Morgunblaðið - 13.07.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 17
FERÐLÖG
Morgunblaðið/Golli
FRAMMI í stafni. Sigurður R. Þórðarson markaðstjóri, Siguijón
Siguijónsson skipstjóri, Gunnar Þorbjarnarson, Ágúst Geirsson
vélstjóri, Jón Steinar Árnason skipstjóri.
Togara breytt 1
fljótandi hótel
NYTT íslenskt skemmtiferðaskip
var kynnt í síðustu viku. Skipið heit-
ir Leifur Eiríksson og er 360 tonn
og 33 metra langt. Skipið er upphaf-
lega smíðað sem togari 1980 en
breytt 1984 í björgunar- og aðstoð-
arskip fyrir olíuborpalla í Norðursjó.
Nú eru aftur breytingar á skipinu,
það á að verða fljótandi hótel fyrir
ferðamenn og hugmyndir um að
bjóða upp á nokkurra daga siglingu
um náttúruperlur landsins eins og
Hornstrandir og aðra staði sem erf-
itt er að komast að nema af sjó.
Gistirými er fyrir um 25 manns í
2ja til 4ra manna klefum. Á dags-
siglingum geta verið allt að 200
manns. Sigurður R. Þórðarson
markaðsstjóri Leifs Eiríkssonar hf.
sem rekur skipið, segir að erlendir
ferðaheildsalar hafi mikinn áhuga á
valkosti sem þessum og hvatt þá
mikið til þess að gera þessa hug-
mynd að veruleika.
Ymsar áætlanir eru um nýtingu
skipsins þess á milli sem farið verð-
ur í strandsiglingar um landið. Má
nefna hvalaskoðunarferðir, veiði,-
og ævintýraferðir til Grænlands og
í tilfallandi aðstoðar og dráttarverk-
efni, í björgunarstörf og til olíu-
mengunarvarna.
Við opnun skipsins var siglt um
sundin. Málverkasýning eftir Gunn-
ar Inga Guðjónsson var undir þiljum
í myndarlegum sal. Það stendur til
að auka við og bæta gistirými í vet-
ur. Sigurður R. Þórðarson segir að
markaðssetja þurfí skipið með góð-
um fyrirvara og erlendir ferðaheild-
salar verði fyrst að vita að skipið
sé tilbúið áður en þeir selji ferðir
með því. Gestir geta brugðið sér í
land í göngutúra og komið um borð
og fengið sér að borða og slappað
af. Þetta hafi vantað í íslenska ferða-
þjónustu og gifurlegur áhugi sé er-
lendis á slíkum ævintýraferðum.
Vigurferðir daglega
ísafjörður - VIGUR í ísafjarðar-
djúpi verður sífellt vinsælli áfanga-
staður ferðamanna. Farþegabátur-
inn Eyjalín fer daglega frá ísafirði
í Vigur, þar sem beðið er á meðan
eyjan er skoðuð og kaffi drukkið
hjá heimafólki í Viktoríuhúsi.
Nú er æðarkollan að mestu búin
að unga út og komin til sjávar, en
þá verður frjálslegra fyrir ferða-
menn að ganga um eyjuna og
skoða þá fuglaparadís sem þar er.
Krían myndar orustuflugsveitir
yfir höfðum ferðamanna, en pró-
fasturinn grefur sig inn í hóla og
börð og teistan kúrir í steinhleðsl-
um við bæinn. Síðbúin æðar kolla
kúrir á eggjum sínum við gömlu
vindmylluna sem áður fyrrum var
notuð til kommölunar.
í eyjunni búa nú bræðurnir
Björn og Salvar Baldurssynir
ásamt eiginkonu Salvars og börn-
um þeirra. Þá eru hjá þeim foreldr-
ar bræðranna Sigríður Salvars-
dóttir og Baldur Bjarnason. Bænd-
urnir eru fjórða kynslóðin sem eyj-
una byggja, en langafi þeirra, séra
Sigurður Stefánsson, flutti þangað
fyrir rúmum hundrað árum.
Viktoríuhús var reist nokkru
áður, eða um 1860 af Sumarliða
Sumarliðasyni gullsmið, sem eins-
konar ástatjátning til unnustu
hans, Mörtu Ragnheiðar Kristjáns-
dóttur heimasætu í Vigur. Fyrir
fáum árum ákváðu Vigurbændur
og húsfriðunarnefnd að taka hönd-
um saman um endurbyggingu hús-
ins og er henni nú lokið og hefur
tekist til með miklum ágætum.
