Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ _________________________________FRÉTTIR______________> Framkvæmdastj óri hjá Bátafólki gangrýnir ummæli slj órnarmanna SVFÍ Unnið að reglum um fljóta- siglingar í atvinnuskyni „UMMÆLI forseta SVFÍ og stjórnarmanns félagsins í RÚV í fyrradag um að nauðsyn sé á regl- um varðandi bátasiglingar á ám sýna þekkingarleysi á málinu og að þeir hafi ekki fylgst með þróun- inni undarfarin ár,“ segir Björn Gíslason hjá Bátafólki sem skipu- lagt hefur bátaferðir um íslenskar ár í um sjö ár. „í vor leituðum við að eigin frumkvæði til Slysavarnarfélags- ins í Biskupstungum og óskuðum eftir samvinnu um gerð björgunar- og neyðaráætlunar um þær sigl- ingar sem eru á Hvítá, en ekki hefur orðið af því. Ég tel sjálfur að setja þurfi reglur um atvinnu- starfsemi á þessu sviði, og að slíkri reglusetningu er verið að vinna. En það verða ekki settar reglur um siglingar í íþróttaskyni, þar fara menn eigin leiðir og munu gera það áfram. Fólki er frjáls aðgangur að siglingum um ár og vötn að eigin geðþótta, lögum samkvæmt," segir Björn. Viðurkenndur búnaður Björn segir að á síð- ustu tíu árum hafi siglingar á straum- vötnum verið stundað- ar hérlendis af mikl- um krafti. Nú sé lík- lega búið að fara með þúsundir manna niður Hvítá, áfallalaust, og í samanburði við slysatíðni í mörgum öðrum íþróttum, komi siglingar mjög hagstætt út. „Við höfum haft frumkvæði að því að leita til samgönguráðu- neytisins og embættismanna ríks- ins hjá Siglingamálastofnun, og höfum átt samvinnu við þá. Ekki hefur verið talin brýn þörf á að setja reglur, því að íþróttin hefur gengið mjög vel hérlendis og raunar betur en víðast hvar annars staðar. Það eru ekki til reglur um þann búnað sem : við notum, en sjálfir höfum við eingöngu leitast við að nota bún- að sem er viðurkennd- ur af öðrum þjóðum eða viðurkennda flot- galla og annað slíkt, sem íslensk yfírvöld hafa viðurkennt," seg- ir Bjöm. Hann segir að Sigl- ingamálastofnun eða aðrir aðilar, s.s. lögreglan, hafi ekki óskað eft- ir þeim búnaði sem notaður var í ferðinni á föstudag, til rannsókn- ar. Búnaðurinn hafi samt sem áður verið sendur þangað til rannsókn- ar. „Við seljum ekki ferðir á þær slóðir sem eru óöruggar, bjóðum upp á öruggustu flotgalla og björg- unarvesti sem eru á markaðinum, og í öryggisskyni sækja leiðsögu- menn okkar námskeið á Borgar- spítala í sérhæfðri skyndihjálp. Hins vegar hefur hópur manna ferðast um landið seinustu tvö ár og stundað fljótasiglingar sem íþrótt og lent í ýmsu, en vegna góðs undirbúnings hefur hann aldrei orðið fýrir óhappi. Á föstu- dag voru allir í bátnum nema Berg- ur þjálfaðir í að synda niður flúð- ir, halda bát, klifra upp á hann á hvolfi og á annan hátt að bregðast við aðstæðum sem þessum. Bergi hafði ekki verið kennt og í því lágu mistök okkar hjá Bátafólki sem við höfum þegar viðurkennt. Að bát hvolfi er hins vegar ekki óhapp, heldur eðlilegur þáttur ferðarinnar sem við getum alltaf reiknað með og búum okkur í samræmi við það.