Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 6
MORGUNBLAÐIÐ
\
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
FRETTIR
Hollandsdrottning spurði margs um Nesjavallavirkjun og sæstreng frá íslandi
Þoka hamlaði ferð
til Vestmannaeyja
BEATRIX skoðaði Nesjavallavirkjun og þótti mikið til koma
að finna kraftinn sem býr í jörðinni.
OPINBERRI heimsókn hennar há-
tignar Beatrix Hollandsdrottningar
lauk í gær. Flugvél drottningar gat
ekki lent í Vestmannaeyjum vegna
þoku og var ferð hennar þangað
breytt í útsýnisferð. Fyrr um dag-
inn fóru Beatrix og maður hennar,
Claus prins, til Þingvalla, gróður-
settu tré í Vinaskógi og skoðuðu
Nesjavallavirkjun. Drottningin
hafði mikin áhuga á því að fræð-
ast um hvernig íslendingar hafa
nýtt sér jarðvarmann og eins hug-
myndir manna um að leggja raf-
magnssæstreng til Hollands.
Seinni dagur opinberrar heim-
sóknar Hollandsdrottningar hófst á
Þingvöllum þar sem Hanna María
Pétursdóttir, þjóðgarðsvörður, og
Davíð Oddsson, forsætisráðherra,
tóku á móti gestum. Hanna María
ávarpaði drottninguna og prinsinn
við útsýnisskýfuna við Almanna-
gjá. Hún lýsti í fáeinum orðum
sögu staðarins og þýðingu hans
fyrir þjóðina. Eins gerði hún grein
fyrir jarðsögu Þingvalla. Að því
búnu gekk drottnig niður Al-
mannagjá og skoðaði náttúrufeg-
urð staðarins í fylgd þjóðgarð-
svarðar og yigdísar Finnbogadótt-
ur, forseta íslands.
Frá Þingvöllum hélt Hollands-
drottning í Vinaskóg þar sem hún
gróðursetti tré líkt og svo margir
þjóðhöfðingjar sem hingað hafa
komið hafa gert. Claus prins að-
stoðaði konu sína við gróðursetn-
inguna.
Áhugi á sæstreng
Gunnar Kristjánsson, hitaveitu-
stjóri, og Aðalsteinn Guðjohnsen,
rafmagnsveitustjóri, tókú á móti
hinum tignu gestum í Nesjavalla-
virkjun. Eftir að gestimir höfðu
fengið sér kaffibolla sagði Gunnar
drottningu stuttlega frá því hvern-
ig íslendingar hafa farið að því að
nýta sér vatns- og gufuaf! til að
framleiða rafmagn og hita upp
hús. Aðalsteinn gerði síðan grein
fyrir hugmyndum manna um frek-
ari nýtingu raforku til útflutnings,
en í gær var undirritaður samning-
ur á milli Landsvirkjunar og Icenet-
hópsins um lagningu sæstrengs til
Hollands. Stærstu aðilar að Icenet-
hópnum eru þijú hollensk fyrir-
tæki. Beatrix og Claus sýndu þess-
um hugmyndum mikinn áhuga og
spurðu margra spurninga.
„Þau spurðu mikið um sæstreng-
inn, lengd hans, dýpt og almennt
um stærð verkefnisins. Eins spurðu
þau um líkurnar á að af þessu verði.
Þá spurðu þau um virkjunina á
Nesjavöllum, þrýstinginn og hit-
ann. Þetta er allt voðalega fram-
andi fyrir þeim því að þessi orka
er þeim lítt kunn. Hollendingar eru
núna í auknum mæli að byggja
gasstöðvar til að framleiða raf-
magn og þær koma væntanlega til
með að keppa við okkur,“ sagði
Aðalsteinn.
Áður en gestimir fóru frá Nesja-
völium skoðu þeir eina borholu.
Holan biés svo kröftuglega að
greina mátti titring í jörðinni.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
í VINASKÓGI gróðursetti Beatrix tré.
