Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBÉR 1994 23
LISTIR
Loftur — hinn mjúki
LEIKLIST
Borgarlcikhúsið
ÓSKIN
Höfundur: Jóhann Sigurjónsson.
Leikgerð, ieiksljórn og búningar:
Páll Baldvin Baldvinsson. Leik-
mynd: Stígur Steinþórsson. Hljóð-
mynd: Hilmar Örn Hilmarsson. Lýs-
ing: Lárus Björnsson. Þjálfun: Arni
Pétur Guðjónsson. Frumsýning 10.
september.
ÞAÐ ER í myrkrinu, sem hann
finnur fótfestu og öryggi, Galdra-
Loftur. Án aðstoðar megnar hann
ekki ljósið. Vegvilltur í metnaðar-
lendum föður síns, krefst hann
valds, utan og ofan við menn og
líf; hann vill eiga og ráða yfir valdi
myrkursins. Hann kann enga aðra
leið; tekur það sem hann vill fá,
fær það sem hann vill, hvort sem
það er vinátta, virðing, loforð, bæk-
ur eða konur. Finnur mátt sinn
vaxa og heimtar meira, veit ekki
að hann hefur gengist á hönd sjálf-
seyðingarhvöt sinni; þegar hann
hefur eytt allri von og öllu ljósi úr
lífi sínu, er lífi hans lokið.
Það er hinn eilífi ástarþríhyrn-
ingur sem er öxullinn í leikritinu
um Galdra-Loft. Þegar hann hefur
tælt vinnukonuna, Steinunni, til
fylgilags við sig, verður hún eins
lítils virði og allt annað verður þeg-
ar hann hefur fengið það og hann
vill meira. Biskupsdóttirin, Dísa,
er ung, björt, hrein og saklaus og
passar ekki einungis við framtíðar-
áætlanir Lofts, heldur felur hún í
sér ljósið, sem hann álítur nógu
sterkt til að verða sér til björgun-
ar. Hann er skíthræddur sjálfur við
þá stigu sem hann er að feta en
ætlar þó síður en svo að snúa til
baka. Það er einmitt vegna Dísu
sem hann þorir að halda áfram leit
sinni að mætti myrkursins. Hún á
að verða ljósið sem verndar hann,
skjólið þegar hann gengur of langt.
Með hlutverk Lofts fer Benedikt
Erlingsson og er þetta hlutverk
hans fyrsta, eftir að hann útskrif-
aðist úr Leiklistarskóla íslands. Það
fór ekki á milli mála í Nemendaleik-
húsi síðastliðið ár, að hér er á ferð-
inni mjög efnilegur leikari, sem
hefur gott vald á meginverkfærum
sínum, rödd og líkama. Hins vegar
er það svo að lögnin á Lofti er svo
sérkennileg að nánast engir af hin-
um miklu kostum Benedikts njóta
sín. Loftur, þessi demón, sem er í
senn ómótstæðilegur og fráhrind-
andi, heillandi og ógeðfelldur; per-
sónuleiki sem tekur stórar sveiflur
og heldur öllum í heljargreipum
eyðingarhvatar sinnar og valda-
græðgi sem þróast yfir í mikil-
mennskubijálæði - er bara ekkert
af þessu. Hann er eins og væluleg
pissudúkka; lítil fordekruð rófa og
hefur leikstjórinn Iátið algerlega
hjá líða að nýta þá hæfni, sem
Benedikt hefur til túlkunar á til-
finningasveiflum til að gæða Loft
einhveijum lit. Hann er langt frá
því að vera sannfærandi í höfnun
sinni og skeytingarleysi gagnvart
Steinunni, engan veginn nægilega
örvæntingarfullur í viðleitni sinni
til að halda í Dísu og þróun hans
yfir í þá sturlun sem hefur heltekið
hann þegar hann fer í særingaleið-
angurinn í kirkjuna er ekki til stað-
ar. Hann er of einhliða, polllygn
og mjúkur. Þetta er þeim mun
hrikalegri misgáningur af leikstjór-
ans hálfu, að tveir aðrir leikarar í
sýningunni fylla feikilega vel út í
sínar persónur, kafleika Loft, og
hann tapar fókus.
