Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 13.09.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 13. SEPTEMBER 1994 33 MIIMNINGAR legur í sumum málum, en eftir á a.ð hyggja þá var hann bara heill í sínum skoðunum og talaði hreint út um þær. Ámundi hafði líka mjög gaman af því að láta hugann reika aftur í tímann og þá kallaði hann fram hinar ýmsu persónur og at- burði sem urðu á vegi hans á lífs- leiðinni. Þó svo að ég hafi nú sjald- an náð að þekkja allar þær persón- ur sem hann sá svo Ijóslifandi fyrir sér, þá fannst mér ég kynnast þeim smátt og smátt eftir því sem sög- urnar urðu fleiri og voru sagðar oftar. Þessar sögur veittu mér ómælda ánægju og gáfu mér innsýn í líf og störf Ámunda og annarra Hafnfirðinga hér á árum áður. Eitthvert kvöld þegar við sátum og vorum að spjalla saman, senni- lega eftir dýrindis máltíð á Mið- vanginum, fór Ámundi að tala um þann tíma sem hann var í sveit. Þá kom í ljós að ég hafði verið í sveit á sama stað og hann, á bæn- um Hróarsholti sem er í Villinga- holtshreppi í Flóanum. Þá var ákveðið að heimsækja fornar slóðir við fýrsta tækifæri. Það var svo sumarið 1993 að það tækifæri kom. Ég og nafni minn Gunnar Ámunda- son fórum ásamt Ámunda og skoð- uðum þennan stað þar sem Ámundi og ég höfðum báðir verið vinnu- menn. Þennan sama dag keyrðum við líka um sveitir Suðurlands og hafði Ámundi frá nógu að segja, enda fæddur í Bjólu Í Djúpárhreppi í Rangárvallasýslu. Ég vil þakka Ámunda Eyjólfssyni samfylgdina þann stutta en ánægjulega tíma sem við áttum saman. Gunnar Beinteinsson. Ég var ekki hár í lofti þegar leið- ir okkar Ámunda Eyjólfssonar lágu saman. Hann starfaði þá sem bif- reiðastjóri við fyrirtæki afa míns, Einars Þorgilssonar. Hann var einn af föstum starfsmönnum þess fýrir- tækis um fimmtán ára skeið. Þar var því æði oft sem ég naut þess að sitja í vörubifreiðinni hjá Ámunda og fylgjast með öllum hans störfum hjá fyrirtækinu. Samviskusemi, skyldurækni og háttvísi einkenndu öll hans störf, svo og mikill áhugi á velgengni fyrirtækisins. Hvenær sem á þurfti að halda var hann reiðubúinn og því starfsdagurinn oft á tíðum lang- ur. Síðari heimsstyijöldin breytti ýmsu í atvinnuháttum okkar, m.a. fiskvinnslunni. Ámundi hvarf þá til annarra starfa. Hjá Skipasmíða- stöðinni Dröfn hóf hann nám í húsa- smíði 1949 og lauk meistaraprófi. Síðar starfaði hann hjá Skipasmíða- stöðinni Nökkva, eða þar til að hann hætti störfum fyrir aldurs sakir. Ámundi Eyjólfsson starfaði mikið í Sjálfstæðisflokknum, hvort heldur var í málfundafélaginu Þór eða í t FRYSTIKISTUR I ^iiiiiTiiMmimiiiiiNiiiim 210 Itr. 1 karfa 36.780 stgr. 320 Itr. 1 karfa 42.480 stgr. 234 Itr. 2 körfur 41.840 stgr. 348 Itr. 3 körfur 47.980 stgr. 462 Itr. 4 körfur 55.780 stgr. 576 Itr. 5 körfur 64.990 stgr. VISA og 1 :URO raðgreiðslur II án útb. MUNALÁN m/25% útb. o Fyrsta flokks frá /ponix HÁTÚN (>B SÍMI (91)24420 iiilvilfiU «1 motald Innbjggð, utaiiáliggjandi, PCMCIA frá kr. 10.000,- 3éBGÐEIND~ Austurslrönd 12. Sími 612061. Fax 612081 k__________________ fulltrúaráðinu. Hann var ötull tals- maður sjálfstæðisstefnunnar og lá ekkert á skoðunum sínum þar sem hann kom. Þegar Ámundi Eyjólfsson er allur færi ég honum þakkir fjölskyldu minnar og þess fýrirtækis sem hann starfaði lengi hjá. Ég veit að sjálf- stæðismenn kveðja ötulan samheija með þakklæti. Við biðjum honum Guðs blessunar og sendum sonum hans og fjölskyldum þeirra samúð- arkveðjur. Matthías