í vörinni neðan við húsin í Vigur
er Vigurbreiður í nausti. Báturinn
er nú að verða 200 ára, en er enn
notaður vor og haust til að flytja
fé til sumarhaga í landi. Upphaf-
lega var þessi áttæringur notaður
til hákarlaveiða frá Ströndum.
Þegar Vesturferðir hófu dagleg-
ar siglingar í eyjuna fyrir fjórum
árum var marga daga farið með
tvo eða þijá farþega. Nú er aukn-
ingin slík að oft er fullt í ferðirn-
ar, en báturinn tekur 22 farþega.
Jafnframt hefur aukist mjög þátt-
taka í ferðum í Jökulfirði, en þang-
að er farið nokkrum sinnum í viku,
auk þess sem farið er með fólk í
Aðalvík að morgni og svo sótt að
Hesteyri í Jökulfjörðum að kvöldi.
Morgunblaðið/Úlfar Ágústsson
Eyjalín á siglingu í ísafjarðardjúpi en hún fer daglega í Vigur og víða um Hornstrandir. Um borð
er ávallt staðarkunnugur leiðsögumaður sem lýsir staðháttum og mannlífi við Djúp.
Morgunblaðið Jón Örn Bergsson
FAGURT og heilsusamlegt að hjóla í Skorradal.
Fjallahjólamót í Skorradal
FJALLAHJÓLAMÓT verður
haldið við Skátafell í Skorradal
um næstu helgi og hefst dagskrá
kl. 20 á föstudagskvöld með við-
gerðarnámskeiði. Isl. fjallahjóla-
klúbburinn stendur að mótinu
með skátafélagi Akraness. Magn-
ús Bergsson form. klúbbsins seg-
ir að þetta sé í fyrsta sinn sem
slíkt mót er haldið. Að loknu
námskeiði í viðgerðum verður
hjóluð kvöldferð á föstudags-
kvöld, en árla á laugardagsmorg-
un hefst skátafélagakeppni. Eftir
hádegi er margs konar hjólreiða-
keppni. „Allir sem áhuga hafa
geta tekið þátt í mótinu, enda
er helsta markmiðið að boða
fagnaðaraerindi hjólreiðamenn-
ingar. Velja má um misjanflega
langar hjólreiðaferðir, keppnir,
leiki og námskeið. Við ljúkum
öllum ferðum með því að gróður-
seija trjáplöntur í landareign
skátanna." Námskeið eru m.a. I
skyndihjálp og ferðamennsku á
hjólum. Magnús gerir ráð fyrir
að þátttakendur nýti sér siglingu
Akaraborgar til Akranes og hjóli
50 km vegalengd að mótsstað.
- ódýr gisting
um allt land
|fj| Orlando. 19. sept. - 2. okt.
Vikusigling meö viökomu á
St. Marteen, St. John. St. Thomas og
Bahama. Gist í Orlando á hinum
glæsilegu Summerfield Suites. 4 nætur
fyrir og 1 eftir siglingu.
Fararstjóri er Guörún Sigurgeirsdóttir.
Verö frá
Norður-Ítalíu
Mflanó - Gardavatn - Verona - Lignano -
Feneyjar eru aðaláfangastaðir þessarar
perluferðar. Hún sameinar menningu,
fagurt landsiag og dvöi á heillandi
baðströnd.
Fararstjóri er Svavar Lárusson sem ieitt
hefur ferðir um þessar slóðir um árabil.
Verðfrá kr. 97.930.-*
m.v. gístingu í tvíbýli.
Ein vinsæiasta serferö Urvals-Utsýnar
undanfarin ár. Einstakir tófrar
Svartaskógar auk Lúxemborgar. Trier,
Freiborgar og vinsmökkunar! Elsass
héraöinu.
Fararstjóri er Lilja Hílmarsdottir.
Verð aöeins fra
m.v. gistingu í tvibýti
M- úrval Otsýh
trygging fyrir gæðum
Lágmúla 4, sími 699300,
í Haftiarfirði, sími 652366, i Kejlavtk, sími 11353,
á Akureyri, stmi 25050, á Selfossi, sími 21666
- og bjá umboðsmönnum um land allt.
* Verð með föstum aukagjöldum og 5% greiðsluafslætti ef greitt er 4 vikum fyrir brottför.