Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 39
MINNINGAR
HILDUR EINARSDOTTIR
FRÍMANN
+ Hildur Einars-
dóttir Frimann
fæddist á Norðfirði
13. desember 1927.
Hún lést á Land-
spítalanum 5. sept-
ember 1994. For-
eldrar hennar voru
Einar Sveinn Frí-
mann kennari og
Brynhildur Jóns-
dóttir. Hún var
yngst fimm systk-
ina, sem voru: Elín,
Sigríður, látin, Jó-
hann, látinn, Asdís
og Hildur, sem hér
er kvödd. Bryn-
hildur var áður gift Guðmundi
Stefáni Bjarnasyni og áttu þau
fjögur börn, Matthildi, Skarp-
héðin, Gunnar og Njál. Eru þau
öll látin nema Njáll, sem býr á
Neskaupstað. Árið 1947 giftist
hún Asgeiri Gíslasyni skip-
stjóra, f. 10. desember 1926,
d. 29. maí 1983. Börn þeirra
eru: Jón, f. 1947, látinn. Gísli,
f. 1949. Brynja, f. 1951, látin.
Sigríður, f. 1958. Ásgeir, f.
1962. Kristín, f. 1964. Útför
Hildar fer fram frá Fossvogs-
kirkju í dag.
Hildur mín er heldur smá
hún er í bláum stakki.
Fegin vill hún fljúgast á
fjörugasti krakki.
(Einar Sv. Frimann.)
Fjörið vantaði ekki í þessa stelpu,
þó ekki væri hún há í loftinu. Hún
var yngst okkar fimm alsystkin-
anna. Skapgóð og stríðin var sú
stutta og kunni vel að svara fyrir
sig. Þannig eru minningar mínar
um hana frá bernskuárum okkar í
Neskaupstað.
Við vorum ungar þegar foreldrar
okkar slitu samvistir. Skildu þá leið-
ir okkar í nokkur ár. Ég var sett í
fóstur á þessum tíma, en Hildur og
tvö eldri systkin mín fylgdu móður
okkar, sem gerðist ráðskona úti á
landi. Elsta systirin var orðin það
stálpuð að hún gat farið að vinna
fyrir sér.
Aftur hittumst við systur ekki
fyrr en við vorum 17 og 19 ára
gamlar. Þá vorum við báðar fluttar
suður. Hildur til Hafnarfjarðar og
ég til Reykjavíkur.
Hildur giftist tæplega tvítug Ás-
geiri Gíslasyni skipstjóra. Alla tíð
var mjög gott samband milli okkar
systranna. Við deildum saman gleði
og sorgum. Því miður knúði sorgin
oft dyra hjá fjölskyldu hennar sfð-
ustu árin. Nú, þegar ég lít til baka,
þykir mér vænt um að hún skyldi
ERFIDRYKKJUR
d!^
P E R l a n sími 620200
Erfklrvkkjur
Glæsileg kaffi-
Íilaðborö fellegir
Síilir og mjög
góð þj(|Susta.
llpplýsingar
í síma 2 23 22
FLUGLEIDIR
BÍTEL Ltmtlllt
leita til mín eftir hjálp
og stuðningi á þessum
tímum. Eins og títt er
um sjómannskonur
lenti uppeldi bamanna
og ýmislegt sem til-
heyrir heimilinu á hús-
móðurinni, þar sem
húsbóndinn var oft
langan tíma að heiman
og hafði stutta viðdvöl
í landi.
Móðir okkar bjó alla
tíð á heimili þeirra
hjóna, enda vom þær
mjög samrýndar. Það
var mikil vinna að
koma upp sex börnum
og því mikill styrkur að hafa góða
móður sér við hlið.
Við hjónin vottum bömum,
bamabömum og bamabamabörn-
um Hildar innilega samúð. Mig
langar að kveðja kæra systur með
eftirfarandi versi.
Hér við skiljumst
og hittast munum
á fenginsdegi fira;
drottinn minn
gefi dauðum ró,
en hinum likn sem iifa. _
(Úr Sólarljóðum)
Ásdís Einarsdóttir.
Systir mín Hildur, var mjög bam-
góð og eldri bömin mín kölluðu
hana alltaf góðu frænku. Hún var
sínum bömum góð móðir og þeirra
stoð ef eitthvað amaði að. Mér var
hún mjög trygg og góð. Við vomm
mjög samrýndar enda var hún allt-
af litla systir.
Hildur mín, ég veit að vel verður
tekið á móti þér af þeim sem em
famir á undan þér.
Ég þakka alla ástúð sem þú gafst
mér og mínum börnum.
Blessuð sé minning þín.
Elín.
Ástkær móðir mín, Hildur Ein-
arsdóttir Frímann, lést á Landspít-
alanum 3. september síðastiiðinn.
Mig langar með örfáum orðum að
kveðja móður mína. Við systkinin
vomm sjö talsins, en fjögur okkar
em eftirlifandi. Faðir okkar, Ásgeir
Gíslason skipstjóri, lést 1983, þá
56 ára að aldri. Jón, sem var okkar
elstur, lést 27 ára gamall, síðan
andaðist óskírður drengur, sem
fæddist aðeins ári á eftir Jóni, sem
ungbarn. Brynja systir var þrítug
er hún iést. 011 þessi áföll sem
móðir mín gekk í gegnum era
óskýranleg, en alltaf var hún sterk,
og alltaf gat hún tekið inn á sig
ættingja sem áttu um sárt að binda.