HANNA María Pétursdóttir, þjóðgarðsvörður, og Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, gengu með gestunum niður Almannagjá.
Greinilegt var að Hollendingunum
þótti mikið til þessa koma. Það fór
t.d. ekki á milli mála að Claus prins
fannst heimsóknin til Nesjavalla
áhrifamikil og skemmtileg.
Í hádeginu snæddu hinir tignu
gestir málsverð í boði Davíðs Odds-
sonar, forsætisráðherra, og konu
hans, Ástríðar Thorarensen. Að því
búnu var haldið til Vestmannaeyja.
Mikil þoka var í Vestmannaeyjum
og treystu flugmenn sér ekki til
að lenda flugvélinni þar. Þeir snéru
því við eftir að hafa flogið útsýnis-
flug yfir Vatnajökul.
Heimsókninni lauk í gærkvöldi
með tónleikum í Borgarleikhúsinu,
en þeir voru í boði Hollandsdrottn-
ingar.
Þó hinni opinberu heimsókn hafi
lokið í gær fara drottningin og
maður hennar ekki heim til Hol-
lands fyrr en á mánudag. í dag og
á morgun ætla þau að ferðast um
landið í fylgd forseta íslands. Ferð-
inni er heitið til Húsavíkur þar sem
þau ætla m._a. að ferðast um Mý-
vatnssveit. Á morgun fara þau til
Hafnar í Hornafirði.
Vinnueftirlitið vegna alvarlegs slyss á gocart-braut á sunnudag
ANDLÁT
Ekkert athugavert
við öryggisbúnað
EKKERT er athugavert við öryggisbúnað gocart-bíla Kart-klúbbsins
hf., Fákafeni 9, að sögn Jens Andréssonar tæknifulltrúa hjá Vinnueftir-
liti ríkisins. Hins vegar má að hans dómi setja spumingarmerki við
merkingar og skýrar leiðbeiningar gæslumanns um viðeigandi fatnað.
Ungur ökumaður gocarts-bíls var hætt kominn þegar trefill um háls
hans flæktist í afturöxli ökutækisins á braut Kart-klúbbsins á sunnudag.
Um gocart-bíla gilda reglur um
vélknúin leiktæki i skemmtigörðum.
Reglurnar eru í tólf liðum og segir
í þriðja lið að við alla hreyfanlega
hluta vélbúnaðar skuli vera hlífar
sé hætta á að þeir geti valdið slys-
um. Um þennan lið sagði Jens að
honum væri fullnægt með hlíf frá
mótor að sléttum öxli undir bílnum.
Slysið hafi orðið með þeim hætti
að trefill ökumannsins hafi flækst
í honum. Aðeins 30 til 40 sm eru
frá axlarhæð ökumanns að ásnum.
Viðeigandi fatnaður
Um rekstur og ábyrgð starfsfólks
segir í áðumefndum reglum að heim-
ilt sé að ráða gæslumenn til að ann-
ast rekstur vélknúinna leiktækja og
daglegt eftirlit með þeim undir yfir-
stjóm rekstrarstjóra. Gæslumenn
skulu vera orðnir fullra 17 ára og
hafa næga þekkingu, þjálfun og
hæfni til að stjóma viðkomandi leik-
tæki. Gæslumenn skulu sjá um að
rekstur gangi eðlilega og að farþeg-
um eða öðrum stafi ekki hætta af.
Síðar segir að gæslumenn skuli sjá
til þess að farþegar klæðist ekki fatn-
aði sem geti valdið slysahættu.
Jens sagði að setja mætti spum-
ingarmerki við merkingar og skýrar
leiðbeiningar gæslumanns um við-
eigandi klæðnað í þessu tilfelli.
Frekari upplýsingar þess efnis
kæmu í ljós við skýrslutöku. Enn-
fremur tók hann fram að verið
gæti að trefillinn hafí verið lítt sján-
legur þegar ökumaður lagði af stað.