“ Björn Gíslason Myndbandaleigur óttast ekki samkeppni úr nýrri átt Markaðssókn sölu- myndbanda er hafin í NÁGRANNALÖNDUM íslands hefur myndbandamarkaðurinn smátt og smátt verið að færast frá útleigu á myndböndum yfir í aukna sölu á þeim. Aðilar á myndbanda- markaðnum á íslandi, sem Morgunblaðið ræddi við, eiga ekki von á því að þessi þróun muni eiga sér stað í miklum mæli á íslandi. Nokkrar líkur eru þó á að á mynd- bandamarkaðnum fyrir bömin geti þessi þróun átt sér stað samanber góða sölu um jólin á nokkrum Golfvöllur GOLFVÖLLUR Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar norðan við Vífilsstaði verður stækkaður úr 9 holum í 18 og er nýlokið við að sá í nýju brautirnar. Að sögn Hákons Sigurðssonar fram- kvæmdastjóra golfklúbbsins hóf- ust framkvæmdir við nýju braut- myndböndum með bamaefni. Sam- bíóin hyggjast á næstunni auka sölu á myndböndum í hljómplötu- verslunum og matvörubúðum. Það er mat Ásgeirs Þormóðsson- ar í myndbandaleigunni Ríkinu að söluverð á myndböndum sé of hátt til að geta veitt leigunum mikla samkeppni. í Bretlandi t.d. þar sem þróunin í átt frá leigumyndböndum yfir í sölumyndbönd hefur verið mjög ör segir hann að myndböndin séu seld á tæpar þúsund ísl. kr. stækkaður irnar síðastliðið haust, en þær verða tilbúnar til notkunar vorið 1996. Þá sagði hann fyrirhugað að gera 9 holu völl til viðbótar í landi Leirdals sem liggur að svæði golfklúbbsins og auk þess verða gerðar í sumar 6 stuttar brautir. og allt niður í þijú til Ijögur hundr- uð þegar þær eldast. Hér á landi sé verðið hins vegar í kringum 2.000 kr. „Þó var selt mjög vel af Fríðu og dýrinu en þar erum við Iíka að tala um einstakt listaverk. Það sem ætti kannski einhveija framtíð fyrir sér er barnaefnið því krakkarnir sem koma inn á jeiguna hjá mér vilja helst alltaf fá sömu myndina,“ sagði hann. HM dregur ekki úr leigu Ásgeir hefur orðið var við aukn- ingu í ieigu hjá sér og telur að leigumarkaðurinn sé að færast yfir á færri hendur, frá litlu leigunum til stóru leiganna, sem hafi aðrar forsendur í rekstri og geti boðið upp á meira úrval mynda. Engin róttæk breyting muni þó eiga sér stað á markaðnum fyrr en farið verði að senda myndir beint heim til fólks í gegnum ljósleiðara. Myndbandaleigumar muni hins vegar án efa aðlaga sig að því. Sú þróun sé þegar byijuð erlendis og muni koma hingað upp úr alda- mótum. Bæði Ásgeir og Gestur Snorra- son rekstrarstjóri hjá myndbanda- leigunni Vídeóheimum eru sam- mála um að heimsmeistarmótið í knattspyrnu hafi ekki dregið úr eftirspurn eftir myndbandsspólum. „Ég held að leigan hafi aldrei ver- ið betri heldur en nákvæmlega meðan á þessu stendur vegna þess að þótt við fótboltaunnendurnir séum mjög margir þá eru hinir líka mjög margir og sennilega ekki færri,“ sagði Ásgeir. Sprengja í sölu um jólin Sambíóin hyggja á aukna mark- aðssókn við sölu myndbánda að sögn Valtýs E. Valtýssonar, sölu- stjóra sölumyndbanda Sambíóanna. „Við ætlum með sölumyndbönd og höfum verið með þau í matvöru- verslunum og hljómplötuverslun- Markaðshlutdeild leigðra myndbanda af heildar- myndbandamarkaði í nokkrum ríkjum 1989-1992 % 100 80 ~ IM Mnrannr Svlþjóð 60 . Finnland \ Dánmörk 20 0 19 N. "■*— Italla Frakkland 89 1990 1991 1992 um. Myndbandaleigur hafa haft efasemdir um þetta en sumar þeirra hafa verið að taka við sér og tekið þessu vel,“ sagði hann. Aðspurður telur Valtýr að sölumyndbönd muni auka markaðshlutdeild sína á næstu árum. „Um