á tveggja ára
fresti. Karl og Sævar hafa verið
í öllum sigurliðum íslands en titill-
inn nú er annar Norðurlandatitill
Jóns og Matthíasar. Jakob var
hins vegar nýliði í landsliðinu.
íslenska kvennalandsliðinu
gekk mjög illa að þessu sinni og
tapaði öllum leikjum sínum nema
einum. Danir urðu Norðurlanda-
meistarar með 183 stig, Finnar
urðu í öðru sæti með 166 stig,
Svíar fengu 166 stig, Norðmenn
160.5 en Island fékk 82 stig.
Síðustu leikir íslenska liðsins
voru gegn Svíum og Norðmönn-
um og tapaðist leikurinn gegn
Svíum 4-25 og leikurinn gegn
Norðmönnum 8-22.
Húnaröst
með fyrstu
loðnuna
HÚNARÖST RE landaði síðdegis
í gær á Raufarhöfn fyrstu loðn-
unni á nýhafinni vertíð, 750 tonn-
um, en í gærkvöldi landaði Berg-
ur VE jafnframt 530 tonnum á
Raufarhöfn. Samkvæmt upplýs-
ingum Tilkynningaskyldunnar
voru 26 skip við loðnuveiðar um
120 mílur norður af Melrakka-
sléttu í gærdag, en flest skipanna
komu á svæðið í gærmorgun.
12-14 tíma sigling er af loðnu-
miðunum til Raufarhafnar.
Hákon Magnússon skipstjóri á
Húnaröst sagði í samtali við
Morgunblaðið að hann hefði ekki
orðið var við mikla loðnu á mið-
unum í gærmorgun, en fullfermi
hefði þó fengist í tveimur köst-
um. Hann sagði loðnuna vera
stóra og ágæta á að líta, en mik-
il áta væri þó í henni. „Þetta er
góð byrjun á vertiðinni og það
er ágætt að fá svona afla í byij-
un. Fiskifræðingarnir segja okk-
ur að það sé mikið af loðnu í sjón-
um og við treystum á þeirra
speki,“ sagði Hákon.
FRÉTTIR
Endurbygging Iðnós og viðbygging
Húsfriðunarnefnd sögð
ósátt við breytingarnar
MAGNÚS Skúlason, arkitekt og faglegur ráðgjafi Húsafriðunar-
nefndar ríkisins, segir að þjóðminjalög og önnur lög hafi verið brot-
in með endurbyggingu Iðnós, þar sem ekki hafi verið farið eftir
óskum nefndarinnar sem á m.a. að vera til ráðuneytis um ytra
útlit friðaðra húsa. Um er að ræða glugga hússins, en nefndin vildi
að einfalt gler yrði í gluggum með innra gleri í sérstökum ramma.
Hins vegar hafi nefndin fallist á þær framkvæmdir sem hafnar
voru, þegar töluvert var liðið á byggingartímann. Magnús kveðst
telja að Húsafriðunamefnd hafi verið tilneydd til að samþykkja
viðbyggingu við Iðnó, enda málið kynnt þannig að ef ekki fengist
samþykki yrði ekkert gert við Iðnó.
„Nefndin fagnaði endurbyggingu
Iðnós og gerði þess vegna ekki
athugasemdir við glerbygginguna
þótt óánægju gætti með hana,
enda yrði að öðru leyti farið að
vilja nefndarinnar við endurbygg-
inguna," segir Magnús.
í bága við samþykktir
Magnús segir að óánægja
nefndarinnar hafí komið fram í
bréfaskriftum á milli Húsafriðun-
amefndar og endurbyggingar-
nefndar Iðnós, sem borgarráð hafí
alltaf fengið afrit af. „Það stóð í
þrefí um nokkurra mánuða skeið
hvort ætti að fara að vilja Húsa-
friðunarnefnar eða ekki, og eftir
honum var ekki farið. Endurbygg-
ingamefndin hundsaði vilja Húsa-
friðunamefndar og braut þar með
landslög og þjóðminjalög, þar til
samþykktin lá fyrir. Þetta vekur
sérstaka furðu þar sem tveir lög-
menn eiga sæti í endurbyggingar-
nefnd, þeir Haraldur Blöndal
hæstaréttarlögmaður og Hjörleif-
ur Kvaran, núverandi borgarlög-
maður, sem hafa með þessum
hætti staðið að aðstoð við lög-
brot,“ segir Magnús. Hann segir
að nefndinni hafí einnig verið sagt
að í viðbyggingu yrði glært gler, )
og samþykkt hana í þeirri trú.
