Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 29 _
MINNINGAR
GUÐNY
GUÐJÓNSDÓTTIR
+ GuðnýGuðjóns-
dóttir var fædd
á Raufarfelli undir
Austur-Eyjafjöll-
um 2. ágúst 1914.
Hún lést á Borgar-
spitalanum í
Reykjavík 2. júlí
síðastliðinn. For-
eldrar Guðnýjar
voru Guðjón Vig-
fússon og Þorbjörg
Jónsdóttir, ættuð
undan Eyjafjöllum
og bændur á
Raufarfelli. Systur
Guðnýjar urðu tíu,
allar látnar nema Sigurbjörg
Guðleif, Sigríður og Bjarný.
Eftirlifandi eiginmaður
Guðnýjar er Ólafur Daðason,
húsgagnabólstrari og börn
þeirra Daði, Guðjón Þór, Jón
og María. Útför Guðnýjar fer
fram frá Fossvogskirkju í dag.
MEÐ örfáum orðum langar mig
að minnast tengdamóður minnar
Guðnýjar Guðjónsdóttur sem lést
á Borgarspítalanum laugardaginn
2. júlí 'sl. Kynni okkar urðu ekki
löng þar sem aðeins eru rúm fjög-
ur ár síðan ég kom inn í fjölskyld-
una. Það þurfti þó ekki langa
kynningu til að sjá að þar fór heil-
steypt kona sem hafði ákveðnar
skoðanir á bæði mönnum og mál-
efnum og lét þær hiklaust í ljós.
En hún átti ekki síður til hlýju og
elsku sem ég fékk að njóta frá
fyrstu tíð. Fyrir það vil ég sérstak-
lega þakka, það var okkur hjónum
ómetanlegur stuðningur á við-
kvæmum tíma.
Heimili hennar og Óla á Rauða-
læk þar sem þau höfðu búið í nær
fjörutíu ár einkenndist
einmitt af þessari
hlýju og umhyggju
ásamt höfðingsskap
sem lýsti sér meðal
annars í því að frá
þeim mátti helst eng-
inn fara án þess að
njóta einhverra veit-
inga. Svo sterk var
þessi tilfinning með
Guðnýju að þegar við
hjónin kvöddum hana
síðast, þá fárveika á
sjúkrahúsi, spurði hún
hvort við værum nú
búin að fá kaffisopa.
Guðný fluttist ung til Reykjavíkur
eins og svo margir af hennar kyn-
slóð og hún lifði það að sjá Reykja-
vík breytast úr litlum bæ í stór-
borg en þó hún væri borgarbúi
tengdist hún alltaf sveitinni sinni
sterkum böndum og sveitin hennar
var undir Austur-Eyjafjöllum. Það
leyndist engum sem við hana
ræddi.
Lífsverk Guðnýjar liggur fyrst
og fremst í því að búa eiginmanni
og börnum gott heimili og vera
vakin og sofin yfir velferð þeirra.
Af því verki mátti hún vera stolt.
Hún fylgdist með bömum, tengda-
bömum og bamabömum og tók
þátt í sorg þeirra og gleði og deildi
með þeim áhyggjum. Ég fann þeg-
ar ég kynntist henni að hana
munaði ekkert um að bæta mér
og mínum bömum í þann hóp.
Fyrir það vil ég þakka.
Elsku Óli, þinn er harmurinn
mestur við fráfall eiginkonu og
lífsförunautar í 60 ár. Þér og fjöl-
skyldunni allri sendi ég samúðar-
kveðjur.
Birna Sigurjónsdóttir.
Hún amma á Rauðó er dáin.
Það er eins og það vanti svo mik-
ið. Elsku amma, Þú varst alltaf
svo góð og umhyggjusöm. Þú varst
sú sem við vildum líkjast.
Það var alltaf jafn gott að koma
til afa og ömmu. Þau áttu yndis-
legt og fallegt heimili, fullt af hlýju
og kærleik. Afi og amma voru
einstaklega samhent og hjónaband
þeirra var mjög gott.
Ömmu var umhugað um að öll-
um í kringum hana liði sem best.
Hún var afar glaðlynd og ekkert
okkar man til þess að hafa séð
hana í slæmu skapi. Hún fylgdist
vel með öllu sem gerðist og hafði
einnig sjálf frá mörgu að segja.
Ávallt hafði hún eitthvað til mál-
anna að leggja.
Áhugi hennar á íþróttum var
með ólíkindum. Fátt var skemmti-
legra en að fylgjast með henni
horfa á góðan landsleik. Féll þá
leikurinn oft í skuggann hjá við-
stöddum vegna tilþrifa hennar.
