Morgunblaðið - 08.07.1994, Síða 35

Morgunblaðið - 08.07.1994, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ1994 35 BRÉF TIL BLAÐSINS Biblían úr- eldist aldrei OFBELDI er aðferð ómálga barns sem ekki getur tjáð sig með ( öðrum hætti um hvað því finnst að. Ofbeldi er aldrei réttlætanlegt Frá Einari Ingva Magnússyni: í STEFNUMÓTUN Guðspekifélags- ins segir eftirfarandi orðrétt: „Engin trúarbrögð eru sannleikanum æðri.“ Hvað skyldi felast í slíkri fullyrð- ingu? Er ekki hætta á því, að menn láti villast af vegi sannleikans og hafni þeirri leiðsögn sem Guð hefur látið mannkyni í té á síðum Heilagr- ar Ritningar? En þar segir að Guð sé sá sem ekki ljúgi og þar er haft eftir syni Guðs, Jesú Kristi: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið.“ Margt athyglisvert og fróðlegt hef ég lesið í ritum Guðspekifélagsins og fleiri ritum sem fjalla um andleg málefni og tel ég mig auðugri menn eftir þá lesningu á mælikvarða þeirri sem fremur leitast við að safna að sér fjársjóðum á himnum en í hverf- ulum og tímanlegum heimi. En nú orðið gætir þess verulega í málflutn- ingi manna sem iðka andlega leit, að hjálpræði Krists Jesú sé að engu gjört, Þó Biblían segi skírlega að „ekki sé hjálpræði í neinum öðrum, því að eigi sé heldur annað nafn undir himninum er menn kunna að nefna er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða." (Post. 4.12) Auðtrúa sálir Hópar fólks sem vilja fara nýjar leiðir og kenna sig við nýja tíma telja margir hveijir að kristindómurinn í sinni mynd sem hann er framkvæmd- ur í verki af kirkjunnar mönnum, sé löngu orðinn úreldur og hafi reyndar runnið sitt skeið á enda. Nýtt tíma- bil sé hafið. í þessu sambandi átti ég samtal við mann nýlega úr innsta hring sérs- taks leynireglufélags hér á landi, sem stundar sambönd við andlegar verur. Á ensku eru samskipti þessi við anda- heiminn betur þekkt undir nafninu: channeling. Eftir samtal mitt við þennan mann var mér verulega brugðið. Ekki þó vegna þess að mér væri sérlega ógnað. Heldur leiddi ég hugann að öllu því fólki sem lætur leiðast af þessum skoðunum og þess- um annarlegu og hættulegu öflum, sem sögðu m.a. þessum fyrrnefnda sannleiksleitandi manni, og einlæga, að Biblíunni væri ekki lengur treyst- andi, þar sem henni hefði verið svo mikið breytt í gegnum aldirnar. Þessu væru andamir að breyta. Þeir vildu meina að kirkjan sjálf sem stofnun væru andkristurinn sjálfur. Menn þekkja ekki boðskapinn ur einmitt að vera ástæðan fyrir þessum róttæka boðskap þessara andavera, sem eru þar með greini- lega á vegum Guðs. Hvers vegna skyldi fólk, sem býr á meðal „krist- inna“ manna í „kristnu" landi vera svo ginnkeypt fyrir þessum nýja boð- skap? Ástæðan er einföld. Menn þekkja ekki boðskap Heilagrar Ritn- ingar og hvað Guð hefur þar við mennina að segja. Kristur er meðalgangarinn á milli Guðs og manna, sjálfur Guðs son, sem varð hinn nýi sáttmáli á milli Guðs og mannkynsins. Um þetta ber Heilög Ritning vitni, og um það ef- ast enginn kristinn maður, sem þekk- ir fagnaðarerindið á síðum Biblíunn- ar. Óvinurinn nýtir sér mögleikana Kristnum mönnum sem þekkja