Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 26
26 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Þjóðhátíð heyrnarlausra UM DAGINN varð Lýðveldið ísland fimmtugt. Þjóðin ósk- aði sjálfri sér til ham- ingju og flestir gerðu sér dagamun í tilefni þessa merka áfanga. Heyrnarlausir segja oft aó þeir geti allt nema heyrt, fötlun þeirra er ósýnileg. Því verða þeir oft útundan og gleymast þegar há- tíðahöíd eru skipulögð. í þetta sinn var þó ekki svo, heyrnarlausir gátu tekið þátt í lýð- veldisafmælinu, hátíð allrar þjóðarinnar. Táknmálstúlkun Heymarlausir líta á táknmál sem „móðurmál" sitt. Þeir heyra aldrei talaða íslensku og eiga því mjög erfitt með að læra hana. Heyrnar- Iausir eiga rétt á túlkun yfir á tákn- mál m.a. inni á sjúkrahúsum, í ^>dómskerfmu og í framhaldsskólum. Þó fellur sá réttur um sjálfan sig ef ekki er til staðar fólk sem getur túlkað. Ástandið lagaðist til muna •fyrir nokkrum árum, þegar á fót var komið Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, sem sér um túlkaþjónustu og mál- fræðilegar rannsóknir á íslenska táknmálinu. Nú í haust mun Sam- skiptamiðstöðin standa fyrir lang- þráðu námi í táknmálsfræðum við Háskóla íslands. Að því loknu mun ^nemendum verða boðið upp á nám í táknmálstúlkun, en það verður stórt stökk fram á við að táknmáls- túlkar hafi háskólamenntun á sínu sviði eins og þeir sem túlka á er- lend tungumál. Aukinn fjöldi túlka eykur líka möguleika heyrnar- lausra á framhalds- menntun. Tilvist túlk- anna gerir aðgang heyrnarlausra að ís- lenskri menningu auð- veldari, sem sást best á Þingvöllum 17. júní. Þjóðhátíðarnefnd pantaði að eigin frum- kvæði nokkra túlka til að túlka á lýðveldishá- tíðinni, en slíkt hefur hingað til verið harla óvenjulegt. Allar ræð- ur sem túlkunum höfðu borist fyrirfram voru túlkaðar, þar á meðal voru ræður for- seta íslands, forsætis- ráðherra og biskups Islands, hug- vekja í Almannagjá o.m.fl. Túlk- arnir voru að störfum uns hátíðinni var slitið og gekk túlkunin vel. Framtak þetta er nefndinni til mik- ils sóma og verður vonandi öðrum til fyrirmyndar. Textavarp Ríkissjónvarpið festi nýlega kaup á búnaði til textunar neðan- máls í textavarpi. Þannig er mögu- legt að fletta á blaðsíðu 888 í texta- varpinu og fylgjast með íslenskum texta við íslenskt efni, án þess að textinn trufli hinn almenna sjón- varpsáhorfanda. Forsendan fyrir því er að eiga sjónvarpstæki sem ræður við textavarpið. Búnaður þessi var vígður um áramótin síð- ustu og voru þá áramótaávörp for- seta Islands og forsætisráðherra textuð, ásamt áramótaskaupinu. Loksins gefst heyrnarlausum tæki- færi til að fylgjast með íslensku efni, því hingað til hefur aðeins erlent efni verið textað. Það er sorglegt að við höfum aðeins getað Anna Jóna Lárusdóttir horft á og skilið erlent efni í sjón- varpi, en á þjóðhátíð í ár var gam- an að vera Islendingur og ég var stolt af landinu mínu þegar Ríkis- sjónvarpið sjónvarpaði beint helstu atburðum á Þingvöllum. Starfs- menn textavarpsins lögðu á sig ómælda vinnu við að texta ræður og aðra umfjöllun í útsendingu sem tók heilan dag. Um kvöldið gafst okkur svo líka kostur á að sjá þátt- inn um Jón Sigurðsson með íslensk- um texta. í þetta sinn stóð Sjón- varpið vel að verki og á mikinn heiður skilinn