Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
t
Ástkær faðir okkar,
EGGERT ÓLAFSSON,
Búastaðabraut 3,
Vestmannaeyjum,
lést á heimili sínu 9. september.
Halldóra Birna Eggertsdóttir,
Jónas Kristinn Eggertsson.
Ástkær eiginmaður minn, t
CARL HORSTMANN,
lést 9. september 1994. Lára Ásmundsdóttir, Horstmann, 22750 Via Santana Nuevo Cal. 92567-9636 USA.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
DANÍEL JAKOB JÓHANNSSON
fæddur Mortensen,
Bergstaðastræti 64,
áður Bræðraborgarstig 9,
lést á Hafnarbúðum laugardaginn 10. september.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Joan Peter Mortensen, Hanne Mortensen,
María Jakobsdóttir, Jóhannes Guðmannsson,
Marteinn Jakobsson, Helga Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Móðir mín og systir,
EVA SKAFTADÓTTIR,
Skólabraut 3,
Seltjarnarnesi,
er iést 4. september sl., verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju
miðvikudaginn 14. september kl. 15.00.
Þeim sem vildu minnast hennar er bent á heimahlynningu Krabba-
meinsfélagsins.
Ólöf Helga Guðmundsdóttir
og fjölskylda,
Gunnar Skaftason og fjölskylda.
t
Elskulegur eiginmaður minn og faðir
okkar,
EINAR EYFELLS
verkfræðingur,
andaðist í Landspítalanum þann 7.
september.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni
föstudaginn 16. september kl. 10.30.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim,
sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag íslands.
Unnur N. Eyfells og dætur.
t
Minningarathöfn um
JÓHANN PÉTUR SVEINSSON,
verður í Hallgrímskirkju í dag, þriðjudag-
inn 13. september kl. 15.00. Útförin fer
fram frá Reykjakirkju miðvikudaginn 14.
september kl. 15.00. Blóm og kransar
vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem
vildu minnast hans er bent á minningar-
sjóð sem stofnaður hefur verið hjá
Sjálfsbjörg, Landssambandi fatlaðra.
Harpa Ingólfsdóttir,
Herdís Björnsdóttir
Lovísa Sveinsdóttir,
Björn Sveinsson, Sólveig S. Einarsdóttir,
Gísli Sveinsson, Ásta Begga Ólafsdóttir,
Sigriður Sveinsdóttir, Smári Borgarsson,
Ólafur Stefán Sveinsson,
JÓHANN PÉTUR SVEINSSON
Jóhann Pétur eða Jói, eins og
hann var alltaf kallaður í fjölskyld-
unni, var einstakur persónuleiki frá
fyrstu kynnum. Hann bjó yfir sér-
stæðum krafti og kímnigáfu sem
hreif samferðamenn hans og fé-
laga, hvar sem hann fór.
í huga okkar hjónanna hafa und-
anfarna daga birst myndbrot, þar
sem þessi ótrúlegi drengur er í aðal-
hlutverkinu:
Jói er með okkur í bílnum, fimm
ára, reynir að gægjast út um bíl-
gluggann og lesa á öll upplýstu
skiltin sem ber fyrir augu, þá þegar
læs og fullorðinslegur í tali. Allt í
einu heyrist í Jóa úr aftursætinu.
„Jæja, svo þarna er þá Asíufélag-
ið.“ Um hvað er barnið að tala,
okkur finnst þetta bráðfyndið og
botnum ekkert í hvernig hann veit
um tilvist þessa félags sem hann
talar svo kunnuglega um. Jói, sjö
ára, að spila bridds og glettast við
afa og fleiri karla á Bergþórugöt-
unni. Jóhann afi og hann eru mikl-
ir mátar, þeir eru báðir pólitískir
og Jói yngri orðinn framsóknarmað-
ur eins og afi. Jói á fullri ferð á
stólnum á göngum Landspítalans.
Jói að tefla með hópi skólabræðra
úr Hamrahlíðinni í herberginu sínu
í Sjálfsbjargarhúsinu. Jói fær sér
amerískan bíl og ekur um allar
trissur. Jói með stúdentshúfu og
stefnir á lögfræði í Háskóla ís-
lands. Jói fullorðinn, lögfræðingur
og stofnar fyrirtæki með Óla Garð-
ars félaga sínum. Þeir bjóða okkur
í veislu á nýju skrifstofuna á Nes-
inu, boðskortið er fallegt og öðru-
vísi, glas fullt af rauðum beijum.
Jói að dansa á rafmagnsstólnum á
Broadway og berst fyrir því að ská-
bretti verði lagt upp á dansgólfíð.
Jói að syngja með sinni djúpu bassa-
rödd með krökkunum í Norðanbörn-
um, Veirunum og með Skagfírsku
söngsveitinni. Jói og Harpa koma
í heimsókn sl. vetur og segja okkur
gleðifréttir, þau eiga von á erfingja
í nóvember. Jói syngjandi með Ola
bróður á landsmótinu á Heilu í byij-
un júlí. Jói í eldhúsinu á Varmalæk
í endaðan júlí, að vinna í bókhald-
inu, sinna lögfræðistörfunum, tala
í símann, segja brandara, ráðgera
framtíðardraumana í Skagafirðin-
um við Smára mág sinn, mömmu
sína og okkur. Síðasta myndin: Jói
að þjóta yfír í Laugarhvamm á bfln-
um, til að senda fax suður fyrir
miðnætti. Hann er á leið til útlanda
og þarf að drífa ýmislegt af áður.
