Morgunblaðið - 08.07.1994, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 33 >
ÓVÆNT ÚRSLIT í SKÁKINNI
ENN FELL KASPAROV
FYRIR KRAMNIK
SKAK
N c w Yo r k
ATSKÁKMÓT INTEL
OG PCA
EINA ferðina enn eyðilagði
18 ára gamli Rússinn Vladímir
Kramnik stórmót
fyrir Gary Kasp-
arov, heimsmeistara
atvinnumannasam-
bandsins PCA.
Hann sigraði Ka-
sparov í úrslitum á
öðru atskákmóti
PCA og tölvufyrir-
tækisins Intel sem
fram fór í New York
um mánaðamótin.
Tvívegis áður á
þessu ári hefur
Kramnik gert
heimsmeistaranum
slæman grikk. Vann
hann í Linares og
tryggði þar með Anatólí Karpov
sigur á því móti. Á fyrsta atskák-
móti PCA og Intel í Moskvu í
vor sló Kramnik Kasparov líka
út.
Það kom talsvert á óvart að
Kramnik sigraði í New York.
Hann hafði skömmu áður orðið
fyrir miklu áfalli þegar hann
tapaði illa í einvígi fyrir Banda-
ríkjamanninum Gata Kamsky.
Mótið í New York var útslátt-
armót og gekk þannig fyrir sig:
I. umferð:
ívantsjúk—Tivjakov 1V2—V2
Kortsnoj —V aiser 1 '/2—‘/2
Júdit Polgar— Short 2—0
Kramnik—Benjamin 2—0
Vyzmanavin—Nikolic 1—2
Adams—Malanjuk 2—0
Kasparov—Kamsky 2—0
Smirin—Anand 1—2
Fjórðungsúrslit:
ívantsjúk—Korchnoi IV2—*/z
Júdit Polgar—Kramnik 0—2
Nikolic—Adams IV2—IV2
(Nikolic hélt jafntefli með svörtu
í hraðskák og komst því áfram)
Anand—Kasparov V2—IV2
Undanúrslit:
ívantsjúk—Kramnik 1—2
Nikolie—Kasparov 0—2
Úrslit:
Kramnik—Kasparov IV2—V2
í fyrri úrslitaskákinni kom
1 Kasparov ungum andstæðingi
sínum út á hálan ís í byijuninni.
Hann fékk vinningsstöðu en
leyfði Kramnik að sleppa út í
peðsendatafl sem var jafntefli.
Hvítt: Gary Kasparov
Svart: Vladímir Kramnik
Slavnesk vörn
1. d4 - d5 2. c4 - c6 3. Rf3 -
Rf6 4. Rc3 - e6 5. Bg5 - dxc4
6. e4 - b5 7. e5 - h6 8. Bh4
- g5 9. Rxg5 — hxg5 10. Bxg5
- Rbd7 11. exf6 - Bb7 12. g3
- c5 13. d5 - Db6 14. Bg2 -
0-0-0 15. 0-0 - b4 16. Hbl!?
Venjulega er hér leikið 16.
Ra4 eins og Kamsky gerði gegn
Kramnik nokkrum dögum áður
og vann. Kasparov hefur marg-
sinnis leikið þeim leik, en hefur
nú grafið upp gamalt uppáhalds-
vopn þýska stórmeistarans
Uhlmanns.
16. - Da6 17. dxe6
- Bxg2 18. e7 -
Bxfl 19. Dd5! -
Bxe7
í skákinni Jer-
molinskí-ívantsjúk
í Pinsk 1986 lék
svartur 19. - Bh6
og náði jafntefli um
síðir.
20. fxe7 - Hdg8
21. Re4 - Hg6 22.
Hxfl - Dc6 23.
Dxc6+ — Hxc6 24.
Hdl - He8 25.
Rd6+ - Hxd6 26.
Hxd6 - f6 27. Bxf6
- Kc7 28. He6 -
Rxf6 29. Hxf6 - Hxe7 30. Kf 1
- He4
Nú átti Kasparov að leika 31.
Hf3 og það er ólíklegt að svartur
nái fullnægjandi mótspili gegn
samstæðu frípeðunum þremur.