Sigrún Edda Björnsdóttir leikur
Steinunni og þrátt fyrir ört vaxandi
styrk hennar á sviði síðastliðin ár,
er ekki ijarri lagi að kalla frammi-
stöðu hennar hér leiksigur. Ástleitni
Steinunnar er ljúf og undirgefin.
Það aðdráttarafl sem Loftur hefur
fyrir hana er hrópandi augljóst af
leik Sigmnar Eddu. Stigmagnandi
örvænting hennar og reiði svo vel
unnin að unun er á að horfa. Sigrún
Edda fetar tilfínningaskalann á
’nárnákvæman hátt og nærvera
hennar á sviðinu er svo sterk að
aðrir falla í skuggann.
Ellert A. Ingimundarson leikur
Ólaf, vin Lofts og þann mann, sem
elskar Steinunni og hefur séð til
þess að hún fengi stöðu vinnukonu
á biskupssetrinu. Um leið og Ellert
stígur inn á sviðið, í gervi Ólafs,
fölnar Loftur. Ellert hefur verið
nokkuð þokkalega nýttur á sviði
Borgarleikhússins síðastliðin ár -
en aðallega í hlutverkum ung-
menna. Það kom því hressilega á
óvart að sjá Ellert ganga inn á
sviðið, karlmannlegan og sterkan
og ná að túlka heilsteypta persónu;
sem er tilfinninganæm, opin og
sterk. Hlutverk Olafs er það lang-
besta sem ég hef séð Ellert gera
og er raddbeiting hans og önnur
tjáning svo breytt frá því sem
maður á að venjast að það er eins
og þar fari ekki sami maður. Það
er óhemju gleðilegt að sjá leikara
taka framförum í svona stórum
stökkum og tilhlökkunarefni að
fylgjast með framhaldinu.
Margrét Vilhjálmsdóttir leikur
SIGRÚN Edda Björnsdóttir
og Benedikt Erlingsson í hlut-
verkum Steinunnar og Lofts.
Dísu, dóttur biskups. Eins og Bene-
dikt, útskrifaðist hún úr Leiklistar-
skóla íslands í vor, þar sem Ijóst
var að hún gæti átt glæsilegan
feril í vændum. Ekki verður sagt
að mikið reyni á hana í hlutverki
Dísu, sem er bara ljúf og góð og
svo pínulítið hrædd, enda skilaði
Margrét hlutverkinu vansalaust.
Það er hins vegar með Dísu eins
og Loft, persónan er lítt áhuga-
verð, eins og hún birtist hér.
Theodór Júlíusson leikur ráðs-
manninn, föður Lofts, og hefur ein-
hvern veginn týnt grensunum;
kjagaði um sviðið, stórkarlalegur
og stynjandi og urrandi út úr sér
textanum eins og tugir metra væru
í næsta áhorfanda. Dálítið pínlegt,
þar sem hann átti bara að vera að
tala við son sinn, sem var staddur
í sama herbergi. Hvar var leikstjór-
inn eiginlega þegar Theodór mætti
á æfingar?
Árni Pétur Guðjónsson ieikur
blinda ölmusumanninn, sem mælir
til Lofts þá einu visku, sem gæti
hjálpað honum í lífinu - en fer
auðvitað fyrir ofan garð og neðan
hjá honum. Þetta er lítið hlutverk,
sem Árni Pétur skilaði mjög vel;
hver hreyfing var unnin af stakri
nákvæmni, raddbeiting mjög góð,
sem og textaflutningur. íslenskan
varð svo falleg í munni hans.
