Morgunblaðið - 02.07.1994, Side 33
i
MORGUNBLAÐIÐ
LAU GARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 33
J
I
I
1
I
I
I
<
FRÉTTIR
Yfir 100 þúsund gestir
í fjölskyldugarðinn
STARFSEMIN í Fjölskyldu- og
Húsdýragarðinum er komin á fullt
skrið og hafa nú þegar rúmlega
100 þúsund gestir heimsótt garð-
inn á þessu ári.
Hátíðir hafa verið haldnar í
garðinum sem tengjast á einn eða
annan hátt einhveijum tyllidögum.
Hefur verið fengið til liðs bæði
tónlistarfólk og annað fagfólk til
að koma skemmtun og fróðleik á
framfæri. Furðufjölskyldan fer um
Fjölskyldu- og Húsdýragarðinn,
skemmtir börnum og einnig brydd-
ar hún upp á ýmsum fróðleik og
gríni sem tengjast okkur öllum á
einn eða annan hátt.
Nýtt leiktæki hefur verið tekið
í notkun í Fjölskyldugarðinum sem
nefnist Köngulóarvefurinn og hef-
ur hann hlotið miklar vinsældir
hjá fólki á öllum aldri. Einnig er
nýtt á döfinni að bjóða börnum
annað slagið að föndra. Þau fá að
kríta á stéttir, mála myndir og
óskasteina og einnig er boðið upp
á andlitsmálun sem nýtur mikilla
vinsælda. Bætt hefur verið við
leiktækjum í sandkassann og verið
er að útbúa svæði með dúkkuhús-
um og öðrum leikhúsum fyrir
yngstu kynslóðina.
Stærri framkvæmdir eru einnig
í gangi og má þá helst nefna bygg-
ingu hreindýrahúss og greiðasölu.
Myndarlegu sölutjaldi hefur verið
komið upp í Húsdýragarðinum.
Hjá gestum er vinsælt að sitja
yfir kaffi og meðlæti á meðan
börnin una sér við að fylgjast með
dýrunum.
Nk. helgi verður venjubundin
sumardagskrá. Furðufjölskyldan
kemur í heimsókn og Reykjavíkur-
lestin verður einnig á ferðinni báða
dagana.
Fjölskyldu- og Húsdýragarður-
inn er opinn alla daga frá kl.
10-21.
WtÆKWÞAUGL YSINGAR
4
4
í
4
i
(
<
1
<
4
1
<
i
1
<
i
1
4
4
4
Stýrimaður
og yfirvélstjóri
óskast á togara sem fer til úthafsveiða.
Upplýsingar í síma 97-51329.
Frá
Grindavíkurskóla
Áhugasama kennara vantar að Grunnskólan-
um í Grindavík. Kennslugreinar: Sérkennsla,
myndmennt og almenn kennsla.
Upplýsingar veita skólastjóri í síma 92-68504
og aðstoðarskólastjóri í síma 92-68363.
Bandalag
háskólamanna
- BHMR
Lágmúla 7, 108 Reykjavík.
Óskum eftir starfsmönnum í eftirtalin störf:
1. Skrifstof ustjóri/fjármálastjóri
Skrifstofustjóri/fjármálastjóri (fullt starf) ann-
ast bókhald og fjárreiður bandalagsins, or-
lofssjóðs og starfsmenntunarsjóðs og sér
um daglegan rekstur skrifstofu bandalags-
ins. Starfið er laust nú þegar og æskilegt
að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Umsókn, merkt „skrifstofustjóri", með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf, skal
senda stjórn bandalagsins á skrifstofu okkar
eigi síðar en 7. júlí 1994.
2. Upplýsingafulltrúi
Upplýsingafulltrúi (75% starf) annast síma-
vörslu, almenna upplýsingagjöf og daglega
þjónustu við félagsmenn bandalagsins og
aðildarfélög. Viðkomandi þarf að geta hafið
störf 1. ágúst nk.
Umsókn, merkt „upplýsingafulltrúi", með
upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal
senda stjórn bandalagsins á skrifstofu okkar
eigi síðar en 7. júlí 1994.
Til sölu
Fullbúin, 4ra herb. 108 fm íbúð á 1. hæð í
fjölbýlishúsi í Kópavogi á aðeins kr. 5,5 millj.
Ahv. í hagstæðum langtímalánum 2,2 millj.
Ársalir - fasteignamiðlun
- sími 624333.
Einbýlishús við Mývatn
í Reykjahlíðarþorpi
Til sölu er einbýlishúsið að Birkihrauni 11.
Grunnflötur 174 fm, neðri hæð, 100 fm efri
hæð. Bílskúr 56 fm. Byggt 1982-’4. Eignin
telur: Á neðri hæð, 4 svefnherb., sjónv-
herb., stór stofa, eldhús, búr, 2 inngangar
og 2 snyrtingar. Efri hæð: Góð gistiaðstaða
fyrir ferðafólk, þ.e. 3 rúmg. herb. ásamt setu-
stofu og eldunaraðstöðu.
Tilboðum óskast skilað fyrir 15. júlí nk.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum.
Upplýsingar hjá Stefáni Þórhallssyni,
sími 96-44285, eftir kl. 16.00.
Útboð - málarameistarar
Tilboð óskast í utanhússmálningu og
sprunguviðgerðir á félagsheimilinu Aratungu
í Biskupstungum.
