Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Þú getur nú alveg bætt við þig einum ráðherrastól, Sighvatur minn. Ég sé að þú ert með aðra kinnina á lausu. Óvissa um kosningarnar á Hólmavík og í Stykkishólmi Urskurðirnir kærðir til félagsmálaráðuneytis Gömlu sveitarstjórnim- ar hafa tekið við stjórn sveitarfélaganna á Hólmavík og í Stykkis- hólmi eftir að kosning- amar í vor voru úr- skurðaðar ógildar. Svo kann að fara að dóms- mál verði höfðað vegna kosninganna. ÚRSKURÐIR um ógildingu sveit- arstjórnarkosninga í Stykkishólmi og á Hólmavík hafa verið kærðir til félagsmálaráðuneytisins. Hugs- anlegt er að þeir embættismenn sem hafa Qallað um þessi mál í ráðuneytinu á fyrri stigum víki sæti þegar kærurnar verða teknar til meðferðar. Haraldur Blöndal, lögfræðingur, segir að það sé ekki í samræmi við stjórnsýslulög ef sömu menn fjalli um kærumar því að þar með séu þeir að leggja dóm á eigin verk. Þær sveitarstjómir sem voru DÓMS- og kirkjumálaráðuneytið hefur auglýst dómaraembætti við Hæstarétt Islands laust til umsókn- ar. Umsóknarfrestur er til 22. júlí og í auglýsingu ráðuneytisins kem- ur fram að umsóknir þar sem um- sækjandi óskar nafnleyndar verði ekki teknar til greina. Um er að ræða embætti Gunnars M. Guðmundssonar, sem var fyrst settur hæstaréttardómari 1989 til kosnar í Stykkishólmi og á Hólma- vík fyrir fjórum árum hafa nú tekið við stjórn sveitarfélaganna að nýju. Sveitarstjórnarlög gera ráð fyrir að það gerist ef kosning til sveitar- stjórnar er úrskurðuð ógild. Úr- skurðinum er hægt að áfrýja til félagsmálaráðuneytisins. Komist ráðuneytið að þeirri niðurstöðu að kosningin sé gild tekur nýja sveitar- stjómin aftur við völdum. Þeim úr- skurði er síðan hægt að skjóta til dómstólanna. Haraldur Blöndal segir alveg ljóst að farið verði með þessi mál fyrir dómstóla breyti ráðuneytið úrskurðunum. Komist félagsmálaráðuneytið hins vegar að sömu niðurstöðu og lögfræðinga- nefndirnar, sem úrskurðuðu kosn- ingamar ógildar verða að fara fram nýjar kosningar. A.m.k. 4 vikur þurfa að líða frá því ákvörðun er tekin um það þangað tii kosningar fara fram. Bæjarstjórnarmenn í Stykkis- hólmi og á Hólmavík hafa áfrýjað úrskurði um ógildingu til félags- málaráðuneytisins. Bæði þessi mál hafa verið kærð til félagsmálaráðu- neytisins á fýrri stigum. I báðum tilvikum felldi ráðuneytið úrskurði þar sem kærum var hafnað. Harald- ur Blöndal sagði að það sé ekki í samræmi við ákvæði stjórnsýslu- 1990 og 1991, en var skipaður í embætti það ár. Gunnar lætur af störfum 1. september nk. sökum aldurs. Fyrir skömmu var skipað í annað dómaraembætti við Hæstarétt. Það embætti var nýtt, þar sem tekin var sú ákvörðun að fjölga í dóminum. Markús Sigurbjömsson prófessor var skipaður í embættið. laga ef sömu lögfræðingar ráðu- neytisins taki þetta mál aftur til umfjöllunar og fari þar með að leggja dóm á eigin verk. Sesselja Árnadóttir, lögfræðingur í félags- málaráðuneytinu, sagðist ekki geta svarað því hvernig ráðuneytið muni halda á þessu máli þegar endanleg afstaða verði tekin til kæranna. Ráðuneytið muni kalla eftir gögn- um sem málið varðar eins og jafnan sé gert þegar kærur eru lagðar fram. Of skammur tími til að