Morgunblaðið - 13.07.1994, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994
AKUREYRI
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Mecklenburgrer Hochseefischerei
Akvarðana um rekstur
að vænta um mánaðamót
STJÓRN Útgerðarfélags Akur-
eyringa vinnur að því að kanna
hvort og þá hverjir möguleikar
verða á að halda áfram aðild að
þýska útgerðarfyrirtækinu Meckl-
enburger Hochseefischerei og
rekstri þess. Stefnt er að því að
ákvarðanir í þessum málum verði
teknar um komandi mánaðamót.
Erlingur Sigurðarson, stjórnar-
maður í Útgerðarfélagi Akur-
eyringa, sagði að frá því að aðal-
fundi hefði verið frestað 21. júní
hefði verið unnið að því að kanna
alla möguleika á því að breyta og
iagfæra rekstarumhverfi þýska
Mikið verk og tíma-
frekt og flókið starf
er framundan
fyrirtækisins og áfram yrði unnið
að þeim málum fram til loka þessa
mánaðar. Hann sagði að
ákvarðanir yrðu teknar að þessum
athugunum loknum, um komandi
mánaðamót. Þá yrði ákveðið hvort
Útgerðarfélag Akureyringa héldi
rekstrinum áfram, og þá með
hveiju móti, ellegar horfið frá
þessari starfsemi.
Erlingur kvað þetta mikið verk
og tímafrekt og hvernig sem mál-
in þróuðust væri flókið starf fram-
undan. Ef sá kostur yrði til dæm-
is tekinn að slíta starfseminni yrði
ekki stokkið frá á svipstundu, slíkt
tæki töluverðan tíma. Hins vegar
væri enn alls ekki ákveðið að Út-
gerðarfélag Akureyringa hætti
rekstri Mecklenburger Hochseef-
ischerei. Það væri undir því komið
hvort breyta mætti rekstrinum og
haga honum á hagkvæmari hátt.
Rekstrarforsendur væru á hinn
bóginn ekki fyrir hendi eins og
mál hefðu gengið hingað til.
mmw ' 11
1
1 Jgkv
Morgunblaðið/Björn Gíslason
MORGUNSTEMMNINGIN í gær á Ijaldstæðinu á Akureyri.
Líflegt á tjaldstæðum
í sumarblíðunni
Listasumar ’94
Gítartónleikar í kvöld
Á gítartónleikum Gítarhátíðar
á Akureyri og Listasumars ’94
í Akureyrarkirkju klukkan
20.30 í kvöld leika Einar Krist-
ján Einarsson
á gítar og
Martial Nard- £
au á flautu,
íjölbreytta
dagskrá tónverka.
Myndlist á Listasumri ’94
Á Listasumri ’94 standa
yfir allmargar myndlistarsýn-
ingar. Sýnt er í Listasafninu
á Akureyri, Deiglunni, Mynd-
listaskólanum og vinnustofu-
ganginum í Samlagshúsinu.
Þá er og sýning í Glugganum
í göngugötunni, en þessa viku
sýnir þar Birgir Snæbjöm
Birgisson myndlistarmaður.
Slysalaus
umferð
ÞUNG umferð hefur verið í ná-
grenni Akureyrar síðustu daga.
Lögreglan segir þetta talsverða
breytingu frá því sem verið hafi.
Svo sé að sjá sem að ferða-
mannastraumur til bæjarins hafi
tekið kipp. Þrátt fyrir mikla
umferð hefur allt gegnið
óhappalaust fyrir sig. Lögreglan
á Húsavík sagði hins vegar að
umferð í þeirra lögsagnarum-
dæmi væri frekar róleg og með
öllu óhappalaus.
MIKIL aðsókn hefur verið að
tjaldstæðum á Akureyri og við
Húsabrekku, handan við Pollinn,
frá því veður batnaði um mán-
aðamótin. Tjaldverðir telja sig
ekki verða teljandi vara við að
ferðalöngum hafi fjölgað vegna
átaksins „ísland, sækjum það
heim“, hins vegar séu íslenskir
Ijaldgestir ævinlega margir þeg-
ar vel viðri.
Á tjaldstæðinu á Akureyri var
Iíflegt um að litast í gærmorgun,
börn að leik, fólk í makindum
að njóta morgunverðar í glaða-
sólskini og hlýju. Sumir voru á
leið í sund, en Ijaldstæðið stendur
við Sundlaug Akureyrar, aðrir
að þvo framan úr sér stírurnar
eða að þvo þvott sinn í tjaldmið-
stöðinni við Þórunnarstræti.
Allt fór í gang um
mánaðamótin
Samkvæmt upplýsingum tjald-
varðar á Akureyri hófst sum-
arösin þar um mánaðamótin júní-
júlí, en þá batnaði veður til muna,
varð hlýtt og sólríkt eftir dum-
bunginn í júní. Mikil öitröð var
á tjaldstæðinu þegar knatt-
spyrnumót ungra og aldinna
polla voru hjá báðum knatt-
spyrnufélögunum. Talið var að
þá hefðu tjaldgestir verið um 600
þegar flestir voru. Síðan hefur
aðsókn verið ágæt og aðfaranótt
þriðjudags voru gestir nokkuð á
fjórða hundrað.
Að Húsabrekku kvað við svip-
aðan tón. Þar hófst umferð tjald-
gesta verulega með góðu veðri
um mánaðamót. Að sögn tjald-
varðar eru gestir þar flestir fjöl-
skyldufólk sem kýs að njóta
kyrrðar og fagurs umhverfis.