Verkinu skal lokið fyrir 15. ágúst 1994.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Biskups-
tungnahrepps fyrir 9. júlí 1994 og þar eru
veittar nánari upplýsingar í síma 98-68808.
Oddviti Biskupstungnahrepps.
Sambyggður f rystiskápur
óskast til leigu í nokkra mánuði.
Leigan greiðist fyrirfram.
Vinsamlegast leggið inn nafn og síma hjá
auglýsingadeild Mbl., merkt: „F - 12783“.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi fasteign fer fram á henni sjálfri
miðvikudaginn 6. júlí 1994 kl. 14.30:
Hafnargata 99, Bolungarvík, þingl. eign Hjartar Líndal Guðnasonar,
eftir kröfum sýslumannsins í Bolungarvík og íslandsbanka hf.
Sýslumaðurínn í Bolungarvík,
l.júlí 1994.
Framhaldsuppboð
Fimmtudaginn 7. júlí nk. fer fram framhaldsuppboð á eftirtöldum
eignum, sem haldið verður á þeim sjálfum:
Kl. 13.00 Norðurhvammur, Mýrdalshreppi, þinglýstur eigandi Ríkis-
sjóður, ábúandi Jónas Hermannsson, að kröfu Stofnlánadeildar land-
búnaöarins.
Kl. 16.00 Skaftárdalur III, Skaftárhreppi, þinglýst eign Alexanders
Sigurðssonar, að kröfum Húsnæöisstofnunar ríkisins og
Glitnis hf.
Sýslumaðurínn Vík í Mýrdal,
1. júli 1994.
___■»
SltlCI augtýsingor
skíðadeild
Sumarferð skíðadeildarinnar
verður farin helgina 8.-10. júlí.
Farið verður á Snaefellsjökul.
Upplýsingar í símum 666794,
46903 og 873794.
Stjórnin.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Bænasamkoma í kvöld kl. 20.30.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá vikunnar framundan:
Sunnudagur:
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður: Hreinn Bernharðs-
son.
Almenn samkoma kl. 20.00.
Miðvikudagur:
Biblíulestur kl. 20.30.
Föstudagur:
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Laugardagur:
Bænasamkoma kl. 20.30.
FERÐAFELAG
(§> ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Dagsferðir Ferðafélagsins:
Sunnudagur 3. júli:
Kl. 08.00 Þórsmörk dagsferð,
stansað um 4 klst.
Verð kr. 2.700.
Kl. 09.00 Skarðsheiði frá austri
til vesturs. Gengiö frá Geldingar-
draga til vesturs. Verð kr. 1.800.
Ki. 13.00 Innstidalur (Ölkeldur),
Þrengsli. Gengið upp Sleggju-
beinsskarð, til baka meðfram
Skarðsmýrarfjalli.
Verð kr. 1.100.
Brottför frá Umferðarmið-
stöðinni, austanmegin og
Mörkinni 6.
Ferðafélag (slands.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
ísfirðingar, ferðafólk
Miðnætursólarsigling frá
ísafirði með Fagranesi.
Kynning ó árbók Ferða-
félagsins.
Sigling út Isafjarðardjúp þar sem
ætlunin er að skoða sólarlagið.
Komið i land á Hesteyri. Ásetlað
er að ferðin taki 4 klst.
Ferðafélag Islands mun kynna
nýja árbók sína „Ystu strandir
norðan Djúps", sem fjallar um
svæðið, og verður hægt að eign-
ast bókina með því að gerast
félagi í Ferðafélaginu. Djúpbát-
urinn kynnir áætlun sína. Hægt
verður að fá veitingar um borð.
Harmóníkufélag ísafjarðar sér
um fjörlega tónlist. Fararstjóri,
Gísli Hjartarsson. Verð aðeins
1.000 kr. fyrir fullorðna og 500
kr. fyrir börn.
Fjölmennið
Ferðafélag Islands.
UTIVIST
[Hollveigarstig 1 • simi 614330
Dagsferð sunnudaginn
3. júlíkl. 10.30:
Sandfell við Þingvallavatn
Lágfjallasyrpa, 5. áfangi.
Gengið verður upp á Sandfell
með Þingvallavatni og endað við
Ölfusvatn.
Brottför frá BSÍ bensínsölu.
Frítt fyrir börn 15 ára og yngri í
fylgd með fullorðnum.
Verð kr. 1.400/1.500.
Upplýsingar og miðasala á
skrifstofu Útivistar.
Þingvellir
Helgardagskrá 2.-3. júlí
Laugardagur 2. júlí:
Kl. 13.00 Gönguferð um Suð-
urgjár - sérstaklega hugað að
jurtum og jarðfræði. Ferðin tekur
um þrjár klukkustundir. Farið frá
Valhallarplani kl. 13.00 stundvís-
lega.
Kl. 14.00 Barnastund. Leikir og
ævintýri fyrir börn. Yngri en sex
ára komi í fylgd með fullorðnum.
Hittumst á Skáldareit aftan við
Þingvallakirkju. Stendur f eina
klukkustund.
Kl. 14 Þinghelgarganga. Fjallað
á lifandi hátt um þingstaðinn og
umhverfi hans. Tekur um eina
og hálfa klukkustund. Farið frá
Þingvallakirkju kl. 14.00 stund-
víslega.