Hún var góður félagi og það var
alltaf jafn gott að vera í kringum
hana. Amma sat aldrei auðum
höndum og voru ófá vettlinga- og
sokkapörin sem við fengum frá
henni.
Margar yndislegar minningar
eigum við um hana frá fjölskyldu-
ferðum vestur að Börmum í Reyk-
hólasveit. Alltaf var það amma
sem útbjó nesti til fararinnar, og
það var ekki af verri endanum:
Heitt súkkulaði (ekki kakó), ný-
bakaðar skonsur, kleinur, og fleira
og fleira. Það var ótrúlegt hvað
kom upp úr margra hæða nest-
isboxinu hennar.
Fjölmargar góðar minningar
tengdar ömmu koma upp í hug-
ann. Við kveðjum hana með
sökknuði, en þökkum fyrir allt sem
hún gaf okkur.
Helga Aðalheiður og Guð-
mundur, Tómas Árni og
María, Guðný Sif og Halldór
og langömmubörn
RANNVEIG STEIN-
GRÍMSDÓTTIR SAARI
+ Rannveig
Steingríms-
dóttir fæddist í
Reykjavík 25. októ-
ber 1925. Hún lést
2. júlí á heimili sínu
í Reykjavík. For-
eldrar hennar voru
Vilborg Vigfús-
dóttir frá Heiðars-
eli á Síðu í V-
Skaftafellssýslu og
Steingrímur
Magnússon, sjó-
maður í Reykjavík.
Rannveig, sem oft-
ast var kölluð
Ransý, var þriðja elst af sex
systkinum og eru nú fjögur
þeirra á lífi. Árið 1948 giftist
Rannveig Lee Saari, þá starfs-
manni hjá Pan Am á íslandi,
f. 1915 í Turku í Finnlandi,
d. 1968. Rannveig og Lee
bjuggu í Flórída í 14 ár og
eignuðust tvö börn: Önnu Be-
verlee, f. 1954, og Þór, f. 1960.
Börn Önnu eru Eiríkur Þór,
f. 1982, og Rannveig Rúna, f.
1987. Rannveig fluttist til ís-
lands frá Bandaríkjunum árið
1966 og hóf þá störf hjá
Tryggingu hf. þar sem hún
vann til dauðadags. Útför
Rannveigar fer fram frá Frí-
kirkjunni í Reykjavík í dag.
Kveðja frá vinnufélögum
LÁTIN er í Reykjavík Rannveig
Steingrímsdóttir Saari á sextug-
asta og níunda aldursári. Hún
varð þeirrar náðar aðnjótandi að
fá að halda sínu andlega atgjörfi
til hinstu stundar og hljóta þá
hægt andlát, eins og þegar slokkn-
ar á lampa, þegar kveikinn þrýtur.
Okkur samstarfsfé-
lögum hennar kom
það mjög á óvart að
lífskveikur hennar
væri á enda runninn,
því hún fór úr vinn-
unni hinn 24. júní, sæl
og glöð í sumarleyfi
sitt.
Örlög sín fær eng-
inn umflúið og svo
snöggum umskiptum,
sem hér hafa á orðið
er enginn viðbúinn.
Það er þó huggun
harmi gegn, að héðan
af þarf hún ekki að
þola erfiða elli né verða sjálfri sér
eða öðrum byrði. Það hefði síst
af öllu verið þessari sjálfstæðu
konu að skapi. Hún naut þess í
ríkum mæli að vera engum háð
og halda sjálfstæði sínu.
Rannveig giftist ung að árum
Bandaríkjamanni, Lee Saari, sem
starfaði hér í mörg ár sem stöðvar-
stjóri risaflugfélagsins Pan Am á
meðan það flugfélag flaug til Evr-
ópu um ísland. Þau Rannveig og
Lee, sem nú er löngu látinn,
bjuggu síðan lengi á Flórída og
þeir voru ófáir íslendingarnir, sem
nutu gestrisni og hjálpar þessara
heiðurshjóna á þeim árum. Þar
voru þau einskonar ræðismenn
íslands. Mörg voru dæmi þess, að
Rannveig sendi eftir íslendingum,
sem lent höfðu í erfiðleikum af
ýmsum toga í Ameríku, og kæmi
þeim til hjálpar á margvíslegan
hátt. Þá var ekki spurt um vega-
lengdir, tíma eða peninga.