Heilagt Guðs orð í gegnum Biblíuna, koma ekki á óvart þær raddir sem tala um hina nýju stefnu og úreld- ingu kristindómsins. Þeir þekkja hinn veraldlega stofnanabrag, sem er á kristinni kirkju, og vita að sjálfur óvinur Guðs notfærir sér þá bitru staðreynd að kirkjan sem stofnun hefur útþynnt kristindóminn hættu- lega mikið. En kristnir menn vita líka að hin nýja stefna er tákn hinna síðustu daga, þegar hjálpræði Krists er dregið í efa og sáluhjálp fyrir trú á nafn guðs sonar að engu gjörð. Það er ekki verk engla Guðs, manns- ins eða góðra anda, heldur andstæð- ings Guðs, sem hefur leitt mennina afvega allar götur síðan fyrstu for- eldrar mannkynsins létu blekkjast á tímum syndafallsins mikla í Edens- garði. Biblían segir berlega að „eins og allir deyja fyrir samfélag sitt við Adam, svo munu allir lífgaðir verða fyrir samfélag sitt við Krist.“ (1. Kor. 15:22.) Þessum orðum vilja andarnir ekki að fólk trúi, og frelsist þar með frá syndinni. Þegar engillinn birtist fjárhirðun- um á hinum fyrstu jólum, kom hann með eftirfarandi boðskap: „Yður er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottins." Hinn smurði var Jesús frá Nasaret, sonur Guðs, getinn af hei- lögum anda, og sonur Maríu, hinnar jarðnesku meyjar. Þeim orðum má mannkynið aldrei gleyma, því líf þess liggur við. Hið eilífa lífið í samfélagi við Guð almáttugan. EINARINGVI MAGNÚSSON, Heiðargerði 35, Reykjavík. Frá Dóru Stefánsdóttur: í MÖRGUM löndum Afríku þykir sjálfsagt að karlmenn berji konur sínar og bæði karlmenn og konur berji börn sín. Hefur þetta á Vestur- löndum þótt dæmi um hvað fólk hér í Afríku væri frumstætt. Hafa marg- ir orðað það svo að fólk á lágu menn- ingarstigi þekki ekki aðrar aðferðir en ofbeldi til að leysa vandamál sín. Nú hefur komið í ljós að íslending- ar eru um það bil á sama menningar- stigi. í könnun sem gerð hefur verið kemur í ljós að 40% karla og 27% kvenna telja það réttlætanlegt að karlmenn berji konur sínar þyki þeim (körlunum væntanlega) ástæða til. Tæplega helmingur karla og nærri þriðjungur kvenna á íslandi eru þannig þeirrar skoðunar að ofbeldi sé vænlegasta lausn ýmissa vanda- mála. Ég verð að játa að ég fékk áfall þegar ég sá þessar tölur. Ég taldi að íslendingar væru þjóð sem tryði á mátt orðsins fremur en hnefans til að leysa sín vandamál. Kannski hefði þetta ekki átt að koma mér á óvart. Þegar ég var heima í vetur sá ég brot af sjónvarpsviðtali Eiríks Jóns- sonar við ónafngreinda konu sem barin hafði verið sundur og saman af manni sínum. Eiríkúr gekk mjög hart fram í því að fá konuna til að játa að það hefði verið henni að kenna að hún var barin. I annarri af tveim sjónvarpsstöðvum landsins, á besta tíma kvöldsins, var fórnarlambinu þarna óbeint kennt um glæpinn. Konan reyndi eftir bestu getu að sannfæra Eirík og landslýð um að hún hefði ekki gert neitt rangt. Hún hefði hins vegar ekki átt að þurfa þess. Ofbeldi er aldrei, aldrei réttlætanlegt. Ofbeldi er aðferð ómálga barns sem ekki getur tjáð sig með öðrum hætti um hvað því finnst að. Öll ættum við að læra í æsku að stilla skap okkar og hemja tilfínningar. Takist það