Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 8

Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Könnun um ofbeldi á heimilum Niðurstöðurnar eru taldar rangfærðar ÍM GALLUP telur að niðurstöður könnunar sem fyrirtækið gerði á viðhorfum fólks til ofbeldis á heimil- um hafi verið rangfærðar í fjölmiðl- um. I könnuninni var spurt hvort fólk gæti hugsað sér einhverjar ástæður sem réttlæti að kona eða karl slái maka sinn utan undir. í umræðum í fjölmiðlum um könnun- ina hefur verið notað orðalagið „að beija konu sína“. I könnun ÍM Gallup var spurt: „Getur þú ímyndað þér einhverjar réttlætanlegar ástæður þess að kona myndi slá mann sinn utan undir?“ og „Getur þú ímyndað þér einhverjar réttlætanlegar ástæður þess að maður myndi slá konu sína utan undir?“. Um 28% karla svöruðu fyrri spurningunni játandi, en 24% kvenna. Um 43% karla svöruðu seinni spumingunni játandi, en 27% kvenna. Meira var um að þeir sem yngri eru svöruðu spurningunum játandi. Að slá eða berja Sjónvarpið, sem upphaflega birti frétt um könnunina, túlkaði niður- stöðu könnunarinnar á þann veg að um 43% karla teldi réttlætanlegt að karlar beiji eiginkonur sínar og um 27% kvenna. Skúli Gunnsteins- son, framkvæmdastjóri ÍM Gallup, telur þessa túlkun ranga og vill- andi. Hann segist ekki vera þeirrar skoðunar að það að slá manneskju flokkist ekki undir ofbeldi. Á hinn bóginn segist hann vera þeirrar skoðunar að í hugum fólks sé það að beija manneskju mun grófari líkamsárás en að slá hana utan undir. Skúli segir að sumir hafi gengið svo langt að segja að 40% karlmanna beiji eiginkonur sínar, en það sé að sjálfsögðu alrangt. 18% telja réttlætanlegt að slá börn í könnunni var einnig spurt hvort fólk teldi að upp gæti komið réttlæt- anleg ástæða þess að foreldri myndi slá barn sitt. Rúmlega 18% svar- enda svöruðu spurningunni játandi eða tæplega 22% karla og rösklega 13% kvenna. Morgunblaðið/Theodór Eðlið segir til sín EÐLIÐ sagði til sín hjá þess- um hálfstálpaða kettlingi þegar hann sá kanínu sem var lokuð inni í búri en á milli þeirra var hænsnanet. Það merkilega var að kanín- an virtist ekkert hræðast kettlinginn að ráði þó að hann kæmi loppunni öðru hvoru í gegnum vírnetið. Hún hljóp undan þegar hann gerði atlögurnar en kom allt- af aftur að netinu, eins og til þess að stríða honum. Fréttaritari Morgunblaðsins rakst á þessa „leikfélaga" nýverið á Varmalandi í Borg- arfirði. Hagstætt veður á hálendinu HÁLENDIÐ fær sinn skerf af veð- urblíðunni þessa dagana og fiýtir hitinn mikið fyrir því að hægt sé að opna leiðir. Ólafur H. Torfason vega- eftirlitsmaður segir að mikið hafi tekið upp af srrjó síðustu daga. Hit- inn hafi hins vegar einnig önnur og verri áhrif á nýlagðar klæðningar. „Það vill hitna svo í tjörunni að hún rennur út og þá skapast vand- ræði og verður að setja möl ofan í hana aftur. Svo lenda menn í þessum hremmingum með gijótkastið. Að öðrum kosti gengur þetta mjög vel,“ sagði Ólafur í samtali við Morgun- blaðið. „Það er orðið opið t.d. inn í Landmannalaugar og um Sprengi- sand og Kjöl, það er opið niður í Kverkfjöll og upp á Skaftártungu upp í Eldgjá. Það er mikill snjór í jökuldalnum milli Landmannalauga og Eldgjár en það verður skoðað núna í framhaldi af opnuninni inn í Landmannalaugar.“ Heimili fyrir aldraða með heilabilun Hundruð aldraðra með einhver ein- kenni heilabilunar ■ M eykjavíkurdeild Rauðarkross íslands ^ tók í notkun heimili fyrir aldraða með heilabilun að Logafold 56, Foldabæ, 24. júní síðastliðinn, en heimilið er rekið í samvinnu við Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar sem leggur til starfsfólk í formi heimilishjálpar. Þór Hall- dórsson yfirlæknir, formað- ur Reykjavíkurdeildar Rauða krossins, segir að hér sé um tilraunaverkefni til þriggja ára að ræða, en þetta er fyrsta heimili sinnar tegundar sem tekið er í notkun hér á landi. í húsnæðinu, sem Reykjavíkurdeild Rauða krossins lét reisa með sér- þarfir vistmannanna í huga, er aðstaða fyrir sólarhringsvistun sjö einstaklinga. Þegar hafa fimm einstaklingar flutt inn á heimilið, en um er að ræða einstæðinga