Morgunblaðið - 08.07.1994, Side 44
Jíewri£d
-setur brag á sérhvern dag!
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Svarið við
stallahring
Ný lóð fyrir hæstaréttarhús
Borgin skipar
viðræðunefnd
Jörmundur Ingi Hansen alls-
•-“tierjargoði sór embættiseið sinn
við stallahring í Öxarárhólma á
Þingvöllum í gærkvöldi, þórs-
daginn í 12. viku sumars. Að
athöfn lokinni hélt þingheimur
til blótveislu í Hótel Valhöll. Þar
var kveðið undir borðum og
glímumenn reyndu krafta sína
í fangbrögðum að fornum hætti
en það var upphafið að lands-
keppni í fangbrögðum sem fara
mun fram í miðborg Reykjavík-
ur alla laugardaga í sumar.
BORGARSTJÓRINN í Reykjavík,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur
skrifað dóms- og kirkjumálaráðu-
neytinu bréf og tilkynnt að skipuð
hafi verið nefnd til þess að ræða
við ráðuneytið um að fundin verði
ný lóð fyrir fyrirhugað dómhús
Hæstaréttar.
í nefndinni eru Sigrún Magnús-
dóttir og Guðrún Jónsdóttir frá
R-lista og Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son frá D-lista.
í kjölfar bréf§ dómsmálaráðu-
neytisins frá í febrúar, þar sem
boðið var upp á viðræður um breyt-
ingu á staðarvali dómhússins, ákvað
borgarráð að skipa viðræðunefnd,
en fyrrverandi meirihluti í borgar-
stjórn skipaði ekki nefndina fyrir
kosningar.
Blóðrautt
sólariag
Þannig sjá Sunnlendingar
sólina blóðrauða hvert
kvöld á meðan góðviðrið
varir. Astæðan er mengun-
arloft sem hingað hefur
borist frá austanverðri
Evrópu og liggur yfir land-
inu sem mistur yfir daginn.
Þetta er fíngert ryk sem
brýtur sólarljósið þannig
að sólin sýnist blóðrauð.
Sjúkraflug með lifrarþega
Morgunblaðið/Golli
Aðgerð í Gauta-
borg vel heppnuð
FYRSTA sjúkraflug utan Reykja-
víkur með lifrarþega var farið á
mánudagskvöld frá Akureyri, þegar
flogið var með unga konu til Gauta-
borgar. Nick Cariglia, sérfræðingur
í lyf- og meltingarfæralækningum
við Fjórðungssjúkrahús Akureyrar,
segir að þetta sé þriðja aðgerð sinn-
ar tegundar á íslendingi frá því að
samningar tókust milli Norður-
landaþjóðanna um líffæraskipti.
„Á mánudag var okkur tilkynnt
að til væri líffæri fyrir aðgerðina,
og við vorum svo heppnir að hérna
er þota frá Flugfélagi Norðurlands
sem gat flutt líffæraþegann til
Gautaborgar án fyrirvara og þrátt
fyrir mikla þoku,“ segir Nick.
Lifraskiptin fóru fram snemma á
Halli á borgarsjóði
yfir 2 milljarðar
Endurskoðun Sigurðar Stefánssonar hf.
falið að gera úttekt á stöðu borgarinnar
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, segir að útlit
sé fyrir að halli á borgarsjóði Reykjavíkur á þessu ári verði 2,2 millj-
arðar króna, en fjárhagsáætlun ársins var lokað með 859 milljóna
króna halla. Ársreikningar borgarsjóðs fyrir árið 1993 voru samþykkt-
ir á borgarstjórnarfundi í gær. Halli á rekstri borgarsjóðs á árinu
varð 2,7 milljarðar. Ákveðið hefur verið að fela Endurskoðun Sigurðar
Stefánssonar hf. að gera úttekt á fjárhagsstöðu borgarinnar.
Borgarstjóm samþykkti fyrr á
þessu ári aukafjárveitingar að upp-
hæð 754 milljónir. Sú ákvörðun að
hætta við að breyta SVR í hlutafé-
lag þýðir að sala eigna skilar um
300 milljónum minna en gert var
ráð fyrir. Endurgreiðslur úr At-
vinnuleysistryggingarsjóði skila lík-
lega 200 milljónum minna í borgar-
sjóð en gert var ráð fyrir og af-
greiða þarf aukafjárveitingu vegna
vegagerðar og fjárhagsaðstoðar upp
á 130 milljónir. Samtals gerir þetta
um 2,2 milljarða halla.
Meira tekið að láni
Til að brúa þetta bil hafa verið
tekin tvö lán. Ánnað var tekið hjá
Norræna fjárfestingarbankanum að
upphæð um 600 milljónir. Þá gaf
borgin nýlega út skuldabréf fyrir
430 milljónir. Ingibjörg Sólrún segir
fyrirsjáanlegt að borgin þurfi að
taka meira að láni síðar á árinu.
Ingibjörg Sólrún segir að þó að
vissulega sé fjárhagsstaða borgar-
innar sterk samanborið við önnur
minni og veikari sveitarfélög verði
ekki horft framhjá því að staða
borgarsjóðs hafi versnað mikið á
síðustu árum. Hún sagði að á síð-
asta ári hefðu skuldir borgarinnar
aukist um 2,5 milljarða. og næmu
nú 10,6 milljörðum. Hún sagði að
yfirdráttur á hlaupareikningi borg-
arsjóðs hefði um áramót numið 1,3
milljörðum og skuld borgarsjóðs við
borgarfyrirtækii um 1,5 milljörðum.
