Morgunblaðið - 13.07.1994, Page 40

Morgunblaðið - 13.07.1994, Page 40
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚLÍ1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Morgunblaðið/Golli UPPSETNING límtrésbitanna tókst vel, en hún er mikið nákvæmnisverk. Hér sést Þorgrímur Guðmundsson húsasmiður leggja gjörva hönd á verkið. 15 tonn af límtrésbitum BÚIÐ er að setja upp limtrésbita í kirkjuskipi Grensáskirkju til að bera uppi þak byggingarinn- ar. Voru þeir settir upp í fyrradag að sögn As- geirs Hallssonar formanns sóknarnefndar. „Það er okkur mjög mikilvægt að geta lokað húsinu fyrir veturinn og að því er stefnt. Þetta er síð- asti stóráfanginn sem verið er ljúka áður en hægt er að sinna minni og viðráðanlegri fram- kvæmdum," segir hann. Límtrésbitarnir eru 14 metrar á hæð, tíu talsins og vegur hver þeirra jim 1V2 tonn. Segir Asgeir það mikla nákvæmnis- vinnu að koma þeim fyrir og hafi það gengið frábærlega vel. Framkvæmdir við nýbygginguna sjálfa hófust snemma í fyrravor en Asgeir segir of snemmt að áætla hvenær þeim Ijúki. Ráðherrar undirbúa fjárlög Sparnaðartillög- ur eftir mánuð RÁÐHERRAR skiptu með sér verkum við undirbúning fjárlaga næsta árs á ríkisstjórnarfundi í gær, en ríkisstjórnin stefnir að því að halli á fjárlögum 1995 verði innan við 10 milljarða króna. „Þetta eru mjög hefðbundin vinnubrögð," sagði Friðrik Soph- usson fjármálaráðherra við Morg- unblaðið. Á fundinum voru sam- þykktir útgjaldarammar fyrir ráðu- neytin og er stefnt að því að tillögur ráðuneytanna um spamað og niður- skurð liggi fyrir eftir rúman mánuð. Miðað við ítrustu útgjaldaóskir ráðu- neytanna stefnir í að halli á fjárlög- unum verði um 20 milljarðar og þurfa ráðuneytin því að skera þau útgjaldaáform niður um helming. Næsta ár er kosningaár og var Friðrik spurður hvort ekki yrði erf- itt að hemja ríkisútgjöld við slíkar aðstæður. Hann sagði að þetta yrði erfitt og menn horfðu auðvitað til ársins 1991 þegar fjárlög, og þó einkum lánsfjárlög, voru notuð til að búa til ný útgjöld ríkissjóðs alveg fram undir kosningar. Hann sagði að nú væri miklu meiri skilningur á því að slík vinnubrögð væru ótæk. Lömuð eftir líkamsárás I samræmd próf áspítalanum STÚLKAN, sem varð fyrir fólskulegri árás tveggja jafnaldra sinna á Lækjartorgi í október sl., liggur á barnadeild Landspít- ala lömuð frá hálsi. Hún getur ekki talað en tjáir sig með svip- brigðum og með aðstoð tölvu. Stúlkan hefur verið í meðferð hjá sjúkraþjálfara en líða tekur að því að hún fari á Reykjalund og verði í áframhaldandi þjálfun þar. Að sögn læknis hefur hún fengið mikla hjálp hjúkrunarfólks og hefur staðið sig mjög vel þrátt fyrir gífurlega fötlun. Stúlkan, sem nýlega er orðin 16 ára, hefur stundað grunnskólanám á sjúkrahúsinu og tók tvö samræmd próf í vor. Önnur stúlknanna, sem að árás- inni stóðu, var af héraðsdómi dæmd til fimm ára óskilorðsbundinnar fangelsisvistar en hæstiréttur mild- aði dóminn í fjögur ár. Hún var 16 ára er hún framdi verknaðinn. Hin stúlkan, sem að árásinni stóð, 14 ára, var ósakhæf vegna aldurs. Eftir árásina var henni kom- ið í vistun á vegum barnarverndar- yfírvalda. Morgunblaðið/Golli Með fullar frystigeymslur TOGARINN Siglir, stærsti togari í eigu Islendinga, skráður í Belize, kom til Hafnarfjarðar í gærmorgun eftir 37 daga veiði- ■'ícrð með afurðir úr 1.500 tonn- um af úthafskarfa. Frystigeymsl- ur skipsins eru fullar og í þeim 500 tonn af hausuðum karfa. Þá kom skipið inn með 200 tonn af mjöli sem unnið var úr 1.000 tonnum af karfa en Siglir mun vera eina skipið í eigu Islendinga , sem fullvinnur afla um borð í ^ijöl þannig að ekkert fer til spillis af því sem um borð kem- ur. Þetta var önnur veiðiferð Siglis og Ragnar Ólafsson skip- stjóri og áhöfn hans eru ánægðir með skipið og sögðu leitun að betra skipi til úthafsveiða. Ragn- ar sagði að Jíklega yrði Siglir í framtíðinni 8-9 mánuði ársins við úthafskarfaveiðar, en skipið var nú meðal um 60 skipa við veiðar suðvestur af Reylyanesi. ■ Afurðirúr 1.500 tonnum/6 ■ Úthafskarfaafli tvöfalt/Cl Atvinnuleysi hefur farið minnkandi á árinu Aukiii vinna kem- ur körlum til góða MINNKANDI atvinnuleysi eftir því sem liðið hefur á árið, hefur einkum komið körlum til góða. Þannig hefur atvinnulausum körlum fækkað um rúmlega 2.300 að meðaltali frá janúar til júní en atvinnulausum konum hefur fækkað um tæplega 1.600. Frá á atvinnuleysisskrám og var þar að Samkvæmt tölum um áætlað at- vinnuleysi, frá Vinnumálaskrifstofu voru alls 5.586 manns atvinnulausir að meðaltali í júní eða sem svarar til 4,2% af mannafla. Þetta eru 710 færri en voru á atvinnuleysisskrá í maí. 3.416 konur voru að meðaltali atvinnulausar í júní en 3.466 í maí og hefur þeim því fækkað um 52. Atvinnulausir karlar voru 2.170 tals- ins í júní en 2.828 í maí og hefur þeim því fækkað um 658. Sem hlutfall af mannafla var 6,1% atvinnuleysi meðal kvenna á landinu í heild í júní en 2,8% atvinnuleysi meðal karla. Af einstökum svæðum er munurinn mestur á Suðurnesjum en þar er atvinnuleysi 6,3% meðal kvenna en 1,8% meðal karla. ■ Um 5.600 manns/11 maí til júní fækkaði um rúmlega 700 mestu leyti um að ræða karlmenn. Yerkfræðingar Laun hækk- að um 8% í NIÐURSTÖÐUM kjarakönn- unar Stéttarfélags verkfræð- inga á heildarlaunum ársins 1993 kemur fram að þau hafa hækkað um 8% milli ára. Á síðasta ári var verðbólgan um 3% þannig að raunhækkun launa er um 5%. í fréttabréfi Stéttarfélags verkfræðinga segir að eftir samdrátt launa fyrir tveimur árum og stöðnun á síðasta ári virðist sem verkfræðingar hafi náð að rétta úr kútnum. Heild- arlaunin hjá verkfræðistofum og þeim sem vinna hjá ríkis- stofnunum séu svipuð og jafn- vel ívfð hærri hjá ríkinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.