síðustu jól varð töluverð sprengja á þessum mark- aði a.m.k. fyrir bömin. Bamamark- aðurinn virðist vera opinn, opnari en hefðbundni kvikmyndamarkað- urinn,“ sagði hann. „Þróunin virðist vera sú sama alls staðar í heiminum að sölumyndbandið sækir mikið á. Dæmi um það sem er að gerast er að farið er að selja stóm myndimar á sama tíma og þær koma á leigu- .markaðinn. Erlendis virðast sölu- myndböndin ekki vera að taka frá leigunum heldur er þetta aukapen- ingur fyrir leigur, sem selja einnig myndir," sagði hann og bætti við að á tímabilinu september til nóv- ember muni koma út um 15 mynd- bönd frá Sambíóunum, bæði bama- myndir og leiknar kvikmyna! * Salan er að hefjast Gestur Snorrason í Vídeóheim- um telur að sala á myndböndum sé að byija en ekki sé mikið um hana eins og er. „Ég gæti trúað á því að vídeóleigur byijuðu á því að selja. Það gæti svo færst út í plötubúðir og matvöruverslanir. Maður sér kannski ekki alveg þró- unina fyrir,“ sagði hann. Hann sagði litla hreyfingu hafa verið á leigumarkaðnum a.m.k. undanfar- in tvö ár en bætti við að ef útgáf- urnar færu að koma með sölu- myndbönd í auknum mæli sæi hann ekkert því til fyrirstöðu að setja upp eina hilluröð með þeim. ATVR tekur fljótlega debetkort ÁFENGIS-og tóbaksverslun ríksins og Visa ísland skrifa í dag undir samning um mót- töku debetkorta í verslunum ÁTVR. Einar S. Einarsson, framkvæmdastjóri Visa Is- land, segir að með samningn- um sé stigið stórt skref í þá átt að ÁTVR taki til við að nota „plastkort“ að fullu. Einar segir samninginn fela í sér að verslanir ÁTVR verði ekki í háum áhættu- flokki, auk þess sem viðskipti fyrirtækjanna verði efld og þjónusta við sameiginlega við- skiptavini bætt. Hann kveðst telja það eingöngu spurningu um tíma hvenær ÁTVR fari að taka kreditkort, en það sé hins vegar háð lagabreýtingu. Bruni í Norðurárdal ÍBÚÐARHÚSIÐ á Háreks- stöðum í Norðurárdal skemmdist í eldi í gærmorg- un. Ekki er búið á jörðinni og húsið, sem er notað sem sumarhús, var mannlaust. Reyk sást leggja frá húsinu í gærmorgun og var lögreglu og slökkviliði gert vart um eldinn um klukan 10. í ljós kom að eldur hafði kviknað í herbergi á rishæð hússins en hann hafði kulnað vegna súrefnisskorts. Rjúfa varð þekjuna við slökkvistarfið og urðu talsverðar skemmdir innanstokks af völdum reyks, sóts, vatns og hita. Eldsupptök eru ókunn en rafmagn var á húsinu. Slys við Borgarnes ÞRÍR menn slösuðust í hörðum árekstri um 2 km norðan við Borgames, skammt frá gatna- mótunum að Ólafsvíkurvegi um hádegi í gær. Slysið er rakið til framúr- aksturs en bíll í framúrakstri . rakst á annan sem kom á móti. Þrír menn vom fluttir á sjúkrahúsið á Akranesi til að- hlynningar en samkvæmt upp- lýsingum lögreglu vom meiðsli þeirra ekki talin hættuleg. Fimm tilboð í fyllingu vegskála FIMM tilboð bárust Vegagerð ríkisins í fyllingu að vegskála við Djúpveg. Lægst bauð Kristinn Þ. Siguijónsson, rúmar 2,4 millj. eða 71,6% af kostnaðaráætlun. Aðrir sem buðu voru Fyll- ing hf., sem bauð 85,4% af kostnaðaráætlun, Græðir sf., bauð 142,2% af kostnaðar- áætlun, Jón og Magnús hf., buðu 143,6% af kostnaðar- áætlun og Vélaverk hf. bauð 259,2% af kostnaðaráætlun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.