Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 23

Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 23 ' HESTAMANNA Á GADDSTAÐAFLÖTUM VIÐ HELLU •fendur í brekkunni á aðalvellinum fylgjast með góðum spretti. Hvað segja mótsgestir? Árni Mathiesen Aðstæður mjög góðar ÁRNI Mathiesen alþingismaður og dýralæknir er að fylgjast með sínu fimmta Landsmóti og sagði að sér litist mjög vel á mótið á Gaddstaðaflötum núna. „Aðstæð- urnar eru mjög.góðar, margir og góðir vellir og gott að geta fylgst með á fleirum en einum velli nán- ast í einu, þar sem stutt er á milli. Það er mjög gott að komast hérna að og um allt. Hestaúrvalið er orðið mjög mikið, mikil breidd og miklu meira af góðum hross- um heldur en hefur verið. Það er auk þess sérstaklega ánægju- legt að sjá hve vel er hugsað um erlenda gesti hér á svæðinu, og þeir eru augljóslega mjög hrifnir af öllum aðstæðum," sagði Árni. „Mótssvæðin hér og á Vinheima- melum í Skagafirði bera af gagn- vart öðrum mótssvæðum. Það er dýrt að koma upp svona góðum svæðum og við höfum auðvitað ekki efni á því að vera með svona stór og góð svæði út um allt land. Eins og staðan er í dag verða Landsmótin haldin héma og á Vindheimamelum, en auðvitað væri gaman að geta haldið Lands- mót á fleiri stöðum," sagði Ámi. Otto Beckström Ahuginn eykst stöðugt „VIÐ VORUM á mótinu fyrir fjórum árum á Vindheimamelum og erum komin aftur núna. Þetta er eins og að vera múslimi og fara til Mekka,“ sagði Otto Beckström frá Svíþjóð, en hann er á Landsmótinu ásamt konu sinni Barbro Beckström. „Við eigum um fjörtíu íslenska hesta í Svíþjóð og komum hingað í febrúar ár hvert til að stækka hópinn. Hér á Landsmótinu er hægt að sjá öll nýju og efnilegu hrossin og gæðing- ana og keppnin er líka mjög skemmtileg,“ sagði Otto. „Það var konan mín sem fyrst fékk áhuga fyrir íslenskum hestum. Þegar ég kynntist þeim fyrst fannst mér stærsti kosturinn hve stutt er í jörðina þegar maður situr á baki,“ sagði Otto og hló við. Aðspurður sagði Otto að þau ætluðu ekki að kaupa hesta núna, en það væri aldrei að vita hvað gerðist. Hann sagði að áhuginn fyr- ir íslenskum hestum væri alltaf að aukast í Svíþjóð. „Við byrjuðum fyrir tíu árum, skömmu eftir það voru um þúsund íslensk hross í Svíþjóð, en nú eru þau fimm til sex þúsund," sagði Otto Beckström. Helgi Eggertsson Veitingarnar á góðu verði „MÉR LÍST bara vel á mótið. Svæðið er nyög gott, kynbóta- hrossin hafa líklega aldrei verið betri og aldrei eins mörg og þau eru núna. Gæðingamar era svona allt í lagi, B-flokkurinn er góður og A-flokkurinn svona sleppur,“ sagði Helgi Eggertsson tamn- ingamaður frá Kjarri í Ölfusi og keppandi á Landsmótinu, en hann keppir nú á sínu fjórða lands- móti, er með tvær hryssur í kyn- bótasýningunni og tvo graðhesta. í Helgi sat í brekkunni við Brekku- ] völl og fylgdist með forkeppni í A-flokki gæðinga ásamt Sigur- birni Viktorssyni og Sigurfinni Garðarssyni, sem hann titlaði sem núverandi og fyrrverandi að- stoðartamningastjóra á Kjarri. „Það er eitt sem þarf að minn- ast sérstaklega á, sem er óvenju- legt á hestamannamóti, að hér eru seldar afbragðs veitingar á góðu verði. Það er í fyrsta skiptfy á stóru hestamannamóti sem ég ~ hef lent í því að fá bæði vel og gott að éta á góðu verði. Það hefur brunnið við í gegnum tíðina að þetta hafi ekki verið í lagi,“ sagði Helgi Eggertsson. Svíþjóð segja að Landsmótið sé ka sé fyrir múslimum. FRIÐJÓN