sameina Sameining sveitarfélaga er meg- inástæðan fyrir því að deilur hafa risið um framkvæmd kosninganna á Hólmavík og í Stykkishólmi. Ljóst þykir að ákvarðanir um sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar og Hómavíkur og Nauteyrarhrepps voru teknar of seint. Umræður um sameiningu Hólmavíkur og Naut- eyrarhrepps hófust í vor og fyrsti formlegi fundurinn um sameiningu var haldinn 22. apríl, aðeins viku áður en framboðsfrestur til sveitar- stjórnarkosninga rann út. Lengri aðdragandi var að sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar, en kosningar um sameiningu og deilur um framkvæmd þeirra töfðu endanleg ákvörðun um sameiningu. Félagsmálaráðuneytið tók ákvörðun um að sameina Nauteyr- arhrepp og Hólmavíkurhrepp 2. maí, en auglýsing um sameiningu var ekki birt í Stjómartíðindum fyrr en 9. maí. I auglýsingunni var tekið fram að kosningar ættu að fara fram í þessu nýja sveitarfélagi 28. maí eða tveimur og hálfri viku síðar. Samkvæmt sveitarstjómar- lögum eiga að líða 4 vikur frá lokum framboðsfrests til kjördags. Tíminn var enn minni í hinu til- vikinu. Ákvörðun um sameiningu Stykkishólms og Helgafellssveitar var tekin í félagsmálaráðuneytinu 16. maí og staðfest með auglýsingu í Stjómartíðindum 19. maí eða að- eins rúmri viku áður en kosið var. Laust embætti dómara við Hæstarétt Landsmót ungmennafélaga Landsmótið ein allsherjar fjöl- skyldusKemmtun Ólafur Örn Haraldsson Landsmót ung- mennafélaganna á íslandi verður haldið í 21. sinn að Laugarvatni dagana 14. til 17. júlí nk. Þar hefur verið unnið hörðum hönd- um síðustu vikur og mán- uði við undirbúning eins stærsta íþróttamóts lands- ins. Keppnisvellir hafa ver- ið gerðir upp, íþróttahús undirbúin og fjölbreytt dagskrá sett saman. Ólaf- ur Örn Haraldsson, fram- kvæmdastjóri landsmóts- ins, hefur haft yfirumsjón með undirbúningi og hann veit vel hvemig til tókst síðast þegar landsmót var haldið að Laugarvatni árið 1965. Þá lék veður við yfir tuttugu þúsund gesti og þátttakendur mótsins. Þá fer þeim sögum af hita á mótsstað að hann hafi komist upp í 25 gráður á Celsíus. Það liggur því beinast við að spyija Ólaf hvort búast megi við jafn góðu veðri og álíka mörg- um gestum í ár. „Líklega megum við ekki eiga von á jafn mörgum gestum nema ef veður verður einstaklega gott. Við gerum ráð fyrir að um 10-15 þúsund gestir heimsæki Laugar- vatn en þar af eru keppendur um tvö þúsund talsins og fylgifiskar og starfsmenn um eitt þúsund. Hingað koma fulltrúar flestra hér- aðssambandanna 36 innan Ung- mennafélags íslands. Við verðum að hafa það í huga að ungmennafé: lagahreyfingin er mjög fjölmenn. í 260 ungmennafélögum eru skráðir félagar um 46 þúsund. - Þið ætlið að minnast mótsins frá árinu 1965 með sérstökum hætti, ekki satt? „Jú, við munum setja upp eins konar vasaútgáfu af því móti. Við munum rifja upp gamla góða daga á sérstakri sýningu í húsi, sem sumir kalla ’65-húsið en aðrir upp- nefna það ’65-athvarfið. Þar verður meðal annars sýnd klukkutíma heimildarmynd um landsmótið. Utan á húsinu mun ennfremur hanga hitamælir sem mun sýna 25 stiga hita hvemig sem viðrar. Til að setja punktinn yfir i-ið ætla meðlimir hinna frægu Hljóma að koma