Morgunblaðið - 02.07.1994, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 17
Reuter
Reuter
Roman Herzog.
Nýr Þýskalandsforseti
Vill meiri
áherslu
Kabúl
í rústum
STRÍÐINU í Afganistan lauk
ekki með brottför Sovétmanna,
heldur harðnaði það ef eitthvað
er. Stendur það nú milli Afgana
sjálfra, fylgismanna forsetans,
Burhanuddins Rabbanis, og for-
sætisráðherrans, Gulbuddins
Hekmatyars, og talið er, að um
12.000 manns hafi látið lífið og
enn fleiri særst og örkumlast síð-
an stjórn kommúnista hrök-
klaðist frá 1992. í gær gerðu
herflugvélar forsetans árásir á
bæ á valdi Hekmatyars, sem aft-
ur svaraði með eldflaugaárás á
höfuðborgina, Kabúl. Myndin er
frá Bala Hissar-virkinu í Kabúl
eftir að sveitir forsetans náðu
þvi frá andstæðingunum en Kab-
úlborg sjálf er nú víða aðeins
rústir einar.
a
jarðarást
Berlín. Reuter.
ROMAN Herzog tók við af Richard
von Weizsácker sem forseti Þýska-
lands í gær og er hann sjöundi for-
seti landsins eftir stríð. Við athöfn-
ina, sem fór fram í Ríkisþinghúsinu
í Berlín, sagði Herzog, að Þjóðveij-
ar væru nú sáttari við sjálfa sig en
áður og þyrftu ekki lengur að fara
í felur með ættjarðarást sína.
Herzog sagði, að ekki væri hægt
að draga Þjóðveija, sem fæddir
væru eftir stríð, til ábyrgðar á glæp-
um nasista en lagði áherslu á, að
hann væri ekki neinn öfgafullur
endurskoðunarsinni hvað varðaði
þýska sögu. „Beethoven breytir
engu um Hitler, við getum ekki
jafnað Hitler til Stalíns eða Dresden
til Coventrys. Sögulegar samlíking-
ar geta ekki falið hryllinginn í Ausc-
hwitz,“ sagði Herzog en bætti við,
að því lengra sem liði frá síðari
heimsstyijöld, því fánýtari yrði leit-
in að sekum einstaklingum.
Herzog kom inn á mörg sömu
málin og Weizsácker í kveðjuræðu
sinni, fordæmdi árásir nýnasista á
útlendinga og hvatti þingið til að
skera úr um ríkisborgararétt þeirra,
en ræðustíllinn var ólíkur hjá þeim.
Herzog beinskeyttur og berorðurr
en Weizsácker allt að því ljóðrænn
í mælsku sinni.
Hcímílí
að heíman í
Kaupmannahöfn
Vandaðar,
ferðamannaíbúðir
miðsvæðis í
§
sí
s
£
Kaupmannahöfn
Verð a mann frá dkr
143-
ádag.
Allar íbúðirnar eru með
eldhúsi oq baði.
Hafðu samband við
ferðaskrifstofuna þina eða
ðfi/i STraoc/ ' íca/u//n<w/a \
Simi (9045) 33 12 33 30
Fax.(9045) 33 12 31 03
*Verð á mann míðað við 4 f (búð f viku
Mikill fögnuður við komu Yassers Arafats til Gaza
„Gleðidagur fyrir alla“
Gaza. Reuter.
Reuter
HANAN Ashrawy, fyrrverandi talsmaður Palestínumanna, fagn-
ar Arafat við komuna til Kairó í gær. Þaðan lagði hann upp í
sína sögulegu ferð til Gaza.
YASSER Arafat var lítt þekktur
skæruliðaforingi þegar Israelar
lögðu undir sig Gaza og Vestur-
bakkann árið 1967 en þegar hann
sneri aftur heim í gær þurfti ekki
lengur að kynna hann fyrir heims-
byggðinni. Tugþusundir manna
fögnuðu honum við komuna til
Gaza en það fyrsta, sem hann
gerði var að kyssa jörðina og biðj-
ast fyrir.