Guðröðarson sýslumaður í Rangárþingi og Sveinn Sigfinns- son, til hægri, fá sér í nefið, en á milli þeirra situr Iðunn Gísladóttir. Morgunblaðið/Golli tt og er búist við að um átta þúsund manns verði á svæðinu um helgina. Marko Mazenland Allt snýst um Landsmótið „ÉG ER ánægður með fjölda þátttak- enda í heimsbikarmótinu og allar aðstæður á mótsstaðnum. Það eru mikil viðbrigði að koma hingað, eftir að hafa vanist fremur litlum völlum í Evrópu, með einum keppnisvelli og litlu æfingasvæði. Ég hef farið á mörg mót og kynnst alls kyns erfið- leikum sem upp geta komið í kringum svona mót. Þessar aðstæður hér gera mönnum mun betur kleift að mæta öllum þeim vandamálum og það er í raun afslappandi að bera ábyrgð á móti á svona stað,“ sagði Marko Mazenland frá Hollandi, fram- kvæmdastjóri heimsbikarmóta FEIF, sem er alþjóðlegt samband eigenda íslenskra hesta. Heimsbikarmótið fer fram sam- hliða Landsmótinu, en það er í fyrsta skipti sem slíkt mót er haldið hér á landi. Mazenland sagðist vera af- skaplega ánægður með bæði mótin. „Fyrir íslenska hestaeigendur í Evr- ópu og Bandaríkjunum er Landsmót- ið það sem allt snýst um. Menn skipu- leggja frí með það í huga að fara fjórða hvert ár til íslands, á Lands- mót,“ sagði Marko Mazenland. Friðjón Guðröðarson Brögð og leikir draga fólkið að „ÁHORFENDUR eru núna ekki alveg eins margir og ég bjóst við, en ætli kúfurinn komi ekki um helgina. Þá byrja brögð og leikir eins og sagt er, böllinn og þeir þættir sem höfða ekki bara til allra hörðustu hestamennskusjúklinga heldur líka áhugafólks og almenn- ings. Ég held að þetta geti orðið stórt mót og er að vona að svo verði,“ sagði Friðjón Guðröðarson sýslumaður í Rangárþingi, en hann sat ásamt fleirum í brekk- unni við aðalvöllinn á Gaddstaða- flötuin og fyldist með kynbóta- hrossum á fimmtudaginn. „Ég tel að skipulagningin á mótinu sé til sérstakrar fyrir- myndar og þetta er injög gott mótssvæði," sagði Friðjón. Að- spurður sagðist Friðjón hafa fylgst með mörgum landsmótum. „Ég er alinn upp við það austur í Norðfirði frá því að ég var barn að umgangast hesta og hefur þar af leiðandi alltaf haft áhuga fyrir þessu. Svo var ég í Hornafirði lengi og þar var hestamennska mjög almenn." Um hestana á landsmótinu nú sagði Friðjón að þeir væru stórglæsilegir. Anita Tallbom Hestamir eru hamingjusamir „VIÐ KOMUM gagngert til landsins til að fara á Landsmótið, en ætlum að skoða okkur um þegar mótinu lýkur," sagði Anita Tallbom frá Sví- þjóð, en hún er á mótinu ásamt vin- konu sinni Helene Bragsjö. Anita og Helene eiga sinn íslenska hestinn hvor í Sv.íþjóð, en sú fyrrnefnda sagði að þær ætluðu ekki að kaupa sérr~ hesta þetta árið, allir peningarnir hefðu farið í ferðalagið. Aðspurð sagðist Anita að áhugi hennar á hestum beindist eingöngu að þeim íslensku. „Ég byrjaði með „venjulega“ hesta fyrir um tíu árum, og það var gaman, en þegar ég kynntist íslenskum hestum fyrir sex árum síðan og féll algjörlega fyrir þeim. Það er einkum skapið í þeim sem er svo sérstakt. Þeir eru ham- ingjusamir og ákaflega viljugir og skemmtilegir hestar. Þessir „venju- legu“ hestar eru ekki svoleiðis." : Aðspurð hvers vegna Svíar kysu fremur að ferðast til íslands í sum- arfríinu á Landsmót hestamanna, í stað þess að fara til Bandaríkjanna þar sem knattspyrnulandslið þeirra er að gera góða hluti sagði Anita: „En heimskuleg spurning!“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.