Rannveig réðst til Tryggingar
hf. fyrir 28 árum, þá nýflutt al-
komin til Islands. Hún kom í hópr
inn, sem fullmótaður trygginga-
maður, enda hafði hún um fjórtán
ára skeið unnið hjá bandarísku
tryggingafélagi. Hún flutti með
sér inn í fyrirtækið ferskan blæ
og nýjungar sem við búum að
hluta til að enn. Henni var falin
brunadeildin til uppbyggingar og
endurskipulagningar. Þama nýtt-
ust vel góðar gáfur hennar, sjálf-
stæði og skipulagshæfileikar. Hún
var síðan um árabil deildarstjóri
þessarar deildar eða þangað til hún
baðst undan því sjálf.
Nú hin seinni ár hafði hún með
höndum símvörslu fyrirtækisins
sem er sál þess út á við og sú
fyrsta kynning sem viðskiptavinir
fá af fyrirtækinu. Starf þetta
rækti hún af stakri alúð, lipurð
og kurteisi, svo til var tekið. Efa-
laust eru þeir margir, sem munu
sakna þess að heyra ei framar
hennar ljúfu rödd, þegar þeir
hringja í Tryggingu hf.
Við samstarfsfólkið, sem bíðum
feijunnar enn um hríð, sendum
bömum hennar og ástvinum öllum
okkar dýpstu samúðarkveðjur og
eram þess fullviss að hún fær
góða heimkomu.
Guð blessi minningu Rannveig-
ar Steingrímsdóttur Saari.
Ágúst Karlsson.
Framleiðum áprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Bolir, húfur og svuntur.
Húfu og tauprent,
sími 91-887911
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐMUNDU REGÍNU SIGURÐARDÓTTUR, Hlíf, Ísafirði. Geirmundur Júlíusson, Halldór Geirmundsson, Guðný Hermannsdóttir, Gunnar Geirmundsson, Gunnhildur Magnúsdóttir, Geir Geirmundsson, Sigríður Sigfúsdóttir, Helgi Geirmundsson, Erna Magnúsdóttir, Ásta Geirmundsdóttir, Kristófer Edilónsson, Baldur Geirmundsson, Karitas Pálsdóttir, Karl Geirmundsson, Rannveig Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. k
t Öllum, sem heiðruðu minningu móður okkar og tengdamóður, GUÐRÚNAR H. EINARSDÓTTUR, Blönduósi, og sýndu okkur samúð við andlát og útför hennar, færum við innilegar þakkir og kveðjur. Sérstakar þakkir til starfsfólks Héraðssjúkrahússins á Blönduósi fyrir umönnun og hlýhug. Zophonfas Zophonfasson, Greta Arelfusdóttir, Sigríður Zophonfasdóttir, Einar Þór Þorsteinsson, Kolbrún Zophonfasdóttir, Guðjón Ragnarsson og aðrir aðstandendur. í
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
HERMANNS JÓNSSONAR,
Smáratúni 20,
Selfossi,
áðurbónda,
Norðurhvammi, Mýrdal.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hjallatúns, Vík, starfsfólks Sjúkra-
húss Suðurlands, Selfossi, og Sveins Sigursveinssonar, Selfossi.
Guðný Bergrós Jónasdóttir,
Erla Eyþórsdóttir, Brynjólfur Ámundason,
Gísli Hermannsson, Hólmfríður Sigurðardóttir,
Sjöfn Hermannsdóttir, Egil Andenes,
Jónas Hermannsson, Droplaug Erlingsdóttir,
Hreiðar Hermannsson, Ágústa Jónsdóttir,
Svanhvít Hermannsdóttir, Almar Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug viö andlát og
útför
MAGNÚSAR BÖÐVARSSONAR
bónda,
Hrútsstöðum,
Dalasýslu.
Elfn Júlfana Guðlaugsdóttir,
Böðvar Bjarki Magnússon, Bergþóra Jónsdóttir,
Elfn Margrét Böðvarsdóttir.
t
Þakka auðsýnda samúð við andlát og
útför eiginkonu minnar,
RUTHAR DÓRU
GUÐMUNDSSON,
fœdd Bónavfde,
Njálsgötu 15a.
Guðbjartur Guðmundsson.
Njálsgötu 15a.
Lokað
verður frá kl. 12 á hádegi í dag vegna útfarar
RANNVEIGAR STEINGRÍMSDÓTTUR SAARI.
Trygging hf., Laugavegi 178.
Lokað
verður í dag, föstudag, frá kl. 10-12 vegna jarðar-
farar GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Litaver, Grensásvegi 18.