sem þurfa á aðstoð að halda til að at- hafna sig í daglega lífinu. Reykja- víkurdeild Rauða krossins rekur þegar dagvistunarheimili á Flóka- götu, Hlíðabæ, fyrir aldraða með heilabilun, en einnig rekur deildin dagvistun fyrir aldraða einstæð- inga sem eiga erfitt með að bjarga sér. Þór segir að fólkið sem dvelur í Foldabæ sé fætt á tímabilinu 1912 til 1918. Það sé sæmilega vel á sig komið líkamlega en eigi við heilabilunareinkenni að stríða af völdum margvíslegra sjúk- dóma. Alzheimer-sjúkdómsein- kennið sé algengasta heilabilunar- einkennið, en um 60% af heilabil- unareinkennum, sem ekki er vitað af hverju stafa, séu skrifuð á Alz- heimer-sjúkdómseinkennið. Um 20% eru síðan með sjúkdóma í heilaæðum og einnig eru ýmsir aðrir sjúkdómar sem valdið geta heilabilunareinkennum. - Hvernig lýsa heilabilunarein- kenni sér hjá öldruðum? „Það sem sameiginlegt er með þessu fólki er að það á erfitt með að fóta sig í nútímaþjóðfélagi vegna þess hve flókið það er. Það getur hins vegar vel komist af með stuðningi t.d. frá fjölskyidu eða heimili. Margir þessara ein- staklinga eru hins vegar einstæð- ingar og þess vegna eru þeir svona illa settir. Nokkuð stór hópur er með einhver einkenni af þessu tagi, en talið er að það séu um 6% af þeim sem eru 65 ára eða eldri, en mun minni hópur hefur hins vegar mikil slík ein- kenni. í Reykjavík er reiknað með að hátt í 300 manns séu með einhver svona einkenni en á misjafnlega háu stigi.“ - Hve stór hluti þessa fólks nýtur þeirra aðstoðar sem hann þarfnast? „Það er nokkuð stór hiuti en þó er ekki hægt að veita nærri því öllum aðstoð. Það kemur fram í svokölluðu vistunarmati sem nú er verið að gera að það er eitt- hvað á annað hundrað manns sem er í þörf fyrir aðstoð af völdum þessa sjúkdóms. Ég gæti vel trúað að hér í Reykjavík þyrfti að hafa að minnsta kosti 10-12 heimili af því tagi sem nú hefur verið tekið í notkun ef við ættum að geta gert þetta eins vel eins og við vildum. Þetta er svipað og gengur og gerist annars staðar á Norðurlöndunum, en þar hefur svona starfsemi verið í þróun, og ►Þór Halldórsson yfirlæknir er fæddur í Þóreggsstaðagerði í Hjaltastaðaþinghá 1929. Hann lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1952 og prófi frá læknadeild Háskóla Islands 1960. Hann stundaði sérnám í lyflækningum og nýrnasjúkdómum í Svíþjóð 1963-1969 og setti upp fyrstu gervinýrun hér á landi 1968. Að loknu sérnámi stundaði Þór heimilislækningar og einnig starfaði hann á lyflækninga- deild Landspítalans, en 1973 varð liann yfirlæknir á Sól- vangi. Árið 1975 tók hann við starfi yfirlæknis öldrunardeild- ar Landspítalans og hefur hann gegnt því starfi síðan. í öðrum nágrannalöndum okkar hafa rannsóknarverkefni af þessu tagi einnig verið í gangi, t.d. í Skotlandi. “ - Er þetta heimili sem nú hef- ur verið tekið í notkun ekki tals- verður áfangi í öldrunarþjón- ustunni? „Jú, það tel ég vera, því það hefur í raun og veru alveg vantað í öldrunarþjónustuna að taka tillit til þessa hóps. Hingað til hefur hann verið blandaður innan um aðra sem þurft hafa á aðstoð að halda, og það hefur þá gilt það sama úti í þjóðfélaginu og inni á stofnunum. Menn eru alltaf að sjá það betur og betur bæði hér á landi og víðar að þetta fólk þarf sérþjónustu, sérþjálfað starfslið og sérhannað húsnæði. Það er ekki hægt að bjóða þessu fólki upp á það sama og tíðkast t.d. á stórum sjúkradeildum, né heldur öðrum sjúklingum sem eru með því. Það er því í raun og veru stór áfangi að það skuli vera farið að líta á þetta sem sérstaka einingu innan öldrunarþjónustunnar. Reykjavík- urdeild Rauða krossins hefur í hyggju að halda áfram með svona starfsemi og þá annaðhvort með fleiri heimili eða í einhveiju öðru formi. Það er mikið atriði í þessu að aðstæðurnar séu heimilislegar og leggjum við mikla áherslu á að allur húsbúnaður sé frá því tímabili þegar þetta fólk var upp á sitt besta. Það er mikið atriði ásamt því að öryggi fólksins sé tryggt og það sé þess meðvitað að engir óvissuþættir séu í lífi þess.“ Þörf er á 10-12 heimilum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.