Morgunblaðið - 08.07.1994, Síða 2

Morgunblaðið - 08.07.1994, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐID FRÉTTIR Morgunblaðið Haildór Kolbeinsson Eyðnismitaður sýknaður af nauðgunarkæru HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær 32 ára gamlan mann af ákæru um að hafa nauðgað tæp- lega 15 ára pilti fyrir um ári. Þar sem ákærði er eyðnismitaður var hann jafnframt ákærður fyrir að hafa þannig stofnað lífí piltsins í háska en sýknaður af því eins og öðru. í dómi Héraðsdóms er fundið að ýmsum atriðum sem snerta rann- sókn RLR á málinu og segir dómar- inn að ekki hafí verið rannsökuð jöfnum höndum atriði sem leitt gætu til sýknudóms og sakfelling- ar. Sú vanræksla veiki sönnunar- stöðu ákæruvaldsins í málinu. I dóminum kemur fram að sann- að þyki að pilturinn sem kærði at- burðinn hafi orðið fyrir þeirri reynslu að vakna af ölvunarsvefni á heimili mannsins við það að mað- ur var að reyna að hafa við hann samfarir en ekki sé sannað að um húsráðandann hafi verið að ræða. Atburðurinn átti sér stað í sam- kvæmi þar sem voru 7-8 manns, flestir samkynhneigðir. Við rann- sókn lögreglu var einungis einn þeirra yfírheyrður, auk kæranda og ákærða og finnur dómurinn að því og fleiri atriðum í rannsókninni. Endurteknar blóðrannsóknir á kærandanum hafa leitt í ljós að hann hafí ekki smitast af HlV-veir- unni, sem veldur eyðni. ■ Dómari gagTirýnir/6 Hár og friður Söngleikurinn Hárið var frum- sýndur í íslensku óperunni í gærkveldi, en leikurinn er færður upp með fjölmörgum leikurum, sem eru með þessari sýningu að stíga sín fyrstu skref á sviði. Uppselt var á sýninguna og voru söngvarar og leikendur klappaðir fram í lok sýningar. Það er leikfélag- ið „Flugfélagið Loftur“, sem setur upp Hárið í samvinnu við Þjóðleikhúsið. Féllu af vinnupalli TVEIR glerísetningarmenn slösuðust nokkuð og skárust þegar vinnupallur hrundi und- an þeim og þeir féllu 7 metra til jarðar þar sem þeir voru að vinna við hús í Rimahverfi í Grafarvogi í gærmorgun. Að sögn lögreglu var vinnu- pallurinn, sem mennimir voru á við vinnu, hvorki festur við húsvegginn né skorðaður á annan hátt og hrundi hann undan mönnunum. Heilbrigðiseftirlit krefur Hringrás um mengunarmælingar Brennsluofn innsiglaður BRENNSLUOFN Hringrásar hf. við Sundahöfn var innsiglaður að ósk Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur 1. júlí síðastliðinn, en ofninn liefur verið notaður til að brenna plast- kapla og jarðkapla til að ná úr þeim blýi og kopar. Að sögn Odds Rúnars Hjartarson- ar, framkvæmdastjóra heilbrigðis- eftirlitsins, var ofninn innsiglaður þar sem brennslu var haldið áfram eftir að heilbrigðisnefnd Reykjavík- ur bannaði notkun ofnsins frá og með 27. júní. Þá lá greining á efna- innihaldi reyks frá ofninum ekki fyrir. Oddur sagði Hringrás hafa haft frest til 1. apríl til að skila inn rann- sóknarniðurstöðum varðandi inni- hald reyksins. Því væri ekki vitað hvaða mengunarefni væri í reyknum og ákveðið að rekstur ofnsins skyldi stöðvaður þangað til niðurstöður um innihaldið liggja fyrir. Einnig sagði Oddur þurfa að rannsaka betur jarð- vegsmengun á lóð Hringrásar, en