Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 13.07.1994, Qupperneq 30
30 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska Smáfólk BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Örfá atriði til umhugsunar Frá Árna Helgasyni: LÍFIÐ er mikils virði og við getum aldrei þakkað fyrir eins og ber að fá að njóta þess. Öll viljum við gott mannlíf, en þá kemur þessi stóra spuming: Hvað viljum við láta af mörkum til að bæta lífið, þótt ekki væri nema í kringum okkur. Við viljum alltaf meira og meira af heimsins gæðum, en hvað vinnum við til að þau verði okkur til hei|la og blessunar. Við syngjum líka: Ég vil elska mitt land. En þá kemur líka sú spuming hvað við gemm til þess að vinna landi og þjóð gagn og blessun. Spyrnum við fótum Eyðileggjum ekki og setjum bletti á þjóðlífið með því hvemig við högum okkur. Aldrei hafa verið fleiri löggæslumenn starfandi í þjóðfélaginu til að hafa hemil á hin- um illu hvötum fólks. Og fjölgar þeim ekki óhugnanlega sem eyði- leggja bæði fyrir sjálfum sér og öðmm, með notkun eiturefna í alls- konar mynd? Sú staðreynd fer ekki framhjá okkur að svo sem við sáum svo uppskemm við. Höfum við ekki séð margt glæsilegt líf verða áfenginu að bráð og um leið áfengismeð- ferðarstofnunum fjölgað svo að segja ár frá ári. Og em ekki veit- ingastaðir og allskonar búllur að opna víðsvegar um landið og nýta sér veikleika meðbræðra sinna til að græða sjálfir þá peninga sem mölur og ryð fá grandað og oft hefí ég leitt hugann að því hversu menn geta þar lagst lágt og hafa hinir sömu nokkra samvisku af því þótt þeir séu þátttakendur í því að leggja snöruna og eyðileggja vax- andi líf? Áfengisútsala á Stykkishólmi Og nú á að opna hér áfengis- útsölu í Stykkishólmi. Færa eitrið nær ungdómnum og þeim sem em veikir fyrir. Og ferðaþjónustan heimtar alltaf meira og meira brennivín. Fordrykk áður en matast er á hótelum? Og ennþá em gróða- sjónarmiðin við hún og það er ótrú- legt hveijir verða fyrir barðinu á þeim. Drottinn segir mönnum að varast áfenga drykki sem aðeins leiði til spillingar að neyta. Þessu kalli hlýða alltaf færri og færri. Og þó menmn viti það sem speking- ar aldanna hafa bent á: í upphafí skyldi endinn skoða, er því enginn gaumur gefínn. Ég tók snemma þá ákvörðun að treysta Drottni og forðast það sem hann segir að leiði til spillingar. Spillingin eitrar út frá sér. Og hið illa er sterkt í lífínu. Daglega heyrum við í fjölmiðlum sagt af allskonar slysum og óhöpp- um, innbrotum, ránum, misþyrm- ingum og öðm slíku. Það er svo komið að þjóðfélagið afsakar ölvun við akstur með því að sá sem stýri viti ekki hvað hann gerir og em ekki viðurlög við ölvunarakstri það lítil að menn muni ekkert um að greiða þau? Og nú fækkar þeim óðum sem vinna að bindindismálum og betra mannlífí. Afengi inn á hvert heimili er kjörorðið í dag? Er ekki kominn tími til að fara að hugleiða í alvöru á hvaða leið, and- lega talað, þjóðfélag vort sé á í dag? ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Gagnrýnin og Tómas R. Frá Guðjóni Guðmundssyni: TÓMAS R. Einarsson bassaleik- ari var ósáttur við umsögn mína um tónleika hans, Eins konar hrúgald, á Listahátíð í lok júní- mánaðar. Viðbrögð Tómasar birt- ast svo í persónuníði og skítkasti í grein sem hann hefur skrifað í töluverðri geðshræringu og birt var í Morgunblaðinu 6. júlí sl. Tómasi er mikið niðri fyrir og telur mig hafa unnið jasstónlist- inni mikið ógagn með skrifum mínum, sakar mig um þekking- arskort en gefur mér þó þann plús að ég sé áhugasamur um listgreinina. Hann biðlar óbeint til ritstjóra blaðsins að taka mig af launaskrá vegna óverðskuld- aðrar gagnrýni sem hann varð fyrir í fyrrnefndri umsögn. Tómas hefur samið ágæta jass- tónlist og einkum bar samstarf hans við bandaríska básúnuleik- arann Frank Lacy ríkulegan ávöxt. Á tónleikum Tómasar á Listahátíð kvað við annan tón sem mér geðjast ekki alls kostar að og það fer í taugarnar á Tóm- asi. Hann fellur í þann fúla pytt að veitast að þeim sem segir skoðun sína með persónulegar svívirðingar að vopni. Tómas er svo hógvær að setja á prent fyrir óupplýstan almenn- ing skilgreiningu á gagnrýni og segir hana þurfa að byggja á áhuga [þess sem hana ritar] og þekkingu. Þrennt nefnir Tómas ekki sem mér finnst óaðskiljan- legur þáttur í umfjöllun af þessu tagi og það er hlustun, sæmilegur skammtur af tilfínningu fyrir við- fangsefninu og síðast en ekki síst þor til að segja meiningu sína í litla kunningjaþjóðfélaginu ís- landi. Flestir gagnrýnendur hafa löngum siglt lygnan sjó og varast stórar fullyrðingar. Ekki man ég til þess að nokkur hafí sagt það á prenti, ég þar með talinn, sem þó blasir óneitanlega við, að Tóm- as er ekki mikill bassaleikari þótt hann hafí ástundað listgrein sína af mikilli elju í hátt í tuttugu ár. Það er alltaf jafn neyðarlegt að verða vitni að því þegar Tómas biðst undan því að leika sóló með erlendum gestum sem hingað koma. GUÐJÓN GUÐMUNDSSON,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.