Morgunblaðið - 08.07.1994, Page 1
56 SIÐUR B/C
152. TBL. 82. ÁRG. FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Reuter
ÞÝSK óeirðalögregla heldur aftur af þýskum og kínverskum
mótmælendum við Brandenborgarhliðin, en þeir báru meðal
annars mótmælaspjöld þar sem Li Peng, forsætisráðherra Kína,
er sagður „slátrarinn á Torgi hins himneska friðar“.
Miklar breytingar á lögþinginu í Færeyjum
Úrslitin signr fyrir
tvo nýja smáflokka
Þórshöfn. Morgunblaðið.
LJÓST er að mjög erfítt verður
að mynda nýja stjórn eftir kosn-
ingarnar í Færeyjum í gær. Átta
flokkar fengu sæti á lögþinginu
og túlka má kosningarnar sem
sigur fyrir tvo nýja smáflokka,
Verkamannafylkinguna og Mið-
flokkinn.
Sambandsflokkurinn er nú stærsti
flokkurinn í Færeyjum, fékk átta
þingsæti og 23,4%, bætti við sig
tveimur þingmönnum og 4,5 pró-
sentustigum. Sigurinn er þó ekki eins
stór og flokkurinn hafði vænst því
hann stefndi að tíu þingsætum.
Verkamannafylkingin, sem klofn-
aði frá Jafnaðarflokknum, fékk meira
fylgi en spáð hafði verið, þrjá þing-
menn og 9,5% atkvæða. Jafnaðar-
flokkurinn tapaði mestu fylgi, 12,1
prósentustigi, missti helming þing-
sæta sinna og fékk fímm. Fólkaflokk-
urinn fékk sex þingmenn og missti
einn. Þjóðveldisfiokkurinn hélt hins
vegar fjórum þingmönnum sínum.
Miðflokkurinn, sem klofnaði frá
Kristilega fólkaflokknum, fékk tvo
þingmenn. Kristilegi fólkaflokkurinn
og Sjálfstæðisflokkurinn hlutu einnig
tvö þingsæti.
Li Peng
fyrtist við
mótmælum
Weimar. Rcutcr.
LI PENG, forsætisráðherra Kína,
skildi borgarstjóra Berlínar eftir ein-
an og yfirgefinn við Brandenborgar-
hliðið í gær og batt skyndilega enda
á heimsókn sína til Weimar vegna
mótmælenda sem höfðu sig í frammi
og gagnrýndu ástand mannréttinda-
mála í Kína.
„Li fjöldamorðingi"
Borgarstjórinn í Berlín, Eberhard
Diepgen, beið til einskis við Brand-
enborgarhliðið eftir því að Li Peng
og föruneyti hans léti sjá sig en Di-
epgen og Li áttu að ganga saman í
gegnum hliðið. Þar höfðu safnast
saman um 200 Þjóðveijar og Kínveij-
ar, sem báru mótmælaspjöld sem á
stóð m.a.: „Li, farðu heim“ og „Li
fjöldamorðingi" vegna blóðbaðsins á
Torgi hins himneska friðar árið 1989.
Fyrtust Kínveijar við og héldu
rakleiðis til Weimar. Þar komu þeir
á heimili Goethes, sem forsætisráð-
herrann hugðist skoða. Safnstjórinn
hafði vart hafið kynningu á skáldinu,
sem hófst á því að mannréttindi og
frelsi hefðu verið óijúfanlegur þáttur
í verkum hans, þegar Li brást hinn
versti við. „Ég er kunnugur verkum
Goethes," sagði hann reiðilega. „Ég
vil sjá hvernig hann bjó og starfaði."
Sveitir N-Jemens
ná Aden á sitt vald
Sanaa. Reuter.
STJÓRNARHER norðanmanna náði Aden, síðasta vígi
sunnanmanna í stríðinu í Jemen, algjörlega á sitt vald
í gær. Leiðtogar Suður-Jemens hyggjast þó safna liði
að nýju og halda áfram að berjast fyrir aðskilnaði frá
norðurhlutanum.
Embættismaður í Sanaa, höfuðborg Jemens, sagði
að „almenn uppreisn" hefði blossað upp í þeim hverf-
um í Aden sem voru á valdi stuðningsmanna Alis
Salems al-Baidhs, leiðtoga sunnanmanna.
„íbúar í Aden réðust inn í herstöðvar, fangelsi og
lögreglustöðvar. Þeir neyddu uppreisnarmennina til
að láta vopn sín af hendi og afhentu þau síðan lögmæt-
um öiyggissveitum,11 sagði embættismaðurinn.
Símasambandslaust var við Aden í gær. Vatnslaust
hefur verið í borginni og skortur á matvælum og hermt
er að flestir borgarbúa hafi einfaldlega fengið sig
fullsadda á ástandinu og snúist á sveif með stjórn-
inni. Hermenn norðurhlutans færðu íbúunum ferskt
vatn og ávexti og lögðu sig fram við að koma vinsam-
lega fram við þá til að fullvissa þá um að aðeins leið-
togum uppreisnarinnar yrði refsað fyrir hana.
„Stríðinu ekki lokið“
Stjórnin í Sanaa hefur veitt sunnanmönnum sakar-
uppgjöf, sem nær þó ekki til 16 leiðtoga þeirra. Helstu
samstarfsmenn al-Baidhs flúðu frá Aden á miðvikudag
og leiðtoginn var sagður hafa flúið til Ómans.
„Stríðinu er ekki lokið. Við ætlum að safna liði og
gera allt sem við getum til að halda baráttunni áfram,“
sagði Mohsen Farid, einn af leiðtogum Suður-Jemena.
Skæðir
skógareldar
ÞRETTÁN manns hafa beðið
bana í skógareldum í norðaustur-
héruðum Spánar undanfarna
daga og eldar hafa einnig geisað
í suðurhlutanum. Tugþúsundir
hafa orðið að flýja heimili sín
vegna eldanna og talið er að
þeir hafi eyðilagt um 100.000
hektara af skóglendi, sem er
meiri eyðilegging en í skógareld-
um allt síðasta ár á Spáni. A
myndinni er þyrla að úða vatni
yfir elda í Katalóníu. Skógareld-
ar geisa einnig víða í Bandaríkj-
unum og að minnsta kosti 13
slökkviliðsmenn létu lifið við
slökkvistörf í Klettafjöllunum í
Colorado í gær.
■ Skógareldar ogflóð/14
Bandaríkin
Herskip-
um siglt
að Haítí
Washington. Reuter.
BANDARÍSKIR landgöngulið-
ar fóru í gær um borð í her-
skip, sem ráðgert var að senda
að strönd Haítí, og embættis-
menn í bandaríska varnarmála-
ráðuneytinu staðfestu að
bandarískir hermenn hefðu æft
hugsanlega innrás til að steypa
herforingjastjórn Haítí af stóli.
2.000 landgönguliðar fóru
um borð í fjögur herskip í Norð-
ur-Karólínu og var búist við að
þau sigldu til Haítí í nótt.
Bandaríkjastjórn hefur ekki
viljað útiloka innrás í Haítí til
að koma Jean-Bertrand Ar-
istide forseta aftur til valda.
Embættismenn í Pentagon
staðfestu að 1.000 hermenn hið
minnsta hefðu æft hernaðará-
ætlun um hvernig hertaka ætti
hafnir og flugvelli á Haítí.
Svíþjóð
Mikið pen-
ingafals
afhjúpað
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA lögreglan fann í gær
um 300.000 falsaða peninga-
seðla, aðallega eftirlíkingar af
1.000 króna seðlum.
„Að rnínu mati er þessi fund-
ur einn sá merkasti í sænskri
glæpasögu og örugglega í sögu
falsana," sagði Roland Stahl,
varalögreglustjóri í Stokk-
hólmi.
Alls fundust 30 kassar og
lögreglan áætlar að í hveijum
þeirra hafi verið um 10.000
seðlar. Nafnvirði þeirra gæti
hugsanlega numið alls 300
milljónum sænskra króna, 2,6
milljörðum íslenskra.