saman á ný og leika fyrir dansi í stóru tjaldi sem sett hefur verið upp á móts- svæðinu." - Hvernig hefur undirbúningur mótshalds gengið fyrir sig? „Undirbúningi fyrir svona stórt mót fylgir margra mánaða vinna. Þó er ekki hægt að segja annað en að allt hafi gengið vel hingað til. Á Laugarvatni og nágrenni er löng hefð fyrir sjálfboðastarfí og þess starfs höfum við notið. Verk- legar framkvæmdir við keppni- svelli hafa aftur á móti verið á vegum ríkisins en eins og þekkt er úr fjölmiðlum komu upp ákveðin vandræði þegar leggja átti gervi- efni á hlaupabrautir á fijálsíþrótta- vellinum. Eg hef þær góðu fréttir að færa nú að það vandamál er um það bil að leysast og gerir það væntanlega um eða eftir helgina." - Mega aðstandendur landsmóts þá heita ánægðir með aðstöðuna að Laugarvatni? „Við erum það svo sannarlega enda göngum við að glæsilegum íþróttamannvirkjum. Nýi fijáls- íþróttavöllurinn er einn af glæsileg- ustu völlum landsins og er jafn- framt löglegur alþjóðavöllur. íþróttahúsin eru fín og öll aðstaða önnur til fyrirmyndar. Einn helsti kostur við íþróttaaðstöðuna hér að ► ÓLAFUR Örn Haraldsson er fæddur í Reykjavík árið 1947. Eftir stúdentspróf frá ML árið 1968 lauk hann BS- prófi í Iandafræði við HI árið 1972 og MA-prófi í byggða- og skipulagsfræði frá Sussex- háskólanum í Englandi árið 1973. Ólafur hóf störf sem ráð- gjafi hjá Hagvangi hf. sama ár og var framkvæmdastjóri fyrirtækisins á árunum 1980-85. Frá 1988-1992 gegndi hann starfi framkvæmdasljóra Gallup á íslandi. Um þessar mundir er hann framkvæmda- stjóri landsmótsnefndar vegna 21. landsmóts ungmennafélag- anna. Eiginkona Olafs er Sig- rún Jakobsdóttir Richter og eiga þau þrjú börn. Laugarvatni er hve samþjöppuð hún er. Stutt er á'milli valla og íþróttahúsa þannig að hægt er að skjótast á milli þeirra á fáeinum mínútum." - Hvað er að segja af dag- skránni sjálfri? „Það var þrennt sem við lögðum sérstaka áherslu á við skipulagn- ingu landsmótsins. Það eru íþrótt- ir, fjölskyldan og um- hverfismál. Hér fer að sjálfsögðu fram keppni margra snjallra íþrótta- manna en við ætlum ekki síður að skemmta okkur á þessu móti. Fijálsar íþrótt- ir, sund, boltaíþróttir, júdó, glíma, skák og brids setja sterkan svip á hvert landsmót og eru meðal hefð- bundinna íþróttagreina. Einnig verður keppt í ýmsum óhefðbundn- um en skemmtilegum greinum s.s. línubeitingu, pönnukökubakstri og jurtagreiningu. Loks má nefna að gestir mótsins geta skráð sig í staf- setningarkeppni. Við vonumst til að landsmótið verði ein allsheijar Jfjölskyldu- skemmtun og þess vegna verður boðið upp á umfangsmikla fjöl- skyldudagskrá frá morgni til kvölds alla dagana. Haldið verður í skóg- arferðir, gestir geta skellt sér í lýðveldishlaupið eða Bláskógas- kokkið og boðið verður upp á leik- sýningar. Loks verður skipulega unnið að umhverfísvemd og landgræðslu á meðan á landsmótinu stendur. Landgræðslureitir verða opnaðir og öll sorp- og skolpmál verða leyst með umhverfissjónarmið að leiðar- ljósi. Við viljum með þessu leggja lið baráttu fyrir bættri umgengni við náttúruna og uppgræðslu landsins." Búist er við 10-15 þúsund gestum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.