Já, svo sannarlega lifði Jói hröðu
og viðburðaríku lífi, honum lá alltaf
á að klára hlutina og sumum fannst
hann óþolinmóður. Fyrir ókunnuga
virkaði Jói opinn, en hann var á
vissan hátt dulur og flíkaði lítt sín-
um innstu tilfinningum. Vandamál
voru neðarlega á listanum í orða-
bókinni hans og veikindi voru helst
ekki til umræðu. Gæfa hans var
mikil þegar hann giftist Hörpu, sem
nú sér á eftir ástríkum eiginmanni
allt of fljótt.
Jói var gleðimaður, honum gekk
flest í haginn, var góður námsmað-
ur, skarpur og fylginn sér og vinur
vina sinna. Hann naut þeirra for-
réttinda að vera hreinræktaður
Skagfírðingur, eins og hann sagði
sjálfur. Hann var elskur að heima-
högum sínum, en varð að dvelja
langdvölum hér syðra vegna veik-
inda, sem bam og unglingur. Hann
bætti sér það upp þegar hann eltist
og fannst lítið mál að renna norður
á Varmalæk. Hann átti alveg ein-
staklega góða og skilningsríka for-
eldra og fimm systkini sem studdu
hann vel og gerðu sér grein fyrir
að ekki þýddi að reyna að halda
aftur af elju hans og framtaks-
semi. Þetta kunni hann líka vel að
meta og lét sér annt um skyld-
menni sín. Jói treysti sér yfír flesta
þröskulda og hindranir og fór yfír
margar, sem fullfrískir treystu sér
ekki. Hann barðist alltaf ötull fyrir
bættum hag fatlaðra í þjóðfélaginu
sem félagi, stjórnarmaður og síðar
formaður Sjálfsbjargar, landssam-
bands fatlaðra. Víst er að sæti hans
þar verður vandfyllt, sem og annars
staðar þar sem hann starfaði að
félagsstörfum. Sárastur er missir
eiginkonunnar ungu, móður hans
og systkina.
Nú þegar dimmir að í Skagafirði
og leiðir skilja um sinn, langar o'kk-
ur að þakka fyrir að hafa fengið
að kynnast slíkum dreng sem Jó-
hann Pétur var.
Við vottum Hörpu, eiginkonu
hans, Hebbu móður hans og systk-
inunum Lísu, Bjössa, Óla, Siggu,
Gísla og fjölskyldum þeirra okkar
dýpstu samúð. Við eigum öll eftir
að sakna hans mjög, en minningin
um hann mun ávallt lifa í hjörtum
okkar.
Hjörtur og Kristín.
Fleiri minningargreinar um
Jóhann Pétur Sveinsson bíða
birtingar og munu birtast hér
í blaðinu næstu daga
t
Eiginmaöur minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
GÍSLI JÓNSSON,
bóndi, Blönduhlíð,
Dalasýslu,
er lést 7. september, verður jarðsung-
inn frá Snóksdalskirkju föstudaginn 16.
september kl. 14.00.
Svanhildur Kristjánsdóttir,
Kristján Þ. Gíslason, Rannveig Finnsdóttir,
Helga Gísladóttir, Unnar Laxdal Gíslason,
Inga Jóna Gísladóttir, Ingólfur K. Þorsteinsson,
Magnús Kristjánsson, Oddrún M. Pálsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR
SCHEVING,
Aflagranda 40,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 14. septemberkl. 10.30.
Hannes Scheving, Gunnhildur Magnúsdóttir,
Jón Karl Scheving, Lára Berntsen,
Guðríður Einarsdóttir, Sigurður Á. Finnbogason,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
afi, bróðir og tengdafaðir,
HALLDÓR BECH,
fyrrverandi flugstjóri,
Kötlufelli 5,
Reykjavfk,
sem andaðist á heimili sínu aðfaranótt
10. september, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju, mánudaginn 19. sept-
erhber kl. 13.30.
Lára Bech,
Þórarinn Bech,
Guðný Bech, Jóhann Grétar Gústafsson,
Erla Bech, Baldur Þórisson,
og barnabörn.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
JÓNÍNA SIGRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis að Furugerði 1,
lést á Droplaugarstöðum iaugardaginn 3. september.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum sýnda samúð.
Erla B. Gústafsdóttir, Guðlaugur R. Nielsson,
Guðmundur J. Guðlaugsson, Sigrún Grendal Magnúsdóttir,
Anna Guðlaugsdóttir, Vinccent Steed,
Jón Guðlaugsson, Auður Gísladóttir,
Guðrún Elfn Guðlaugsdóttir, Haukur Hauksson
og barnabarnabörn.
t
Móðir okkar og tengdamóðir,
HELGA ÞORSTEINS,
Markarvegi 2,
Reykjavfk,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju miðvikudaginn 21. september
kl. 13.30.
Blóm og minningargreinar eru afþökkuð að ósk hinnar látnu.
Þeim, sem vilja minnast hennar er bent á hjúkrunarheimilið Sunnu-
hlíð í Kópavogi.
Elísabet Magnúsdóttir, Haukur Frímannsson,
Þorsteinn Magnússon,
Ásdfs Magnúsdóttir, Sigurður Björnsson,
Sigrfður Magnúsdóttir.