Reimastjórnarsvæði Palestínu-
manna, Gaza og Jeríkó, er miklu
minna í ferkm en þeir kröfðust en
þó kannski meira í öðrum skilningi
en þeir bjuggust við fyrir aðeins
skömmu síðan. Það var fyrst og
fremst Arafat, sem hélt hreyfingu
Palestínumanna gangandi þrátt
fyrir alla ósigrana, vonbrigðin og
margvísleg mistök, sem honum
urðu á, og hann lagði að lokum
allt undir þegar hann undirritaði
sjálfstjórnarsamkomulagið við
ísraela í Washington 13. septem-
ber sl.
Óánægðir Palestínumenn litu á
samkomulagið sem uppgjöf en
móttökurnar sem Arafat fékk í
gær hjá milljón íbúum Gaza-svæð-
isins sögðu honum annað. „Ég er
himinlifandi," sagði Khader Sam-
ara, tvítugur Palestínumaður og
einn gagnrýnenda Arafats. „Þetta
er mikill gleðidagur fyrir alla hvort
sem þeir eru sáttir við samkomu-
lagið eða ekki.“
Kvæntur kristinni konu
Arafat fæddist í Kairó 4. ágúst
1929 en foreldrar hans voru frá
Jerúsalem. Er kona hans Suha
Tawil, palestínskur fræðimaður en
kristinnar trúar. Arafat tók þátt í
stríði araba og gyðinga 1948 en
síðar nam hann verkfræði í Kairó
og rak verkfræðifyrirtæki í Kú-
veit. Þar stofnaði hann ásamt fleiri
fyrsta Fatah-hópinn um 1960 en
skæruliðahernaðurinn gegn ísrael-
um hófst 1965. 1969 varð hann
formaður PLO, Frelsissamtaka
Palestínumanna.
Andstæðingar Arafats meðal
Palestínumanna hafa margsinnis
reynt að ráða hann af dögum og
PLO hafa ekki alltaf átt upp á
pallborðið í arabaríkjunum. 1971
voru þau rekin frá Jórdaníu og
komu sér þá fyrir í Líbanon þar
til ísraelar ráku þau þaðan 1982.
Bjuggust þá margir við, að dagar
samtakanna væru liðnir en upp-
reisn Palestínumanna á hemumdu
svæðunum 1987 blés í þau nýju lífi.
Arafat riefndi fyrst 1988 sér-
stakt ríki Palestínumanna í sátt
við ísraela en það var ekki fyrr
en að afloknu Persaflóastríðinu
1991 að Bandaríkjastjórn gekkst
fýrir friðarráðstefnu í Madrid. Op-
inberlega gekk hvorki né rak en á
síðasta ári settust fulltrúar Palest-
ínumanna og ísraela að leynilegum
samningum í Noregi og lögðu þar
grunninn að heimkomu Arafats.
BEINT í MARK
með McDonald’s
WMÉéam'
Alþjóðlegur styrktaraðili
HM1994USA
í tilefni af heimsmeistarakeppninni
í knattspyrnu förum við í leik og
skorum Hat Trick - McÞrennu í
leiðinni.
Kauptu þér góðan mat og fáðu getraunaseðil
með 3 léttum spurningum. A hveijum degi
verður dregið úr réttum lausnum og 30
heppnir fá minjagripsbolta McDonald’s um
heimsmeistarakeppnina í verðlaun. A
HVERJUM DEGI: 30 verðlaun. Möguleikarnir
að ÞU vinnir eru MIKLIR! Komdu og skoraðu
vinningsmarkið.
Þetta er
Hat Trick - McÞrenna
Hat Trick — McÞrenna er nýr
hamborgari, sem verður á boðstólunum
á meðan heimsmeistarakeppnin
stendur yfir. Hann er svipaður hinum
vinsæla McOstborgara, en er með
ÞREMUR kjöt- og TVEIMUR
ostsneiðum. Passlega stór fyrir sælkera
og ljúffengur að hætti McDonald’s.
LYST
m
Leyfishafi McDonald's
íslenskt fyrirtaki
íslenskar landbúnaðarafurðir
Velkomin í fótboltaleikinn
og njótið spennandi rétta
hjá McDonald’s.
(Að auki fá börnin fótboltamyndfrá
Upper Deckfrítt meÖ matnum, ásamt
bíöðru eða fána og svo auðvitað hatt.)
AA
McDonalds
ALLTAF GOÐUR MATUR
ALLTAF GÓÐ KAUP
SUÐURLANDSBRAUT 56