Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 38

Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 38
'38 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Harry Connick Jr., á fullu skriði ► HARRY Connick, Jr., mun senda frá sér nýja geislaplötu sem nefnist „She“ um miðjan júlímánuð. í framhaldi af því ,mun hann leggja upp í tón- leikaferð um Bandaríkin. Harry Connick hefur öðlast miklar vinsældir þar í landi. Hann var aðeins átján ára gamall þegar hann gaf út sína fyrstu plötu. Síðan þá hefur ferill hans verið samfelld sig- urganga. Hann hefur hlaðið upp tíu gull- og silfurplötum, þremur grammy-verðlaunum, einum Emmy-verðlaunum og tvisvar hlotið Óskarsverðlaun- atilnefningu fyrir bestu kvik- myndalögin við kvikmyndirnar Guðfaðirinn III og Svefnlaus í Seattle. Harry Connick, Jr., hefur ^jafnvel þreifað fyrir sér á leik- listarbrautinni með góðum árangri. Hann fór með hlut- verk í Memphis Belle, Litla manninum Tate og síðast en ekki síst í einum sjónvarps- þætti Staupasteins. Draumurinn rættist SVAVA Aldís Ólafsdóttir útskrifaðist 13. júní sem tískuhönnuður frá Margarethe-Skolen í Kaup- mannahöfn. Hana hefur lengi langað til þess að reyna fyrir sér á þessu sviði og lét núna loksins drauminn rætast. Hún náði mjög góðum árangri í lokaverkefni sínu sem var að hanna fimm flík- ur. Þær voru sýndar á þremur sýningum, þ.á m. fyrir Benediktu krónprinsessu sem er vemdari skólans. Brúðar- kjóll hennar vakti sérstaka at- hygli en hann var úr gulllituðu Thai-silki með fallegum höfuð- búnaði og mun birtast í sept- emberblaði „Brides“ sem sér- hæfír sig í brúðarfatnaði. FOLK Tonya Harding í lífs- tíðarbann SKAUTADROTTNINGIN fyrrver- andi Tonya Harding þarf ekki að hafa áhyggjur af því hvort hún kom- ist í ólympíulið Bandaríkjanna fyrir næstu Ólympíuleika og að þessu sinni getur hún engar ráðstafanir gert til að sleppa fyrir hom. í síð- ustu viku fékk hún nefnilega að vita úrskurð bandaríska skautasam- bandsins þar sem hún var dæmd í lífstíðarkeppnisbann. Það er ekkert ýkja spennandi sem tekur við hjá Harding á næstunni. Hún mun leika í þriðja flokks bandarískri kvikmynd og sitja fyrir hjá tímaritinu „Esqu- ire“ í gullnum kjól við hliðina á vöra- bíl. Sögusagnir hafa verið á kreiki um að hún hafí boðist til að sitja nakin fyrir hjá Playboy vegna bágr- ar fjárhagsstöðu sinnar. Þá er bara spuming hvort tímaritið getur tekið boði hennar, sið- ferðisins vegna. Freddie Mercury enn í sviðs- SKAUTADROTTNINGIN verður að snúa sér að einhveiju öðru í framtíðinni. ljósinu BÓK UM rokkstjömuna Freddie Mercury kemur út í október og fjallar um síðustu ár hans og baráttuna við eyðni. Hún er skrifuð af elsk- huga hans, Jim Hutton, sem kallar Mercury „eiginmann sinn“ í bókinni. Ný plata með hljómsveitinni Queen kemur út í sumar og hefur vinnutitilinn „Penultima- te“. Á henni verða bæði ný og endurútgefín lög sem Mercury var að vinna að skömmu fyrir andlát sitt. ROBIN GIVENS varð fræg á sínum tíma fyrir hjóna- band sitt við hnefaleikarann Mick Tyson og vakti skilnaður þeirra mikla athygli. Hún sagðist hafa sætt barsmíðum frá hon- um meðan á því stóð. Robin Givens er þreytt á kynbombuhluverkinu ROBIN Givens segist hafa fengið nóg af því að leika kynbomb- ur eftir kvikmyndimar Reiði í Harlem og „Boomerang". Hún hefur alfarið hafnað hlutverkum af því tagi upp á síðkastið og leikur öðruvísi hlutverk í næstu kvikmyndum sínum, „Blankman" og „Foreign Student". Þrátt fyrir velgengni er hún ekkert gagntekin af frama sínum í Hollywood. Hún segist vera 29 ára gömul og uppgefín eftir annríki síðastliðinna fímm ára. Hún sé búin að koma sér vel fyrir í Suður-Karólínu og sé sátt við líf sitt eins og það er. „Ég reyni að lifa eins friðsælu lífí og ég get. Mér er alveg sama þó ég missi af slúð- ursögunum um Tom Amold og öllu því kjaft- ,... „ ■' æði.“ Wayne og Garth báðu okkur að koma eftirfarandi skilaboðum á framfæri. Vegna bilunar í Waynesþýðingarforritinu er textinn einungis á frummálinu. Björk: „Strangely-manickered icelandic babe in toy- land. I'm sorry she's just not human. She's either an alien or an animatronic puppet created by Jim Henson's Creature Workshop, No Guffi Garth says he'd like to Bjork her." Stone Roses lögsækja fyrrver- andi framkvæmdastjóra sinn ► HUÓMSVEITIN Stone Roses mun taka sér smáhvíld frá hljóð- færaleik til að höfða mál fyrir dómstólum á hendur fyrrverandi framkvæmdastjóra sínum, Gar- eth Evans. Hann leiðbeindi þeim fram yfir útgáfu á „Campaign", sem var fyrsta hljómplata þeirra. Það er líklega ráðlegast að fara að leggja fyrir því í lögsókninni felst rúmlega 212 milljóna ísl. króna skaðabótakrafa. Cameron Diaz stigin fram á sjónarsviðið FYRIRSÆTAN Cameron Diaz leik- ur aðalhlutverkið á móti Jim Carrey í nýrri kvikmynd sem nefnist Grí- man (The Mask). Það er frumraun hennar á hvíta tjaldinu en hún er metnaðarfull og staðráðinn í að komast þegar að því hvort hún get- ur leikið eða ekki. Hún segist þó ekki hafa áttað sig á umfangi kvikmyndarinnar í fyrstu: „Ég hafði enga hugmynd um ábyrgðina sem hvíldi á herðum mínum. Tökur höfðu staðið yfir í mánuð þegar ég spurði: „Þetta er dálítið stór kvikmynd, er það ekki?“ Svarið var jákvætt." Cameron segist vera ánægð með fyrirsætustarfið, en það sé fyrir henni eins og hvert annað starf: „Það gerir mér kleift að greiða reikningana".

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.