fyrir að senda út efni fyrir alla þjóðina. Hitt er svo annað mál að okkur heyrnarlausum finnst alls ekki að þessi dýra íjár- festing, textunarbúnaðurinn, megi liggja og rykfalla milli stórhátíða, heyrnarlausir vilja jú geta horft á sjónvarpið alla 365 daga ársins. Það er áríðandi að fé fáist til að auka textunina, að heyrnarlausir fái aðgang að efni um íslenska Heyrnarlausum fínnst ekki, segir Anna Jóna Lárusdóttir, að dýr fjárfesting eins og text- unarbúnaður megi ryk- falla milli stórhátíða. menningu, íslensk stjórnmál, ís- lenskar fréttir og íþróttir. Sjón- varpinu ber skylda til þess sam- kvæmt lögum að ná til allra lands- manna. Eg sé það fyrir mér að rík- ið, sem setti þau lög, sjái til þess að heyrnarlausir og heymarskertir fái sjónvarpstæki með textavarpi niðurgreidd og að öll sjónvarpsdag- skráin verði textuð; lítið T standi við hvem lið dagskrárinnar, sem tákn um það að hann sé með ís- lenskum texta. Fyrir hönd heyrnar- lausra þakka ég að lokum þjóðhá- tíðamefnd og starfsfólki Ríkissjón- varpsins fyrir framtakið og óska þeim góðs gengis á sömu braut. Höfundur er formaður Félags heyrnarlausra. Siðleg kynhegðun ÞRIÐJUDAGINN 7. júní sl. birtist í Morg- unblaðinu grein eftir "* *Ásdísi Erlingsdóttur er hún nefndi „Siðskert k venréttind asamtök!". í greininni tæpir höf- undur á ýmsum málum s.s. kynfræðslu, fóstur- eyðingarlögum og samkynhneigð og veltir fyrir sér afstöðu kjör- inna fulltrúa þjóðarinn- ar (og þá sérstaklega þeirra kvenna sem kjömar eru til ábyrgð- ; arstarfa) til þessara mála. Það er ekki ætl- 'i un undirritaðs að ijalla um allt það sem Ásdís ræðir í grein _ ,'jinni, heldur einungis hluta hennar, þann hluta sem fjallar um samkyn- hneigð. Samkynhneigð er eðlileg í grein sinni segir Ásdís að kyn- hegðun homma og lesbía sé af- brigðileg. Það er vert í þessu sam- hengi að athuga hvað orðin kyn- hneigð og kynhegðun fela í sér. Kynhneigð einstaklings er tilfinn- ingalegt upplag hans og felur í sér hvert hann leitar með sínar innstu tilfinningar og nánasta samneyti við annað fólk, þar með talið kyn- **líf. Kynhegðun er hins vegar orð sem eingöngu lýsir því hvemig fólk stundar sitt kynlíf. Það eru stór orð að lýsa því að stór hópur fólks stundi afbrigðilega kynhegðun, bara vegna þess að til- finningalegt upplag þess er ekki það sama og meirihlutans. Þessi fullyrðing er aukinheldur röng vegna þess að kyn- hegðun samkyn- hneigðs einstaklings sem er trúr sínu innsta tilfinningalega eðli, byggist á heiðarleika gagnvart honum sjálf- um og gildi hans sem mannveru. Kynhegðun sem byggist á slíkum forsendum er ekki af- brigðileg. En hvað er afbrigði- leg kynhegðun? Við því er einfalt svar. Sam- kynhneigður maður sem hagar sér eins og hann væri gagnkyn- hneigður (eða gagn- kynhneigður maður sem hagar sér eins og hann væri samkynhneigður) í kynlífi hjúpar líf sitt blekkingu sem skapar afbrigðilegt hugarfar og innri spennu. Því miður er það svo að fordómar þjóðfélagsins hafa rek- ið homma og lesbíur inn í þennan skáp lyginnar undanfama áratugi. Nú eru viðhorf sem betur fer að breytast og engin ástæða fyrir sam- kynhneigða einstaklinga, konur jafnt sem karla, að leika þennan hættulega sjálfseyðandi feluleik. Siðferði Hver einstaklingur ber ábyrgð á eigin tilfinningum og