Á. Mathiesen. Ámundi Eyjólfsson, húsasmíða- meistari, nágranni minn og foreldra minna, hafði ekki gengið heill til skógar undanfarið. Fór hann dult með það eins og aðra erfiðleika sem hann upplifði í lífinu og lá skamma stund á sjúkrahúsi áður en hann kvaddi þennan heim, enda ekki einn af þeim sem notaði heilbrigðiskerfið meira en þörf var á. Ámundi var ekkill þegar hann lést. Hann og kona hans sem við kölluðum alltaf Helgu Ámunda eignuðust þijá syni. Hús Ámunda var það snyrtilegasta í litlu götunni okkar og má segja að útihurð þess hafi verið hreinasta augnayndi, enda var það jafnmikill vorboði og koma lóunnar þegar hann byijaði að skrapa og lakka hurðina ár hvert. Ámundi var alla tíð grannur og léttur á sér og virt- ist viðhald hans á húsinu, þar er hann klifraði upp og niður stigann eins og unglingur, auðvelt, svo hönduglega vann hann hlutina. Borin var virðing fyrir þessu húsi og íbúunum. Sem barn stytti maður sér ekki leið í gegnum garðinn nema lífið lægi við og stal eiginlega aldr- ei rófum, alltént var reynt að friða samviskuna með því að stela aðeins litlum rófum. Á hveiju vori þegar byijað var að stinga upp kartöflu- beðið í garðinum okkar kom Ámundi lallandi, teygði sig yfir tré- verkið og gaukaði að okkur fötu með útsæði. í rúm 45 ár hafa for- eldrar mínir og Ámundi búið saman hlið við hlið, samgangurinn ekki mikill en alltaf svo notalegur. Skrafað var löngum stundum sam- an í garðinum á góðum sumardög- um. Munað eftir tyllidögum, synir leikfélagar og heilsast að hætti Ámunda með því að lyfta hendinni hátt, hátt upp í loftið. Við kveðjum með söknuði og sendum aðstandendum samúðar- kveðjur. Drottinn, taktu vel á móti vini okkar, Ámunda Eyjólfssyni. Sigríður J. Jónsdóttir og fjölskylda. HANDSALK > HANDSALŒ -----n> KIVSQNVH EIVSGNVH L LANDSVIRKJUN UTBOÐ SKULDABREFA KR. 250.000.000 -krónur tvöhundruð og fimmtíu milljónir OO/IOO- FLOKKUR 2/1994 A Lánstími: Fastir vextir: Útgáfudagur: Gjalddagi: Gjalddagar vaxta: Grunnvísitala: Sölutímabil: Einingar bréfa: Skráning: Umsjónaraðili: 8 ár 4,90% 12. september 1994 12. september 2002 12. september ár hvert 3373 stig 12. sept. til 12. nóv. 1994 Kr. 1.000.000 og kr. 5.000.000 Verðbréfaþing íslands Handsal hf. HANDSALŒ > Verðtrygging og ávöxtun: Skuldabréfin eru verðtryggð miðað við hækkun lánskjaravísitölu. Ávöxtun, umfram verðtryggingu, er 5,15% á útgáfudegi. Útboðs- og skráningarlýsing liggur frammi hjá Handsal hf., sem jafnframt verður viðskiptavaki bréfanna á Verðbréfaþingi íslands September 1994 HANDSAL HF. LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI. AÐILI AÐ VERÐBRÉFAFINGI ÍSLANDS ENGJATEIGI 9.105 REYKJAVlK . SÍMI 686111 . FAX 687611 HANDSALŒ il> Eitt blab fyrir alla! - kjarni málsins! IYKO C*. JP í fuillliri breidd # # x»... í verslunum BYKO og Byggt og Búið bjóðast stór og smá heimilistæki á hagstæðu verði. yf kæliskApur ME 140 Kælir: 131 lítrar Frystir: 7 lítrar Hæð: 85 cm Breidd: 50 cm Dýpt: 56 cm Skiptiborö 41000, 641919 msm msm Hólf oggólf, afgreiðsla 641919 wmBXEimm UNDIRBORÐSOFN HM 10 W Blástursofn 5 stillingar Grill og blástursgrilI KR. 39.700,- CQQDBSÐ HELLUBORÐ IP 04 R W 4 steyptar hellur casna Almenn afgreiðsla 54411, 52870 Almenn afgreiösla 629400 finainiM KR. 14.900,- fCIIWTO Almenn afgreiðsla 689400, 689403 Grænt númer 996410 ARISTON Falleg, sterk og vönduð (tölsk heimilistæki N G L U N N I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.