Morgunblaðið - 13.07.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 9
FRÉTTIR
Kaflaskipt
veiði
VEIÐI er nokkuð kaflaskipt eftir
landshlutum þessa dagana. Alls
staðar gengur á stórlaxaforðann,
en smálax hefur ekki alls staðar
skilað sér til að halda veiðinni við.
Eru ýmsir farnir að hreyfa því, að
þau landsvæði sem verst urðu úti
í kuldunum síðasta vor og sumar
séu hin sömu og smálaxinn sýnir
sig nú lítið á enn sem komið er,
þ.e.a.s. Norðaustur- og Norðurland-
ið, og Vesturland ofan í Dali. Sunn-
anvert Snæfellsnes, Borgarfjörður,
Suðvesturhornið og Suðurlandið
hafa hins vegar komið betur út.
Enn er þó ekki útséð um að þetta
verði raunin þegar upp er staðið.
Mjög líflegt í Ytri-Rangá
Þetta er mjög skemmtilegt þessa
dagana og það eru að veiðast 15
til 20 laxar á dag, mest vænn smá-
lax, 5-6 pund, en alltaf reytingur
af boltafiski í bland,“ sagði Þröstur
Elliðason leigutaki Ytri-Rangár í
samtali við Morgunblaðið. Stærsti
laxinn til þessa vóg 18 pund, en
hann veiddi Björn K. Rúnarsson
leiðsögumaður við ána á silfraðan
Tóbí í Ólastreng. Milli 160 og 170
laxar hafa veiðst í Rangánum, flest-
ir i Ytri-Rangá.
Brennan sterk
„Við gerðum góða ferð, vorum í
mesta hitanum og vatnsleysinu, en
Björn K. Rúnarsson með 18
punda laxinn og þrjá smærri.
fengum samt sjö laxa, allt að 16
punda og meðalvigt rétt undir 10
pundum. Þeir sem voru á eftir okk-
ur fengu einnig sjö fiska og þá
voru komnir milli 60 og 70 laxar á
land. Miðað við það sem gengur
hér og gerist þá er þetta mjög góð
útkoma og það er mikill fiskur á
staðnum, bæði að ganga í gegn
fram í Þverá og staðbundinn fiskur
sem er lagstur,“ sagði Dagur Garð-
arsson sem var að koma af Brenn-
unni. Þar fellur Þverá í Hvítá og
er veitt með tveimur stöngum.
Veiðibækur í vasann
Útgáfufélag sem kallar sig
„Bröndótti kisi“ hefur nýverið sent
á markaðinn handhægar veiðibæk-
ur sem smella léttilega í vasa veiði-
manna. Um tvenns konar bækur
er að ræða, annars vegar „Stanga-
veiðin mín“ og hins vegar „Skot-
veiðin mín“. í nöfnum þeirra felst
því hvaða rit hentar hverjum. í
bækur þessar geta stanga- og skot-
veiðimenn skráð heildarveiði sína
frá degi til dags, frá ári til árs auk
þess að geta fyllt inn alls konar
upplýsingar sem vert er að geta
flett upp síðar meir, annaðhvort til
almennrar upprifjunar eða til þess
að nýta sér við veiðar síðar. Nefna
má veðurfarslýsingar, agn sem not-
að var, veiðarfæri, aðstæður, tíma-
tökur og margt fleira. Bækur þess-
ar eru fáanlegar I flestum veiðibúð-
um og á bensínstöðvum Olís og
Skeljungs.
Besta fluga í heimi
Norður-Atlantshafslaxasjóðnr-
inn, sem Orri Vigfússon stofnaði
og veitir forstöðu, stefnir nú á að
birta „einstæða samantekt", eins
og Orri orðar það, í nóvember á
þessu ári. „Þetta er samantekt sem
við köllum „Besta fluga í heirni"
og nær yfir þær flugur sem veiði-
menn tína til sem eftirlætisflugur
sínar. Við erum þessa dagana að
leita til stangaveiðimanna hér á
landi og beggja vegna Atlantsála
og spurningin er einföld: Hver er
eftirlætisflugan þín? Þá spyijum við
hverjir kostir umræddrar flugu eru
og hvort við megum hafa eftir
mönnum orð þeirra um einstakar
flugur. Síðan viljum við að menn
sendi okkur pistil með svörum við
þessum spurningum auk nafns,
heimilisfangs, póstnúmers og síma.
Sendi okkur þetta í símbréfi í 91-
884758 eða til NASF-Salmon 2.000
Skipholti 35 105 Reykjavík í pósti
sem allra fyrst,“ bætti Orri við.
Sagðist hann jafnframt reikna með
því að eyðublöðum yrði dreift í veiði-
hús hér og hvar um landið. „Von-
andi svara okkur sem flestir,“ sagði
Orri.
★ nCROPRINT
TIME RECQRDER CO.
Stimpilklukkur fyrir
nútíð og framtíð
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ■ 105 Reykjavik
Simar 624631 / 624699
Bílamarkadurinn
Smiðjuvegi 46E |
v/Reykjanesbraut.
Kopavogi, simi
671800 ^
Isuzu Rodeo LS V6 '91, grænsans,
sjálfsk., ek. 65 þ., sóllúga, rafm. í öllu,
álflegur, útvarp + geislasp. Vandaður
jeppi. V. 2450 þús. Góð lán.
Til sölu
þessi glæsilegi lúxusjeppi
Skipuleggtm
eigin
fjármál
Þegar þú hefur reglulegan sparnað
með áskrift að spariskírteinum
ríkissjóðs færðu handhæga
áskriftarmöppu undir gögn um
sparnað fjölskyldunnar.
Mappan inniheldur einnig
eyðublöð fyrir greiðsluáætlun og
heimilisbókhald og með þeim getur
þú skipulagt fjármál heimilisins
enn betur en áður.
Hringdu í Þjónustumiðstöð
ríkisverðbréfa, pantaðu áskrift að
spariskírteinum ríkissjóðs og
fáðu senda möppuna
Sparnað heimilisins - Áskrift að
spariskírteinum ríkissjóðs.
Nú getur þú skipulagt fjármál
heimilisins - og sparað um leið.
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ
RÍKISYERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6, sími 91-626040