Heimili okkar á Sunnubraut í Kópa-
vogi stóð ættingjum okkar alltaf
opið og gestagangur var tíður. Hún
tók vel á móti gestum, enda var
hún gestrisin með eindæmum. Móð-
ur sína var hún með á heimili okk-
ar, og var amma Brynhildur búsett
hjá okkur þar til hún lést.
Síðustu vikumar fyrir andlát
móður minnar gleymast aldrei. Við
áttum yndislega daga saman áður
en hún andaðist. Það var á fallegum
stað á Spáni. Aldrei kvartaði hún
yfír veikinum sínum, enda var hún
hetja. Ég fæ henni aldrei fullþakkað
allt sem hún gerði fyrir mig og
bömin mín tvö. Hennar verður sárt
saknað.
Sigríður Ásgeirsdóttir.
t
Eiginmaður minn,
OLAV MARTIN HANSEN,
offsetprentari,
Skipholti 42,
Reykjavik,
verður jarösunginn frá Kristskirkju
Landakoti þriðjudaginn 13. september
kl. 13.30.
Blóm eru vinsamlega afþökkuð en þeim
sem vilja minnast hans er bent á minningarkort styrktarsjóðs
Sophiu Hansen, Börnin heim, sími 684455.
Guðrún H. C. Hansen.
t
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR P. GESTSSONAR,
verslunarmanns
Hverfisgötu 57,
Reykjavík.
Rannveig Jónsdóttir,
Ragnheiður Kr. Sigurðardóttir.Magnús Reynisson,
Rannveig Elsa og Reynir.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför eigin-
konu minnar, móður okkar, tengdamóð-
ur, ömmu og langömmu,
JÓHÖNNU FANNEY ÓLAFSDÓTTUR,
Gnoðarvogi 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til Theodórs Sigurðs-
sonar, læknis, og starfsfólks gjörgæslu-
deildar Borgarspítalans.
Haraldur Snorrason,
Ólafía Haraldsdóttir,
Adólf Haraldsson,
Lilja Haraldsdóttir, Björn Pálsson,
Fjóla Haraldsdóttir, Ólafur Pélsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og út- för móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, BRYNHILDAR ÞÓRARINSDÓTTUR frá Hjaltabakka. Sigriður Jónsdóttir, Ásgeir Guðmundsson, Loftur Jónsson, Ásta Hávarðardóttir, Katrín Jónsdóttir, Gunnhildur Jónsdóttir, Gunnar M. Hansson, Þórarinn Jónsson, Anna Kristín Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ár
t Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginmanna okkar, JÓHANNS PÉTURS JÓNSSONAR brunavarðar, Hraunbæ 162 °g MAGNÚSAR KRISTJÁNS HELGASONAR brunavarðar og ökukennara, Háaleitisbraut 133. Ingibjörg og fjölskylda Guðrún og fjölskylda.
Lokað verður í Hjálpartækjabanka RKI og Sjálfsbjargar, Hátúni 12, í dag, þriðjudaginn 13. september, eftir hádegi vegna minningarathafnar um JÓHANN PETUR SVEINSSON. <
Lokað Skrifstofan okkar verður lokuð dagana 13. og 14. september vegna minningarathafnar og jarðarfar- ar JÓHANNS PÉTURS SVEINSSONAR, hdl. Lögmenn Seltjarnarnesi.
Lokað Skrifstofa Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, verður lokuð þriðjudaginn 13. september og mið- vikudaginn 14. september, vegna minningarat- hafnar og útfarar JÓHANNS PÉTURS SVEINS- SONAR, formanns Sjálfsbjargar. Þó verður tekið á móti framlögum f nýstofnaðan minningarsjóð um Jóhann Pétur, í símum 17868 og 29133 báða dagana og hægt verður að senda minningarkort til eftirlifandi eiginkonu hans og ættingja. Framlög í minningarsjóðinn má einnig leggja beint inn á ávísana reikning 1959 í Sparisjóði vélstjóra, Borg- artúni 18 í Reykjavík. Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra.
Lokað Eftirtaldir staðir á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Reykjanesi, verða lokaðir vegna minning- arathafnar um JÓHANN PÉTUR SVEINSSON, lögfræðing, frá kl. 13.00-17.00 í dag. Skrifstofa, Digranesvegi 5, Kópavogi. Starfsþjálfunarstaðurinn Örvi, Kársnesbraut110, Kópavogi. Þjónustumiðstöðin á Suðurnesjum, Hafnargötu 90, Keflavík.
Lokað Skrifstofa Vinnu- og dvalarheimilis Sjálfsbjargar verður lokuð þriðjudaginn 13. september og mið- vikudaginn 14. september vegna minningarat- hafnar og útfarar JÓHANNS PÉTURS SVEINS- SONAR formanns stjórnar Vinnu- og dvalarheimil- is Sjálfsbjargar og Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra. Einnig verður Dagvist, Endurhæfingarstöð og Sundlaug Sjálfsbjargar lokuð þriðjudaginn 13. september. Vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar.