Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 7 FRÉTTIR Gylfi Þ. Gíslason um hátíðarhöld vegna lýðveldisafmælis í Noregi Afmælishátíð með glæsibrag Dr. Gylfi Þ. Gíslason GÖMLU Hansahúsin við höfnina i Björgvin. ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Björgvin í Noregi fagnaði hálfrar aldar afmæli lýðveldisins íslands þann 4. og 5. júní síðastliðinn með veglegum hætti. Gylfi Þ. Gíslason fyrrverandi ráðherra, sem flutti hátíðarræðu af þessu tilefni, segir að ekki verði annað sagt en að lýðveldisafmælisins hafí verið minnst með glæsibrag í Björgvin og ekki síður í Ósló þann 10. júní og á þjóðhátíðar- daginn, 17. júní. Gylfi Þ. Gíslason telur að Bergen, eða Björgvin eins og hún er nefnd í fombókmenntum, standi í nánustum tengslum við sameiginlega sögu íslendinga og Norðmanna. „Þegar á Sturl- ungaöld höfðu Björgvinjarkaupmenn mikil við- skipti við ísland. Veturinn 1237-38 var Snorri Sturluson í Björgvin í boði Skúla jarls, en þá deildi hann mjög við Hákon konung Hákonarson um yfírráð í Noregi. Hákon hafði látið reisa Hákonarhöll í Björgvin, sem er ein elsta og fræg- asta bygging Norðmanna. Hugsanlega hafa þeir Snorri, Hákon konungur og Skúli jarl oft setið þar saman, en einmitt í þessari höll var aðalhá- tíðin vegna afmælisins haldin,“ segir Gylfí. Öflugt og fjölmennt félag íslendingafélagið í Bergen er mjög fjölmennt og öflugt að mati Gylfa, en formaður þess er Hrafnhildur Jóhannesdóttir Aarhus. Gylfi segir skýringu þess að íslendingafélaginu tókst að halda hátíðina með sérstökum glæsibrag fólgna í því að í Bergen eigi íslendingar tvo mjög áhrifamikla og merka vini. Það séu rektor Há- skólans í Bergen, Ole Didrik Lærum og fylkis- maðurinn í Hörðafylki, Hákon Randal. „Ole Didrik Lærum er læknir og víðfrægur krabbameinssérfræðingur." segir Gylfi. „Hann er uppalinn á Vesturlandinu í Noregi og veitti þvi ungur athygli að mállýskan þar er nauðalík íslensku. Hann kynntist tveimur íslendingum í menntaskóla og lærði fljótt með sjálfum sér ís- lensku. Nú er svo komið að hann talar hana og skrifar lýtalaust. Hákon Randal var stjórnmála- maður og forseti Stórþingsins. Hann kom hingað til lands árið 1974 í tilefni af 1100 ára afmæli íslandsbyggðar og hefur verið formaður stjórnar Norræna hússins. Þessir tveir menn eru sannir Islandsvinir og leggja sig alla fram við að efla tengsl íslendinga og Norðmanna," segir Gylfí. Tveggja daga hátíðarhöld Hátíðarhöld stóðu yfír í tvo daga í Björgvin. Fyrri daginn voru fluttir fyrirlestrar í sagnfræði- stofnuninni um fornbókmenntir og þýðingu þeirra fyrir nútímann. Síðari daginn hófst hátíðin með íslenskri guðsþjónustu í Maríukirkjunni, en í henni messaði Skírnir Garðarsson prestur í Þránd- heimi. Að lokinni messu flutti rektor Björgvinjar- háskólans ræðu við styttu Snorra Sturlusonar, sem stendur við kirkjuna. Þaðan var haldið í skrúðgöngu undir lúðrablæstri í Hákonarhöllina, þar sem aðalhá- tíðin fór fram. Tónlist skipaði veg- legan sess í dagskránni, en Islend- ingar búsettir i Björgvin sáu um öll skemmtiatriði. „Það má einnig geta þess,“ segir Gylfí, „að um þetta leyti var Magnús Stefánsson sagnfræðing- ur skipaður prófessor við sagn- fræðideild Björgvinjarháskóla. Kona hans, sem er norsk, var ennfremur um sama leyti sæmd norskum verðlaunum fyrir skerf sinn að eflingu menningartengsla íslands og Noregs. Hún hefur þýtt margar bækur yfír á norsku, t.d. bækur Guðrúnar Helgadóttur alþingiskonu,“ segir Gylfí. Vegleg hátíð í Ósló Að sögn Gylfa var lýðveldisafmælisins einnig minnst veglega í Ósló. Þann 10. júní hafí t.a.m. verið haldin ráðstefna í Akershus um menningar- tengsl íslands og Noregs. Í upphafí þessarar ráðstefnu flutti Gylfi erindi um sögulegar for- sendur fyrir sameiginlegri menningararfleifð ís- lendinga og Norðmanna. Þar héldu einnig ræður ýmsir embættismenn þjóðanna, m.a. mennta- málaráðherrarnir Ólafur G. Einarsson og Áse Kleveland. „Á þjóðhátíðardaginn fóru íslendingar og ís- landsvinir í fjölmenna skrúðgöngu eftir aðalgötu Óslóar, Karl Johann. Meðal helstu menningarvið- burða þann dag má nefna að þeir Matthías Jo- hannessen og Knut Ddegárd lásu ljóð eftir Matt- hías sem Knut hefur þýtt og Cappelen-forlagið gefið út. Þetta var merkur skerfur til allra þess- ara hátíðarhalda og frétti ég síðar að upplestur- inn hafi vakið mikla athygli. Þegar á allt er lit- ið var afmælis lýðveldisins minnst með miklum glæsibrag í Noregi,“ sagði Gylfi. Akureyri Myvatn 3 «0 :0 ííT -M o \ y COMBhCAMP LÁGMÚLA 7 SÍMI 814077 >' £ OQ 0• Qx c m OQ TJALDAÐ Á 15 SEKÚNDUM Vaglaskógur - Siglufjörður Kynningardagar í Habitat: hÚS£Ö Q- LAUGAVEGI 13 - SIIVll (91) 625870 OPIÐ VIRKA DAGA 10.00 - 18.00 OG LAUGARDAGA 10.00 - 14.00 KISTUR Hentugar geymslur fyrir fatnað, rúmteppi, sængurverasett o.fl. ÖLL HELSTU GREIÐSLUKJÖR: E HABITAT í 30 ÁR Á ALÞJÓÐAVETTVANGI 1964 - 1994 • ÍSLAND • ENGLAND • FRAKKLAND • SPÁNN • HOLLAND • SINGAPORE • MARTINIQUE • BELGIA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.