Samspil leikmyndar og lýsingar
er einstaklega vel heppnað í sýning-
unni. Hið hátimbraða umhverfi,
sem lokar persónurnar inni í óbæri-
legu návígi svo að útgönguleiðirnar
eru nánast ósýnilegar holur, fellur
vel að verkinu. Látleysið er fallegt
og einfaldar lausnir, á borð við það
þegar stofa Lofts og föður hans
breytist í kirkju, voru mjög
skemmtilega hugsaðar.
Hljóðmyndin gefur sýningunni
mjög sterkan blæ, litar hana mörg-
um þeim tilfinningum, sem ekki eru
til staðar í túlkun og nær á köflum
að breiða yfir misfellur.
Leikstjórnin er gloppótt, eins og
ljóst má vera að framansögðu. Það
er lítið í sjálfu sér við leikgerðina
að athuga en vinnu með leikurum
er dálítið ábótavant. Verkið er að
mestu leyti samsett af díalógum,
það er að segja tveimur persónum
á skrafi, og það með góðan texta,
sem kemst vel til skila. Hins vegar
er ekki nægileg hreyfing á sviðinu.
Persónurnar eru of staðar (nema
Steinunn) og þagnir lítið nýttar.
Sýninguna skortir því þá spennu,
sem hlýtur að vera í kringum per-
sónu eins og Loft. Það er of lítil
áhætta tekin í túlkun alla jafna og
framvindan verður dálítið lygn. Á
móti kemur mjög skýr textaflutn-
ingur. Það fer ekki eitt einasta orð
framhjá manni - og það er vissu-
lega kostur.
Súsanna Svavarsdóttir
URVAL NOTAÐRA BILA
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar
NISSAN PRIMERA 2000, árg. ‘92,
sjálfsk., 4 d., vínrauður, ek. 23
þús. km. Verð 1.390 þús.
TOYOTA COROLLA GL 1300,
árg. ‘92, 5 gíra, 4 d., grár, ek.
38 þús. km. Verð 920 þús.
HYUNDAI ELANTRA 1600, árg.
‘93, sjálfsk., 4 d., blár, ek. 20
þús. km. Verð 1.180 þús.
TOYOTA COROLLA 1300, árg.
‘92, sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 32
þús. Verð 920 þús.
LADA SAMARA 1500, árg. ‘92, 5
gíra, 4 d., rauður, ek. 9 þús km.
Verð 520 þús.
DAIHATSU FEROZA 1600, árg.
‘89, 5 gíra, 3 d., blár/grár. Verð
790 þús.
LADA STATION 1500, árg. ‘90, 5
gíra, 5 d., blár, ek. 60 þús. km.
Verð 290 þús.
MMC LANCER GL11500, árg.
‘91, 5 gíra, 5 d., grár, ek. 42 þús.
km. Verð 980 þús.
TOYOTA TOURING XL 1600, árg.
‘91, sjálfsk., 5 d., rauður, ek. 83
þ. km. Verð 1.040 þús.
MMC GALANT 2000, árg. ‘90, 5
gíra, 5 d., grár, ek. 65 þús. Verð
1.070 þús.
HYUNDAI SONATA 2000, árg.
‘92, 5 gíra, 4 d., grár, ek. 100
þús. km. Verð 1.020 þús.
MMC LANCER 1500, árg. ‘89,
sjálfsk., 4 d., hvítur, ek. 78 þús.
km. Verð 690 þús.
NISSAN SUNNY 1500, árg. ‘88,
sjálfsk., 4 d., rauður, ek. 75 þús.
km. Verð490 þús.
NISSAN SUNNY 1400, árg. ‘92, 5
gíra, 4 d., grænn, ek. 63 þús.
km. Verð 790 þús.
Opið virka daga kl. 9-6, laugardaga kl. 10-14.
1»> NOTADIR
BIIAR
_______814060/631200____
LADA
LADA SPORT 1600, árg. ‘92, 3
d., hvítur, ek. 23 þús. km. Verð
590 þús.