Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 02.07.1994, Qupperneq 30
.30 LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR GUÐFINNUR SIGURJÓNSSON + Guðfinnur Sig- urjónsson var fæddur á Ólafsfirði 26. september 1929. Hann lést á Land- spítalanum 23. maí siðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Siguijón Jónsson, ættaður frá Ólafsfirði, og Maria Kristjáns- dóttir frá Reykjad- al í Vestmannaeyj- um. Þau hófu bú- skap á Ólafsfirði, en fluttu til Vest- mannaeyja í kringum árið 1935. Guðfinnur átti tvo yngri bræð- ur, Kristján, f. 1931, hann lést árið 1983, og Jón Armann neta- gerðarmeistara, f. 1940. Guð- finnur kvæntist eftirlifandi eig- inkonu sinni, Helgu Bachmann, árið 1950 og eignuðust þau þijú börn. Elstur er Þorkell Sævar, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði Þórshafnar og ná- grennis, f. 1950. Hann er bú- settur á Þórshöfn, kvæntur Eddu Snorradóttur og eiga þau tvo syni, Snorra Hafstein, f. 1971 og Guðfinn Helga, f. 1978. Næst er Guðbjörg Antonía, f. 1958, búsett í Vestmannaeyjum. Hún er gift Magna Jóhannssyni skipstjóra og eiga þau þrjá syni, Jóhann Magna, f. 1983, Guðfínn Sævald, f. 1985, og Anton Jarl, f. 1991. Yngstur barna Guð- finns og Helgu er Siguijón Órn, skrifstofusljóri hjá Birgðastofnun varn- ariiðsins á Keflavík- urflugvelli, f. 1961, og er hann búsettur í Keflavík. Hann er kvæntur Kristínu Birgisdóttur og eiga þau þijú börn, Sævar Órn, f. 1982, Hafþór Ægi, f. 1986, og Helgu Dagnýju, f. 1988. Guðfinnur bjó með fjölskyldu sinni í Vestmannaeyjum til ársins 1973. Er eld- gos braust út þar, fluttust þau búferlum til Kefla- víkur og bjuggu þar til ársins 1984 er þau hjón fluttu til Reykjavíkur. Útför Guðfínns fór fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 28. maí síð- astliðinn. „ÞEGAR þú ert sorgmæddur, skoð- aðu aftur huga þinn og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín.“ (Úr Spámanninum, e. K. Gibran.) Elskulegur pabbi minn er dáinn, farinn úr þessari jarðvist aðeins 64 ára gamall. Hann sem var mér svo mikils virði og sonum mínum svo yndisiegur afi og reyndar eini afínn sem þeir þekktu. Það er svo sárt að kveðja þann sem á svo stóran stað í hjarta manns og þurfa að sætta sig við að fá ekki að hafa hann lengur hjá sér og meðal okkar. Eg gekk með yngsta son minn, Anton Jarl, þegar t Ástkær sonur okkar, STEINDÓR KÁRI GUNNARSSON, lést 14. júní síðastliðinn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir okkar hönd, systkina og annarra vandamanna, Guðríður Steindórsdóttir, Gunnar Þorvaldsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, BJÖRGVIN GUÐMUNDSSON bifreiðastjóri, Drápuhlíð 5, andaðist þriðjudaginn 21. júní. Útförin hefur farið fram. Kristín Jónsdóttir, Jón Björgvinsson, Greta Björgvinsdóttir Petersen. t Ástkær eiginmaður minn og faðir, HLYNUR ÞÓR HINRIKSSON kennari, Kríuhólum 2, sem iést á heimili sínu þann 23. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju mánudaginn 4. júlí kl. 13.30. Valgerður Anna Sigurðardóttir, Sigurður Þór Hlynsson og vandamenn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samíð og vináttu við andlát og útför ÞORGILSAR BJARNASONAR, Fagurhóli, Strandvegi 55, Vestmannaeyjum. Fyrir hönd aðstandenda, Björgvin Jónsson. pabbi, sem alltaf var svo hraustur, fékk þær hörmulegu fréttir að vera kominn með krabbamein, en síðan eru rúm þrjú ár og þó hann þyrfti að gangast undir uppskurði og vera á sjúkrahúsi stóð hann sig svo vel þess á milli og leit svo vel út að maður fór að vona og trúa að allt væri orðið gott og læknunum hefði tekist að komast fyrir meinið. En áfallið kom, heilsan gaf sig og að lokum sá maður að hverju stefndi og sorgin greip um sig. Alveg frá því að ég man eftir mér hefur pabbi minn verið mér svo nær. Við áttum eitthvað svo vel saman, hann var alltaf svo léttur, svo skemmtilegur í umgengni og bara svo lifandi. Enda þótt ég hafí búið í Vestmannaeyjum síðastliðin átta ár, hefur okkar góða samband ekki minnkað neitt. Mamma og pabbi hafa verið svo dugleg að koma í heimsókn og aldrei hefur liðið meira en dagur, að ekki hafí