Morgunblaðið - 13.09.1994, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
Yinning’ur
gekkút
VITAÐ er um fjóra sem fengu
réttu tölurnar í þýska lottó-
drættinum laugardag og fær
þá hver nær 500 milljónir
króna. Alls voru seldir um 35
milljón miðar í liðinni viku en
íbúar landsins eru um 80 millj-
ónir. Hæsti vinningur hafði
ekki gengið út síðan í júní.
Síðasti frest-
ur á Kúbu
BANDARÍSKA strandgæslan
sagði í gær að skip hennar
hefðu á sunnudag og mánu-
dag fundið rúmlega þúsund
Kúbveija á smáfleytum sem
þeir nota til að komast frá
eyjunni til Florida. Eftir að
hafa gert samning við Banda-
ríkjastjórn hefur kommún-
istastjórn Fidels Castros heit-
ið því að stöðva flóttann frá
og með deginum í dag. Slæmt
veður, eftirhreytur fellibylsins
Debby, virtist ekki draga neitt
úr flóttatilraununum í gær.
Schneider í
Iran?
FULLTRÚAR saksóknara í
Frankfurt í Þýskalandi sögð-
ust í gær hafa vísbendingar
um að Jiirgen Schneider, sem
er á flótta undan réttvísinni
vegna gjaldþrots fasteigna-
fyrirtækis síns og meints
undanskots, sé nú í íran.
Skuldir Schneiders nema sem
svarar nær 215 milljörðum
króna.
Slys en ekki
tilræði
RÚSSNESK yfirvöld skýrðu
frá því í gær að sprenging,
sem varð í tveggja hæða lög-
reglustöð í Moskvu í liðinni
viku og kostaði sex manns
lífið, hefði ekki verið hryðju-
verk, eins og fyrst var talið.
Fréttastofan Interfax sagði í
gær að mikið af olíuúrgangi
hefði fundist undir og við
húsið.
Geislavirk
efni upptæk
ÞÝSKA lögreglan hefur gert
upptæk um 850 grömm af
geislavirku efni sem smyglað
var með flugvél frá Moskvu
til Berlínar. Vélin lenti á Schö-
nefeld-flugvellinum á sunnu-
dag og fannst efnið í farangri
manns frá Zaire. Efnið var
geislavirkt en ekki nothæft í
kjarnasprengju.
Rússar huga
að olíusamn-
ingum
STUTT er í að gengið verði
frá samningum við nokkur
bandarísk olíufyrirtæki, þ. á
m. Texaco, og Norsk Hydro
um olíuvinnslu á nyrstu svæð-
um landsins, að sögn tals-
manns orkumálaráðuneytisins
í Moskvu. Alls er talið að olíu-
birgðir á svæðinu, sem nefnist
Tíman-Petsjora, séu um 700
milljónir tonna og fjárfesting
félaganna verði alls 45- 58
þúsund milljónir dollara.
ÞÓR HF
ÁRMÚLA 11 - BÍMI B81BOO
EPSON STYLUS 300
Hentugur bleksprautuprentari
fyrir skólafólk. Upplausn 360x360
p.á.t. Sjálfvirkur arkamatari fyrir
100 síður fylgir.
Verð aðe/ns kr. 21.900,-
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 19
FRÁBÆRT AFMÆUSTILBOÐ!
inn um bréfalúguna í hverri viku.
Safnmöppu senda ef þú svarar innan tíu daga.
Óvæntan glaðning í hveijum mánuði!
Fríðindakort fjölskyldunnar sem ve'rtir þér
afslátt hjá hátt í 300 fyrirtækjum.