ekki er eitt- hvað stórlega að uppeldi okkar. Ofbeldi karla gagnvart konum er því alvarlegra sem meðalkarlmaður er mun sterkari en meðalkona. Til eru dæmi um konur sem barið hafa karlmenn, sína eða annarra, og eiga þau auðvitað ekki að hljóta blessun almennings. Ofbeldi karla gegn kon- um er hins vegar mun algengara og mun grófara. Oft fremja menn of- beldisverk sín í ölæði og skiptir þá engu máli hvað á undan er gengið. Konan er jafnvel rifín upp úr rúminu um miðja nótt til notkunar sem æf- ingarpúði í boxi. Þetta má ekki og á ekki að líðast í samfélagi sem hreykir sér af menningu sinni og fögrum listum. DÓRA STEFÁNSDÓTTIR, verkefnisstjóri ÞSSI, Grænhöfðaeyjum. Að kaupa köttinn í sekknum Frá Jóni K. Guðbergssyni: HELDUR virðist nú ætla að vænk- ast hugur þeirra sem stunda þá iðju að selja unglingum og öðru lítt þroskuðu fólki brugg. Fram- takssamir, þjóðhollir og frjálshuga dugnaðarmenn og barnavinir uppi í Borgarnesi ætla að fara að flytja ‘ inn áfengisgerðarefni í sekkjum og segjast hafa tilskilin leyfi. Vart þarf að efa að svo sé. Auðvitað dettur þeim í hlutaðeigandi ráðu- neytum ekki í hug annað en ís- lenskir bruggarar haldi sig við þann styrkleika bruggsins sem er innan löglegra marka. Og að sjálf- sögðu efast þeir ekki um að ef ölhitunarmenn frmaleiða nú alveg óvart of sterkan mjöð þá helli þeir honum niður hið skjótasta en láta sér ekki til hugar koma að selja hann börnum. Enda eru íslending- ar allra þjóða löghlýðnastir. Eða efast nokkur á þeim slóðum um heiðarleik og grandvarleika.- - sjoppugreifanna? Varla dettur þeim í hug að fara að höndla með pokabjór í trássi við lög og reglur. Einu sinni þótti það merki um afár sérstætt gáfnfar að kaupa köttinn í sekknum. Nú situr fólk þannig á sig komið í háum em- bættum og hamast við að kaupa slíka ketti. Og allt undir merkjum svokallaðrar fijálshyggju: Gróða- vonin í fyrsta sæti, heilsa og lífs- hamingja aftast á merinni. JÓN K. GUÐBERGSSON, Máshólum 6, Reykjavík. svefnpokapláss Víst er að kirkjan hefur í gegnum aldirnar misstigið sig á grýttri braut og orðið margt á. En mikil hætta stafar af slíkum boðskap, sérstaklega ef hann er borinn á borð fyrir óupp- lýst fólk í Biblíufræðum. En sú hlýt- Græðandi sólarvörur Biddu um Banana Boat SÓLIVIARGFALDARANN ef þú vilt verða dökksólbrún/n í sólléttu skýjaveöri. □ Græðandi Banana Boat varasalvi með eða án litar, steyptur úr Aloe Vera. Sólvörn #18 og #21. □ Um 40 mismunandi gerðir Banana Boat vatnsheldra (water proof) sólkrema og sólolía með sólvörn #0, #2, #4, #8, #15, #18, #21, #23, #25, #29, #30, #34 og #50. Verð frá kr. 295,-. □ Hárlýsandi Joe Soap Hair Care sjampó. □ Naturica Sólbrún-lnnan-Frá BK-hylki. □ 99,7% Aloe Vera gel frá Banana Boat, 40—60% ódýrara en önnur Aloe gel. 6 misstórar túpur og flöskur. Biddu um Banana Boat f öllum heilsubúðum utan Reykjavíkur, sólbaðsstofum, snyrtivöru- verslunum og apótekum. Banana Boat E-gel fæst líka hjá Samtökum psoriasis- og exem- sjúkllnga. Heilsuval, Barónsstíg 20, «626275. ALLTAF GÓÐUR MATUR ALLTAF GÓÐ KAUP SUÐURLANDSBRAUT 56

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.