Framhaldið gæti orðið 31. - a5
32. He3 - Hd4 33. h4 - a4 34.
Kel - a3 35. bxa3 - c3 36. He2
og hvítur ætti að vinna. í staðinn
fer PCA-heimsmeistarinn út í
peðsendatafl sem er dautt jafn-
tefli.
31. Hf4? - Hxf4 32. gxf4 -
Kd6 33. Ke2 - a5 34. a4 - c3
35. bxc3 - b3 og hér var samið
jafntefli. Eftir 35. - b3 36. Kd2
- c4 37. h4 - Ke6 38. h5 - Kf5
39. f3 - Kf6 kemst hvorugur
neitt áleiðis.
Þetta klúður virtist sitja í
Kasparov og hann náði sér ekki
á strik gegn fremur meinlausri
byijun Kramniks með hvítu í
annarri skákinni. Kasparov náði
aldrei að jafna taflið fyllilega og
var ávallt með mun verri tíma.
Slíkt kann ekki góðri lukku að
stýra í 25 mínútna skák og
Kramnik vann öruggan sigur.
Skák sem minnir nokkuð á hand-
bragð Bobby Fischers, þegar
hann var upp á sitt besta fyrir
aldarfjórðungi.
Hvítt: Vladímir Kramnik
Svart: Gary Kasparov
Sikileyjarvörn
1. e4 - c5 2. Rf3 - e6 3. c4 -
Rc6 4. d4 - cxd4 5. Rxd4 -
Rf6 6. Rc3 - Bb4 7. Rxc6 -
bxc6 8. Bd3 - e5 9. 0-0 - 0-0
10. Be3 - d6 11. Ra4 - d5 12.
exd5 - cxd5 13. a3 - Be7 14.
cxd5 - Rxd5 15. Bc5 - Rf6
16. Hel - Bxc5 17. Rxc5 -
Db6 18. Dc2 - He8 19. h3 -
a5 20. Hacl - Hb8 21. He2 -
h6 22. Bc4 - He7 23. Hd2 -
e4 24. Ra4 - Da7 25. Hd8+ -
Kh7 26. Ba2
Það mátti svara 26. Bxf7 með
26. - Bxh3!
26. - Bd7 27. Hxb8 - Dxb8
28. Rc5 - Bf5 29. Db3 - Dd6
30. De3 - Bg6
31. b4 - axb4 32. axb4
Frípeð hvíts á eftir að verða
Kasparov þungt í skauti. Léttir
menn hans njóta sín illa á kóngs-
vængnum og hann á ekkert
mótspil.
32. - Db8 33. Hbl - Ha7 34.
Bc4 - De5 35. Rd3 - Dc7 36.
Rf4 - Hb7 37. Bfl - Bf5 38.
b5 - g5 39. Re2 - Rd5 40.
Dd4 - e3 41. Hcl - exf2+ 42.
Dxf2 - De5 43. Hc5 - Be6 44.
Rd4 - Df4 45. Rxe6 - Dxf2+
46. Kxf2 - fxe6 47. Bc4 - Rc7
48. Ke3!
Kramnik fer sér að engu óðs-
lega og bætir stöðu kóngsins.
48. b6? dugði ekki því eftir 48.
- Ra8 49. Bd3+ - Bg7 50. Be4
bjargar svartur sér með 50. -
Hf7+..
48. - Kg7 49. Kd4 - Kf6 50.
g4! - Ke7
Kasparov er í leikþröng og
verður að gefa eftir.
51. Ke5 - Kd7 52. Kf6 - Hb6
53. Kg7 - Kd6 54. Hc6+ -
Hxc6 55. bxc6 - Kxc6 56.
Kxh6 - Kd6 57. Kxg5 - Ke7
58. Kg6 - Re8 59. h4 - Rd6
60. Bb3 - Rf7 61. g5 - Re5+
62. Kh6 - Rf3 63. Kh5
Síðasta von Kasparovs var 63.
h5?? - Rxg5 64. Kxg5 Kf7 og
svarti kóngurinn verður ekki
hrakinn úr horninu.
63. - Kf7 64. Kg4 - Re5+ 65.