athöfnum, þar með talið kynlífi. Þjóðfélagið ber ábyrgð á því að það umhverfi sé fyrir hendi að einstaklingurinn geti axlað þessa ábyrgð án truflana. I þjóðfélagi þar sem kynhegðun og kynlíf er sveipað þögn og hindur- vitnum myndast ekki eðlilegar for- sendur fyrir einstaklinginn til að Það er afsiðað þjóðfélag sem mismunar þegnum sínum á grundvelli litar- háttar, trúarbragða, kynferðis eða kyn- hneigðar segir Haukur F. Hannesson. I siðuðu þjóðfélagi gera menn sér grein fyrir fjölbreyti- leika mannlegs eðlis og þeirri orku sem í hverj- um einstaklingi býr. axla ábyrð á þessum hluta tilveru sinnar. Þannig má segja að slíkt hindurvitnaþjóðfélag búi við lélegt siðferði. Þetta á sérstaklega við nú á tímum alnæmis. Það hefur komið glögglega í ljós á síðustu ámm að hommar hafa tekið ábyrgðarfulla afstöðu til eigin kynhegðunar, sem sést meðal annars á því að nýgengi HlV-smits meðal homma er í rén- un. Það er hins vegar umhugsunar- vert að gagnkynhneigðir hafa ekki tekið eins ábyrgðarfulla afstöðu og óttast smitsjúkdómalæknar að í uppsiglingu sé nýr faraldur HIV- smits meðal gagnkynhneigðra, en ýmis einkenni virðast benda til líkr- ar þróunar í þeim hópi nú, eins og fram kom í hópi homma fyrir rúm- um áratug. Haukur F. Hannesson KÓRINN syngur í Meþódistakirkjunni. Söngþrestir sem sendiherrar! STUNDUM fara um bijóst þitt slíkar ómbylgjur gleði og stolts, að þú færð ekki hamið barka þinn eða hrifnitár. Svo fór mér æði oft á för minni með Kór Langholtskirkju til Englands fyrstu daga júnímánaðar. Eg var staddur í sumarskrúði dásam- legs lands, en inní það mitt var kór- inn kominn með sitt, — tónskrúð þrotlausrar vinnu og þjálfunar, ekki aðeins nokkurra mánuða, heldur fjölda ára, og stjórnandinn, Jón Stef- ánsson, lék á þetta hljóðfæri sitt af slíkri snilld, að þeir er á hlýddu urðu allir að eyrum, — tjáðu undrun sína og þökk svo æði oft varð að ljúka tónleikum með þjóðsöngnum, svo fólk skildi, að kórfélagar þyrftu að ná háttum. Mér eru í eyrum orð borgarstjóra- frúarinnar í Exeter er sagði: „Stund- in í kirkjunni á þessum tónleikum er mér eftirminnilegust stunda árs- ins.“ Kona ein í Moorlynch spurði mig, hvort eg teldi ekki að barkar íslendinga væru öðruvísi en barkar annarra þjóða, raddirnar væru svo silfurtærar að minnti á flug fugls er leikur sér við sólstaf himins, en líka svo flauelsmjúkar að þær bergmála Samkynhneigðir og börn Langflestir hommar og lesbíur hafa alist upp í gagnkynhneigðu fjölskyldumynstri. Engu að síður eru þau samkynhneigð. Það er orð- in viðurkennd skoðun að kynhneigð foreldra hefur lítið að segja um kynhneigð bama og nákvæmlega ekkert um hæfni þeirra til að ann- ast barnauppeldi. í rannsóknum sem gerðar hafa verið á bömum sem alist hafa upp hjá gagnkyn- hneigðum foreldmm annars vegar og í samkynhneigðu fjölskyldu- mynstri hins vegar kom ekki fram neinn marktækur munur á þessum tveimur hópum, hvað varðar and- legt og líkamlegt atgervi og aðbún- að í uppeldi. Þó virtust þau börn sem höfðu alist upp hjá hommum eða lesbíum koma betur út ef eitt- hvað var. Samkynhneigður ein- staklingur sem er í góðu innra jafn- vægi er alveg jafn hæfur uppalandi og gagnkynhneigður einstaklingur í góðu innra jafvægi. Hæfni fólks á þessu sviði hefur ekkert með kyn- hneigð að gera. Afsiðun