Hann sagði að sjálfum þætti sér
ekki óeðlilegt að rekstraraðilar goc-
art-brauta veltu því fyrir sér að
lána viðskiptavinum sínum viðeig-
andi samfestinga til að klæðast við
aksturinn og forða þannig hugsan-
legum slysum.
Leyfi ekki afturkallað
Hann sagði að þar sem rekstrar-
aðili Kart-klúbbsins hefði tilskilin
leyfi og ekkert væri athugavert við
tæki, búnað eða umhverfi kæmi
ekki til greina að afturkalla rekstr-
arleyfí eins og heimild er til í regl-
um. Hann sagði að aðstæður hafí
ekki verið kannaðar sérstaklega þar
sem ekki hafi verið kallað á Vinnu-
eftirlitið strax eftir að slysið hefði
orðið. Hins vegar væri um vinnu-
stað, sem reglulega væri heimsóttur
eins og aðrir slíkir, að ræða. Til
greina kæmi að kanna hvort ástæða
væri til að kanna hvort hægt væri
að tryggja öryggi betur en nú.
Ekki er vitað til að annað jafn alvar-
legt slys hafi orðið á tveimur go-
cart-brautum í Reykjavík.
Gocart-bílar eru lágir bensínbílar
á afmörkuðum brautum. Meðal-
hraði þeirra er 35 til 40 km á klst.
og stöðvast þeir um leið og bensín-
gjöf er sleppt. Ökumaður þarf að
vera a.m.k. 1.50 m að hæð.
OSKAR AÐALSTEINN
OSKAR Aðalsteinn, rit-
höfundur og vitavörður,
lést í gær, 75 ára að
aldri.
Óskar Aðalsteinn
fæddist 1. maí 1919 á
ísafirði en foreldrar
hans voru þau Guðjón
Sigurðsson og Guð-
mundína Jónsdóttir.
Óskar Aðalsteinn
starfaði sem aðstoðar-
bókavörður við bóka-
safn ísafjarðar á árun-
um 1941-46. Árið 1947
réðst hann sem vita-
vörður í Hornbjargsvita
þar sem hann vann til
1949. Hann stundaði
ritstörf og blaða-
mennsku á Isafirði árin
1949-53 en þá fór hann
til starfa sem vitavörður
á Galtarvita. Gegndi
hann starfi vitavarðar
til ársins 1977 þegar
hann gerðist vitavörður
Reykjanesvita til 1992.
Eftir Óskar Aðalstein
liggja margar skáldsög-
ur, barna- og ungl-
ingabækur, þáttasafn
og fleiri ritverk.
Seinni eiginkona Ósk-
ars Aðalsteins var Val-
gerður Hanna Jóhanns-
dóttir, vitavörður, og lif-
ir hún mann sinn. Hann
átti tvær dætur frá fyrra
hjónabandi og þrjá syni
með Valgerði Hönnu.
Duft gegn eldi í
uppþvottavél
SLÖKKVILIÐIÐ var kallað að hús-
næði Samvinnuferða-Landsýnar við
Austurstræti í gær, en þegar það
kom á vettvang hafði starfsfólk
ferðaskrifstofunnar ráðið niðurlög-
um elds í uppþvottavél.
Kallið til slökkviliðsins kom um
kl. 15.20, en þá logaði í uppþvotta-
vél í kaffístofu starfsmanna í risi
hússins. Þar sem starfsfólkið hafði
slökkt eldinn með dufttæki þurfti
slökkvihðið aðeins að aðstoða við að
reykræsa húsnæðið.
Samkvæmt upplýsingum slökkvil-
iðsins smýgur duft úr slökkvitækjum
víða og loðir við allt, svo búast má
við að töluvert verk verði að þrífa
eftir óhappið. Starfsemi ferðaskrif-
stofunnar heldur þó áfram sem ekk-
ert hafi í skorist.
t
!
i
I"
!
I
i
í
»
i
I
I
l
»
»
i
fe
I
fe
B
I
i
fe
»
I
i
í
h