ákvarðanir í því sambandi hefðu ekki verið teknar. „Vandamálið þama er bæði þungmálmar og plast- ið sem er utan um kaplana, en í því eru klórsambönd og þegar þau brenna við ónógan hita getur mynd- ast PCB og díoxínmengun," sagði Oddur. Hann sagði að af hálfu Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur yrði brennsluofninn ekki gangsettur fyrr en rannsóknarniðurstöður um efna- innihald reyksins lægju fyrir. „Ef það gerist verðum við að ijúfa raf- magnið og þá liggur alveg ljóst fyr- ir að þessir menn verða kærðir til lögregluyfirvalda. Það er engin und- ankoma," sagði Oddur. Kaup á kurlara í athugun Að sögn Einars Ásgeirssonar, eins forsvarsmanna Hringrásar hf., hefur ofninn upp á síðkastið einung- is verið notaður til vinnslu á jarðköplum en samkvæmt upplýs- ingum framleiðanda ofnsins stæðist hann allar kröfur um brennslu á þeim. „Við erum að kaupa inn kapla- kvöm fyrir plastkaplana, sem malar kapalinn og aðgreinir plast og málma og þá verður ekki bmni á PVC-kapli í ofninum. Við höfum Hluthafar íslenska útvarpsfélagsins hf. Meiríhlutínn ætlar ekki að selja bréfin NYR meirihluti innan stjómar ís- lenska útvarpsfélagsins hf. ætlar ekki að selja bréf sín til erlendra aðila. Stjórnarmenn úr meiri- hlutanum neita hins vegar ekki að fram hafi farið viðræður við banda- rísk fjármálafyrirtæki, svo sem Oppenheimer. Samkvæmt upplýsingum stjórn- armanna úr hinum nýja meirihluta áttu viðræður við bandarísk fjár- málafyrirtæki rætur að rekja til þess, að þegar fulltrúar frá Oppen- heimer voru hér á landi nýverið til viðræðna við fráfarandi meirihluta um hugsanlega sölu á bréfum í hans fórum, hafi þeir reifað þá hugmynd hvort til álita kæmi að hluthafar í hinum nýja meirihluta seldu einnig bréf sín, því að væru t.d. 75-80% hlutabréfa í fyrirtæk- inu til sölu væri það enn álitlegri kostur. Þrír stjórnarmanna í hinum nýja meirihluta, Sigurður G. Guðjóns- son, Jón Ólafsson og Símon Á. Gunnarsson, fóru fyrr í vikunni til New York til fundar við Siguijón Sighvatsson og var ákveðið að ræða nánar við fulltrúa fjármála- fyrirtækja til að kanna hvað þeir hefðu fram að færa. Það var hins vegar sameiginleg niðurstaða hins nýja meirihluta sl. þriðjudag eftir þessar viðræður að ekki kæmi til greina að selja félag- ið og að þeirra sögn voru þar mótuð áform til stóreflingar starf- semi fyrirtækisins. Af hálfu hins nýja meirihluta er því einnig vísað á bug að fyrir Siguijóni Sighvatssyni hafi vakað það eitt að ná meirihluta í fyrirtæk- inu til að geta selt hann aftur, og þær viðræður sem hann eigi að hafa staðið í við hugsanlega er- lenda kaupendur megi rekja til þess tíma þegar hann var óánægð- ur 10% hluthafi í fyrirtækinu og sjónarmið hans um umbætur í starfsemi fyrirtækisins áttu ekki hljómgrunn. ■ Leyll ráðherra þarf/12 Morgunblaðið/Golli Innsiglaði brennsluofninn hjá Hringrás sem Heilbrigðiseft- irlit Reykjavíkur hefur bann- að notkun á. hins vegar eingöngu verið að brenna jarðstreng í ofninum sem veldur ekki díoxín-mengun,“ sagði Einar. Hann sagði að stefnt væri að því að brennsluofninn yrði eingöngu notaður til vinnslu á jarðköplum í framtíðinni og