verið haft samband. Þar sem mað- urinn minn er sjómaður og lítið heima hefur pabbi gert flest þau karlmannsverk sem þurfti að gera á mínu heimili í gegnum árin og alltaf hafa mamma og hann verið boðin og búin til að koma og rétta okkur hjálparhönd, hvort sem það var að mála eitthvert herbergið, mála grindverkið eða bara til að hitta mig og drengina í oft löngum fjarverum eiginmanns míns á sjón- um. Enginn hefur verið mér betri og enginn hefur rétt mér meira en pabbi minn og mun ég aldrei geta launað það nógsamlega. Þegar ég fullorðin manneskja skil ekki hví fólk er hrifið burt á besta aldri, hvernig get ég þá ætl- ast til þess að börnin mín skilji það, eða eins og elsti sonur minn sagði þegar hann frétti að afi hans væri dáinn: „Mamma, nú hefur Guð svo sannarlega gert einhver mistök, afi, sem alltaf var svo góður og skemmtilegur og hann reykti ekki einu sinni. Því tekur Guð ekki þá sem eru vondir?“ Ég svaraði að það væri margt í þessu lífí sem erfítt væri að skilja og sætta sig við. En minningamar deyja ekki og allar þær yndislegu minningar sem ég á um pabba minn gætu fyllt margar bækur og þær mun ég geyma vel í hjarta mínu og vonandi reynist ég bömunum mínum eins gott for- eldri og hann reyndist mér og að ég geti kennt þeim það sem hann kenndi mér. Ég bið um styrk til handa elsku mömmu minni sem stóð svo sterk við hliðina á pabba í veikindum hans og lífinu í heild, því sorg hennar er sár og missirinn mikill eftir fjörutíu og fímm ára hjónaband. Ég, Magni og strákarnir munum aldrei gleyma þeirri umhyggju, hlýju og ást sem pabbi minn gaf okkur og við munum minnast hans sem besta pabba, tengdapabba og afa sem nokkur getur átt. Elsku pabbi minn, við söknum þín svo mikið og mín kveðjuorð til þín eru textinn úr laginu „Pabbi minn“, því mér verður ætíð hugsað til þín þeg- ar ég heyri þetta lag: Ó, pabbi minn, hve undursamieg ást þín var, ó, pabbi minn, þú ávallt tókst mitt svar. Aldrei var neinn svo ástúðlegur eins og þú, ó, pabbi minn, þú ætíð skildir allt. Liðin er tíð, er leiddir þú mig lítið bam, brosandi blítt þú breyttir sorg í gleði. Ó, pabbi minn, ég dáði þína léttu lund, leikandi létt þú lékst þér á þinn hátt. Ó, pabbi minn, hve undursamleg ást þín var, æskunnar ómar ylja mér í dag. (Þorsteinn Sveinsson.) Guð gefí þér góða nótt, elsku pabbi. Þin einkadóttir. ÓSKAR JÓHANNESSON + Óskar Jóhann- esson fæddist á Svínhóli i Dalasýslu 30. desember 1921. Hann lést á heimili sínu í Kópavogi 17. júní siðastliðinn. Foreldrar hans voru Jóhannes Ólafsson, bóndi og kennari, frá Stóra- Skógi og Halldóra Helgadóttir, fædd á Stóra-Fjalli í Mýra- sýslu. Óskar var næstyngstur átta barna þeirra er upp komust en þau voru: Guðný, f.1907, Ólafur, f.1912, Guð- björg, f.1913, Helgi, f.1915, Jón, f.1917, Ragnheiður, f.1919, Óskar, f.1921, og Kristín, f.1927. Guðný, Guðbjörg og Óskar eru nú látin. ðskar kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Ragnheiði Guðmunds- dóttur, 26. júní 1951. Hún er fædd á Seyðisfírði 11. ágúst 1932. Þau eignuðust sex börn, en þau eru: Guðmundur Ómar, f.1952, kennari og organisti, kvæntur Rósu Maríu Guð- mundsdóttur hjúkrunarfræð- ingi, Heimir Már, f. 1954, verkamaður, kvæntur Önnu Adelu Óskarsson, Auðbjörg Vordís, f. 1958, húsmóðir, sam- býlismaður Hans G. Magnús- son, rennismiður, Jóhannes Halldór, f. 1963, bóndi á Svín- hóli, Ólafur, f. 1966, bóndi, og Alvar, f. 1969, námsmaður. Barnabörnin eru nú átta tals- ins. Óskar var bóndi á fæð- ingarjörð sinni Svínhóli drýgst- an hluta starfsævi sinnar. Arið 1984 lét hann af bú- skap og bjó eftir það á Alfhólsvegi 109 í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Kvenna- brekkukirkju í dag. SÖKNUÐUR okkar er mikill þegar við minn- umst elskulegs föður, en þó er þakklæti efst í huganum fyrir hans föðurlegu og hljóðlátu umhyggju sem hann lét okkur bömum sín- um í té, og síðan bamabömunum allt til síðustu stundar. Pabbi var mikill fjölskyldumaður og bar hag sinna nánustu mjög fyrir bijósti. Hann kunni vel að gleðjast í vinahópi, var spaugsamur að eðlisfari og sló gjarnan á létta strengi til að skapa gott