Glerið sem sett hafí verið í við-
bygginguna sé hins vegar dökkt
spegilgler, sen nefndin telji tví-
mælalaust bijóta í bága við um-
ræddar samþykktir. Húsafriðun-
amefnd sendi endurbyggingar-
nefnd Iðnós bréf vegna glersins í
viðbyggingunni, fýrir um viku, og )
borgarstjóra, þar sem bent er á ^
að viðbyggingin sé ekki eins og
til var ætlast, og segir Magnús '
ekkert svar enn hafa borist.
Magnús kveðst persónulega
vera afar ósáttur við viðbyggingu
Iðnós, hún sé stflbrot, en samþykk-
ið hafí verið veitt áður en að hann
tók til starfa hjá nefndinni, og
hann hafí því ekki getað haft áhrif
á þá afgreiðslu málsins. „Það er
athyglisvert að gamli skúrinn sem ’
var fyrir framan Iðnó var úr )
steypuefni, tískuefni þess tíma, og )
nýja viðbyggingin er úr tískuefni
nútímans, stáli og gleri. Hvorug
byggingin er í miklu samhengi við
Iðnó,“ segir Magnús.
\
ODDRÚN Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar, Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri og Arnfínnur Jónsson skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur stílla sér
upp fyrir framan hið nýja húsnæði stofnananna að Engjateigi 11.
Vinnumiðlun og Vinnuskóli í nýtt húsnæði
Starfshættir færðir til í
nútímalegra horfs
NÝTT húsnæði Vinnumiðlunar Reykjavíkurborgar og Vinnuskóla
Reykjavíkur á tveimur hæðum í Kiwanishúsinu að Engjateig 11
var formlega tekið í notkun í gær. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri sagði í ávarpi af þessu tilefni að starfshættir Vinnu-
miðlunarinnar hafí verið færðir í nútímalegra horf í kjölfar flutning-
anna og tölvuvæðingar stofnunarinnar.
60 ár eru liðin síðan borgarráð
samþykkti að sett yrði á stofn
ráðningarstofa á vegum borgar-
innar en hún tók til starfa 20.
október árið 1934. Ráðningarstofa
Reykjavíkurborgar fékk síðan nýtt
nafn og hefur starfað undanfarin
eftir lögum um vinnumiðlun frá
1985 sem skylda sveitarfélög með
500 íbúa og fleiri að starfrækja
vinnumiðlun fyrir íbúa sína.
Lykilhlutverk Vinnumiðlunar
Ingibjörg Sólrún sagði í ávarpi
sínu að Vinnumiðluninni væri ætl-
að að gegna lykilhlutverki í barátt-
unni við atvinnuleysið. í nýju hús-
næði og með uppsetningu tölvu-
kerfis verði henni „sköpuð aðstaða
til þess að rækja vinnumiðlunar-
hlutverkið meir en að nafninu til
og jafnframt ... gert kleift að
leggja á ráðin með fólki, sem vill
styrkja stöðu sína á vinnumarkaði
með námi eða starfsþjálfun."
Borgarstjóri tilkynnti að ráðnir
yrðu tveir atvinnuráðgjafar til
Vinnumiðlunarinnar til þess að I
gera þjónustuna við atvinnulausa )
markvissari. Ingibjörg Sólrún
kvaðst fyrst og fremst vona að
atvinnuleysi færi minnkandi og að
stofnunin mundi í auknum mæli
þjóna vinnandi fólki sem skipta
vildi um starf.
Kaupverð hæðanna tveggja var
45 milljónir en heildarkostnaður
við hönnun og frágang nam 30 i
milljónum króna. Arkitekt hússins j
er Gunnar Óskarsson en umsjón :
með uppsetningu tölvubúnaðar var
í höndum Jóns R. Kristjánssonar.