Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 10

Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Yfir 26 stiga hiti við Mývatn Mývatni. Morgunblaðið. GLAMPANDI sól og hlýindi hafa ríkt í Mývatnssveit frá því á sunnudag, og hefur hitinn farið yfir 20 stig; á miðvikudag í rúm 26 stig. Að vísu hefur komið þoka tvær nætur en horfið strax að morgni. Margir hafa notað sér hlýindin og bakað sig í sólinni, ekki síst ferðafólk sem fjölmennt er í sveitinni. Sláttur er hafinn og grasspretta víða orðin ágæt, enda allur gróður þotið upp síðustu daga. Hey er hirt í rúllur, sumstaðar sama dag og slegið er. Mýflug með áætlunarflug Flugfélagið Mýflug í Mývatns- sveit hefur hafið daglegt áætlun- arflug á milli Reykjavíkur og Mý- vatnssveitar. Farið er frá Reykja- vík að morgni og frá flugvellinum við Reykjahlíð klukkan 19 að kvöldi. Þoka hefur ekki hamlað flugi seinustu daga, eins og dæmi eru um af öðrum flugvöllum. Síðastliðinn þriðjudag var far- þega frá Húsavík ekið til Akur- eyrar og hugðist hann taka kvöld- vélina til Reykjavíkur, en varð frá að snúa þar sem því flugi var af- lýst vegna þoku. Farþegi þessi komst með Mý- flugi á miðvikudagskvöld en átti pantað far til London á miðviku- dagsmorgun, og er því óskandi að hann hafi komist þangað á fimmtudag. Skógræktin og Skeljungur Kurlvinnsla og kola- gerð á „opnum degi“ SKÓGRÆKT ríkisins og Skeljung- ur á Akureyri efna til „opins dags“ í Vaglaskógi á morgun, laugardag- inn 9. júlí frá klukkan 14 til 17, þar sem ýmsir þættir starfsemi Skógræktar ríkisins á Vöglum verða kynntir. Meðal þess sem kynnt verður er kurlvinnsla, kolagerð, viðar- vinna, nýhafin lerkifrærækt, gróð- ursetningar-, grisjunar- og skóg- Listasumar ’94 Föstudagur 8. júlí BIRGIR Snæbjörn Birgisson opnar sýningu á verkum eftir sig I Glugganum, verslunar- glugga vöruhúss KEA í göngu- götunni. ræktaráhöld, ásamt því sem boðið verður upp á gönguferðir um trjá- safnið á klukkutíma fresti og hand- verksmenn kynna framleiðslu sína, þ.á.m. leikföng úr tré og skreyt- ingarefni. Meðal þeirra sem leið- beina fólki eru dr. Þröstur Ey- steinsson, fagmálastjóri, Jón Loftsson, skógræktarstjóri og Andri Siguijónsson, landslagsarki- tekt. Einnig verða veitingar. Síldarminjar á Siglufirði Vígsla endurbyggingar síldar- brakka og opnun Síldarminjasafns á Siglufirði verður í dag en 8. júlí fyrir 91 ári hófst síldarævintýrið á Siglufirði með komu mikils flota norskra skipa. Á Siglufirði er einnig kominn vísir að síldarbræðsluminjasafni og verður opið þar á sunnudag í tilefni af þjóðminjadeginum. 62 sjúkraflug frá Akureyri á þessu ári Útlendingar eru fluttir heim til að spara peninga Slasaður Austurríkismaður sóttur í gær AUSTURRISKUR maður um sjötugt var í gær sóttur af erlendri sjúkraflugsþjónustu vegna hálsmeiðsla sem hann hafði hlotið hérlend- is, og átti að fljúga með manninn til heimalands síns til aðgerðar. Vélin átti að lenda á Akureyri á miðvikudag en vegna þoku varð hún að lenda á Egilsstöðum og hafði þar viðdvöl aðfaranótt fimmtudags. Með vélinni voru tveir flug- menn, læknir og hjúkrunarkona. Maðurinn hafði meiðst eftir fall í Mývatnssveit, og kom brot á háls- hrygg. Jón Ingvar Ragnarsson, læknir á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri, segir að menn hafi í fyrstu óttast að um alvarlegan mænuskaða væri að ræða, en svo hefði ekki reynst vera. Maðurinn hafi verið fluttur til Austurríkis vegna sjúkratrygg- inga sinna, þar sem tryggingafé- lag hans taldi minna kostnað því samfara að láta hann gangast undir aðgerð í Austurríki og liggja á sjúkrahúsi þar í landi. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem erlend- ir sjúklingar séu sóttir af þessum sökum. Það þriðja í vikunni Umrætt sjúkraflug er það þriðja frá Akureyri i þessari viku, en í gærmorgun var flogið með mann til aðgerðar í Reykjavík og á mánudagskvöld var flogið með ís- lenskan líffæraþega til Gautaborg- AKUREYRI Stórbætt aðstaða fyrir börn í Sundlaug Akureyrar BÖRNIN trampa á trampólíni við Sundlaugina í góða veðrinu í gær. Við Sundlaugina hefur nú verið komið upp margvíslegri aðstöðu fyrir ungu kynslóðina. Samhliða vatnsbrun í Sund- lauginni TVÆR vatnsrennibrautir við Sundlaug Akureyrar verða opnaðar almenningi á morgun, laugardag, ásamt því sem end- urnýjuð setlaug verður tekin í notkun. Stærri rennibrautin er 55 metra löng, lokuð að fuilu en með gegnsærri yfirbygg- ingu að hluta til, en hin er 11 metra löng og þriggja metra breið, ætluð fyrir samhliða brun. Sigurður Guðmundsson, for- stöðumaður Sundlaugarinnar, segir að stærri rennibrautin sé næststærsta braut sinnar tegundar hérlendis, en hún er hönnuð af Islendingum en smíðuð í Englandi. Brautirnar Morgunblaðið/Rúnar Þór SÍÐASTA hönd lögð á vatnsrennibrautirnar á Akureyri. bæti alla þjónustu fyrir börn og unglinga, sem hafi til þessa ekki haft aðstöðu sem skyldi. Með opnun brautanna lýkur fyrsta áfanga af fjórum í þeim framkvæmdum sem hafa að undanförnu staðið yfir við Sundlaug Akureyrar. Kostnað- aráætlun framkvæmdanna hljóðar upp á 55 milljónir, og þar af nemur kostnaður við rennibrautirnar 7 til 9 milljón- um króna, að sögn Sigurðar. Formleg vígsla nýju aðstöð- unnar fer fram um næstu mán- aðamót. Um helgina verður einnig boðið upp á á fjöl- breytta afþreyingu fyrir fjöl- skyldur, þar sem grillað verð- ur, börn geta leikið sér í míní- golfi, á hjólabrettum, tram- pólíni o.fl. Orgeltón- leikar á Húsavík og Akureyri ÖNNUR tónleikaröð Sumartón- leika á Norðurlandi hefst í Húsa- vikurkirkju í dag, föstudaginn 8. júlí, klukkan 21 með leik breska orgelleikarans Davids Tittering- ton. David kennir við Kongunglega tónlistarskólann í Lundúnum, og hefur aðallega sérhæft sig í róm- antískri tónlist og samtímatónlist og hafa ýmis verk verið samin sérstaklega fyrir hann. Bach og Vivaldi Á efnisskrá tónleikanna í Húsa- víkurkirkju verða verk eftir m.a. Carles Baguer, John Bull, Petr Eben, William Walon, Antonio Soles og Bach. David leikur síðan í Akureyrarkirkju á sunnudag, 10. júlíj klukkan 17. A tónleikunum þar eru verk eftir m.a. Hortatio Parker, Bach, Vivaldi, Alexander Guilmant, Di- önu Burell og Jean Jaques Char- pentier. "mMís&Æíiíí;,; Morgunblaðið/Rúnar SJÚKRAFLUTNINGAMENN höfðu hraðar hendur við að flytja sjúkrabörur milli sjúkrabíls og flugvélar Air Med-sjúkraflugs- þjónustunnar á flugvellinum á Akureyri í gær. ar. Sextíu og tvö sjúkraflug hafa að sögn Gunnars Odds Sigurðs- verið á þessu ári frá flugvellinum sonar, umdæmisstjóra Flugmála- á Akureyri, sem er yfir meðállagi stjórnar ríkisins á Norðurlandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.