Islendingar ferðast eftir veðri
Samkvæmt upplýsingum 1jald-
varða á Akureyri og í Húsa-
brekku eru Ijaldgestir flestir ís-
lendingar þegar vel viðrar og
þeir telja fjölda íslenskra ferða-
manna þessar vikurnar álíka
mikinn og vænta mátti veðurs
vegna. Ekki sé sýnileg nein fjölg-
un sem rekja mætti til ferða-
átaksins „ísland, sækjum það
heim“. Á Akureyri var tjaldvörð-
um fjölgað úr fjórum í fimm
vegna þess að búist var við að
átaksins yrði verulega vart, en
sú virðist ekki raunin, að minnsta
kosti ekki enn.
Á Akureyri dvelja erlendir
tjaldferðalangar jafnan 1-2 næt-
ur í senn en að sögn tjaldvarðar
er algengast að Islendingar komi
og segist ætla að vera eina nótt
til að byrja með og sjá svo til.
Það fari þó í aukana — ef veður
gefi tilefni til — að þeir standi
við í 3-4 nætur og jafnvel leng-
ur. Hins vegar séu þeir oftast
snarir í snúningum að pakka
saman og fara ef veður versnar.
Að Húsabrekku er að sögn
tjaldvarðar algengast að Islend-
ingar stansi í 2 nætur en margir
dvelji þó lengur. Áberandi sé að
fólk hópist að þegar veðurspáin
sé góð.
Morgunblaðið/Bjöm Bjömsson
FRÁ ATHÖFN í Sauðárkrókskirkjugarði er aska Stefáns ís-
landi var jarðsungin.
Stefán Islandi jarð-
settur á Sauðárkróki
Sauðárkróki - Fáir íslendingar
hafa hlaðið sér jafn óbrotgjarnan
minnisvarða með list sinni, jafnt hér
heima sem erlendis, og skagfirski
óperusöngvarinn Stefán Islandi, sem
lést í Reykjavík 1. janúar á þessu ári.
Sl. laugardag fór fram í Sauðár-
krókskirkju stutt kveðja og minning-
arathöfn um Stefán Islandi, en nán-
ustu ástvinir hans komu þá með ösku
hins ástsæla söngvara, sem jarð-
sungin var að athöfn lokinni í Sauð-
árkrókskirkjugarði að ósk hins látna.
Karlakórinn Heimir ásamt ein-
söngvurum og Kirkjukór Sauðár-
króks sungu við athöfnina, þar sem
sr. Hjálmar Jónsson prófastur flutti
bæn, en í kirkjugarði söng Karlakór-
inn Heimir og Guðbrandur Guð-
brandsson lék á trompet lagið Mín
heimabyggð eftir Eyþór Stefánsson,
tónskáld og frænda Stefáns, en það
lag hafði Stefán íslandi óskað eftir
að yrði leikið yfir moldum sínum.
Áð athöfn lokinni sátu gestir kaff-
isamsæti í Félagsheimilinu Bifröst í
boði Héraðsnefndar Skagaijarðar.
Búnaðarbankinn á
Sauðárkróki 30 ára
Sauðárkróki -
Mikill íjöldi við-
skiptavina Búnað-
arbankans á
Sauðárkróki lagði
leið sína í bank-
ann föstudaginn
1. júlí en þann dag
voru 30 ár liðin
síðan útibú var
opnað á staðnum
og þáðu menn
góðar veitingar í
boði bankans.
Það var 1. júlí 1964 sem Búnaðar-
bankinn yfirtók rekstur Sparisjóðs
Sauðárkróks sem þá var eina pen-
ingastofnunin á Sauðárkróki, stofn-
aður 1886, og opnaði útibú sem nú
er orðið hið stærsta og öflugasta í
iandinu.
Ragnar Pálsson sem verið hafði
sparisjóðsstjóri varð fyrsti útibús-
stjóri Búnaðarbankans og gegndi því
starfi til þess er hann lést árið 1987,
en þá tók við starfinu núverandi úti-
bústsstjóri, Gestur Þorsteinsson.
Gestur sagði að þetta væri
ánægjulegur dagur, ekki síst vegna
þess hve margir og góðir viðskipta-
vinir bankans sæju sér fært að líta
inn og þiggja veitingar, enda hefði
samstarf Skagfírðinga og Búnaðar-
bankans frá upphafi verið með mikl-
um ágætum, svo sem best sæist á
því að þetta útibú væri orðið hið
stærsta á landinu með innistæðufé
um 2.4 milljarðar.
Það setti einnig svip á daginn að
skólahljómsveit frá Kongsberg í Nor-
egi sem er vinabær Sauðárkróks og
er í heimsókn um þessar mundir,
marseraði um götur bæjarins, lék
nokkur lög við hús afmælisbarnsins
í tilefni dagsins og sat síðan ijóma-
tertuveislu í boði bankans.
Gestur Þor-
steinsson, úti-
bússtíóri.
Morgunblaðið/Árni Helgason
Viltu signa grásleppu?
ÞESSI hópur var að ganga í hús í Stykkishólmi og bjóða signa grá-
sleppu. Ágóðinn af sölunni fer í ferðasjóð nemenda Tónlistarskólans
í Stykkishólmi en þeir og foreldrar þeirra eru á leið til vinabæjar
Stykkishólms í Kolding í Danmörku. Það er yfir 100 manna hópur
sem fer Iiéðan og því dugar ekkert annað er dugnaður í fjársöfnun.
Foreldrar barnanna tóku að sér að skera og hengja upp gráslepp-
una en nemendur sáu um söluna. Sölumönnum var vel tekið og birgð-
ir fóru fljótt og vel.