Ami Sigfússon, fyrrverandi borg-
arstjóri, sagði að því yrði ekki mót-
mælt að staða borgarsjóðs væri
sterk samanborið við nágranna-
sveitarfélögin. Hann sagði að tekjur
borgarinnar hefðu dregist saman á
síðustu árum og borgin hefði þurft
að auka útgjöld sín vegna atvinnu-
leysis í borginni. Árni sagði að aðal-
atriðið væri hvað núverandi meiri-
hluti borgarstjórnar ætlaði að gera,
hvort hann ætlaði að hækka skatta
eðá skera niður útgjöld. Ingibjörg
Sólrún benti á móti á að þessari
sömu spurningu gæti Árni ekki
komist hjá að svara, ekki síst þar
sem flokkur hans bæri ábyrgð á
erfiðri stöðu borgarsjóðs.
Skattar eða samdráttur?
Á borgarstjórnarfundi í gær var
ársreikningur fyrir árið 1993 sam-
þykktur. Við afgreiðsluna létu full-
trúar Reykjavíkurlistans bóka að
þeir lýstu fullri ábyrgð á fjármála-
stjórn borgarinnar á árinu 1993 á
hendur þáverandi meirihluta. Full-
trúar Sjálfstæðisflokksins bókuðu á
móti að fjárhags- og eignastaða
Reykjavíkur væri afar sterk. Með
efasemdum Reykjavíkurlistans um
hið gagnstæða væri augljóslega ver-
ið að boða breytingar sem hljóti að
miðast að auknum sköttum eða
.verulegum samdrætti í rekstri.
þriðjudagsmorgun. Nick segir að
eins og mál standi nú sé líðan líf-
færaþegans góð, og aðgerðin virðist
hafa tekist að óskum. Hins vegar
taki nú við erfið meðferð ásamt
aðlögun h'kamans að líffærinu, og
því sé um töluverða óvissu að ræða
í þessu sambandi. Nick segir að lifr-
arþeginn hafi verið í mikilli þörf
fyrir líffærið, og hefði ekki átt
langra lífdaga auðið án þess.
Velheppnuð aðgerð
„Ég er mjög ánægður með að-
gerðina, miðað við þær fregnir sem
ég hef fengið frá Gautaborg, og tel
læknana þar hafa staðið sig afar
vel. Aðgerð sem þessi sýnir að ís-
land er ekki svo fjarri öðrum lönd-
um, og þeir samningar sem við
höfum við nágrannaþjóðir eru mjög
góðir, því um dýrar aðgerðir er að
ræða sem fólk víða annars staðar
í heiminum ætti erfitt með að borga
og þar af leiðandi að komast í,“
segir Nick.
Hann kveðst telja að aðgerðum
af þessum toga fari fjölgandi, ekki
síst þar sem þær hafi þróast mjög
á undanförnum árum og því verði
ótvírætt um framhald þeirra að
ræða. Nú þegar bíði nokkrir íslend-
ingar eftir lifur erlendis frá.
------------» ♦ ♦-------
Silfrið frá Miðhúsum
Efast um
gildi síðustu
rannsóknar
„VARLEGT er að treysta á fullyrð-
ingar um að silfursjóðurinn frá
Miðhúsum sé falsaður fyrr en frek-
ari rannsóknir hafa verið gerðar af
fleiri fræðimönnum en til þessa
hafa tjáð sig,“ segir Adolf Friðriks-
son, fornleifafræðingur. Adolf segir
ómögulegt að meta gildi efnagrein-
ingar á silfrinu þar sem skýrslum
þar að lútandi hafi verið haldið
leyndum. Sú staðreynd sé einkenni-
leg að einungis hafi verið leitað til
eins fræðimanns, Bretans James
Graham-Campbells, eftir umsögn
um sjóðinn og rýri það einnig gildi
greinargerðar hans, þar sem sjónar-
mið annarra sérfræðinga séu ekki
til samanburðar.
■ Ekki næg ástæða/22
Smálax
lélegri í
sumar
Vopnafirði. Morgunblaðið
STARFSMENN á vegum Veiði-
málastofnunar eru þessa dagana
við seiðamerkingar í Vest-
urdalsá í N-Múlasýslu. Miklar
sveiflur hafa verið í stofnstærð
laxins á undanfömum árum og
þá einkum í þessum landshluta.
Hófust rannsóknimar árið 1989
og hefur árlega verið fylgst með
þremur ám í landinu síðan; Vest-
urdalsá, Núpsá í Miðfirði og
Elliðaám.
Orsök sveiflnanna
könnuð
Verið er að kanna hvort or-
sök sveiflnanna sé að leita í
ám eða sjó. „Rannsóknir okkar
leiða í ljós að orsakanna er
fremur að leita til þess sem er
að gerast í sjónum en í ánum.
Við höfum einnig fundið tengsl
milli sjávarhita og sveiflunnar,"
sögðu fiskifræðingarnir Þórólf-
ur Antonsson og Sigurður Guð-
jónsson.
Laxateljari er í Vesturdalsá
sem sýndi að 70 laxar voru
gengnir í ána og rúmlega 400
silungar sl. miðvikudag.