Það er afsiðað þjóðfélag sem mismunar þegnum sínum á grund- velli litarháttar, trúarbragða, kyn- ferðis eða kynhneigðar. í siðuðu þjóðfélagi gera menn sér grein fyr- ir gölbreytileika mannlegs eðlis og þeirri orku sem í hveijum einstak- lingi býr. í siðuðu þjóðfélagi er ein- staklingnum gefið tækifæri og stuðningur (t.d. með lagasetning- um) til þess að rækta sérkenni sín og leggja til þjóðfélagsins sitt sér- staka og einstaka framlag sem byggist á gildi sérstöðunnar. Þann- ig getur þjóðfélagið endurspeglað mannlegt litróf í sínum víðasta skilningi og orðið vettvangur heil- brigðra mannlegra samskipta og athafna. Höfundur er tónlistarmaður. drunur öldu hafsins. Eg átti ekkert svar, en mér fannst hlýtt og gott að vera til á þessari stundu. Það þótti mér líka, er eg sá þar kórfélaga drúpa höfði við birkihríslu norðan úr Eyjafirði, sem gróðursett hafði verið við kórgafl kirkjunnar til minn- ingar um Jón Karlsson, félaga þeirra, sem féll 22. apríl 1992 við boðun „friðmáls kærleikans" á stríðsvelli. Stolt svall í bijósti, er ekkja hans, Jenny Hayward, bauð til góðgerða, þar sem borð svignuðu undan gest- risni að íslenzkum sið. íslenzkar tónperlur voru fluttar af Kór Lang- holtskirkju í Bretlands- ferð, segir Sigurður Haukur Guðjónsson í lýsingu sinni á söng- ferðinni. Þau eru mér líka helg í minning- unni tárin og ekkasogin er eg heyrði í dönsku kirkjunni við Regents Park, þar sem sendiherrann, Helgi Ágústs- son, séra Jón A. Baldvinsson og Kór Langholtskirkju buðu til lofgjörðar í tilefni 50 ára afmælis lýðveldis á íslandi. Ógleymanleg stund. Þær eru það líka margar aðrar úr þessari för, þar sem íslenzk tónhefð og tón- perlur voru fluttar og skýrðar ásamt kunnuglegri verkum fyrir eyru áheyrenda á erlendri grund, ýmist af kórnum öllum, karlakór, kvartett eða einsöngvurum í helgidómum, þar sem fólk var ekki hrætt við að hreyfa til ölturu eða skelfdust að skaparinn yrði hræddur við að heyra í fagnandi gestum í kirkju. Nei, list og fögnuð- ur hreinlega stigu dans í helgidómun- um, svo þeir lifnuðu allir við. Þó voru þetta allt forréttir að stundinni stóru í Barbican Centre, þar sem Kór Langholtskirkju flutti ásamt einsöngvurum og The English Chamber Orchestra, undir stjórn Jóns, lofgjörð J.S. Bachs, H-moll messuna. Það verður öllum, er á hlýddu, ógleymanleg stund. List- fræðingar gripu til hástemmdra orða, gleðitár runnu um vanga og fylgi- fiskar gengu um sali eins og montn- ustu hanar. Fagnaðarstundin hjá sendiherra á eftir, þar sem hjónin tóku á móti kór sóknarkirkjunnar sinnar gömlu, gleði þeirra, — ræður og „Æ, leyfið okkur að syngja með ykkur enn eitt lag“, sýndu að orð forseta Islands, frú Vigdísar Finn- bogadóttur, er stóðu í efnisskrá kórs- ins „Eg er stolt af hinu syngjandi listafólki sem sendiherrum þjóðar okkar og erfðar úr norðrinu" voru ekki aðeins kurteisishjal á blaði. Nei, frá hjarta mælt og vita mátt þú þjóð mín öll, hvílíkar perlur þú átt í þessum kór. Fögnuð minn yfir að hafa kynnst þessu ævintýri vildi eg tjá þér um leið og eg færi þökk til þín, Jón minn, já, kórfélaganna allra. Stjórnandinn; einsöngvarar; undir- leikari; formaður; kynnir og þið öll hin fóruð á hreinum kostum einu sinni enn. Höfundur er prestur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.