sýni yrðu tekin af honum miðað við þá vinnslu. Þá væri væntanleg skýrsla erlendis frá um sýnatökur sem teknar væru við vinnslu á samskonar köplum af hlut- lausum aðilum og erlend heilbrigðis- yfírvöld hefðu viðurkennt. Sláttur er víðast hafinn GOTT veðurfar og hlýindi í þessum mánuði geta haft úrslitaáhrif um uppskeru á túnum í ár að mati Áma Snæbjörnssonar jarðræktarráðu- nautar hjá Búnaðarfélagi íslands. Hann segir horfur á meðalgóðri upp- skem þokkalegar einkum eftir gott tíðarfar og hlýindi síðustu daga. Spretta hafi víðast hvar tekið við sér eftir kalt vor og sláttur sé hafinn í flestum héruðum landsins. Guðmundur Sigurðsson, búnað- arráðunautur hjá Búnaðarsambandi Borgarfjarðar, segir að spretta hafi verið hægari en í meðalári en mikið muni um hlýindaskeiðið að undan- fömu. „Eins og stendur lítur þetta vel út,“ sagði hann. í Þingeyjarsýslum eru kúabændur komnir af stað en sauðijárbændur eru að hefla slátt að sögn Ara Teits- sonar, búnaðarráðunautar hjá Bún- aðarsambandi S-Þingeyjarsýslu. „Það þarf ekki marga góða daga í viðbót til að heyfengur verði mjög góður og mikill," sagði Ari. Á Austurlandi er sláttur lengst kominn í Berufirði og Fáskrúðsfirði að sögn Þorsteins Bergssonar, bún- aðarráðunautar hjá Búnaðarsam- bandi Austurlands. „Við emm mjög bjartsýnir á heyskap í ár,“ sagði Þorsteinn. Krónan notuð í Lettlandi GREINT erfráþví í frétt í dagblaðinu Dienas Bizness, sem gefið er út í Rigu í Lettlandi, að tekið hafi að bera á því að íslenskir krónu- peningar séu teknir í misgripum fyrir lettnesku myntina lats, sem fyrst var slegin í mars á síðasta ári.í frétt- inni er varað við því að íslenska krónan sé einungis 0,8 santim, en 100 santim eru í hverri mynt. Þýðir það að 1 latsjafngildir 125 íslenskum krónum. í blaðinu segir að á íslensku krónunni sé mynd af fiski sem líkist laxinum á lettnesku myntinni. íslenska krónan sé einum millímetra minni, hafi svipaðan gljáa og sé einungis örlítið léttari. Loks seg- ir að vegna mismunandi verð- gildis myntanna „biðji starfs- menn ritstjórnar Db kaupmenn og viðskiptavini að skoða grannt hveija mynt svo hægt sé að forð- ast svindl". Hjá Seðlabanka íslands feng- Vinstra inegin er eitt lats og sé íslensku krón- unni snúið öfugt virðist í fljótu bragði vera um sömu mynt að ræða. ust þær upplýsingar hjá Stefáni Þórar- inssyni forstöðu- manni rekstrar- deildar að komið hefði fyrir að slegin væri mynt sem svip- aði til myntar i öðru landi. Til dæmis hafi Irar slegið röð inyntar með sjávar- dýrum fyrir nokkrum árum, Iíkt og byijað var á hérlendis árið 1981. Segir Stefán að einungis sé hægt að slá peninga sem séu frá um 15 millimetrum í þver- mál upp í 30 mm. Myntinni sé raðað niður á þessu bili og reynt að láta verðgildi haldast svipað milli landa. „Seðlabankinn á samstarf við breska myntskrán- ingarskrifstofu á vegum Kon- unglegu myntsláttunnar sem safnar upplýsingum frá ýmsum löndum. Meðal annars er fylgst með stærð en öðru gegnir um útlit myntar. Við gerðum at- hugasemd við írsku myntina á sínum tíma en það var ekkert gert með það,“ segir Stefán.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.