Kf4 - Rg6+ 66. Kg3 - Re7
67. h5 - Rf5+ 68. Kf4 - Rd4
69. Bc4 - Rf5 70. Ke5 - Rg3
71. Bxe6+ - Kg7 72. Bg4 -
Rfl 73. h6+ - Kh7 74. Bf5+
og Kasparov gafst upp.
Margeir Pétursson
Vladímir Kramnik
Eitt blab
fyrir alla!
fRorgmildafrib
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
Bruðkaupsdagar
í Borgarkringlunni
BRÚÐKAUPSDAGAR Borgar- hefur stutt dyggilega við bakið á
kringlunnar eru nú haldnir í þriðja
sinn. Þeir hófust 14. maí sl. og lýk-
ur seinni hluta ágústmánaðar. í
dag, föstudaginn 8. júli, kl. 15.30
mun Magnús Oddsson, ferðamála-
stjóri, draga út fyrsta vinninginn í
Brúðkaupsdögum Borgarkringl-
unnar. Vinningurinn er þriggja
daga ferð um Snæfellsnesið, en
átakið ísland, sækjum það heim,
• •
Okumaður
gefi sig fram
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar
eftir að hafa tal af ökumanni rauðr-
ar Daihatsu bifreiðar, sem ekið var
utan í mann á Bústaðavegi gegnt
slökkvistöðinni, aðfaranótt laugar-
dagsins 18. júní sl.
Ökumaðurinn, ljóshærð kona
með gleraugu, ók á brott eftir
óhappið. Maðurinn reyndist lítillega
slasaður og er konan beðin um að
hafa samband við slysarannsóknar-
deild lögreglunnar.
------» » 4-----
■ SRI Chinmoy maraþonliðid
stendur fýrir 5 km hlaupi laugar-
daginn 9. júlí. Hlaupið hefst við
Hótel Loftleiðir kl. 14 og er hlaupið
um nágrenni flugvallarins. Keppt
er í fjórum aldursflokkum og fá
fyrstu þrír í hveijum flokki verð-
launapening. Eftir hlaupið verður
þátttakendum boðið upp á drykki
og ávexti. Þátttökugjald er 400 kr.
Skráning hefst kl. 12.30 við Hótel
Loftleiðir. Sri Chinmoy maraþonlið-
ið, sem eru alþjóðleg íþróttasamtök
er leggja áherslu á íþróttir og hug-
leiðslu til eflingar einstaklingnum,
stendur árlega fyrir um 500 götu-
hlaupum víðsvegar um heim. Þetta
er fyrsta keppnishlaupið sem mara-
þonliðið stendur fyrir hér á landi.
leiknum.
Öll brúðhjón eða aðstandendur
þeirra, sem versla í Hirti Nielsen,
Borði fyrir tvo, Blómum undir stig-
anum, Make up forever búðinni,
Demtanahúsinu, Whittard of Lond-
on eða Bláa fuglinum, gera brúð-
hjónin að þátttakendum í Brúð-
kaupsdögum Borgarkringlunnar.
Skáká
Ingólfstorgi
ALLA góðviðrisdaga í sumar
verður teflt á Ingólfstorgi.
Þannig var teflt nær alla daga
í júní og það sem af er júlí og
út ágúst a.m.k. Þegar næg þátt-
taka er verður slegið upp móti
og teflt til bókaverðlauna.
Annars er öllum heimilt að
koma þarna og tefla hvort sem
mót er eða ekki. Taflmennskan
er öllum að kostnaðarlausu.
Teflt er á 10 borðum þ.e.a.s.
20 manns geta teflt í einu. Að
þessari tafluppákomu standa
Iþrótta- og tómstundaráð og
Tímaritið Skák.
■ KÁNTRÝBÆR. Rokkhljóm-
sveitin Draumalandið leikur í
Kántrýbæ, Skagaströnd í kvöld,
föstudagskvöld frá kl. 23-3 og í
Munaðarnesi laugardagskvöld frá
kl. 23-3.
- kjarni málsins!
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram þriðji útdráttur húsbréfa í
4. flokki 1992.
Koma þessi bréf til innlausnar 15. seþtember 1994.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði og
í dagblaðinu Degi föstudaginn 8. júlí. Auk þess
liggja upplýsingar frammi í Húsnæðisstofnun
ríkisins, á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í
bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00