andrúms- loft í kringum sig. Þó var hann mjög dulur og bar ekki tilfinningar sínar á torg, en einmitt fyrir þær sakir var hann kannski oft misskil- inn af þeim sem þekktu hann ekki náið, en það gerðu í raun mjög fá- ir. Viðurkenningum og athygli frá almenningi leitaði hann heldur ekki eftir. Heimur hans var heimilið, fjöl- skyldan og jörðin hans, þar sem hann átti sínar rætur, sem aldrei slitnuðu. Hann var bóndi af lífi og sál og á Svínhóli vann hann sitt ævistarf. í uppvexti okkar sáum við hann sjaldan iðjulausan og hann kenndi okkur líka að vinna. Við vorum ekki há í loftinu þegar okkur voru falin einhver skyldustörf og að allir ættu að hjálpast að. Hann var mjög laginn við að byggja upp áhuga á því, sem við vorum að gera. Það er örugglega hollt veganesti út í lífið. Hann var ekki strangur uppal- andi, en honum fórst vel úr hendi að kenna okkur að bera vissa ábyrgð. Aldrei hefði hvarflað að okkur að gefast upp við eitthvert verk eða að neita að gera eitthvað, sem hann bað okkur um. Þótt hann hrósaði okkur sjaldan upphátt eða verðlaunaði þá fundum við vel þeg- ar hann var ánægður og þakklátur. Pabbi var einlægur trúmaður og miðlaði trú sinni til okkar systkin- anna. Hann kenndi okkur bænir og vers, sem við lásum áður en við sofnuðum á kvöldin. Vissan um að englarnir sætu við rúmið alla nótt- ina kom svo vel í ljós, þegar eitt okkar var að reyna að bijóta saman fötin þegar allir voru háttaðir, og raða þeim á rúmstokkinn sinn til þess að gera þægilegra sæti fyrir englana. Óll minnumst við jólanna heima á Svínhóli með hlýju. Foreldrum okkar tókst alltaf að gera þau gleði- leg og eftirminnileg. Eftir að við uxum úr grasi höfum við flest reynt að halda í þá jólasiði, sem pabba þóttu mikilvægir. Það er dýrmætt að eiga margar góðar minningar, sem styrkja okkur í söknuði. Það er sárt að missa föð- ur sinn, þótt við vissum öll að hveiju stefndi. Hann var búinn að vera mjög veikur, þó hann hefði fótavist að einhveiju marki fram á síðasta dag. Þar sem hann var alltaf harð- ur af sér og kvartaði aldrei þó hann væri þjáður, gerðum við okkur kannski ekki grein fyrir því, hvað tíminn var stuttur, sem við áttum eftir að hafa hann hjá okkur. Hann vildi vera heima í faðmi fjölskyld- unnar, og sem betur fer var hægt að uppfylla þá ósk. Pabbi gerði aldr- ei neinar kröfur, en var þakklátur fyrir þá hjúkrun og umönnun sem hægt var að veita honum. í því sambandi viljum við færa Heima- hlynningu Krabbameinsfélagsins sérstakar þakkir fyrir þá ómetan- legu hjálp og stuðning, sem honum og fjölskyldu okkar var veitt. Bestu stundirnar hans voru þeg- ar hann hafði fólkið sitt sem flest hjá sér. Það birti yfír svipnum, þeg- ar barnabörnin komu til hans, og við fundum svo vel hlýjuna og vænt- umþykjuna. Missir þeirra er því einnig mikill. Hann vissi sjálfur að hveiju stefndi, þó hann talaði ekki mikið um það. Það er okkur öllum huggun, að hann þurfti ekki að þjást mjög lengi, og að hann hélt reisn sinni til hinstu stundar. Elsku pabbi, þökk sér þér, þína stoð ég á mig reiddi. Ást þín vakti yfir mér, ár og sið þín hönd mig leiddi. Ómar, Heimir, Auðbjörg, Jóhannes, Ólafur og Alvar. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar end- urgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringl- unni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akur- eyri. Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi í númer 691181. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greinanna fari ekki yfír eina og hálfa örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 3600-4000 slög. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru birtar greinar um fólk sem er 70 ára og eldra. Hins vegar eru birtar afmæl- isfréttir ásamt mynd í Dagbók um fólk sem er 50 ára eða eldra. Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent- uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tví- verknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII-skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og Wordperfect einnig auðveld í úrvinnslu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.